25.03.1963
Efri deild: 61. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1412 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

156. mál, bændaskólar

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Í gildandi lögum um bændaskóla, sem eru frá 1948, er svo ákveðið, að búnaðarskólar skuli vera þrír hér á landi, þ.e. að Hólum í Hjaltadal, að Hvanneyri í Borgarfirði og Skálholti í Biskupstungum. Með frv. því, sem hér liggur fyrir og samið er af þar til kjörinni mþn., er sú breyt. gerð á gildandi lögum, að bændaskólarnir skuli aðeins vera tveir á landinu, þ.e. að Hólum og að Hvanneyri, og þar með ákveðið, að úr lögum skuli numið, að bændaskóli skuli vera í Skálholti. Í sambandi við þetta er rétt að minna á það, að fyrir Alþingi liggur nú frv. um, að ríkið afhendi hinni íslenzku þjóðkirkju Skálholt til eignar og umráða. Gera má ráð fyrir, að frv. þetta verði að lögum á þessu þingi. Það virðast því lítil líkindi til, að ríkið reisi bændaskóla á þessum stað. En þó að þetta liggi fyrir, sé ég ekki neina ástæðu til að nema úr lögum, að bændaskólarnir skuli vera 3 á landinu. Á slíku virðist vera full þörf á þessari miklu skólaöld. Í grg., sem fylgir þessu frv., segir um þá niðurstöðu n., að bændaskólar skuli aðeins vera 2 á landinu, en ekki 3, að ástæðan sé sú m.a., að aðsókn að bændaskólunum sé ekki meiri en svo, að 2 skólar geti fullnægt henni. Það getur verið, að þetta sé rétt og hafi við rök að styðjast. En þar með er ekki sagt, að slíkt ástand vari áfram.

Staðreynd er og verður ekki um deilt, að búnaðar,fræðsla hér á landi hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenzka bændastétt og á veigamikinn þátt í þeim öru framförum í landbúnaði, sem orðíð hafa á síðustu áratugum. Þessi þróun þarf að halda áfram, en til þess að svo megi verða, þarf að búa þannig að bændaskólunum, að við vitum, að þeir geti rækt sitt mikilvæga hlutverk, og til þess er m.a. sú breyt. gerð á lögunum um búnaðarskóla, sem felst í því frv., sem hér liggur fyrir. En ég álít það ekki vera rétta stefnu í frv. að fækka skólunum um einn. Og eins og kunnugt er, var aldrei hafizt handa um byggingu bændaskóla að Skálholti. Þó var veitt eitthvert fé til byrjunarframkvæmda á sínum tíma, en ekkert gert, sem talizt gæti. En þrátt fyrir þetta álít ég ekki rétt stefnt í þessum málum að nema úr lögum, að bændaskóli skuli vera á Suðurlandi, og þó að hann yrði ekki staðsettur að Skálholti, eru nógir aðrir staðir til á Suðurlandsundirlendinu, sem væru tilvaldir sem skólasetur.

Ég hef vegna þessa, sem ég hef nú tekið fram, leyft mér að flytja brtt. við frv., brtt., sem eru prentaðar á þskj. 435. Aðalbreytingin er við 1. gr. frv. og felur í sér, að bændaskólar skuli vera 3 hér á landi, að Hólum í Hjaltadal, að Hvanneyri í Borgarfirði og hinn þriðji á Suðurlandi. Samþykkt þessarar till. hefur þá einu breyt. í för með sér á gildandi lögum um bændaskóla, að skólinn á Suðurlandi er ekki staðsettur, ekki bundinn við ákveðinn stað. Það er sú eina breyt., sem á lögunum yrði. Ekki hefur þessi breyting heldur í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóðinn nú þegar, þar sem ekki liggur fyrir nein ákvörðun um að hefjast handa um framkvæmdir. Það bíður síns tíma. Þetta er aðalbreytingin sem sagt, sem ég geri að till. minni á þskj. 435. 2. og 3. brtt. eru ekki nema leiðréttingar, sem nauðsynlegt er að gera, ef 1. brtt. yrði samþ. Ég vænti, að hv. þdm. sjái sér fært að samþ. þessar brtt., sem ég hef nú mælt fyrir.