19.03.1963
Efri deild: 58. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)

104. mál, verkfræðingar

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv, það, sem hér er til umr. og komið er frá hv. Nd., fjallar um það efni eitt, ati inn í starfshettalögin um verkfræðinga og húsameistara bætist orðið tæknifræðingur, sem starfsheiti þeirra manna, sem nú nefnast iðnfræðingar skv. l. nr. 24 13. júní 1937, um rétt manna til að kalla sig starfsheitum eins og ákveðið er í lögum þessum, enn fremur, að tæknifræðingur megi nota orðíð „ingeniör“ í sambandi við starfstitil sinn, en verkfræðingur noti samsvarandi erlent starfsheiti, eða „diplom-ingeniör“ eða „civil-ingeniör“. Þar sem breyta þurfti meir en helmingi gr. í l. nr. 24 1937 vegna þessara nýmæla og annars, sem minna máli skiptir, sbr. 8. og 9. gr., og auk þess fyrirsögn 1., þótti betur henta að orða frv. þetta sem frv. til heildarlaga en breyt. á fyrrnefndum lögum.

Iðnn. hefur rætt málið og hefur orðið sammála um sömu afgreiðslu á því og gerð var í hv. Nd., þ.e.a.s. nefndin mælir með samþykkt frv. Einstakir nm. áskilja sér þó rétt til að flytja eða fylgja brtt., eins og fram kemur á þskj. 415, en einn nefndarmanna, hv. l. þm. Vesturl., var fjarstaddur afgreiðslu málsins í nefnd. N. mælir sem sagt með samþykkt frv.