05.04.1963
Neðri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)
156. mál, bændaskólar
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er gott að heyra það, að hv. 2. þm. Sunnl. ber frávísunartill. ekki fram vegna þess, að hann hafi gert sér sjálfur skoðun um það, að frv. sé ekki harla gott, heldur vegna þess, að meiri hl. húnaðarþings vildi, að það væri athugað nánar, og fann frv. það til foráttu, að það hefði enginn bóndi verið í mþn. Það er enginn vafi á því, að ef búnaðarþing flytur till., þá ber að taka þær till. til athugunar og yfirvegunar og taka þær til greina, ef þær eru viturlegar og góðar. En þegar búnaðarþing — meiri hl. þess — samþykkir till. eins og það gerði í þessu máli, að tefja málið á þeim forsendum, að ekki hefði verið bóndi í n., án þess að benda á nokkra breytingu eða nokkurn galla á frv., þá verður það ekki tekið alvarlega, bæði vegna þess, að það er ekki rétt, að það hafi ekki verið beendur í n., þeir voru tveir, skólastjórarnir, og í öðru lagi vegna þess, að sá, sem leggur til, að eitthvert frv, nái ekki fram að ganga, er skyldugur til þess að benda á og færa rök fyrir því, hvers vegna það eigi ekki að vera. Það gerði meiri hl. búnaðarþings ekki, og þess vegna ber ekki að taka þessa till. til greina, sem það samþykkti í þessu máll.