19.04.1963
Efri deild: 80. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1292)

243. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram í tilefni af ræðu hv. 10. landsk. þm. (SB), að ég lít ekki á samþykkt þessa frv. sem endanlega eða frambúðarafgreiðslu á fjárþörf félagsheimilasjóðs og raunar ekki Þjóðleikhússins heldur, sem er hinn aðilinn, sem skemmtanaskattsins nýtur. Ég er alveg sammála því, sem kom fram í ræðu hv. þm., að til þess beri hina brýnustu nauðsyn að efla fjárhag félagsheimilasjóðs og það meira að segja mjög verulega, því að hann gegnir, eins og hv. þm. tók fram, alveg sérstöku menningarhlutverki, bæði í bæ og byggð. En reynslan hefur sýnt, að þær tekjur, sem honum hefur verið séð fyrir, eru ekki nægilegar til þess, að sjóðurinn hafi getað gegnt hinu mikilvæga hlutverki sínu eins vel og æskilegt hefði verið. Þetta frv., sem hér er flutt. er að vísu mikil bót frá því, sem verið hefur, bæði að því er snertir félagsheimilasjóð og Þjóðleikhúsið, en ég vil að gefnu þessu tilefni taka fram, að ég tel málinu ekki lokið með þessu, og ég mun stuðla að því, að málinu verði haldið vakandi, og alveg í samræmi við þá skoðun, sem fram kom hjá hv. þm., að haldið verði áfram leit að frekari leiðum til þess að bæta hag félagsheimilasjóðsins og efla hann.