19.03.1963
Neðri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (1572)
92. mál, lántaka vegna vatnsveituframkvæmda í Vestmannaeyjum
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég tel engan vafa á því, að þó að þeir í Vestmannaeyjum standi í ýmsum stórræðum, þá hefðu þeir eins getað fengið lánið sjálfir gegn sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs. Þeir hefðu áreiðanlega getað fengið lánið með því móti, ekkert síður en ríkisstj. getur væntanlega tekið það.