25.02.1963
Efri deild: 48. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)
156. mál, bændaskólar
Frsm. ( Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. þetta til nýrra l. um bændaskóla er flutt að beiðni landbrh. Einstakir landbúnaðarnefndarmenn hafa óbundnar hendur um afstöðu til þess. Frv. er samið af mþn., sem ráðh. Ingólfur Jónsson skipaði 25. marz 1960, en formaður þeirrar nefndar er Guðmundur Jónsson skólastjóri á Hvanneyri, aðrir í n. Kristján Karlsson, áður skólastjóri á Hólum, Aðalsteinn Eiríksson skólaeftirlitsmaður, Ásgeir Pétursson sýslumaður og Gunnar Vagnsson fulltrúi. Auk þess starfaði í n. Gunnar Bjarnason, þegar hann var skólastjóri á Hólum 1961–82.
Gildandi lög um bændaskóla eru frá 22. marz 1948, nr. 24. Frv. þetta gerir ráð fyrir talsverðum breytingum á þeim lögum. Einna veigamestar eru þessar:
Í frv. segir, að bændaskólar skuli vera tveir, þ.e. á Hvanneyri og á Hólum. Í gildandi lögum segir, að þeir skuli vera þrír, þ.e. á Hvanneyri, Hólum og Skálholti. Skálholtsskóli hefur aldrei verið stofnaður, svo að þetta hefur verið dauður bókstafur þau 14 ár, sem lögin hafa gilt. Nú er verið að gera ráðstafanir með sérstöku lagafrv. um að afhenda þjóðkirkjunni Skálholtsstað, en að sjálfsögðu væri unnt að finna þriðja bændaskólanum stað annars staðar á Suðurlandi, ef þörf væri fyrir þrjá bændaskóla. En reynsla að því er snertir aðsókn að bændaskólum hin síðari ár virðist fremur styðja þá stefnu, að hagkvæmara sé að búa sem bezt að tveimur skólum eða þeim, sem til eru, en bæta við nýjum.
Í gildandi lögum er ákveðið, að við bændaskóla skuli vera tveir fastir kennarar auk skólastjóra. Þetta hefur reynzt of lítið. Á fjárl. 1963 er gert ráð fyrir 3 kennurum á Hólum og 4 á Hvanneyri auk skólastjóra og þar að auki að launa aukakennara. Í frv. n. er gert ráð fyrir, að fastir kennarar verði 5 við hvorn skóla. Er það m.a. vegna breyttrar tilhögunar við nám og aukinnar kennslu í hagfræðilegum efnum, verkfræði og vélfræði. Miðað við reynslu annars staðar mun ekki af þessari fjölgun veita.
Í 6. gr. frv. er nýmæli, að ekki sé sjálfsagt, að námið í báðum skólunum sé alveg með sama sniði og verkaskipting milli skólanna geti átt sér stað, einnig, að önnur deild annars hvors skólans starfi aðeins um eitt ár í senn eftir ákvörðun ráðh. Í gildandi lögum er aldurslágmark nemenda 18 ár, en nú er gert ráð fyrir, að það verði 17. Þá er og verklegt nám stytt verulega frá því, sem er í gildandi lögum, og er það í samræmi við það, sem hefur orðið í framkvæmd vegna þess, hve margir nemendur hafa ekki mátt missa nema mjög takmarkaðan tíma frá störfum heima fyrir, einkum um sumartímann.
Þá er enn í 9. og 10. gr. lögð meiri áherzla á kennslu í vélfræði en verið hefur og gert ráð fyrir, að kennsluverkstæði verði við skólana.
Í 15. gr. eru þær helztu breytingar frá 13. gr. gildandi laga, að nánar er ákveðið um greiðslu rekstrarhalla á skólabúum.
Frv. fylgir alllöng grg. frá mþn. og er þar vikið að mörgu, sem varðar bændaskólana yfirleitt, bæði að því er snertir kennslutilhögun, nauðsynlegar framkvæmdir, sem fyrir liggur að gera, bæði á Hvanneyri og Hólum. Þá er og vikið að því, hversu brýn þörf sé nú orðin á mjög aukinni tækni við allan búrekstur og að fjölbreytni í framleiðslu búvöru hljóti að vera mjög á dagskrá á næstu grösum. Benda frumvarpshöfundar á, að á þessum sviðum geti búnaðarskólarnir mikið hjálpað baendum og bændaefnum með ýmiss konar námskeiðum fyrir þá landbúnaðarmenn, sem ekki geta sótt skólana sem reglulegir nemendur eða vilja afla sér meiri þekkingar og kennslu í verklegum greinum en hinn takmarkaði skólatími getur veitt þeim. Enn fylgir frv. í grg, sögulegt yfirlit um búnaðarfræðslu hér á landi frá því 1880, er brautryðjandinn, Torfi í Ólafsdal, stofnaði fyrsta bændaskóla hér á landi, en hann starfaði 1880–1907 og hafði þá útskrifað 160 búfræðinga. Frá Eiðaskóla, meðan hann starfaði, útskrifuðust um 260 búfræðingar. Nemendur Hvanneyrarskólans eru orðnir 1500 og Hólamenn 1350 miðað við árið 1962.
Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja efni þessa frv. frekar. Þar sem það er flutt af nefnd, mun það vera í samræmi við þingvenju, að því sé ekki vísað til n., enda einboðið, að landbn. verði að fjalla um það meira en hún hefur þegar gert og leita máske umsagnar stéttarsamtaka bænda um frv. og e.t.v. fleiri, áður en það kemur til 2. umr. Að lokinni þessari umr., legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr.