12.02.1963
Neðri deild: 40. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)

91. mál, siglingalög

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Eins og ég tók fram áðan, er þessi brtt. flutt til samræmis við ákvæði, sem eru í gildandi lögum um vátryggingarsamninga, og er það gert eftir ábendingu Íslenzkrar endurtryggingar. Ég skal ekki segja um það, hvað þessi frestur geti orðið langur, en ef ágreiningur rís út af því, þá getur það að sjálfsögðu orðið dómstólaatriði að skera þar úr.