05.04.1963
Neðri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)
156. mál, bændaskólar
Óskar Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út frá orðum hæstv. landbrh.
Ég tel það enga goðgá, jafnvel þó að menn telji mál standa til bóta, þó að þeir vilji, að því væri gjarnan komið lengra áleiðis en er. Og ég verð að telja, að það hafi verið alveg nóg ástæða til þess að bíða með þetta mál, að búnaðarþing vildi fá að fjalla betur um málið en orðið var og bændasamtökin fengju tækifæri yfirleitt til að ráða ráðum sínum um þetta mál. Ég tel það alveg næga ástæðu, vegna þess að slíkar stofnanir eru yfirleitt ekki settar á stofn í þjóðfélaginu nema að fengnum ráðum og mjög vandlega íhuguðum ráðum þeirra manna, sem að þeim eiga að búa um alla framtíð. Þetta vita allir. Þess vegna er óeðlilegt, að um þessa stofnun sé ekki hafður sami háttur á, þannig að bændasamtökin fái næði og tíma til að rannsaka málið til hlítar, áður en löggjöf er sett um það. Ég skammast mín ekkert fyrir að játa það, að ég tel, að þetta frv, sé á ýmsan hátt til bóta. En það hefði getað verið miklu betra að mínu viti, ef bændastéttinni hefði verið sýnd sú sjálfsagða kurteisi að fá málið til meðferðar, áður en það var gert að lögum hér á hv. Alþingi.