26.02.1963
Efri deild: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)
126. mál, sala Bakkasels í Öxnadalshreppi
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. og í ræðu hv. 10. landsk. þm., frsm. þessa frv., var ég ekki viðstaddur, þegar málið var afgreitt úr nefnd, og er ég ekki að halda því fram, að það út af fyrir sig breyti neitt afstöðu minni til þessa máls. En mér fannst strax, þegar þetta frv. var lagt fyrir hv. Alþingi, að hér gegndi nokkuð öðru máli með jarðarsölu en almennt, þegar einstaklingar eða hreppsfélög fara fram á að fá keyptar jarðir hins opinbera. Og það, sem liggur þar til, er sú þjónusta, sem fyrst og fremst þeir ábúendur, sem verið hafa í Bakkaseli um margra áratuga skeið, hafa veitt ferðamönnum, sem farið hafa yfir Öxnadalsheiði, um nokkurra ára skeið með tilstyrk frá því opinbera. Og síðustu tvö árin hefur verið rekið þarna sæluhús. Um leið og ákveðið er, að ríkið selji Öxnadalshreppi jörðina, liggur ekkert fyrir um það, hver á að veita þessa þjónustu. Það liggur ekkert fyrir um það, hvort vegagerðin hugsi sér í framtíðinni að hafa sæluhús í þessum húsakynnum í Bakkaseli, þar til byggt verður nýtt sæluhús, annaðhvort i Bakkaseli eða annars staðar, þar sem hentara þykir. Og meðan svo er, sýnist mér, að það liggi ekkert á fyrir ríkið að afsala sér eignarrétti á jörðinni Bakkaseli, nema síður sé.
Það er enginn vafi á því, að eins og nú er komið málum með ferðalög okkar Íslendinga sumar og vetur, þá er Öxnadalsheiði ein af fjölförnustu leiðum milli tveggja landshluta, þ.e.a.s. Suður- og Vesturlands annars vegar og Norður- og Austurlands hins vegar, og verður krafa þeirra, sem ferðast um þessa fjallleið eins og aðrar, að þar verði einhver lágmarksþjónusta veitt af því opinbera. Og þegar byrjað er að veita slíka þjónustu, er ekki svo auðveit heldur að snúa til baka með það. Og ég fæ ekki séð, að það verði auðvelt fyrir Öxnadalshrepp að veita þá þjónustu. Ég tel, að það sé því sveitarfélagi um megn að veita hana. En ríkið getur hins vegar átt auðvelt með að gera það. Og þótt svo sé og komi fram í áliti vegamálastjóra, að honum þyki dýrt viðhaldíð á Bakkaseli og eigi örðugt með að leggja fé til þeirra hluta, þá rengi ég hann ekkert um það, og það er sjálfsagt af litlu fjármagni að taka hjá honum. En hins vegar liggur það fyrir, ef ekki á að ske hrein og klár „katastrófa“ í öllu samgöngukerfi landsmanna nú þegar á þessu og næstu árum, þá verður að stórauka allt fjármagn til samgöngubóta í landinu. Og þá þykir mér sýnilegt, að þessi mál, eins og sæluhúsastarfsemi og annað, verði endurskoðuð í leiðinni og þeim verði ætlað eitthvert ljármagn til sinnar starfsemi, því að ég tel, eins og ferðalög að vetrinum eru orðin mikil og það á fjallvegum, þar sem stórhríðar geta geisað um lengri tíma, þá sé óforsvaranlegt að reyna ekkí að veíta eins góða þjónustu á þessu sviði og auðið er. Og það tel ég, að ríkið eitt geti og eigi að gera, en ekki aðrir aðilar.
Við skulum taka hinn þátt málsins, sem snýr að jörðinni sjálfri og sveitarfélaginu í Öxnadalshreppi. Mér skilst, að það hafi ekkert verið því til fyrirstöðu, að þetta sveitarfélag fengi fullkomin afnot af þeim afrétti, sem hreppurinn vill nú festa kaup á. Mér skilst, að þar hafi ekkert verið til fyrirstöðu. Hins vegar sé einhver ótti, — það kom fram í ræðu hv. 10. landsk. nú, þegar hann talaði síðast, — að það verði kannske aðrir hreppar eða önnur sveitarfélög, sem ef til vill þurfa líka á afrétti að halda, sem verði hlutskarpari í þessum efnum, og það rýri not Öxndælinga af þeim afrétti, sem þarna er. Þetta eru nýjar upplýsingar í málinu, og mér finnst, þegar þær eru fram komnar, að það sé enn þá verra fyrir Alþ. að taka afstöðu í þessu máli, vegna þess að ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um það, hver þörfin hjá þeim aðilum kynni að vera fyrir afréttarlönd. Vera má, að hún sé fullt svo mikil eða meiri en hjá því sveitarfélagi, sem fer fram á að fá jörðina keypta. Og það er afar hæpið fyrir Alþ. að ákveða sölu á jörðinni, þegar þessar upplýsingar eru komnar fram, nema fyrir liggi eitthvað nánara í þeim efnum, sem gerir málið svo augljóst, að það sé engin ástæða til annars en að selja Öxnadalshreppi jörðina.
Það kom fram við 1. umr. h já hv. flm. þessa máls, eða mér skildist það, að ríkið mundi eiga að hafa húsakynnin áfram og veita sína þjónustu þar, en það væri einungis landið, sem ætti að selja. En í frv. er alls ekki gert ráð fyrir, að það sé neitt undan skilið, og það er ekki heldur gert ráð fyrir því í frv. sjálfu, að ríkinu sé ætlaður nokkur lófablettur, ef það vildi reisa þarna sæluhús eða hafa einhverja slíka starfsemi annaðhvort í Bakkaseli eða landareign Bakkasels framvegis. En slíkt fyndist mér að ætti þá að tryggja, um leið og jörðin er seld, að ríkið gæti áfram haldið sinni þjónustu, eins og ég veit að allur fjöldi þeirra, sem ferðast þarna um, gerir kröfu til, þegar þar að kemur. Þess vegna er það, af því, sem ég hef nú sagt, að ég er ekki reiðubúinn að ljá þessu frv. fylgi mitt og tel, að málinu liggi ekki neitt á fyrr en að frekari upplýsingum fengnum. Það er hyggilegast fyrir ríkið að eiga jörðina, þar til búið er að ganga fullkomlega frá sæluhúsastarfseminni, sem ég veit að verður gerð krafa til af þeim, sem eiga daglegar ferðir þarna um og þurfa að halda uppi samgöngum á milli tveggja stórra höfuðborga og tveggja landsfjórðunga á hvorn veg. Þess vegna sýnist mér, að við eigum ekki nú að ganga frá samþykkt þessa máls, heldur fresta því um sinn, jafnvel um nokkurra ára skeið, þangað til búið er að ganga þannig frá hlutunum, að vegfarendur hafi fullkomið öryggi, að þeirra réttur verði ekki fyrir borð borinn, og þá getur maður séð, hver þörf annarra aðila er fyrir landið, — fyrir afréttarlandið, sem hér er farið fram á að selja.