04.02.1963
Efri deild: 36. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1388 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)

126. mál, sala Bakkasels í Öxnadalshreppi

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég álít, að þetta mál, sem hér er hreyft, sé þannig varið, að það sé full ástæða til þess fyrir hv. þd. og þá n., sem kann að fá það til meðferðar, að íhuga það allvel, áður en hv. n. eða hv. þd. stuðlar að því, að það verði samþ. Ég álít a.m.k., að þarna sé um jörð að ræða, sem hefur svo sérstæða þýðingu, að það sé mjög varhugavert að gera ráðstafanir í sambandi við hana, sem gætu orðið til þess að torvelda ábúð á henni í framtíðinni. Það, sem ég á hér við, er sú þýðing, sem sú jörð getur haft fyrir öryggi á einni fjölförnustu og jafnframt oft og tíðum hættulegustu vetrarleið, sem til er á Íslandi.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að það er lagt mikið kapp á að halda norðurleiðinni, sem er eina samgönguæðin á landi milli Suðurlands og eystri hluta Norðurlands og Austurlands, opinni á vetrum vegna þeirrar miklu þýðingar, sem þessi leið hefur fyrir atvinnulíf í fjölmennum landshluta. Er þar ekki sízt til að nefna, hvaða þýðingu þessi leið hefur fyrir allt atvinnulíf á Akureyri og þá ekki sízt iðnaðinn þar og verzlunina. Það hefur færzt æ meira í vöxt á síðustu árum, að iðnaðarvarningur, sem framleiddur er á Akureyri, er fluttur með bifreiðum til Reykjavíkur, og verzlunin fær mjög mikinn og sífellt stærri hluta af sínum varningi fluttan með bifreiðum þessa leið. En það er kunnugt, að einn sá kaflinn á þessari leið, sem er erfiðastur yfirferðar, snjóþyngstur á vetrum og hættulegastur, er Öxnadalsheiðin. En nú eru þar um 30 km á milli byggðra bóla, þ.e.a.s. frá Engimýri í Öxnadal að Kotum í Norðurárdal. En ef Bakkasel væri í byggð, mundi leiðin milli byggðra bóla styttast um meira en 10 km.

Ég held, að það geri sé flestir ljóst, sem eitthvað þekkja til vetrarferða um Öxnadalsheiði, að það er nauðsynlegt, að þar verði haldið uppi gistingu og aðhlynningu fyrir ferðamenn. Þar þyrfti, ef vel ætti að vera, að vera staðsettur snjóbíll, sem gæti orðið til hjálpar í neyðartilfellum, og a.m.k. væri mjög æskilegt, að þar væri einnig rekin einhver viðgerðarþjónusta fyrir bifreiðar. Á vetrum þyrfti líka, ef vel væri, að vera þar staðsettur snjóplógur eða snjóýta, sem gæti verið til taks einmitt þar til þess að halda leiðinni opinni. Og ég held líka, að það væri á því brýn nauðsyn að hafa ekki aðeins þessa aðstöðu í Bakkaseli, heldur þyrfti einnig að vera sæluhús á heiðinni, þar sem vegfarendur gætu komizt í síma eða talstöð og gert vart við sig, ef hætta væri á ferðum eða slys hefði þegar orðið. Ég held, að það sé nokkurn veginn alveg augljóst, að þessum skilyrðum til öryggis á norðurleiðinni verður ekki fullnægt nema með því, að búið sé í Bakkaseli. Það er líka augljóst að mínu viti, að það að hafa sæluhús á þessum stað er algerlega ófullnægjandi, ef vel á að vera. Og ég veit, að þeir eru margir, sem þekkja til þessarar hættulegu leiðar á vetrum, sem eru uggandi um það, að fyrr eða síðar hljóti að fara illa í þessum ferðum, sem eru mjög fast sóttar með erfiðum, stórum og þungum bifreiðum í verstu vetrarveðrum, — eru mjög uggandi um bað, að fyrr eða síðar hljóti að fara illa, ef öryggi á þessari leið er ekki tryggt betur en hefur verið.

Því er haldið fram hér í erindi sveitarstjórnarinnar í Öxnadalshreppi, að það séu mjög litlar líkur fyrir því, að jörðin fari í ábúð á næstu árum. Það virðast mjög litlar líkur til þess, út frá því séð, eins og segir í bréfi því, sem fylgir með frv., hver þróunin er í hinum afskekktu byggðum. Ég álít, að þarna séu erfiðleikarnir málaðir töluvert of svörtum litum. Ég álít, að ábúð sé vel hugsanleg í Bakkaseli, ef nægilegur styrkur kemur til frá ríkinu. Og ég held, að hún sé meira en vel hugsanleg. Ég held, að það sé vel hægt að tryggja hana og það sé auðvelt að tryggja hana, ef fjárveitingavaldið eða vegamálastjórnin vill eitthvað verulega á sig leggja til þess. En ég hygg, að það haft sýnt sig, eða a.m.k. grunar mig það sterklega, að áhugann hafi vantað hjá báðum þessum aðilum á undanförnum árum og því sé um að kenna, að Bakkasel er ekkí í byggð nú.

Ég tel rétt að skýra frá því, að nú alveg nýlega, fyrir örfáum vikum, hafa tveir ungir og vaskir menn sótt eftir því að fá ábúð í Bakkaseli. En þeirra máli hefur a.m.k. ekki enn þá verið tekið þannig hjá vegamálastjórninni, að það séu líkur til, að úr því verði. Það er rétt, sem hv. frsm. þessa máls. og 1. flm. sagði, að á undanförnum árum, meðan jörðin var í byggð, var hún leigulaus, og mjög lítilfjörlegur styrkur mun hafa verið að auki, eða sem svaraði upphitun á íbúðarhúsi. En ég tel, að þar sem þarna er um að ræða öryggi á mjög fjölfarinni og alveg sérstaklega þýðingarmikilli leið, þá væri það engin ofrausn, þótt þessi styrkur væri miklu meiri. Og ég held, að það væri miklu nær fyrir okkur þm. á Norðurlandi að reyna að sameinast um það að fá þennan styrk aukinn, þannig að hægt væri að koma jörðinni í ábúð og skapa þannig öryggi fyrir vegfarendur á þessari leið og fyrir þennan atvinnurekstur í Norðurlandi, sem hefur hagsmuna að gæta, að hún sé opin, heldur en að flytja frv. um að selja jörðina, sundra landi og húsum sitt til hvorrar handar og gera það eins áaðgengilegt og hugsazt getur, að jörðin geti faríð í byggð.

Það er auðvitað rétt, að Bakkasel er engin vildisjörð, og það mundu sjálfsagt fáir, eins og nú horfir, sækjast eftir ábúð á henni af þeim sökum; að hún sé góð til búrekstrar. Þá er þess að geta, að jörðin er mjög þokkaleg sauðjörð, og því fer fjarri, að hún sé ákaflega afskekkt. Hún er aðeins 50 km frá Akureyri og hún er við leið, sem er svo að segja opin allan ársins hring, og hygg ég, að margir búi við jarðir, sem afskekktari eru en Bakkasel að þessu leyti. Ég tel það a.m.k. ákaflega ólíklegt, þátt þarna settust að menn, sem hefðu það í hyggju fyrst og fremst að reka aðra starfsemi, svo sem ýmsa þjónustu við vegfarendur, að því mundu þeir ekki vilja hafa jarðarafnot með. Ég get þess vegna ekki séð, að það sé neinum til góðs að selja þessa jörð.

Eins og kemur fram í bréfi sveitarstjórnarinnar, hefur Öxnadalshreppur þessa jörð ná á leigu fyrir bændur í sveitinni, og mér þykir a.m.k. ótrúlegt, að þessir leigumálar séu svo óaðgengilegir, að það sé mikið hagræði fyrir bændur að kaupa jörðina. Hvort jörðin verður seld þeim eða hafður sami háttur á og hefur verið, að landið sé leigt hændum, þá get ég ekki séð, að á því sé neinn munur. Og ef svo fer sem sveitarstjórnin virðist trúa, að jörðin fari í eyði, þá er það auðvitað sjálfgert mál, að engir hafa afnot af jörðinni, hvorki til afréttar né annars, heldur en þeir. Ég get þess vegna ekki séð, að þarna sé um neitt hagsmunamál fyrir bændur í Öxnadalnum að ræða. Og ég verð að segja það, að þar sem svo er nú ástatt, að allur framanverður Öxnadalur er í eyði og þeir bændur, sem í hreppnum búa, hafa a.m.k. 6 eða 7 jarðir á þessu svæði í eyði og til nytja, þá muni Bakkasel ekki þrengja svo að þeirra hagsmunum um afréttarlönd, að það sé þeim til nokkurs trafala. Það fæ ég ekki skilið. Og vissulega er það svo, að þó að Bakkasel liggi að afréttarlöndum, þá auðvitað skerðast þau ekki, svo að neinu nemur, þótt búið sé í Bakkaseli og þótt þar horft að öllu leyti eðlilega með búskap. Það hefur alltaf verið sameiginlegt afréttarland bændanna, dalurinn, sem liggur að Bakkaseli, og heiðin, og á því mun ekki verða nein breyting, hvort sem jörðin er seld eða ekki. Þegar þessir hagsmunir, sem ég vil meina að séu mjög óverulegir eða jafnvel alls engir, eru svo bornir saman við hitt, að þarna getur verið um að ræða það, að skapað sé öryggi, sem getur jafnvel bjargað mannslífum í verstu tilfellum, þá held ég, að það sé ekki áhorfsmál, að ríkið eigi að eiga jörðina, eins og hefur verið, þannig að það sé auðveldara að koma henni í ábúð, hvenær sem einhverjir eru fúsir til þess að setjast þar að. Og ég held, eins og ég sagði áðan, að ef einhver vilji væri fyrir hendi hjá vegamálastjórninni og fjárveitingavaldinu, þá væri þetta mjög auðvelt.

Ég get verið sammála hv. fyrra flm. um, að það eigi að leita álits vegamálastjórnarinnar, sem hefur haft með þessa jörð að gera á undanförnum árum, um það, hvort rétt er stefnt með því að selja hana. En ég vildi þá líka álíta, að það væri rétt að leita álits ýmissa þeirra aðila, sem hafa mestra hagsmuna að gæta i sambandi við samgöngur um Öxnadalsheiði og um það, að norðurleiðinni sé haldið opinni, um þetta mál. Ég álít t.d. rétt að leita álits forustumanna verzlunar og iðnaðar á Akureyri, og það væri rétt að leita álits t.d. fyrirtækis eins og Norðurleiða og þeirra fyrirtækja, sem halda uppi vöruflutningum um þessa leið á vetrum með bifreiðum. Og ég er sannast að segja ekki í nokkrum vafa um það, að allir þessir aðilar mundu ófúsir vilja gera nokkrar þær ráðstafanir, sem gætu orðið til þess að draga úr öryggt á þessari leið. Ég vil að vísu alls ekki halda því fram, að það sé meining flm. að gera það, því að ég efast ekkert um, að báðir mundu þeir vilja hafa það sem mest. Ég álít, að þeir hafi farið í það að flytja þetta frv. af misskilinni þjónustusemi við örfáa bændur í Öxnadalshreppi, en ekki gætt þess sem skyldi, að það eru ýmsir fleiri, sem þarna hafa ríkra hagsmuna að gæta.