06.12.1962
Efri deild: 27. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
88. mál, almannatryggingar
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Í 3. gr. þessa frv. er gert ráð fyrir 7% hækkun á vissum bótum almannatrygginga, 7% hækkun frá 1. júní 1962. Þessi hækkun á að ná aðeins til nokkurs hluta bóta, sem fjallað er um í II. kafla laganna um lífeyristryggingar. Hins vegar koma ekki til greina í þessu frv. neinar hækkanir á öðrum bótum almannatrygginga, svo sem sjúkratryggingum eða slysatryggingum. Þessi hækkun nær því aðeins til eins kaflans í almannatryggingalögunum, og við því er út af fyrir sig ekkert að segja. En það, sem mér finnst athugavert, er, að hækkunin skuli aðeins ná til nokkurs hluta þeirra bóta, sem um ræðir í þessum kafla um lífeyristryggingarnar. Hækkunin á aðeins að ná til ellilífeyris og þess örorkulífeyris, sem um er rætt í II. kafla laganna, en alls ekki til alls örorkulífeyris.
Í II. kafla laganna, kaflanum um lífeyristryggingar, segir svo í 12. gr.: „Lífeyristryggingarnar taka til ellilífeyris, örorkulífeyris, makabóta, fjölskyldubóta, barnalífeyris, mæðralauna, fæðingarstyrks, ekkjubóta og ekkjulífeyris.“ Og eins og ég tók fram, á hækkunin um 7% frá 1. júní þessa árs aðeins að ná til ellilífeyris og örorkulífeyris. Hækkunin á ekki að ná til makabóta, fjölskyldubóta, barnalífeyris, mæðralauna, fæðingarstyrks og ekkjulífeyris. Nú er ég þeirrar skoðunar, að um fjölskyldubætur gildi nokkuð sérstakar reglur, einkum siðan reglum um fjölskyldubætur svo og upphæð fjölskyldubóta var breytt árið 1960. Og mér finnst í sjálfu sér ekkert óeðlilegt, úr því að undantekningar eru gerðar um hækkun á bótum laganna, að þá komi til greina, að fjölskyldubætur falli hér út úr. En ég skil ekki, hvers vegna makabætur fá ekki að hækka, barnalífeyrir fær ekki að hækka, mæðralaun fá ekki að hækka eða ekkjubætur, úr því að um hækkun er að ræða yfirleitt.
Ég vil ekki verða til þess í sjálfu sér að tefja framgang þessa frv. En mér finnst jafnfráleitt að vekja ekki athygli á þessu misræmi, því að ég held, að í þessu misræmi felist ósanngirni gagnvart bótaþegum. Ég heyrði ekki í ræðu hæstv. félmrh. um daginn, hver væri skýring á þessari mismunun, hvers vegna ellilífeyrir og örorkubætur væru teknar hér út úr, en bætur eins og mæðralaun og ekkjubætur og barnalífeyrir hafa ekki fengið að fljóta með. En ég get ekki annað skilið en hér sé um að ræða mál, sem verður að teljast sanngirnismál, að allar þessar bætur þessa kafla laganna fái að fylgjast að.
Hv. 1. þm. Norðurl. e. og ég flytjum á þskj. 156 brtt. við 3. gr. frv., og sú brtt, felur í sér leiðréttingu á þessu misræmi. Við leggjum til, að 3. gr. orðist svo:
„Ellilífeyrir, örorkubætur, makabætur, barnalífeyrir, mæðralaun, fæðingarstyrkur, ekkjubætur og ekkjulífeyrir skv. II. kafla laga nr. 24 29. marz 1956, um almannatryggingar, sbr. síðari breytingar á þeim lögum, skal hækka um 7% frá 1. júní 1962.“
Hér eru enn, eins og í frv., undanskildar fjölskyldubætur, og það er af því, eins og ég tók fram áðan, að við teljum, að um þær geti gilt nokkuð aðrar reglur en um aðrar bætur í þessum kafla.
Ég vil að lokum taka það fram sem mína persónulegu skoðun, að ég tel þessa hækkun of litla, 7% hækkun, þegar um er að ræða bætur almannatryggingalaganna. Ég tel líka, að bæturnar hefðu átt að ná til allra bóta almannatrygginganna, en ekki aðeins lítils hluta þeirra. Ég hefði talið affarasælast og bezt að leysa þennan vanda með því að verðtryggja bætur þeirra, sem hér um ræðir, þannig að bæturnar hækkuðu í samræmi við hækkandi verðlag og vaxandi dýrtíð, eða að þær breyttust með vísitölu. Um þetta hef ég ásamt öðrum hv. þm. flutt frv. hér, sem er nú í athugun hjá nefnd, en ég hef ekki viljað hreyfa því máli nú frekar, til þess að sem minnst yrði til tafar á afgreiðslu þess stjórnarfrv., sem hér liggur fyrir. En fram hjá þessu fannst mér ég ekki geta komizt, að gera athugasemdir um þá ósanngirni, sem mér finnst gæta í 3. gr. þessa frv.