21.02.1963
Efri deild: 47. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1382 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)
105. mál, dýralæknar
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Ég gat um við 2. umr. þessa máls, að e.t.v. yrði það niðurstaðan, að landbn. flytti brtt. við frv., áður en til 3. umr. kæmi. Nú hefur landbn. orðið sammála um að leggja til svofellda brtt.:
„Við 1. gr. Í stað 8. tölul. komi tveir töluliðir: 1) Vestur-Húnaþingsumdæmi: VesturHúnavatnssýsla og Strandasýsla að Arneshreppi. 2) Austur-Húnaþingsumdæmi: AusturHúnavatnssýsla:
Þessi brtt. er flutt að beiðni héraðsbúa norður þar, studd af héraðsdýralækninum í Húnaþingsumdæmi og yfirdýralækni hér í Reykjavík, Ég held, að það þurfi ekki að hafa neina framsögu um þetta mál. Þetta umdæmi er mjög stórt og stærra en það, að einn dýralæknir anni því að sinna þar öllum ferðalögum. Öll þau ferðalög, sem þar eru, eru svo mikil, að hann á mjög erfitt með að anna því að sinna svona stóru umdæmi. Þetta er hliðstætt því að skipta Eyjafjarðarumdæmi, sem samþ. var hér við 2. umr. Þó að sé nokkru færra af búfénaði á þessu svæði, þá er umdæmið svo stórt, að einn dýralæknir er ekki talinn geta annað því. Sem sagt, landbn. er sammála um að leggja til, að þessi breyt. verði samþykkt.