05.04.1963
Neðri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)
156. mál, bændaskólar
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Þá heyrðist það, sem ekki hefur heyrzt áður í hv. deild, að hv. þm. lýsir því yfir, að frv. muni verða til bóta við búnaðarfræðsluna, en eigi að síður ætlar hann að styðja frávísunartill. Þetta er hreinskilni. En það er alveg ótrúlegt, að hv. þm., sem telur eitt mál vera til bóta, skuli í sömu andránni lýsa yfir því, að hann ætli að vera með því að vísa því frá. Og hann nefndi forsendurnar. En ég vil benda hv. þm. á það, að þær eru algerlega rangar. Hann bendir á, að það sé vegna þess, að bændurnir og bændasamtökin hafi ekki haft tækifæri til þess að fjalla um þessi mál eða vera með í samningu frv. En ég hef aldrei heyrt það fyrr en nú, að skólastjórar bændaskólanna væru ekki taldir fullgildir fulltrúar bænda, þegar um það er að ræða að efla búnaðarfræðsluna. Og hv. þm. veit, að búnaðarþing fékk tækifæri til þess að fjalla um málið, en hafði enga brtt. fram að bera um það. Brtt. frá búnaðarþingi hefðu vissulega verið teknar til athugunar og færðar inn í frv., ef þær að athuguðu máli hefðu verið til báta við frv. Hv. þm. byggir þess vegna sína skoðun algerlega á skökkum forsendum, og mér finnst það leiðinlegt, að hann skuli játa það hér, að hann ætli að fylgja frávísunartill, í máli, sem hann telur vera til bóta.