26.03.1963
Efri deild: 62. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)

156. mál, bændaskólar

Páíl Þorsteinsson:

Herra forseti. Með þessu frv., sem hér er til umræðu, er stefnt að heildarendurskoðun á lögunum um bændaskóla, þannig að löggjöf sú, sem setja á með þessu frv., á að koma í stað laganna frá 1948. Við umr. málsins á fundi deildarinnar í gær sýndi ég fram á, að þetta frv. hefur engin svo stórfelld nýmæli að geyma, að ekki sé hægt, Án þess að lögfesta það nú á þessu þingi, að framkvæma flest af því, sem stefnt er að því að ná í framkvæmd skv. frv. En mér virðist, þegar um heildarendurskoðun er að ræða á þessari löggjöf, þá gangi þetta frv. að ýmsu leyti of skammt og að það sé ekki kveðið á um sumt af því, sem hlýtur að hafa mikla þýðingu fyrir búnaðarfræðsluna í landinu. Ég vil í því sambandi benda á, að þegar lögin frá 1948 voru sett, sem nú á að fella úr gildi, var hið almenna eða samfellda fræðslukerfi alveg á byrjunarstigi og þess vegna ekki hægt að gera sér þá grein fyrir sambandi sérskólanna við almenna skólakerfið, eins og á að vera hægt nú að fenginni þeirri reynslu af hinu almenna skólakerfi, sem nú er. En í þessu frv. eru engin ákvæði, sem marka glögglega samband bændaskólanna eða hina almennu fræðslu í landinu, sérstaklega gagnfræðastig. Þvert á móti eru ákvæði um námsgreinar í bændaskólunum nálega hin sömu í þessu frv, og þau eru í gildandi lögum. Hér er t.d. í 9. gr. þessa frv. ákvæði um, að skyldunám í bændaskólum skuli vera grasafraeði. eðlisfræði, efnafræði og þar skuli kenna dönsku og ensku og enn fremur kenna söng. Allt eru þetta í sjálfu sér nauðsynlegar námsgreinar. En allar þessar greinar eru kenndar á gagnfræðastiginu og teljast til almennra fræðigreina miklu fremur en sérnáms bændaefna. Mér finnst skorta allmikið á, að í þessu frv. sé markað, svo sem eðlilegt væri, sambandið að þessu leyti millí beendaskólanna og þeirra skóla, sem veita hina almennu fræðslu. Enn fremur vil ég ítreka það, sem ég drap á í ræðu í gær, að í þessu frv. eru engin ákvæði um framhaldsmenntun búfræðinga. Það er þó þáttur af búnaðarfræðslunni, sem vissulega er vert að gefa gaum. Þegar um heildarendurskoðun á lögum um bændaskóla er að ræða, þá er það fullkomlega eðlilegt, að báðir þessir þættir séu íhugaðir í senn: hið almenna búfræðinám og framhaldsmenntunin, og sambandið milli þeirra námsstiga bændafræðslunnar ákveðið í löggjöfinni.

Við samningu þessa frv. og endurskoðun málsins hefur og þannig til tekizt, að enginn fulltrúi .frá Búnaðarfélagi Íslands eða bændasamtökunum í landinu og enginn starfandi bóndi hefur átt hlut að undirbúningi þessa máls. Þeir, sem þetta verk hafa unnið, eru skólastjórar bændaskólanna, sem vissulega eru kunnugir þeim stofnunum og starfsháttum skólanna, þar sem skólastjórarnir hafa öðrum fremur mótað þá starfshætti skólanna, sem verið hafa í gildi nú undanfarið. Ég vil á engan hátt gera lítið úr þeirri þekkingu eða reynslu, sem þessir ágætu menn hafa. En vera kann, að aðrir, sem hafa sérþekkingu á landbúnaði og standa utan við starfsemi sjálfra skólanna, séu ekki siður glöggir á ýmis nýmæli, sem ástæða væri til að kæmu inn í allsherjarlöggjöf um bændaskóla og orðið gætu landbúnaðinum og búnaðarnáminu til eflingar. Mér virðist því eðlilegt með tilliti til þess, að það virðist ekki knýjandi þörf á að lögfesta þetta frv. nú á þessu þingi, og með tilliti til þess, að fullkomin ástæða er til að athuga málið á mjög breiðum grundvelli, áður en ný heildarlöggjöf er sett um þessi efni, að þá sé eðlilegt að fresta afgreiðslu þessa frv. nú og að ríkisstj. verði falið að hlutast til um, að málið verði enn athugað og að bændasamtökin, búnaðarþing, geti átt hlut að þeirri endurskoðun. Í samræmi við þetta sjónarmið flyt ég á þskj. 460, ásamt Ásgeiri Bjarnasyni, hv. 1. þm. Vesturl., rökstudda dagskrá, svo hljóðandi:

„Með því að frv. þetta er á ýmsan hátt ófullkomið og eigi til þess fallið, ef að lögum verður, að efla bændaskólana og auka veg búnaðarfræðslunnar í landinu, svo sem nauðsyn ber til, og þar sem æskilegt er, að búnaðarþingið eigi þess kost að gera rökstuddar tillögur um breytingar á búnaðarfræðslunni, áður en sett er ný heildarlöggjöf um bændaskóla, og í trausti þess, að ríkisstjórnin hlutist til um, að mál þetta verði endurskoðað af nefnd, er skipuð sé m.a. einum eða fleirt úr bændastétt, þá telur deildin ekki rétt að lögfesta þetta frv. og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vænti þess, að hv. d. fallist á þá afgreiðslu málsins, sem hér er lagt til. En fari svo mót von minni, að rökst. dagskráin verði felld, þá mun ég styðja brtt. á þskj. 435, því að mér virðast þær stefna til bóta á frv., en ekki sjá mér fært að styðja frv. í heild.