04.03.1963
Neðri deild: 48. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1466 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)

125. mál, sala Utanverðuness í Rípurhreppi

Frsm. meiri hl (Jón Pálmason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 227, fjallar um það að heimila sölu á Utanverðunesi í Rípurhreppi í Skagafjarðarsýslu, og er þar í fyrsta lagi gert ráð fyrir að heimila sölu á hálfri jörðinni til núverandi ábúanda á því svæði, en hinn helminginn sé heimilt að selja á annan hátt, og þá er jafnvel gert ráð fyrir, að það sé Búnaðarsamband Skagafjarðarsýslu, sem vel gæti komið þar til greina, sem nú hefur þann hluta jarðarinnar á leigu.

Þessi jörð er í eign svokallaðs Utanverðunesslegats, og frv. þetta er flutt skv. beiðni stjórnar þess legats, og eftir öllum veðurmerkjum að dæma er um það að ræða, að hér séu bara tvær leiðir fyrir hendi: annaðhvort að láta jörðina fara alveg í eyði, því að hún er orðin alveg niðurnídd að húsum, eða fá að selja ábúandanum helming hennar í trausti þess, að hann leggi í það að byggja upp íbúðarhúsið og önnur hús á jörðinni.

Þetta frv. hefur verið sent til umsagnar landnámsstjóra annars vegar og hins vegar til eftirlitsmanna opinberra sjóða, og liggja fyrir hjá landbn. meðmæli frá þessum aðilum báðum, bæði frá landnámsstjóra og eins frá eftirlitsmönnum opinberra sjóða. En í umsögn landnámsstjóra, Pálma Einarssonar, er á það bent, eins og rétt er, að það er í lögum, að allar opinberar jarðir, sem eru seldar einstaklingum, skuli gerðar að ættaróðali, og þess vegna flytur meiri hl. landbn. brtt. um það á þskj. 321, að þetta skuli sett inn í frv., sem að vísu var ekki beinlínis þörf á, því að það er lögbundið atriði. Að hinu leytinu flytur svo meiri hl. landbn. brtt. þess efnis, að ef svo skyldi fara, að ábúandinn, sem á jörðinni er og heimilað er að selja helming hennar, gengi frá, þá væri heimilt að selja hinn hlutann með sömu skilyrðum, eins og til er tekið í seinni hluta 1. málsgr. 1. gr. frv.

Þetta er álit meiri hl. landbn., sem leggur til, að frv. verði samþ. með þessum breytingum. En n. var ekki að fullu sammála, því að einn nefndarmaður, hv. 6. þm. Sunnl., leggur á móti frv. og hefur gert grein fyrir áliti sínu hér í nál. og mun sjálfsagt tala hér á eftir. Skal ég ekki að svo stöddu fjalla um hans skoðun, fyrr en hann hefur flutt sitt mál hér. En það eru 4 nm. af 5, sem mæla með því, að frv. verði samþ. með þeim litlu breytingum, sem hér eru á þskj. 321.