07.03.1963
Neðri deild: 50. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1475 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
125. mál, sala Utanverðuness í Rípurhreppi
Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Ég sé ekki, að það sé til þess nein ástæða að vísa þessu frv. til hv. landbn. á ný. Hún var búin að ræða það á mörgum fundum og athuga það mjög rækilega, og fór ekkert á milli mála, hver væri vilji nm. í þessu efni. 4 nm., fulltrúar þriggja flokka, voru alveg sammála um að afgreiða frv. á þann máta, sem það nú liggur fyrir, og á milli þeirra var enginn ágreiningur. Hv. minni hl. landbn., hv. 6. þm. Sunnl., kom í þessu efni alveg hreinlega fram, eins og jafnan er títt um þann hv. þm., og setti sig strax á móti málinu, og gat hvorki mér né öðrum komið það neitt á óvart, vegna þess að það er vitað, að allur hans flokkur hefur verið og er á móti því að selja einstaklingum lönd eða jarðir. Ef það er selt sveitarfélögum, þá geta þeir gjarnan verið með því, en það er vitað, að sá flokkur vill ekki láta selja einstaklingum land, og þess vegna var afstaða þessa hv. þm., sem var í minni hl., alveg eðlileg.
Ég ætla nú ekkert að fara að þræta um það, hvort hér sé verið að fara fram á það að rýra eign þess legats, sem á þessa jörð. Stjórn þeirrar stofnunar hefur óskað eftir því, að þetta frv. væri flutt, og óskað eftir því að geta komið þessu máli í eðlilegt horf á þann máta, sem hér er farið fram á. Og það er alger misskilningur, að það sé að rýra eign, eins og nú standa sakir, að bjarga jörðum frá því að fara í eyði með því að selja þær mönnum, sem eru líklegir til þess að byggja upp á þeim. En þessi jörð er þannig komin, að það vantar á hana alveg íbúðarhús, sem sé þannig, að menn geti unað við að vera í því að vetrinum til. Þess vegna vil ég eindregið óska eftir því fyrir hönd meiri hl. landbn., sem í eru fulltrúar þriggja þingflokkanna, að þetta frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, því að með öllu er ástæðulaust að vera að fresta því eða draga afgreiðslu þess.