07.03.1963
Efri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

32. mál, landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft mál þetta til athugunar, svo sem fram kemur á þskj. 339. Mælir n. einróma með því, að frv. verði samþ.

Sú breyting, sem frv. þetta felur í sér, er einungis í því fólgin að hækka lántökuheimild til handa ríkisstj. í því augnamiði að auka við eða stækka landshöfnina í Keflavík og Njarðvíkum. Núv. heimild mun vera bundin við 15 millj. kr., en skv. frv. er lagt til, að upphæðin verði hækkuð í 70 millj. kr. Í umsögn vita- og hafnarmálastjóra, en hann mælir með samþykkt frv., kemur það fram, að hann telur, að upphæð sú, er hér um ræðir, muni nægja til þess og vera jafnvel nokkru meiri en ráðgert sé að framkvæma fyrir í næstu framtíð. Verður að telja eðlilegt, að lánsheimildin sé það rúm, að ekki þurfi til þess að koma að leita lagabreyt. í þessu skyni mjög ört.

Ég tel ekki, að ástæða sé til þess að ræða sérstaklega um þá miklu nauðsyn, sem á því er að auka og stækka landshöfnina í Keflavík, en um það mál munu allir, sem til þekkja, vera á einu máli, enda má telja, að hlutverk hafnarinnar hafi á síðari árum náð langt út yfir það að þjóna þeirri þörf, sem um er að ræða í Keflavík og Njarðvíkum, einum saman. Aðrar útgerðarstöðvar á Suðurnesjum hafa einnig og munu í framtíðinni njóta góðs af þeirri aðstöðu, sem landshöfnin getur veitt, eftir að ráðizt hefur verið í stækkun hafnarinnar og hún aukin og endurbætt, eins og nú er fyrirhugað.

Ég mun svo ekki orðlengja frekar um mál þetta, en geri það að tillögu minni, að það verði að lokinni þessari umr. samþ. og vísað til 3. umr.