25.03.1963
Efri deild: 61. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (1464)
156. mál, bændaskólar
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Austf. hefur nú farið nokkrum orðum um þetta frv. Það, sem hann helzt hefur að því að finna, er það, að honum finnst það heldur rislítið og ekki nógu umfangsmikið. Það er því eðlilegt, að hv. þm. boði brtt. En ef marka má ræðu hans, yrði brtt. um það, að framhaldsnám í búvísindum yrði nánar skilgreint í frv. en það er.
Það er ekkert óeðlilegt, þó að fram komi brtt. við frv. eins og þetta. En ég vil aðeins taka það fram, að ég tel ekki ástæðu til þess að fresta þessari umr, fyrir það. Hv. þm. getur komið með sína brtt. alveg eins eftir 2. umr., og það væri þá miklu betra og eðlilegra að fresta því að taka málið á dagskrá einn dag, á meðan hv. þm. er að útbúa tili., heldur en út af fyrir sig að fresta 2. umr., vegna þess að till. sé ekki fram komin, og ég vil mælast til þess, að hv. þm. hraði því eins og hann getur að koma till. á framfæri. En ég tel, að þetta frv. eins og það er í aðalatriðum eigi að verða að lögum. Ég tel, að það sé til bóta frá því, sem verið hefur, og það var rætt um það við þá nefnd, sem útbjó þetta frv., hvernig það væri með framhaldsmenntunina, og kom þar greinilega fram, að ef hér yrði stofnaður búnaðarháskóli, þá yrðu sérstök lög um það og ætti það ekki heima í þessu frv. En hvað snertir framhaldsdeildina á Hvanneyri, á meðan hún starfar í því formi, sem hún er, þá hefur hún aldrei verið nefnd svo virðulegu nafni, búnaðarháskóli, enda þótt hún sé óneitanlega vísir að því, og þessi deild hefur starfað fram að þessu samkv. reglugerð. En þótt þetta frv. verði að lögum, er enn eftir að gera lög um framhaldsnámið. Það hljóta að verða sérlög um það, ef hér verður stofnaður búnaðarháskóli.
Hv. þm. talaði um samþykkt búnaðarþings í þessu efni, og það var helzt þar að fundið, að stéttarsamtökin hefðu ekki tilnefnt menn eða mann til þess að semja frv. og það hefði ekki verið bóndi, sem átti sæti í n. Þetta er náttúrlega sjónannið út af fyrir sig, og það sé fjarri mér að gera lítið úr því, hvaða þýðingu það gæti haft, að bóndi kæmi fram með sín sjónarmið. En við skulum ekki loka augunum fyrir því, að í n. áttu sæti hinir færustu menn. Guðmundur Jónsson skólastjóri á Hvanneyri og fyrrv. skólastjóri Kristján Karlsson áttu sæti í þessari n. og töluðu þar vitanlega af eigin reynslu, þeirri reynslu, sem fáir aðrir hafa eða geta tileinkað sér og ekki bændur. Einn færasti skólamaður landsins, Aðalsteinn Eiríksson, var í n. Hann hefur að vísu ekki verið bændaskólastjóri, en hann hefur verið skólastjóri. Og svo voru tveir aðrir menn, sem hafa ekki mikið við skólamál fengizt, einn lögfræðingur, sem þótti betra en ekki að hafa með til þess að forma frv., og viðskiptahagfræðingur.
Ég held, þegar á það er litið, hvernig n. var samansett, þá verði ekki að því fundið, og ég held, að n. hafi unnið vel, það sé ekki heldur ástæða til að finna að því, að hún hafi haft frv. lengi hjá sér. Það er aðeins vottur þess, að n, kynnti sér allar hliðar á þessu máli. Og mér sýnist nú satt að segja, að ræða hv. 5. þm. Austf. og sú samþykkt, sem meiri hl. búnaðarþings gerði í þessu máli, staðfesti það nokkuð, að n. hafi unnið vel og tekið til greina flest þau atriði, sem um var að ræða. Búnaðarþing finnur það að frv., að það átti ekki sæti í n. bóndi og að stéttarsamtökin höfðu ekki tilnefnt fulltrúa, en búnaðarþing eða meiri hl. búnaðarþings kemur ekki með neitt atriði í sinni samþykkt, sem það vill fá tekið inn í frv. Það kemur ekki heldur með neitt atriði, sem það vill láta taka út úr frv. Mér sýnist það staðfesta nokkuð, að flest þau atriði séu í frv., sem þar sé nauðsynlegt að hafa, og þar sé litlu ofaukið. Og hv. 5. þm. Austf., sem hefur áreiðanlega lesið frv. ofan í kjölinn og gert sér grein fyrir málinu, hefur ekkert að frv. að finna annað en það, að honum finnst það ekki nógu umfangsmikið, finnst ekki nógu mikil reisn yfir því, án þess þó að benda á nokkurt atriði, sem hann vill bæta inn í frv., annað en það, að hann vill samþykkja till. hv. 5. þm. Sunnl., sem ég vil einnig gera og vakti reyndar athygli á því við n., að þetta ætti að vera, en hins vegar saklaust, þótt frv, færi svona inn, vegna þess að það væri alltaf möguleiki á því að koma brtt. að. Ég er því samþykkur að taka það inn og hafa það í lögum, sem í þeirri till. felst. Og hv. 5. þm. Austf. er aðeins með eina aðra till., eða það kom ekki fram í hans ræðu annað en það, að hann vildi hafa framhaldsmenntunina eða það, sem hann nefndi vísi að búnaðarháskóla, einnig í þessu frv. En það á ekki þar heima. Það koma sérlög um það, ef búnaðarháskóli verður stofnaður. Þetta út af fyrir sig staðfestir nokkuð, að n., sem samdi frv., hafi gert sér glögga grein fyrir því, hvað í frv. þarf að vera og hvað ekki á að vera þar. Og ég vil segja það, að húnaðarþing getur hvenær sem er komið á framfæri breytingum við búnaðarfræðsluna í landinu. En það hefur lítið borið á því að undanförnu, að till. hafi komið fram um það frá búnaðarþingi, og í sambandi við þetta frv. eru engar brtt. fram komnar frá búnaðarþingi.
Mþn. segir frá því, sem stóð í bréfi, sem til hennar var sent, um leið og hún var skipuð, varðandi verkefni hennar, að það sé: 1) að gera till. um æskilegar breytingar og endurbætur á búnaðarfræðslunni; 2) að gera till. um og vera til ráðuneytis um þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru á bændaskólasetrunum með hliðsjón af heildartill. n. um framtíðarskipun búnaðarfræðslunnar. Og hv. 5. þm. Austf. sagði áðan, að það ætti ekki aðeins að gera ráð fyrir þremur bændaskólum í landinu með lögum, heldur ætti einnig að hefja framkvæmdir við þriðja skólann. Það hefur nú verið í lögum, að ég ætla, síðan 1944–45, að bændaskóli skyldi vera í Skálholti. Fram að þessu hefur þetta aðeins verið bókstafurinn einn, og ástæðan er sú, að aðsókn að bændaskólunum hefur ekki v erið meiri en það til þessa, að það hefur ekki verið þörf fyrir þriðja skólann. Það má hins vegar reikna með því, um leið og þjóðinni fjölgar og þá vitanlega einnig i landbúnaðinum, að það verði þörf fyrir þrjá síðar, og þess vegna á þetta að vera í lögum. En meðan ekki er búið betur að þeim tveímur bændaskólum, sem eru í landinu, og aðsóknin ekki meiri en verið hefur, þá þarf ekki að gera ráð fyrir því, að það verði alveg á næstunni, sem þriðji skólinn verður reistur. Það má þá geta þess, að aðsókn að bændaskólunum er nokkuð varandi. Bændaskólinn á Hvanneyri hefur eins marga nemendur og hann mögulega getur tekið, og skólastjóri við þann skóla tjáði mér nú fyrir stuttu, að aðsóknin væri mjög mikil fyrir næsta ár, og þar eru samtals um 60 nemendur.
Á Hólum hefur þetta verið dálítið misjafnt, en eins og nú er, lofar það góðu um framtíðina, að aðsóknin er þar mjög að lagast. Þar eru 22–23 nemendur í vetur og þar af 18 í yngri deild. Ef þeir koma allir til náms og fara upp í aðra deild næsta vetur og kæmu þótt ekki væru nema 15 nemendur í yngri deild, þá er skólinn fullsetinn, því að hann er raunverulega fullsetinn, Hólaskóli, með 30–35 nemendur, þannig að þetta held ég að sé framför. En aðbúnaðurinn að bændaskólunum þarf að vera miklu betri en hann hefur verið. Það vantar kennslutæki og það vantar ýmislegt við báða skólana, og þó hefur það verið meira við Hólaskóla, og nú í seinni tíð hefur, eins og hv. þm. er kunnugt, verið lagt meira til aðgerða og uppbyggingar við bændaskólana heldur en oft hefur áður verið, þannig að ef það hefði verið gert á undanförnum áratug, þá væri náttúrlega ástand skólanna miklu betra en það er nú. Og það er ekki veigalítill þáttur í búnaðarskólamenntuninni að gera sér grein fyrir því, hvað það er, sem þar! að gera til þess að byggja þessa tvo skála upp með eðlilegum hætti, hvað þarf að lagfæra og hverju þarf að auka við. Og það er nokkuð skilgreint hér með frv., eins og hv. þm. sjú. Eg tel, að það beri að stefna að því að byggja upp á báðum bændaskólunum, sem fyrir eru, eins og n. leggur til, og þá er það ekki síður mikilvægt, að n. hefur leitazt við samkv. þessu frv. að samræma kennsluna breyttum staðháttum og breyttum lífnaðarháttum, og kemur þá vélfræðikennslan þar helzt við sögu, því að það er gert ráð fyrir að ráða sérstakan vélfræðikennara við hvorn skóla, og útheimtir það vitanlega að koma upp góðu vélaverkstæði, þar sem nemendur læra ekkí aðeins að fara með vélar, heldur einnig að gera við vélar, og það er þetta, sem hver bóndi raunverulega þarf á þeirri vélaöld, sem nú er. Vélfræðikennarinn er þess vegna viðbót frá því, sem verið hefur í skólunum, og vélfræðinámið, og það er ekki hvað þýðingarminnst.
Hv. 5, þm. Austf. var að tala um það áðan, að það, sem lagt væri til með þessu frv., væri hægt að framkvæma allt án þess að lögfesta það, það væri hægt að skilgreina þetta allt með reglugerðarákvæði og það væri hægt að framkvæma þetta án þess að lögfesta það, það mætti fjölga kennurum, án þess að það væri lagaheimild til þess, að öðru leyti en að fá fjárframlög í fjárl., og það mætti framkvæma allt, sem n. leggur til, án nýrra laga. Um leið og ég þakka hv. 5. þm. Austf. fyrir það að vera meðmæltur eiginlega öllu, sem búnaðarskólanefnd hefur lagt til, að undanskildu því, að skólarnir skuli vera tveir, en ekki þrír, þá vil ég aðeins segja það, að þótt e.t.v. væri framkvæmanlegt að gera flest af því, sem er í frv., án þess að lögfesta það, þá er ég þó alveg viss um, að frá lagalegu sjónarmiði finnst ýmsum þetta hæpið og alls ekki eðlilegt. Og hvaða ástæða væri til þess fyrir hv. 5. þm. Austf., sem í hjarta sínu og orði er samþykkur því, sem er í þessu frv., að mæla gegn því, að frv. verði að lögum nú? Ég held, að það sé ekki nokkur ástæða til þess, því að ef menn vilja á öðru stigi málsins koma á framíæri breytingu til bóta við búnaðarkennsluna, þá stendur það vitanlega jafnt opið, þó að þetta frv. sé lögfest. En verði þetta frv. lögfest, tel ég, að það sé hægara síi byrja kennslutilhögun eins og þar er lagt til á næsta skólaári heldur en ef það er ekki gert, og ég tel einnig, að ef þetta frv, verður lögfest, þá verði hægara að vinna að uppbyggingu skólasetranna, eins og lagt er til í fskj. með þessu frv., heldur en ef frv. er ekki lögfest. Eg tel þess vegna, þótt það mætti hugsa sér, að það væri umfangsmeira, þetta frv., og þótt ég sé sannfærður um, að það má eitthvað þar koma til bóta, að það sé stór vinningur í því að fá frv. lögfest. Og ég vil segja það, að bæði búnaðarþing og hv. 5. þm. Austf. og hv. 1. þm. Vesturl. geta vitanlega komið sínum brtt. að nú við þetta frv., og nái þær ekki fram að ganga, en hafi þó í sér eitthvað, sem seinni tími eða nánari athugun gæti sýnt að væri til bóta, þá stendur vitanlega alltaf opið að koma með brtt. um búnaðarfræðsluna.
Ég hef svo í rauninni ekki meira um þetta að segja. Ég vil endurtaka þakkir mínar til hv. 5. þm. Austf. fyrir að hafa verið samþykkur því flestu, sem í frv. er, og ég vil einnig lýsa ánægju minni yfir því, að hv. þm. með sinni ræðu benti ekki í rauninni á neitt, sem ætti að fara út úr frv., og finnst mér þá, að það í aðalatriðum staðlesti, að frv. stefni í rétta átt.