19.04.1963
Neðri deild: 80. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)
243. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. Ed. gerði eina mjög smávægilega breytingu á þessu frv. Hv. menntmn. Ed. lagði til samhljóða að breyta 3. gr. frv., svo sem nú skal greina. Eins og hv. Nd. samþykkti gr., hljóðar hún svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðh. skal heimilt að endurgreiða eða feila niður skemmtanaskatt af leiksýningum frá 1. jan. 1963 að telja.“
Hv. menntmn. Ed. lagði til, að inn í gr. yrði bætt heimild til þess að fella niður skemmtanaskatt af sýningu fræðslukvikmynda frá 1. jan. 1963, en endurgreiða áður innheimtan skatt af fræðslukvikmyndum, sem sýndar hafa verið eftir 1. jan. 1963. Nefndin í Ed. lagði þetta einróma til, og hv. Ed. samþykkti þessa breyt. á frv, einróma. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að hið sama gerist í þessari hv. deild.