26.11.1962
Neðri deild: 21. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1384 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)
104. mál, verkfræðingar
Frsm. (Jónas G. Hafnar):
Herra forseti. Iðnmrn. hefur með bréfi farið þess á leit við iðnn., að n. kynnti sér efni þessa frv. og flytti það á yfirstandandi Alþingi, ef hún teldi sér það fært. N. hefur athugað frv. og orðið sammála um flutning þess, en einstakir nm. hafa áskilið sér að hafa óbundnar hendur um afgreiðslu málsins.
Eins og fram kemur í grg. með frv., er aðalnýmæli þess það, að lagt er til, að heitið tæknifræðingur verði tekið upp sem starfsheiti þeirra manna, sem nú nefnast iðnfræðingar samkv. l. nr. 24 frá 13. júní 1937, um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara eða iðnfræðinga; enn fremur, að tæknifræðingur megi nota orðið „ingeniör“ í sambandi við starfstitil sinn, en verkfræðingur noti samsvarandi erlent starfsheiti (diplom-ingeniör eða civil-ingeniör).
Flestir þeirra manna hér á landi, sem leyfi hafa fengið samkv. l. nr. 24 frá 1937 til að kalla sig iðnfræðinga, hafa lokið prófi í Danmörku, Noregi, Svíþjóð eða Þýzkalandi frá tækniskólum, sem í þessum löndum útskrifa menn, sem þar nota starfsheitið „ingeniör“, en verkfræðingar nota þar starfstitilinn „civilingeniör“ eða „diplom-ingeniör“. Samkv. þessu frv. er því ætlazt til, að þeim mönnum, sem lokið hafa prófi frá viðurkenndum tækniskólum erlendis, skuli heimilt að bera það starfsheiti, sem erlendir menn mega nota að loknu prófi.
Iðnfræðingar hafa haldið því fram, að bannið við að nota starfsheiti það, sem sams konar námi fylgir erlendis, hafi mjög dregið úr áhuga ungra manna til tæknifræðináms erlendis. Í grg. með frv. er á það bent, að verkfræðingar séu nú nær fjórfalt fleiri hér á landi en iðnfræðingar og sé það hlutfall mjög á annan veg en æskilegt sé talið miðað við reynslu annarra þjóða.
Iðnfræðingar hafa stofnað með sér félag, sem þeir nefna Tæknifræðingafélag Íslands, og hefur frv. þetta verið samið vegna beiðni þess. Bæði Verkfræðingafélag Íslands og Arkitektafélag Íslands hafa lýst sig andvíga þeirri breytingu, sem í frv, felst. Iðnn. mun ræða við þessa aðila, þegar þar að kemur, og kynna sér rök þeirra og viðhorf.
Ég legg svo til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umr., en það er flutt af n., eins og fram hefur verið tekið.