26.02.1963
Efri deild: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1426)

126. mál, sala Bakkasels í Öxnadalshreppi

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég gerði þetta mál nokkuð að umræðuefni, þegar það var hér til 1. umr., og sé ekki ástæðu til þess að endurtaka mikið af því, sem ég sagði þá. Eg þykist hafa við það tækifæri leitt rök að því, að til mikils öryggis væri fyrir umferð á Öxnadalsheiði, að Bakkasel væri í ábúð, og það væri naumast hægt að búast við því, að hægt væri að veita vegfarendum á þessari þýðingarmiklu leið þá þjónustu, sem nauðsynlegt er, einkanlega á v etrum, ef ekki væri þarna búið. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka rök mín í þessu efni, en vil minna á, að það hefur verið lögð áherzla á að halda býlum í ábúð, þar sem minni ástaeða hefur verið til en með Bakkasel. Ég lýsti því líka þá, að ég sæi ekki, hvaða sérstök rök lægju fyrir því eða nauðsyn, að farið v æri að sundra jörðinni, þannig að hús jarðarinnar kæmust í hendur eins aðilans og jörðin sjálf eða landið í hendur annars aðila, og spurði um það, hverjum til hagsmuna slík ráðstöfun gæti verið. Ég er þess vegna dálítið undrandi yfir því, að hv. frsm. landbn. kemur hér enn og segir, að það sé nauðsynlegt fyrir bændur, að hreppurinn kaupi þessa jörð, til þess að þeir geti tryggt sér beitiland. Þetta er furðuleg staðhæfing, þar sem það er vitað mál, að bændurnir hafa afréttarland, sem tilheyrir Bakkaseli, og land jarðarinnar á leigu, að ég held með mjög lágri leigu. Ég spurði hv. fyrra flm. að því, hvort leigan væri svo há á landinu, að bændum væri nauðsynlegt að kaupa það þess vegna, til þess að létta þeim það, en fékk ekki svör við því. En það er vafalaust, að hv. n. hafi athugað þetta, og má því gera ráð fyrir, að hv. form. n. geti gefið greið svör við því, hvort þessi ástæða er fyrir hendi, því að það er sú eina ástæða, sem gæti verið fyrir því, að bændur hafi einhverja hagsmuni af því, að Öxnadalshreppur kaupi þessa jörð, — bókstaflega sú eina.

Við fyrri umr. málsins benti ég líka á, að það væri eðlilegt að senda þetta mál ekki aðeins til umsagnar vegamálastjóra og jarðeignadeildar ríkisins, heldur einnig til þeirra aðila, sem hafa mestra hagsmuna að gæta í því, að umferð sé örugg um Öxnadalsheiði, en þar taldi ég vera forsvarsmenn verzlunar og iðnaðar á Akureyri og þau fyrirtæki, sem fyrst og fremst stunda þessar ferðir, oft við hin erfiðustu skilyrði. En þetta hefur n. látið hjá líða að gera, og vil ég lýsa yfir undrun minni yfir því, því að þarna eru vissulega aðilar, sem hafa mikilla hagsmuna að gæta og ástæða væri til að taka nokkurt tillit til. Og ég satt að segja efast ekki um það, hvernig þeirra umsögn mundi vera. En það hefur af einhverjum ástæðum ekki þótt heppilegt af þeim, sem hafa — ég vil segja furðulegan áhuga á þessari jarðarsölu, að leita þess álits.

Hv. frsm. n. gat þess, að leitað hefði verið álits vegamálastjóra og hann hefði talið það miklu hagkvæmara fyrir alla aðila að halda þarna uppi skýli eða sæluhúsi heldur en jörðin væri í byggð, það væri ekki vinningur að því. Mér kemur þessi umsögn vegamálastjóra ekkert á óvart, vegna þess að hann hefur staðið sem þrándur í götu fyrir því á undanförnum árum, að jörðin væri í byggð, og hefur þar áreiðanlega horft í smávægilegar peningaupphæðir, en ekki í það að skapa öryggi á þessari oft hættulegu leið. Það eru peningasmámunir, sem þar eru settir á oddinn, en ekki hagsmunir þeirra, sem um þennan fjallveg þurfa að fara.

Ég vildi spyrja hv, frsm. að því, hvort vegamálastjóri hefði falið þær staðreyndir fyrir n., að nú liggja fyrir umsóknir hjá honum um ábúð í Bakkaseli, a.m.k. frá tveimur aðilum. Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því, að þeir aðilar, sem þarna er um að ræða, mundu ekki hefja búskap í Bakkaseli eða setja þar upp þjónustu fyrir almenning, nema til kæmi nokkur styrkur, en það er hann, sem strandar á. Ég held þess vegna, eftir því sem framkoma vegamálastjórnarinnar hefur verið varðandi þetta mál nú um margra ára skeið, varðandi ábúð í Bakkaseli, sem hún hefur reynt að hindra eftir getu, þá, sé þessi stofnun ekki rétti aðilinn til þess að byggja á lagasetningu um sölu jarðarinnar. Og ég vil aðeins benda á það, að þó að bændur af einhverjum einkennilegum ástæðum, vil ég segja, eða a.m.k. hreppsnefnd í Öxnadalshreppi vilji eignast jörðina, þá hafa þeir lýst sig mjög fylgjandi því, að þarna yrði búið, en þar skakkar miklu við skoðun vegamálastjóra. Hann vill alls ekki hafa ábúð í Bakkaseli, og það er mergurinn málsins. Það er fyrst og fremst verið að fallast á það sjónarmið með þessari sölu.

Eins og ég sagði, fór ég allýtarlega út í þá nauðsyn, sem er á því, að Bakkasel sé í byggð, við 1. umr. málsins, og ég ætla ekki að fara að endurtaka það, sem ég sagði þá. En ég vildi vona, að hv. form. n. og hv. n. vildi fallast á það að athuga málið ofur lítið betur og leita umsagnar fleiri aðila um málið, áður en það fer lengra. Mér þykir sýnt, að n. hafi verið leynd þýðingarmiklum upplýsingum varðandi málið, og ég tel, að það sé sanngjörn krafa, að málið sé athugað að nýju og sent til umsagnar þeirra aðila, sem ég nefndi.