05.02.1963
Neðri deild: 35. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)

125. mál, sala Utanverðuness í Rípurhreppi

Flm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Með frv. þessu á þskj. 227, er leitað heimildar fyrir stjórn Utanverðunesslegats til þess að selja ábúanda hálfa jörðina Utanverðunes í Rípurhreppi í Skagafjarðarsýslu. Enn fremur er í frv. leitað heimildar til þess að selja hinn helming jarðarinnar, ef síðar kynnu að koma fram óskir um það, og þyrfti þá ekki, ef frv. verður samþ., að fá að nýju heimild Alþingis til sölu á þeim hluta jarðarinnar. Þessi helmingur jarðarinnar er nú leigður Búnaðarsambandi Skagafjarðar, sem hefur haft í hyggju að stofna þar búfjárræktarmiðstöð og reka þar á sínum vegum rannsóknar- og tilraunastarfsemi.

Jörðin Utanverðunes er ein af hinum svonefndu kristfjárjörðum, og var jörðin gerð kristfjárjörð með gjafabréfi séra Benedikts Vigfússonar prófasts á Hólum í Hjaltadal, sem dags. er 31. jan. 1838. Það er svo fyrir mælt í gjafabréfi prófastsins, að afgjaldi jarðarinnar skuli varið til styrktar og framfærslu munaðarlausum börnum í Skagafjarðarsýslu, og skyldu börn í Hólahreppi sitja fyrir um styrkinn. Þessum ákvæðum gjafabréfsins mun oftast hafa verið framfylgt, ég veit ekki annað. En nú hefur stjórn legatsins óskað eftir því, að þetta frv. yrði flutt hér í þinginu, en í stjórn legatsins eru þeir sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu og prófastur Skagafjarðarprófastsdæmis. Ástæðurnar fyrir þessari beiðni þeirra koma fram í bréfi þeirra til mín, sem ég hef látið birta með grg. frv., og er meginástæðan sú, að legatið hefur ekki yfir fjármagni að ráða til að leggja í uppbyggingu á jörðinni, en hjá því verður ekki komizt, ef jörðin á að haldast í byggð, að byggð verði þar bæði íbúðarhús og peningshús og aðrar framkvæmdir á henni gerðar. Þau mannvirki, sem nú eru á jörðinni, munu flest vera eign ábúanda, sem varð að kaupa þau af fráfaranda, þegar hann tók við jörðinni, m.a. vegna þess, að legatið var ekki svo efnum búið, að það gæti keypt þessi mannvirki af fráfaranda. Það er því ekkert óeðlilegt við það, þótt ábúandi óski eftir því að eignast jörðina, þegar landsdrottinn hans er ekki þess megnugur að standa undir þeim skyldum, sem á honum hvíla samkv. ábúðarlögum.

Frv. sem þetta er ekki neitt nýnæmi hér í þinginu. Það er skemmst að minnast, að á þingi 1959 lá fyrir sams konar beiðni um sölu tveggja kristfjárjarða í Austur-Húnavatnssýslu, og varð þingið þá við þeim tilmælum. Það má vissulega segja, að það sé sitthvað við það að athuga, að Alþingi sé að breyta ákvæðum fornra gjafabréfa, og hefur jafnvel verið dregið í efa í umr. hér í þinginu um þau mál, að þingið hefði í raun og veru rétt til þess, en endalyktin mun ætíð hafa orðið sú, að sölur á þeim kristfjárjörðum, sem óskað hefur verið eftir kaupum á, hafa verið heimilaðar, og hefur það verið gert af því, að það hefur verið skoðun flestra hv. þm., að helzta ráðið til þess að halda þessum jörðum í byggð og á þeim væru gerðar nauðsynlegar framkvæmdir væri að selja ábúanda þær. Og það verður tæpast vefengt, eins og á er bent í bréfi legatsstjórnarinnar, að gerbreyttir tímar og þjóðfélagshættir hafa gert það að verkum, að forsendur fyrir ákvæðum gjafabréfs Benedikts prófasts Vigfússonar og annarra slíkra bréfa eru ekki nú með sama hætti fyrir hendi og þær voru á þeirri tíð, þegar þessar gjafir voru gefnar.

Að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því í þessu frv., að andvirði jarðarinnar verði áfram í eign legatsins og vöxtum af því verði varið í samræmi við ákvæði hins upprunalega gjafabréfs. Það er skoðun legatsstjórnarinnar, að sú ráðstöfun, sem frv. gerir ráð fyrir, sé öllum aðilum hagfelldust, og vænti ég, að hv. Alþingi geti fallizt á þá skoðun.

Ég óska svo eftir, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni og til hv. landbn.