19.03.1963
Neðri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)
92. mál, lántaka vegna vatnsveituframkvæmda í Vestmannaeyjum
Frsm. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Fjhn. hv. d. hefur haft mál þetta til meðferðar og rætt það á einum fundi. Hún hefur sent það til umsagnar nokkrum opinberum aðilum, sem yfirleitt hafa verið meðmæltir samþykkt frv. N. hefur orðið sammála um afgreiðslu málsins og leggur til, að það verði samþykkt með þeim breyt., sem prentaðar eru á þskj. 354. Þær fela það fyrst og fremst í sér, að ábyrgðarheimildin sé hækkuð úr 60%, eins og gert er ráð fyrir í frv., upp í 85% til samræmis við sams konar heimildir í ríkisábyrgðarlögum, nr. 93 frá 1947. Í öðru lagi leggur nefndin til, að við greinina bætist, að endurlán ríkissjóðs verði bundin sömu skilyrðum um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning framkvæmdanna og tíðkast við vatnsveituframkvæmdir, sem fá ríkisábyrgð skv. fyrrgreindum lögum.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. þetta verði samþ. svo breytt.