05.04.1963
Neðri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)

156. mál, bændaskólar

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki hafa um þetta mörg orð. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv. frsm. meiri hl. fyrir að hafa lesið hér álit búnaðarþingsins á þessu frv. og þá niðurstöðu, sem búnaðarþingið hefur komizt að. Hins vegar verð ég að segja það, að mér fannst það ekki fyllilega viðurkvæmilegt af honum að viðhafa þau orð um þessa virðulegu fulltrúasamkomu bændanna, að hún beri fram tylliástæður fyrir ályktunum sínum, því að það vona ég, að hún geri ekki, og veit raunar, að ekki kemur til greina.

En þegar ég hef heyrt þessa álitsgerð búnaðarþingsins og afstöðu, þá er mér ekkert að vanbúnaði að taka afstöðu til þessa máls.