05.11.1962
Neðri deild: 11. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (159)
6. mál, almannavarnir
Frsm. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. heilbr.- og félm., hv. 1. þm. Vestf., gerði í sinni framsöguræðu, sem hann var nú að ljúka, nokkra grein fyrir meðferð málsins á síðasta þingi og greindi þ. á m. frá því, að málið hefði þá fengið þá dálítið sérkennilegu afgreiðslu, að hæstv. dómsmrh. lagði til, að málinu yrði vísað frá með rökst. dagskrá, og var hér þó um stjórnarfrv. að ræða. Að öðru leyti greindi hv. frsm. ekki frá aðdraganda þessa máls, og mun ég nokkuð víkja að því síðar, en rakti hins vegar frá sínu sjónarmiði efni þessa frv., og hef ég ekki heldur miklu við það að bæta. Hann greindi einnig frá þeim lagaákvæðum, sem nú eru í gildi um almannavarnir, og er það fyllilega rétt hjá honum, að það eru í lögum frá stríðsárunum síðustu, 1941 og með breytingum 1942 og enn víðtækari breytingum frá 1951, allvíðtækar heimildir til varna í stríðstilfelli. Ég fæ því ekki séð, að hann hafi rétt fyrir sér, þegar hann nú undir lok ræðu sinnar sneri sér að hv. 3. þm. Reykv., sem hann sagði að hefði mælt með þeim lagaákvæðum, sem nú væru í gildi frá 1941, 1942 og 1951, og talið sig ánægðan með þau ákvæði, en jafnvel látið að því liggja, að framkvæmdir væru tæpast nægar til varnar landinu á stríðsárunum síðari. Þegar hv. þm. bregður honum svo með stóryrðum um skoðanaskipti í málinu, í hverju birtast þau skoðanaskipti? Hann sagði, að það væri einkennilegt, að þessi þm. hefði alveg skipt um skoðun. Ég bið hv. þm. að nefna þær heimildir, sem hann styður þessa skoðun sína við. Hér er einmitt í niðurlagi þess nál., sem ég stend að, vitnað til gildandi lagaákvæða sem fullnægjandi, og þau eru studd af Alþb., en hins vegar látið í ljós, að víðtækari heimilda sé ekki þörf, sízt af öllu svo viðtækra sem í þessu frv. felast. og verður nánar gerð grein fyrir því. Öll gífuryrði hv. þm. lýsi ég ómerk, — gífuryrði hans um það, að ég og mínir flokksmenn höfum gleymt því, að íslenzkt blóð renni í æðum okkar, og við séum nú fúsir til þess að styðja árásaraðila gegn Íslandi, ef við höldum, að það sé Sovét-Rússland. Ég lýsi hv. þm. ósannindamann að þessu, nema hann leggi fram hér í hv. þd. gögn fyrir sínum fullyrðingum í þessu efni, og tel hann minni mann, ef hann víkst undan því að koma með þessi gögn. Hann sagði, að við gerðum nú kröfu um, að dregið væri úr vörnum. Ég krefst þess, að hv. þm. geri grein fyrir þessari fullyrðingu sinni og rökstyðji hana, færi á hana sönnur. Í sambandi við þetta mál höfum við engar slíkar kröfur borið fram, og mér er ekki kunnugt um, að slíkar kröfur hafi nokkurn tíma verið bornar fram af Alþb., að dregið væri úr vörnum Íslands, og útlegging hv. þm. var, eins og ég hef þegar vikið að, sú, að við værum að sýna þjónkun við austrænt veldi, ekki minnugir þess, að það rynni íslenzkt blóð í okkar æðum. Ég hygg, að hv. þingbræður mínir séu mér sammála um, að það er ekki hægt að láta þm. sleppa með það að bera fram slík gífuryrði, án þess að hann finni þeim stað. Hvar er að finna kröfurnar um það frá hendi Alþb., að dregið sé úr vörnum Íslands? Leggi hv. þm. þessar kröfur okkar á borðið. En ef hann finnur ekki þessar kröfur skjallega einhvers staðar, þá er hann minni maður. (Gripið fram í.) Ég held nú, að það sé hv. 1. þm. Vestf., sem hefur ekki lesið það, en honum gefst sem sé kostur þess og á hann er skorað að gera það, að lesa út úr þessu nál. kröfur um, að dregið sé úr vörnum Íslands. Og þá reynir á lestrarkunnáttu hans, það verð ég að segja.
Aðdragandinn að flutningi þessa frv., sem hér er nú til 2. umr., er samkv. upplýsingum, sem frv. fylgdu á síðasta þingi, sá, að á haustinu 1961 hafi horft mjög ófriðlega í heiminum á ýmsum stöðum, það hafi verið viðsjár í Afríkulöndum og hernaðarblikan hafi alveg sérstaklega verið alvarleg í Kongó, bylting hafi orðið á Kúbu, í Asíu hafi verið ýmsar viðsjár með þjóðum, svo sem hernaðaraðgerðir milli Rauða-Kína og Formósu, alvarleg átök í Laos, Víetnam og Indlandi og víðar, að ótalinni Berlínardeilunni o.fl. Ófriðarblikur voru þá á lofti, segir í þessum skýringum með frv. Þetta var því tilefni þess, að þetta frv. var flutt.
Þá töldu ráðamenn landsins, að undir svona kringumstæðum væri óverjandi að gera ekki gangskör að því að efla varnir landsins. Af því tilefni voru sendir út af örkinni tveir embættismenn, formaður loftvarnanefndar Reykjavíkur, Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri í Reykjavík, og dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir, sem að ráði stjórnarvalda tókust ferð á hendur til Norðurlanda til þess að kynna sér varnaraðgerðir Norðurlandaþjóða, og munu þeir hafa komið heim með ýmsan fróðleik frá þessum löndum viðvíkjandi varnaraðgerðum Norðurlandanna. Það er rétt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að heilbr.- og félmn. kvaddi í fyrravetur þessa sendinefnd íslenzku ríkisstj. á sinn fund og ræddi við þá um þeirra skoðanir á loftvarnamálum og almannavörnum. En við það var ekki látið sitja, þegar svona válega horfði í heiminum, að senda íslenzka menn til útlanda til þess að brynja okkur þekkingu, heldur voru fengnir hingað til lands a.m.k. tveir erlendir fræðimenn í þessum efnum. Annar þeirra hét Holtermann, norskur hershöfðingi, sem mun hafa forustu fyrir almannavörnum í Noregi, og hinn erlendi sérfræðingurinn var danskur maður, Toftemark að nafni, yfirlæknir hjá dönsku heilbrigðisstjórninni. Þessir menn dvöldust eitthvað hér á landi og höfðu samskipti við ríkisstj., loftvarnanefnd Reykjavíkur og ýmsa fleiri aðila og skiluðu síðan skýrslum um sínar skoðanir á þessum málum og einkanlega hvað rétt væri að gera til þess að treysta almannavarnir Íslands, og fylgdu álitsgerðir þeirra beggja með frv., eins og það var lagt fyrir síðasta þing. Gefur að skilja, að þessir menn eru með allvíðtækar upplýsingar um þessi mál, báðir frá löndum, sem hafa herskyldu og hafa menntað sína þegna í herfræðilegum efnum, og þar að auki höfðu þeir forustuhlutverki að gegna í viðbúnaði þessara landa í sambandi við varnaraðgerðir.
Þegar þetta hafði gerzt, fól þáv. hæstv. dómsmrh., núv. hæstv. forseti þessarar d., nokkrum mönnum að undirbúa frumvarp að nýrri löggjöf um almannavarnir. Og er hér skýrt frá því, að í samráði við hann hafi unnið að samningu þessa frv. aðallega Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri, dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir, þeir sem fóru utan til þess að afla sér fræðslu um þessi mál, og enn fremur Hjálmar Blöndal hagsýslustjóri Reykjavíkurborgar, sem um skeið hafði verið framkvæmdastjóri loftvarnanefndar Reykjavíkur og var því sá maðurinn hér á landi, sem einna helzt hafði fengið reynslu í því að stjórna varnaraðgerðum að því er snerti Reykjavíkurborg eða viðbúnaði til slíkra hluta. Þessir menn skilst mér því að séu aðalhöfundar þessa frv.
Frv., eins og það er flutt nú, held ég að sé alveg frá orði til orðs eins og frv., sem lagt var fyrir Alþ. í fyrrahaust. Fskj., sem fylgdu frv. hið fyrra sinn, fylgja því ekki nú, en til þeirra er vísað í stuttri aths., sem þessu frv. fylgir, og menn beðnir að athuga fskj., sem því fylgdu áður.
Í 1. gr. þessa frv. er svo sagt, að tilgangurinn með frv., þess hlutverk sé að koma í veg fyrir, að almenningur verði fyrir líkamstjóni eða eigna af völdum hernaðaraðgerða. Þetta er mikilsverður tilgangur, og því fer fjarri, að ég eða Alþb. veiti ekki þessum megintilgangi frv. fullan stuðning. Sérhverjar þær aðgerðir, sem verða mættu til þess að koma í veg fyrir, að almenningur yrði fyrir líkamstjóni eða eigna, eru auðvitað góður tilgangur, sem sérhver maður í þessu landi hlýtur að styðja. Það, sem okkur hins vegar kynni að greina á um, er allt annað. Það er matið á því; hvaða varnir komi að gagni og séu þess megnugar að koma í veg fyrir líkamstjón af hernaðaraðgerðum í kjarnorkustríði. Og það er allt annað atriði. Það má vel vera, að sumir hv. þm. hafi á því tröllatrú, að það sé hægt að koma í veg fyrir, að almenningur verði fyrir líkamstjóni í slíku stríði, en ég hygg þó, að það kunni að hvarfla að einhverjum öðrum þm. einhverjar efasemdir um það og þar með, að hinar víðtækustu heimildir, sem hugsanlegar væru til almannavarna, séu þannig kannske ekki alveg öruggar með að koma í veg fyrir líkamstjón Íslendinga.
Þá á almannavarnakerfið, sem nánar er lýst í þessu frv., hvernig eigi að byggja upp, að veita aðstoð, ef tjón vofir yfir eða hefur orðið af náttúruhamförum, og er hér sennilega hugsað sérstaklega til eldgosa eða jafnvel ísalaga, sem eru megindrættirnir í íslenzku náttúrufari, ef það fer í hamfarir, sem Íslendingar þekkja frá fyrri öldum, og má vera, að eitthvað af þeim aðgerðum, sem gert er ráð fyrir í frv., gæti undir vissum kringumstæðum komið að einhverju liði í sambandi við slíkt.
Frv. leggur allar almannavarnirnar undir dómsmrh. Hann á að skipa forstöðumann almannavarna, segir í frv., og nú er það upplýst, að þetta embætti hefur þegar verið stofnað, áður en frv. er orðið að lögum. Og þá embættisstofnun ber að með þeim sérkennilega — kannske einstæða hætti, að embættið er stofnað samkv. heimild í rökst. dagskrá, sem að meginefni var auðvitað um það að vísa máli frá þinglegri afgreiðslu. En embættismaðurinn var skipaður hinn 21. júní s.l. og hefur starfað að þessum málum síðan, sjálfsagt aðallega á grundvelli gildandi laga, og þær lagaheimildir eru allvíðtækar, svo sem ég mun koma að síðar, og enn fremur með tilliti til efnis þess frv., sem í rökst. dagskránni, sem hann var ráðinn eftir, var gert ráð fyrir að yrði lagt fram í byrjun þessa þings, sem og gert var.
Þessi embættismaður, almannavarnastjórinn, á að hafa víðtækt embættissvið og embættisvald. Hann á að sjá um heildarskipulagningu allra almannavarnanna og annast framkvæmd allra þeirra þátta, sem heyra undir ríkisvaldið, þ. á m. um fjarskipti milli umdæma, því að landinu mun eiga að skipta í allmörg umdæmi. Hann á að sjá um mælingu á geislavirkni, — það hefur heyrt undir eðlisfræðistofnunina og verið framkvæmt í sambandi við háskólann, en þessi starfsemi á að lúta hans yfirstjórn. Hann á að sjá um viðvörun, ef á að setja upp viðvörunarkerfi, — ég hygg, að það eigi að vera í flestum kaupstöðum landsins loftvarnaflautur, sem á að setja upp, og kannske símakerfi líka í þeirri þjónustu og útvarp, — viðvörunarkerfinu á hann að stjórna. Fræðslustarfsemi á hann að skipuleggja og sjá um bæði kennslu yfirmanna og leiðbeinenda, og það fólk á eftir heimildum frv. að skipta þúsundum, sem þannig á að njóta sérstakrar fræðslu undir yfirstjórn almannavarnastjórans. Og hann á enn fremur að sjá um skipulagningu og yfirstjórn á flutningi fólks af hættusvæðum, en hættusvæði eru oft nefnd í frv., og mundi það eitt vera ærið umfangsmikið, ef til þess skyldi koma, sem maður náttúrlega vonar að verði ekki. Og svo á hann einnig að hafa yfirumsjón með öllum almannavörnum sveitarfélaganna í landinu.
Ég hygg því, að það veiti ekki af, að í þessu embætti sé starfsamur maður og vel að sér og röggsamur og stjórnsamur, því að hans vandi er ekki lítill, ef til þess kæmi, að hann þyrfti að framkvæma alla þessa þætti síns víðtæka embættis. Það er rétt, að þessi ungi embættismaður mætti á fundi heilbr.- og félmn. nú, þegar málið var tekið fyrir, og svaraði fúslega og greiðlega öllum þeim spurningum, sem til hans var beint, og að því er mér virtist svaraði hann eins og hann vissi sannast og réttast, og gazt mér hið bezta að manninum, ekki skal ég draga dul á það. Hann á auðvitað ekki að vera einn, en þó mun hann vera einn enn þá. Hann á að fá sér við hönd fjögurra manna almannavarnaráð og það á að vera embættismanninum til ráðuneytis. Ekki er mér kunnugt um það, hvort almannavarnaráðið hefur þegar verið skipað, en vera má, að það hafi einnig verið gert samkv. ákvæðum hinnar rökst. dagskrár.
1 5. gr. frv. er gert ráð fyrir stofnun og rekstri varasjúkrahúsa. Ég hygg, að það yrði allkostnaðarsamt að koma upp varasjúkrahúsum, fleiri en einu er gert ráð fyrir, sem ættu að taka mörg hundruð sjúklinga, slasað fólk sennilega aðallega. Og verð ég að játa, að ekki hef ég heldur fengið upplýsingar um það, hvort ráðstafanir hafa þegar verið gerðar til þess að koma slíkum sjúkrahúsum upp. Þó mun hafa verið rætt um það við einstök fyrirtæki, sem nú starfa, eins og t.d. við Samband berklasjúklinga um það að fá að taka Reykjalund, þeirra myndarlega vinnuheimili, sem varasjúkrahús, ef nauðsyn þætti krefja. En vitanlega yrði þrátt fyrir það, þó að svona stofnanir yrðu teknar, að gera á þeim ýmiss konar breytingar og öryggisráðstafanir í sambandi við, að þeim yrði breytt í sjúkrahús. En upplýsingar verða að sjálfsögðu gefnar um þetta, bæði hvort búið sé að stofna almannavarnaráðið og þá hversu viðtækar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að koma á fót varasjúkrahúsum og fleira þess konar, sem felst í mjög svo viðtækum heimildum þessa frv.
Í 10. gr. frv., — ég fer, eins og menn sjá, tiltölulega lauslega í efni frv. sjálfs og hleyp yfir margvísleg ráð og nefndir, sem gert er ráð fyrir að verði stofnuð, og víðtækar heimildir, sem í því felast, en staldra aðeins við örfáar þeirra, — samkv. 10. gr. er það borgaraleg skylda allra kvenna og karla á aldrinum 18–65 ára að gegna án endurgjalds starfi í þágu almannavarna samkv. fyrirmælum lögreglustjóra. Heimild er svo til þess enn fremur að taka 16 ára börn í þessa þjónustu og einnig gamalmenni yfir sjötugt, en það á víst ekki að gera, nema alveg óvenjulega standi á. En allvíðtæk skylda er þetta, borgaraleg skylda, sem hvílir á öllum, konum og körlum á aldrinum 18–65 ára, ef kallið kemur.
Þá segir, að þeir, sem eigi að starfa í hjálparliðum, skuli taka þátt í námskeiðum og æfingum, sem þeir verða kvaddir til, og beri þeim skilyrðislaust að hlýða fyrirmælum og sé þeim óheimilt að hverfa frá starfi án leyfis. Og ef hætta sé talin yfirvofandi, megi þessir starfsmenn í hjálparliðunum ekki fara út úr lögsagnarumdæminu án samþykkis lögreglustjóra eða fulltrúa hans. Það er á valdi ráðherra að ákveða, hve skyldunámið sjálft og æfingar í þágu almannavarnanna skuli standa lengi, taka langan tíma, en þetta eiga borgararnir að gera án endurgjalds.
Mér finnst nú, að með þessum ákvæðum sé óneitanlega kominn nokkur keimur af herskyldu og heræfingum inn í íslenzka löggjöf, og mér finnst ákaflega vandséð, hvernig þetta allt fáist samrýmzt daglegum störfum manna.
Í 15. gr. frv. er sú skylda lögð á meiri háttar atvinnufyrirtæki, að þeim beri að láta gera loftvarnabyrgi, sem taki allt starfsfólkið. Þetta er að mínu áliti ágæt varnarráðstöfun, ef það kemur að gagni. En allmikill útgjaldaliður gæti það orðið á atvinnufyrirtæki, sem hefði við skulum segja 100–200–300 manns í sinni þjónustu, að koma upp slíku öruggu byrgi, því að ekki má búa til neina gildru fyrir fólkið með alveg sérstökum ráðstöfunum ríkisvaldsins. Sjá þarf þessu fólki á hvaða stundu sem það bæri að, að það yrði að fara í slíkt loftvarnabyrgi, fyrir nægum vistum, því að okkar ungi embættismaður sagði, að það mætti búast við því, að fólk yrði jafnvel að vera í slíku byrgi allt að hálfum mánuði, og yrðu því vatn og vistir og aðrar lífsnauðsynjar að vera að staðaldri og vera endurnýjaðar í þessum opinberu byrgjum. Ef sá kostnaður á líka að leggjast á atvinnurekendurna, þá hygg ég, að ýmsum atvinnurekendum þyki þrengja að sér, bæði með að sjá fyrir slíkum stórum sal, því að almannavarnastjórinn sagði, að ekki mætti vera minna loftrými en 3 rúmmetrar á mann í slíkum byrgjum, og þetta yrði því að vera stórhýsi, ef um yrði að ræða fyrirtæki með 100–300 manns, sem vel gæti komið fyrir, því að slík fyrirtæki eru starfandi hér á landi, þó að ekki væru önnur en t.d. hin stærstu hraðfrystihús.
Mér mundi þykja vænt um að heyra., hvort það er raunverulega ætlunin að leggja atvinnurekendum þetta á herðar og þar með að sjá fyrir t.d. hálfs mánaðar vistum fyrir allt þetta fólk í byrgjunum og endurnýja þær, ef vistir hafa verið þar um lengri tíma, án þess að ríkið komi þar til.
Þá segir enn fremur, að sé fyrirmælum almannavarnanefnda um ráðstafanir til einkavarna ekki hlýtt, beri að framkvæma þær á kostnað eiganda eða umráðamanns.
Í 17. gr. frv. er talað um fyrirtæki, sem sé þannig háttað, að eyðing þess eða þeirra eða skemmdir á því eða þeim geti haft í för með sér hættu fyrir umhverfið, og gagnvart slíkum fyrirtækjum geti ráðh. fyrirskipað eigandanum eða umráðamanni þess að gera viðeigandi öryggisráðstafanir, enda taki ríkissjóður þátt í kostnaði, og þarna leggur meiri hluti hv. n. til, að sú þátttaka verði ákveðin að mati dómkvaddra manna.
Mér er ekki ljóst, hvaða fyrirtæki hér er átt við. Almannavarnastjórinn var spurður um það, hvað hann teldi um það atriði. Honum var það ekki heldur fyllilega ljóst, en hann vildi þó geta þess til, að hér væri t.d. átt við olíustöðvar og benzínstöðvar og e.t.v. áburðarverksmiðju ríkisins. Áburðarverksmiðja ríkisins framleiðir sem sé efni, sem geta verið eins og sprengiefni, og það má vel vera, að það sé fyrirtæki eins og áburðarverksmiðjan, sem þarna er átt við, og svo t.d. olíustöðvarnar. En þá er mér spurn: Hvaða öryggisráðstafanir eru það, sem þarna væri hugsanlegt að kæmu að gagni? Hvaða öryggisráðstafanir væri hægt að gera gagnvart olíustöðvunum í Reykjavíkurborg og Hafnarfirði og öðrum kaupstöðum landsins? Og hvaða öryggisráðstafanir væri hægt að gera með tilliti til öryggis umhverfisins að því er snerti áburðarverksmiðjuna, ef mikil sprengingarhætta er frá framleiðsluvörum hennar?
Þá kemur að V. kafla frv., en hann fjallar um flutning fólks af hættusvæðum, og hefur kaflinn í sér fólgnar hinar víðtækustu heimildir, sem ég held að margar hverjar mundu reynast ærið kostnaðarsamar, ef til framkvæmda kæmu. Við skulum bara hugsa okkur, að það ætti að flytja hvert einasta mannsbarn úr 3000 manna kaupstað. Það yrði ærið dýrt fyrirtæki, því að þarna er ekki um flutninginn einan að ræða, heldur einnig um það að koma þessu fyrir á öðrum stað og sjá því þar fyrir lífsnauðsynjum. En hér er í frv. um miklu, miklu stórfelldari hluti að ræða en flutning á nokkrum hundruðum manna. Brottflutningar fólks eru sem sé hugsaðir og heimilaðir af hættusvæðum, eins og það er kallað í frv., og gert ráð fyrir, að fólk verði að hlýða fyrirskipunum um að koma sér fyrir á öruggari stöðum. Í greininni segir, að öllum sé skylt, sem um það fái fyrirmæli, að flytja á þeirri stundu og á þann hátt og til þess staðar, sem ríkisstj. hefur ákveðið, og er engum manni heimilt án sérstaks leyfis að flytja frá þeim stað, sem honum hefur verið vísað á. Í þeim tilgangi að framkvæma þessa flutninga fólks er svo ríkisstj. heimilað að framkvæma leigunám á skipum, leigunám á flugvélum og leigunám á landi og hvers konar húsnæði. Og skv. lögunum er hægt að gefa eiganda húsnæðis fyrirmæli um að taka við fólki, sem flutt hefur verið af hættusvæði, og veita því húsaskjól og fæði, ef nauðsynlegt er. Gert er ráð fyrir, að greiðsla geti, eins og þar segir, e.t.v. komið fyrir húsnæði og fæði, sem þannig er tekið með valdboði. Enn segir, að ákveða megi með reglugerð, að í húsi af tiltekinni stærð, sem byggt er eftir gildistöku þessara laga, skuli vera gert öryggisbyrgi fyrir þá, sem í húsinu búa eða í húsinu starfa. Og húseigandi skal bera allan kostnað vegna byrgisins, og á það að fullnægja þeim lágmarkskröfum um öryggi, sem reglugerðin kveður á um, en þessi öryggisbyrgi eiga samkvæmt upplýsingum í fylgiskjölum með frv. frá í fyrra að þola nokkurn yfirþrýsting, og ef um opinbert loftvarnabyrgi eða almannavarnabyrgi er að ræða, þá er talið æskilegt, að það þoli 7–10 loftþyngdir. En þessi byrgi eiga einstaklingar að kosta, eigendur húsanna, og þeir eiga að sjálfsögðu líka að hafa vatn og vistir í þessum byrgjum, þannig að ávallt séu til ný matvæli og nýtt drykkjarvatn í þessum byrgjum, og endurnýjunarskyldan virðist mér að muni hvíla á eigendum hússins líka.
Nú eru gildandi byggingarsamþykktir í öllum kaupstöðum landsins og þar krafizt ákveðins styrkleika á húsum, en skv. þessari heimild í frv. mun dómsmrh. gefa út breytingu á byggingarsamþykktunum, þar sem heimtað er, að loftvarnabyrgi verði í hverju húsi, sem hér eftir verður byggt og er af ákveðinni stærð, og að þessi hluti hússins verði að fullnægja ákveðnum styrkleikakröfum, sem heimtað verður í reglugerð.
Ég hygg, að þarna geti verið um allískyggilegan kostnað að ræða fyrir húsbyggjendur, og þykir mér þá enn þá einum ekki ómyndarlegum pinkli bætt á þeirra hrygg.
Í 25. gr. frv. er svo gerð grein fyrir því, hverjir eiga að bera kostnaðinn af framkvæmd heimildanna, ef til framkvæmda kemur. Ríkissjóður á að greiða laun almannavarnastjórans og ber kostnað einn, skilst mér, af vissum þáttum almannavarnanna. Af byggingu og rekstri varasjúkrahúsa virðist hlutaðeigandi sveitarsjóðum vera ætlað að bera þriðjung kostnaðar, og yfirleitt mun ætlunin, að ríkissjóður beri 2/3 kostnaðar af almannavörnunum, en sveitarsjóðir 1/3, en einstaklingarnir eiga svo að bera kostnað af ýmsum sérstökum aðgerðum, eins og t.d. loftvarnabyrgjum og rekstri þeirra í eigin húsum, og fleiri skyldur, sem þeim eru lagðar á herðar.
Mér virðist, að það blasi alveg við, að það sé ekki aðeins rétt, sem almannavarnastjórinn sagði, að það mætti gera ráð fyrir a.m.k. 30 millj. kr. kostnaði, ef ætti að framkvæma almannavarnir hér eitthvað í líkingu við frv. Ég hygg, að sú upphæð hljóti þvert á móti að vera allt of lágt áætluð. Mér sýnist þessar heimildir vera svo víðtækar, að kostnaður af þeim hljóti að vera margir tugir milljóna, ef ekki hundruð milljóna. Og það sjáum við allir í hendi okkar, að til lítils eru þessar heimildir, hversu víðtækar sem þær eru, ef þær hafa þann kostnað í för með sér, að íslenzkt þjóðfélag risi ekki undir kostnaði af að framkvæma þær. Þá eru þær bara pappírsgagn, og það er víst ekki tilfellið, að að því sé mikil vörn í atómstríði.
Hvernig er svo um það búið, að hægt sé að hefja framkvæmdir skv. heimildum frv.? Jú, það er ætluð ein milljón króna á fjárl. til þessa alls, og ég held, að það megi áreiðanlega gæta mikillar hagsýni, ef hún á að endast til að framkvæma heimildir þessa frv. og fullnægja þeim tilgangi frv. um almannavarnir að koma í veg fyrir, að almenningur á Íslandi verði fyrir líkamstjóni og eigna, ef til styrjaldar skyldi draga. Það er síður en svo, að ég hneykslist á, að ætlunin sé að verja einni millj. kr. til þessara hluta, til þess að verja líf og eignir íslenzku þjóðarinnar. Mér finnst upphæðin bókstaflega hlægilega lág. Mér finnst hún bera vott þess, að það sé ekki alvara þeirra manna, sem hafa látið allar þessar heimildir á þrykk, að þeir ætlist til þess, að þær séu framkvæmdar, ef til kæmi.
Ég hef áður vikið að því, að frv., eins og það var lagt fyrir hv. Alþingi á síðasta þingi, fylgdu fjögur fskj. Auðvitað voru þau lögð fram til þess að skýra þetta stóra og þýðingarmilda mál og skýra það einkum frá sjónarmiði þeirra sérfræðinga og trúnaðarmanna, sem ríkisstj. hafði falið að kynna sér málið, og jafnframt að kynna viðhorf ríkisstj. til þessa máls, því að ef þessi fskj. hefðu ekki túlkað hennar skoðanir í öllum aðalatriðum, hefðu fskj. vafalaust ekki verið látin fylgja til skýringar fyrir hv. alþm.
Fyrsta fskj. var skýrsla loftvarnanefndar Reykjavíkur. Annað fskj. var bréf loftvarnanefndar Reykjavíkur frá 4. okt. 1961. Þriðja fskj. var álitsgerð Holtermanns hershöfðingja, forstjóra almannavarnanna í Noregi. Og fjórða fskj. var álitsgerð C. Toftemarks yfirlæknis hjá dönsku heilbrigðisstjórninni.
Mér finnst vera margar athyglisverðar upplýsingar að finna í þessum skjölum, og sjálfsagt er þar ýmislegt nýstárlegt fyrir augum hv, þm., sem lesa skjölin yfir.
Í skýrslu loftvarnanefndar Reykjavíkur er skýrt frá starfi hennar í nokkur ár og gefnar upplýsingar um, hvað hún hafi keypt mikið af teppum og dýnum og fatnaði, sjúkrabörum, sáraumbúðum, rúmfatnaði, og margt fleira, sem hún keypti, og gerð grein fyrir því, að þessi varningur sé geymdur á ýmsum stöðum hér í bænum. Einnig er upplýst, að hún hafi látið gera allmikið af steinbitum, járnbentum, sem raða á fyrir kjallaraglugga í íbúðarhúsum manna, þegar kjallararými er tekið í notkun sem loftvarnabyrgi. Því er haldið fram í þessari skýrslu, að mest af þessum varningi, sem loftvarnanefndin lét útvega, sé enn þá í fullu gildi og haldi lengi gildi sínu. En nú var sú spurning lögð fyrir hinn unga embættismann, almannavarnastjórann, hvort steinsteyptu bitarnir fyrir kjallaragluggana væru ekki í fullu gildi nú og hvort þeir hefðu ekki verið fluttir t, d. á það svæði, sem álíta yrði að væri í mestri hættu, eins og Keflavíkursvæðið, til þess að hafa bitana tiltæka, ef ófriður skylli yfir. Onei, hann kvað það ekki vera, bitarnir væru geymdir hér í bænum, en af þeim væri þá sögu að segja, að þeir væru ónýtir, steinbitarnir væru ónýtir. Hvað þá um sáraumbúðirnar og það? Og af hverju eru steinbitarnir ónýtir? Það er af því, að þeir voru steyptir með holrúmi og koma þannig ekki að gagni sem vörn gegn geislum, því að það er ekkert annað en efnismassinn, sem geislarnir komast ekki í gegnum. Bitarnir eru því ónýtir. Þá fer nú að fara um mig ótti um það, að eitthvað af hinum vörunum, sem keyptar voru fyrir eitthvað á tíundu millj. kr., kunni einnig að hafa misst eitthvað örlítið af notagildi sínu.
Danski læknirinn Toftemark getur þess, og það er dálítið upplýsandi í sambandi við hugmyndir okkar um kostnað, að þær ráðstafanir, sem til þessa hafi verið gerðar til umönnunar særðra og sjúkra í Danmörku á vegum almannavarna þar, hafi þegar, þ.e.a.s. á öndverðu ári 1961, kostað 100 millj. danskra króna, þ.e.a.s. um 630 millj. ísl. kr. Hann upplýsir út af fyrir sig, að 17 millj. kr. hafi farið til lyfjakaupa, til að hafa sem birgðir hingað og þangað, en einnig hafi verið keypt þar nokkur varasjúkrahús, og 20 millj. kr. segir hann að hafi farið í það að styrkja eldri sjúkrahús, gera þau sterkari. Sjúkrahús í Danmörku eru nú flest, eins og allflestar byggingar þar, úr múrsteini, en samt varð að verja 20 millj. kr. til að byrja með til þess að gera þau sterkari, sjúkrahúsin, sem fyrir voru. Af þessu sjáum við, að það er margur útgjaldaliðurinn í sambandi við framkvæmd svona mála.
Eitt af því marga, sem upplýst er í sambandi við þessi mál í skýrslu loftvarnanefndar Reykjavíkur, er það, að nefndin hafi lengi haft augastað á því, að sprengt yrði öryggisbyrgi inn í Arnarhól, og kveðst hún hafa fengið verkfræðinga Almenna byggingafélagsins til þess að gera áætlun um kostnað þessa mannvirkis. Í sjálfri skýrslu nefndarinnar er svo ekki sagt frá leikslokum um þetta, en í viðbótarbréfi hennar frá 4. okt. 1961 er skýrt frá því, að verkfræðingarnir hafi lokið við uppdrætti að þessu byrgi og fullgert sínar verkfræðilegu athuganir vegna loftvarnabyrgis undir Arnarhóll. Almannavarnastjórinn var um það spurður, hvað þetta byrgi ætti að kosta samkvæmt þessum verkfræðilegu áætlunum, sem nú lægju fyrir skv. þessum upplýsingum, og var honum ekki kunnugt um það. Ég hef því ekki enn þá getað fengið vitneskju um það, hvað þessar áætlanir um loftvarnabyrgið undir Arnarhóli eru háar. Ef þær eru gerðar fyrir svo sem einu, tveimur, þremur árum, þá yrði náttúrlega að umreikna þær nú til núverandi byggingarkostnaðar, og mundu tölur allar hækka við það. Ég teldi þó æskilegt, ef hv. frsm. meiri hl. eða einhverjir úr liði hæstv. ríkisstj. gætu upplýst um það, hvað þetta eina byrgi undir Arnarhóli, sem verkfræðilegar athuganir og áætlanir hafa verið gerðar um, mundi kosta t.d. í dag, miðað við byggingarkostnað í dag.
En sjálfsagt er það þó ekki fyrst og fremst byggingarkostnaður loftvarnabyrgja eða almannavarnabyrgja, sem hræðir mest. Ég hygg, að þar komi ekki síður til rekstrarkostnaður þeirra, og um rekstrarkostnað byrgjanna er hvað eftir annað talað í þessu frv. Það væri því einnig fróðlegt að fá áætlun um rekstrarkostnað t.d. þessa Arnarhólsbyrgis.
Loftvarnanefnd Reykjavíkur, sem búin er að starfa að málinu nokkur ár, segir, að það séu mörg og margvísleg aðkallandi verkefni, sem slík n. þurfi að sinna, með tilliti til venjulegrar styrjaldarhættu, og þ. á m. nefnir hún byggingu loft:varnabyrgja, sem hún segir að þurfi að byggja mörg hér í miðbænum í Reykjavík, — kjallarana í úthverfunum megi viðast hvar nota með einhverjum breytingum, t.d. með því að hlaða múrblokkum fyrir glugga, skipun hjálparsveita, búnað þeirra og æfingar, áætlanir um brottflutning fólks úr bænum og nágrenni, einkum af svæðinu suður á Reykjanesskaga, og nefnir viðbúnað ýmsan í því sambandi, máltíðaúthlutun o.fl., o.fl., segir hún. Og að síðustu segir hún svo, að ef ekki væri um venjulega styrjöld að ræða, þyrfti einnig að gera víðtækar varnir fyrir almenning í kjarnorkustríði, enn viðtækari en leiði af hinum almennu ráðstöfunum. Sjálfsagt er þetta allt saman rétt hjá n., en það sýnir bara, hvílíkt ofurfjármagn þyrfti í þessar aðgerðir, ef þær væru framkvæmdar á þann hátt, sem þessir sérfræðingar telja þörf og jafnvel nauðsyn á.
Eitt atriði er, sem ég staldraði sérstaklega við í skýrslu loftvarnanefndar, og það var um það, þegar hún var að skýra frá, hvernig það hafi gengið, þegar hún hafi verið að gera áætlanir um að skylda fólk til að mæta til æfinga. N. segir, að hún hafi gert áætlanir um skipun hjálparsveita og skipulag hjálparstarfs, ef í nauðir ræki, en hins vegar hafi n. þó ekki skipað menn til hjálparstarfa eða fyrirskipað æfingar, en athuganir um það efni leiddu í ljós, að menn virtust mjög tregir til að sinna kalli til æfingastarfa, og hefur n. ekki haft trú á neins konar þvingunarráðstöfunum í þessum efnum, enda vafasamur árangur af þess háttar æfingum, nema fullur hugur þátttakenda fylgi máli. Það virðist sem sé hafa komið í ljós, að fólk var mjög tregt til að hlýða kalli og verja tíma sínum þarna til æfinga, og n. tók það til yfirvegunar, hv ort ætti að beita þvingunaráðstöfunum, og komst að þeirri niðurstöðu, sem ég hygg að hafi verið alveg hárrétt hjá henni, að það þýddi ekki að kalla menn til slíkra æfinga nauðuga, því að þá yrði lítill árangur af slíkum æfingum, þar þyrfti hugur að fylgja máli. Það yrði kannske svo, að það yrði ekki auðvelt að fá Íslendinga þúsundum saman, eins og gert er ráð fyrir, til þessara æfingastarfa og til þessa náms, sem þó hlyti að vera mjög mikið undirstöðuatriði um allar aðgerðir, því að óæft fólk er sjálfsagt ekki til neins að taka til þess að ryðja borgarsvæði, þar sem húsin hefðu hrunið eða allt væri í báli og brandi, fólk vissi þar ekkert, hvernig það ætti að snúa sér, og það er þess vegna skiljanlegt, að það þurfi að hafa námskeið og æfingaskóla fyrir allt þetta fólk, sem á að vera í hjálparsveitunum, og ekki líklegt, að þar komi að gagni að beita þvingunaraðgerðum eða valdi. Mér þykir ömurlegt, að slík skyldi verða reynslan hjá loftvarnanefnd Reykjavíkur, en sjálfsagt fer hún þarna með alveg rétt mál, ég efa það ekkí. Svona hefur þessum ráðstöfunum verið tekið.
N. segist einnig hafa verið að athuga möguleikana á brottflutningi fólks, ef til þess þyrfti skyndilega að koma vegna loftárása, og segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Eins og aðstæður eru hér í nágrenni Reykjavíkur, er að vísu hugsanlegt að flytja töluverðan fjölda fólks af bæjarsvæðinu á skömmum tíma. Bílakostur er svo mikill, svo fremi að vegir teppist ekki. En hins vegar er ógerlegt að koma fjölda manns, tugum þúsunda, fyrir til dvalar í dreifbýli, svo að viðhlítandi sé, nema með ærnum kostnaði, margfalt meiri kostnaði en fjárveitingavaldið hefur ætlað til loftvarnaráðstafana.“
En á þessum tíma var varið um 1 millj. kr., á miklu ódýrari tíma, 1 millj. kr. á ári til loftvarnaráðstafana. Þessar upplýsingar voru ekki heldur álitlegar viðvíkjandi þessu höfuðúrræði, sem sérfræðingarnir útlendu a.m.k. staldra mjög við, að flytja fólk tugþúsundum saman burt af Keflavíkur-, Hvalfjarðar- og Reykjavíkursvæðinu.
Mönnum kemur það sjálfsagt ekki á óvart, að nýstárlegustu upplýsingarnar um þessi mál gefur auðvitað norski hershöfðinginn Holtermann. Hann byrjar álitsgerð sína á því að segja, að ef til styrjaldar dragi, verði að gera ráð fyrir því, að sú styrjöld verði alger. Og næst segir hann frá því, hver séu hin líklegustu skotmörk. Líklegustu skotmörkin í upphafi stríðs segir hann vera aðsetur æðstu yfirvalda, — ef hann á ekki bara við stjórnarráðshúsið, þá er það a.m.k. Reykjavík, svo lengi sem ríkisstjórnin er ekki flutt héðan í burtu, — flugvellir, flotastöðvar, stór forðabúr, olíustöðvar, mikilvægar innflutningshafnir, það er vafalaust Reykjavíkurhöfn hér á landi, samgöngumiðstöðvar og stóriðnaðarhverfi, t.d. áburðarverksmiðjan. Þetta eru líklegustu skotmörkin, segir hershöfðinginn. Ef það er rétt hjá honum, að númer eitt sé aðsetur ríkisstjórnarinnar, þá hefði ég haldið, að það væri ástæða til að gera fljótt ráðstafanir, á friðartímum auðvitað, til þess að flytja ríkisstj. burt úr Reykjavík, hvað sem liði þessari aðgerð sem ráðstöfun gagnvart henni, þá a.m.k. til þess að leiða ekki allan höfuðháskann yfir alla borgarbúa. Það væri t.d. vel hugsanlegt að búa þeim byrgi í Hælavíkurbjargi, en náttúruskemmdir á Hornbjargi mundi ég ekki vilja samþykkja, þó að nauðsynin væri svona brýn. En flugvellirnir eru það næsta. Og það er enginn vafi á því, sem síðar kemur fram hjá honum, að þar hefur hann alveg sérstaklega í huga Keflavíkurflugvöll. Þá segir hershöfðinginn alveg hreinskilnislega, að í kjarnorkustyrjöld geti almannavarnir hvorki hindrað eyðileggingu né tortímingu mannslífa, en þær geta nokkuð dregið úr tjóni og hindrað, að það hafi úrslitaþýðingu. Hann tekur það ekki upp í sig, eins og það er orðað í 1. gr. frv., að koma í veg fyrir, að almenningur verði fyrir líkamstjóni eða eigna. Það er frv. ætlað. En hershöfðinginn segir, að almannavarnir geti ekki hindrað eyðileggingu né tortímingu mannslífa, en geti aðeins að nokkru dregið úr tjóni.
Ég held nú, að það hefði átt að kveða vægar að orði í upphafsgrein frv., a.m.k. kveða ekkí fastar að orði en hershöfðinginn og telja það þá höfuðtilgang frv. að draga úr tjóni, því að eyðileggingu og tortímingu mannslífa geti almannavarnir ekki hindrað.
Þá er komið að hinu þriðja atriði, sem hershöfðinginn segir að gera beri. Hann segir, að það eigi að koma upp viðvörunarkerfi, loftvarnaflautum, í öllum kaupstöðum með 2000 íbúum o.fl., en síðan beri að setja upp viðvörunarkerfi hvarvetna, þar sem íbúar séu 1000 eða fleiri.
Þá segir norski hershöfðinginn, og það skal ég hafa eftir honum alveg orðrétt:
„Það er álitin nauðsyn, höfuðnauðsyn, að öryggi æðstu stjórnvalda sé borgið, meðan styrjöld er háð. Þess vegna verður að tryggja, að forsetinn, ríkisstj. og Alþingi geti flutt á örugga staði, og gera þarf áætlun um flutning þangað.“
Ég er alveg sammála hershöfðingjanum um, að það beri að gera ráðstafanir til þess, að æðstu mönnum þjóðarinnar sé skapað öryggi, ef það er hægt. En ég leyfi mér að efa, að þau stjórnvöld yrðu mikils virt af íslenzku þjóðinni, sem sjálf skriðu í öruggt skjól, en létu ekki eitt yfir sig og aðra ganga, þegnana, sem þau ættu að stjórna. Hugmyndin virðist mér í engu vera í samræmi við norrænar drengskaparhugsjónir.
Enn heldur hershöfðinginn sér við hinar fyrstu og þýðingarmestu aðgerðir, og hann segir: „Það verður að útvega skýll. Það minnsta, sem gera verður til að byrja með, er að útvega skýli, sem veita vörn gegn geislavirku úrfalli.“
Og það segir okkar almannavarnastjóri, að kjallararnir hér í Reykjavík séu yfirleitt þannig, að þá megi nota með lítils háttar breytingum. Þó mundi margur ófróður vilja fá fljótlega nánari vitneskju um það, hvernig þessi almennu einkabyrgi eigi að vera útbúin, til þess að þau veiti vörn. E.t.v. koma hér í umr. upplýsingar um það. Það er þekking, sem kæmi borgurunum að góðu gagni að vita og það heldur fyrr en seinna. Það næstnauðsynlegasta, segir Holtermann hershöfðingi, er að undirbúa allsherjarflutning fólks frá a.m.k. 5 km svæði umhverfis Keflavíkurflugvöll. Flytja verður allt fólk, sem hefur ekki lífsnauðsynlegum störfum að gegna á þessu svæði, segir hann, til annarra staða, og einnig ber að leitast við að flytja húsdýr á brott. Allt kvikt á að flytja í burtu, segir hershöfðinginn, af a.m.k. 5 km svæði. Og enn heldur hann áfram: „Athuga þarf, hvort ekki er rétt að undirbúa svipaðan brottflutning fólks frá svæðinu umhverfis Hvalfjörð, sem e.t.v. yrði notaður af Atlantshafsbandalaginu sem flotahöfn.“
Þetta er alveg orðrétt úr áliti hershöfðingjans. Hér er ekkert um að villast, hershöfðinginn telur Keflavíkurflugvöll skapa umhverfi sínu ógnþrungna hættu, svo að þaðan eigi að flytja allt kvikt, og aðspurður sagði almannavarnastjórinn okkur, að hann teldi, að það mundu verða um 7—8 þús. manns, sem flytja þyrfti burt af þessu svæði, ef hætta skylli yfir.
Flutningur á 7—8 þús. manns og það með að sjá þessu fólki fyrir lífsnauðsynjum á nýjum stað, það held ég að sé ekkert smáfyrirtæki. Ég held, að það mundi nema mörgum milljónum.
Við Íslendingar höfðum ekki heyrt Hvalfjörð nefndan í opinberum skjölum sem hugsanlega flotastöð fyrir Atlantshafsbandalagið, fyrr en þessi hershöfðingi segir, að ástæða sé til að flytja fólkið þaðan í burt, af því að Hvalfjörður sé líkleg flotastöð í notkun Atlantshafsbandalagsins. Flutningur fólksins úr þessum firði er kannske ekki stórt vandamál, þarna er sennilega ekki um nema nokkur hundruð manns að ræða, en samt er flutningur á nokkrum hundruðum manna allstórt fyrirtæki á okkar mælikvarða að meðtalinni sköpun lífsskilyrða á nýjum stað.
En þetta er bara byrjunin á burtflutningshugmyndum hershöfðingjans, því að nú kemur að því stærsta hjá honum. Næst segir hann nefnilega:
„Undirbúa þarf brottflutning fólks úr sjúkrahúsunum í Reykjavík.“ Og hann bætir við: „Undirbúa þarf brottflutning fólks úr Reykjavík á ófriðartímum. Hve mikinn hluta íbúanna ætti að flytja þannig á brott, er undir því komið, hve mörgum er hægt að útvega samastað á þeim svæðum, sem ætlað er að taka við fólkinu. Til að byrja með verður að gera áætlun um brottflutning eftirgreindra hópa: Barna innan 18 ára aldurs, — það eru fyrstu 18 árgangarnir, hvað ætli það sé margt? — „fólks yfir 70 ára, mæðra með börn, kennara fyrir börnin og að öðru leyti fólks, sem ekki hefur lífsnauðsynlegum störfum að sinna í bænum.“
Ég veit ekki, hvað þetta verður margt samtals, en minna en þriðjungur borgarbúa getur það ekki verið. Ég held, að það hljóti jafnvel að vera um eða yfir helmingur borgarbúa. Og korna verður á fót, segir hershöfðinginn, sérstakri brottflutningamiðstöð til þess að annast flutninginn. Væri nú þarna t.d. um 25, jafnvel kannske 35 þús. manns að ræða, þá er það eitt geysilega kostnaðarsamt fyrirtæki. Við getum áreiðanlega ekki fundið það út með neinni nákvæmni, hvað þetta mundi kosta, né heldur hitt, hvernig ætti að búa öllu þessu fólki dvalar- og lífsskilyrði annars staðar. Ein spurningin hlyti í sambandi við þetta að reka aðra, en það getur vel verið, að sum svörin létu eitthvað á sér standa.
Þetta voru hugleiðingar eða útdráttur úr hugleiðingum hershöfðingjans um brottflutning fólks. En þá víkur hann að hinu höfuðatriðinu í sínum ráðleggingum, þ.e. um byggingu varnarbyrgja. Það segir hann að sé næsti þátturinn í almannavörnum, það sé bygging og útbúnaður öryggisbyrgja, og segir hann, að það sé eitt árangursríkasta skrefið til að vernda almenning á styrjaldartímum. Hershöfðinginn segir það taka tiltölulega langan tíma að koma slíkum varnarbyrgjum á fót, og svo bætir hann við orðrétt: „Þau eru tiltölulega dýr í byggingu.“ Og síðan kemur hann með ákveðna till.:
„Ég legg til,“ segir hann, „að það fyrsta, sem gert verður, sé eftirfarandi:
a. Í bæjum með meira en 2000 íbúa skal koma fyrir einkavarnabyrgjum í nýbyggingum af ákveðinni stærð.“ Það mundi þá snerta Reykjavík, Akureyri, Hafnarfjörð, Kópavogskaupstað, Keflavík, Vestmannaeyjar, Akranes, Ísafjörð og Siglufjörð. „Slík varnarbyrgi verða að þola yfirþrýsting, sem nemur tveimur loftþyngdum. Þá skýla þau nægilega gegn hita og veita mjög góða vernd gegn geislun. Húsbyggjandi á að greiða allan kostnað við að koma slíkum varnarbyrgjum á fót,“ segir Holtermann. Þetta var fyrsti liðurinn hjá honum:
b. Í öðrum bæjum en þeim, sem nefndir voru að framan, skal í nýbyggingum útbúa varnarskýli til að verjast geislavirku úrfalli.“ Skýli þessi eru, segir hershöfðinginn, ekkí eins kostnaðarsöm og hin, en þau á einnig að gera á kostnað húsbyggjenda.
c. Í eldri húsum á öllu landinu sé húseiganda gert að skyldu að afla þess efnis, sem þörf er á til þess að gera í húsinu bráðabirgðaskýli gegn geislavirku úrfalli.
d. Í Reykjavík skulu útbúin almenn varnarbyrgi fyrir 10% af íbúum bæjarins, þ.e.a.s. þá 7–8 þús. manns. „Byrgi þessi eru fyrst og fremst ætluð þeim, sem eru úti við, þegar árás er gerð, og þeim, sem ekki hafa einkabyrgi, er þeir geta leitað til. Þessi varnarbyrgi verða að þola yfirþrýsting, sem nemur minnst sex loftþyngdum. Ef unnt er að byggja varnarbyrgin í klöpp, — hann hugsar sennilega til Arnarhóls, — „en að því ber að keppa, ætti að gera kröfu um 10 loftþyngda þol.“ Sérstakir verðir, segir hann, skulu gæta hinna almennu varnarbyrgja.
Þá vikur hann að skipulagsatriðum almannavarna, hershöfðinginn, og segir m.a.:
„Í dómsmrn. ætti að koma á fót sérstakri skrifstofu fyrir almannavarnir. Gerð sé áætlun um sérstakt ráð fyrir almannavarnastjórann, sem starfi á grundvelli ofangreindrar skrifstofu almannavarnanna. 4 ófriðartímum ætti almannavarnastjórinn og ráð hans að vera staðsett í nánd við dómsmrh.“
Þessu næst segir hershöfðinginn, að setja beri á stofn skóla fyrir almannavarnir og hafi hann það hlutverk að annast menntun foringja og leiðbeinenda almannavarna. Skólinn á að heyra beint undir dómsmrh. Það á að koma upp hjálparstöð, segir Holtermann, og hjálparliði, og í því liði eiga að vera 4–5% af íbúunum, mér virðist þá 3500–4000 manns. Þetta lið virðist eiga að vera einkennisbúið, og einnig eru nefndar gasgrímur í sambandi við það.
Þá segir hershöfðinginn, að mælingar á geislavirkni verði að skipuleggja fyrir allt landið, en það, hve þétt mælistöðvar verði settar, fari eftir íbúatölu landssvæðanna. Hann gerir þó ráð fyrir, að í upphafi nægi 80–100 slíkar stöðvar. Mér er ekki kunnugt um, hvað geislavirknin hefur verið mæld á mörgum stöðum í landinu, en svo mikið er víst, að það yrði mjög að efla það mælingakerfi eftir hans tillögum.
Enn segir hershöfðinginn okkur, að á friðartímum þurfi að útvega almenningseldhús og koma upp matvælabirgðum, helzt í afmældum skömmtum.
Í lok álitsgerðar sinnar dregur Holtermann hershöfðingi saman ráðleggingar sínar og fyrirmæli, því að auðvitað verði alltaf áleitin þessi spurning, hvað eigi að sitja í fyrirrúmi og hvað verði að sitja á hakanum. Hann kveðst vilja skipa verkefnunum í eftirfarandi röð eftir mikilvægi framkvæmdanna: Fyrst koma áætlanir um flutning æðstu stjórnvalda landsins, það er það brýnasta, bæði til þess að bjarga þeim og til þess að firra aðra hættu í kringum þá. Almannavarnaskrifstofan í dómsmrn. og ráðning framkvæmdastjóra ásamt starfsliði við almannavarnirnar í Reykjavík er það næstnauðsynlegasta, og almannavarnastjórinn hefur nú verið ráðinn. Þriðja er fræðsla foringja og óbreytts liðs. Fjórða er aukning geislunarþjónustunnar, fimmta bygging varnarbyrgja, sjötta útvegun tækja vegna hinna ýmsu almannavarnagreina og sjöunda áætlun um brottflutning, almennan brottflutning.
Þetta er meginefni í leiðbeiningum norska hershöfðingjans til okkar, en hingað var hann kvaddur af hæstv. ríkisstj, til þess að fræða okkur um, hvað gera bærí í almannavörnum hér á landi. Ég held sannast að segja, að það verði fremur lítið úr einnar millj. kr. árlegri fjárveitingu til þess að framkvæma forskriftir hans.
Þá vil ég segja nokkur orð um álitsgerð danska læknisins Toftemarks. Hann hefur sýnilega haft fyrir sér álitsgerð Holtermanns og vitnar til þess á nokkrum stöðum, að hann sé henni samþykkur. Það fyrsta, sem hann tjáir sig sammála Holtermann um, er það, að ef til atómstyrjaldar dragi, þá verði hún þegar í upphafi alger. Þess vegna virðist eðlilegt, segir læknirinn, að stofna samræmingarráð, — það er eitt ráðið, — samræmingarráð milli ráðuneytanna, til þess að styðja og efla þessa viðleitni innan ráðuneytanna, hvort sem um er að ræða á sviði heilbrigðismála, landbúnaðarmála, viðskiptamála, samgöngumála eða á öðrum sviðum. Samræmingarráði skal koma á fót.
Síðan leggur læknirinn sérstaka áherzlu á fullkomið varnarbyrgi fyrir æðstu menn landsins, eins og hinn. En hann ætlar að gæta nokkru meiri sparnaðar en Holtermann, því að hann telur ekki nauðsynlegt, að byrgið rúmi alla alþm. En hann segir orðrétt svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Öryggisbyrgi, sem byggð eru og innréttuð nægilega snemma og í hæfilegri fjarlægð frá hugsanlegum skotmörkum, þar sem hægt er að hafa samband við útvarp, blöð og aðra fréttaþjónustu, eru bráðnauðsynleg. Í þeim þarf að vera unnt að hýsa þjóðhöfðingjann, ríkisstj. og a.m.k. einhverja fulltrúa á þingi,“ — sennilega einnig þm. stjórnarflokkanna, það er innskot mitt.— „Þaðan þarf einnig að vera auðvelt að hafa samband við önnur æðstu stjórnvöld, fyrst og fremst almannavarnastjórann. Almannavarnastjórinn verður vegna viðvörunar og af öðrum ástæðum að hafa beint samband við heryfirvöld bandamanna.“
Þetta er till. Toftemarks læknis um hið nauðsynlegasta byrgi af öllum byrgjum. Þá segir læknirinn, að öll sjúkrahús landsins ættu að lúta einni stjórn, sjúkrahúsráði, — það er eitt ráðið. Sjúkrahúsráð á að stjórna öllum sjúkrahúsum landsins. Einnig verður honum tíðrætt um þörf og nauðsyn varasjúkrahúsa. Vel varin öryggisbyrgi á að innrétta í kjallara hvers sjúkrahúss, segir hann, og er mikilvægt, að þar sé á friðartíma séð fyrir vatnslögn, ljósi, hita og skolprörum og helzt vararafstöð og varavatnsbirgðum.
Þá gefur næsti þátturinn í skýrslu læknisins okkur óhugnanlega hugmynd um það, hversu fjarri það væri, að almannavarnirnar gætu verndað mannslífin, því að hann segir:
Það yrði að skipta hinum særðu, sem kæmu á sjúkrahúsin, aðallega í fjóra hópa: 1) Lítið særða, sem aðstoðarhjúkrunarlið sjúkrahússins gæti séð um. 2) Fólk, sem yrði að koma strax undir læknishendur. 3) Sært fólk með byrjandi einkenni taugaáfalls, sem gæti þó beðið nokkurrar aðgerðar. 4) Fólk, sem hefur slasazt svo mikið og alvarlega, að ekki megi vegna ríkjandi ástands sjá af hjúkrunarliði og tækjum handa því til tímafrekra aðgerða, sem útlit er fyrir að ekki beri árangur. Í þessum hóp er m.a. fólk með brunasár, sem þekja meira en 40% líkamans, opin sár á brjósti og kviði og enn fremur sjúklingar, sem hver um sig hefur hlotið margs konar alvarleg meiðsli. Toftemark læknir segir, að um 20% , þ.e.a.s. fimmti hver sjúklingur, muni verða í þessum seinasta hópi, þessum hópi, er verður látinn bíða dauða síns án umhirðu og læknishjálpar. Auðvitað er ekki svona nokkuð dregið upp og sett á pappír nema af því, að læknirinn játar, að almannavarnir séu lítils megnugar, ef til þessara óhugnanlegu atburða skyldi koma. Hann gerir ráð fyrir, að það verði að láta helsært fólk liggja án þess að fá nokkra aðstoð og það verði kannske fimmti hver maður af þeim, sem koma til sjúkrahúsanna, sem þannig yrði leikinn. Og samt er samið frv., sem segist í 1. gr. ætla að koma í veg fyrir, að Íslendingar verði fyrir eignatjóni og heilsutjóni.
Það er ýmislegt fleira furðulegt í þessari skýrslu læknisins, og ég er alveg undrandi, að hann skuli hafa látið hana frá sér fara, og enn meira undrandi á því, að hæstv. ríkisstj. skyldi gera plaggið að sínu plaggi með því að gera það að fskj. með frv. Hann segir t.d.: „Ákveða verður og merkja þegar á friðartíma, hvaða hlutverki hvert einstakt herbergi sjúkrahúsa á að þjóna, en til merkingarinnar má nota sjálflýsandi málningu. Sérstakt herbergi þarf fyrir látið fólk og e.t.v. annað fyrir geðtruflað fólk.“ Það mun jafnvel gert ráð fyrir því, að eitt og sama herbergi megi nota fyrir hvort tveggja, líkin og geðbilaða fólkið. Og næst þessu kemur svo að sjá fyrir sálusorgara, sjá þar fyrir þjónustu sálusorgara.
Læknirinn talar nokkuð um varasjúkrahúsin og segir, að þau þurfi að vera í hæfilegri fjarlægð frá þeim svæðum, sem einkanlega er ógnað, þ.e.a.s. í 20–50 (eða fleiri) km fjarlægð.
Í sjúkrahúsum þarf að koma upp viðbúnaðarbyrgjum, sem í er bæði útbúnaður og nauðsynjar, og sjá verður um, að skipti fari fram á lyfjum, sem einungis þola stutta geymslu.
Að lokum segir svo læknirinn: „Enda þótt skipulagning greftrunar sé ekki hlutverk hjúkrunarliðsins, er mikilvægt, að á slysavarðstöðvunum séu upplýsingar um, hvernig þær geta losnað við látið fólk.“
Ég bið menn að hafa það í huga, að allt, sem hér hefur verið tilgreint, er tekið úr opinberum skjölum, sem hæstv. ríkisstj. taldi ástæðu til að láta fylgja frv. sínu til skýringar og einnig til skýringar á hugmyndum sínum um almannavarnir.
Þegar frv. nú í þingbyrjun kom til meðferðar í heilbr.- og félmn., lagði meiri hl. n., sérstaklega formaður, mikla áherzlu á, að afgreiðslu frv. yrði hraðað. Ég hafði ekki neitt á móti því, að eðlilegur hraði væri á afgreiðslu málsins. Fyrir mér vakir það engan veginn að tefja fyrir afgreiðslu þess. Það var alveg eftirgangsmunalaust gert ljóst í n., að ég mundi leggja til, að frv. yrði vísað frá með tilliti til þeirra lagaákvæða, sem í gildi væru um almannavarnir, og að meiri hl. mundi samþykkja frv. lítið eða ekki breytt. En ég fór fram á eitt, sem var sanngjörn ósk. Ég fór fram á það, að hinn nýi embættismaður, almannavarnastjóri, yrði kvaddur á fund n. og beðinn skýringa á ýmsum atriðum frv. Ég verð að segja, að það fékk daufar undirtektir í fyrstu, svo mikill átti hraðinn að vera. En samt varð það úr, að meiri hl. féllst á að kalla almannavarnastjórann á okkar fund, og var svo gert. Þar gafst mér færi á að spyrja hann margs um þessi mál. Ég hef áður sagt það í minni ræðu, að ungi maðurinn brást mjög fúslega og greiðlega við okkar spurningum, bæði mínum spurningum og annarra í nefndinni, og gaf margvíslegar upplýsingar. Og fyrst og fremst gaf hann upplýsingar um það, hver yrði staða Íslands að hans áliti, ef til styrjaldar drægi.
Ég hef hér í nál. mínu prentað þessar spurningar, eins og þær voru lagðar fram, því að ég hafði þær skriflegar þegar á nefndarfundinum, og til þess að vera viss um, að ég færi rétt með hans svör, þá þorði ég ekki að treysta minni mínu, þegar um svona mörg svör væri að ræða frá hans hendi, og þess vegna afhenti ég honum afrit af spurningum mínum og gaf honum tóm til þess að svara þeim skriflega. Og það eru hin skriflegu svör hans, sem hér birtast á eftir spurningunum, sem til hans var beint af minni hendi.
1. spurningin, sem ég beindi til almannavarnastjórans var á þessa leið: „Hafa sérstakar ráðstafanir þegar verið gerðar til framkvæmda á heimildum frv. til almannavarna, og ef svo er, þú hverjar?“
Svar hans er: .,Það hefur verið ráðinn forstöðumaður, sem unnið hefur að athugunum á þeim vandamálum, sem snerta almannavarnir hér á landi. Þessi vandamál eru flókin og krefjast mikils undirbúnings, áður en hægt er að hefjast handa um verklegar framkvæmdir, er að gagni geta komið. Mörg þeirra eru einmitt athuganir á þeim spurningum, sem hv. alþm. lagði fyrir forstöðumann almannavarna, og engin nákvæm svör fengin við þeim enn þá.“
Þetta var hans svar við 1. spurningunni.
Þá er það 2. spurningin: „Álítur forstöðumaðurinn jafnmikla ástæðu til almannavarna um allt landið, eða er yfirvofandi hætta meiri á Suðvesturlandi eða á Reykjanesskaga og þá hvers vegna?“
Hann svarar: „Ef kjarnorkusprengjum yrði beitt á Ísland, væri enginn staður á landinu, þar sem geislavirkt úrfall gæti ekki komið niður, hvar sem sprengjan yrði sprengd. Því verða gagnráðstafanir fyrst og fremst að miðast við að veita minnstu nauðsynlega skýlingu alls staðar á landinu, en þar má miða við 100–falda skýlingu við gammageislun.“ Hann telur nokkra hættu um allt landið viðvíkjandi geislun, sem vafalaust er rétt, en hann víkur sér frá því að svara a.m.k. þarna síðari hluta spurningarinnar, sem var um það, hvort yfirvofandi hætta verði meiri á Suðvesturlandi, t.d. á Reykjanesskaga, og þá hvers vegna. Hann segir enn fremur: „Hvort eða hvar búast mætti við sprengju, færi að sjálfsögðu eftir hernaðaraðstæðum hvers tíma (strategiskum aðstæðum).“
Þá er það 3, spurningin, sem til hans er beint, svo hljóðandi: „Í V. kafla frv. er sérstaklega gert ráð fyrir svonefndum hættusvæðum. Verður ekki með tilliti til varnarráðstafana að reyna að sjá fyrir, hvar á landinu þessi hættusvæði yrðu? Hvar eru þau að dómi forstöðumannsins?“
Hans svar var: „Hættusvæðin eru fyrst og fremst högg- og hitaáhrifasvæði sprengna af þeirri stærð, sem þyrfti til að eyðileggja líkleg skotmörk. Keflavíkurflugvöllur er eitt líklegasta skotmarkið hér á landi vegna þeirrar þýðingar, sem hann sökum stærðar og legu hefur fyrir stórar flugvélar.“
Þá er það 4. spurningin: „Hve mikill mannfjöldi er á þessu svæði eða svæðum, sem gera verður ráð fyrir, að yrði að flytja í burt, og hvað mundi kosta að sjá þeim mannfjölda fyrir lífsskilyrðum'?“
Svar hans er: „Mannfjöldinn, sem flytja þyrfti burt af hættusvæði, fer eftir vörnunum, sem fyrir eru. Kostnaður hefur ekki verið athugaður enn.“ A fundinum minnir mig, að almannavarnastjórinn nefndi 7–8 þús. manns.
5. spurning: „Verður ekki að miða almannavarnir á Íslandi við algera kjarnorkustyrjöld?“ En það höfðu báðir erlendu sérfræðingarnir talið.
Hans svar er: „Þær varnir, sem gera mögulegan skaða sem minnstan í algerri styrjöld, koma að sjálísögðu einnig að gagni í takmarkaðri styrjöld. Því ber að miða við hið fyrrnefnda tilfelli.“ Hann játar, að það beri að miða varnirnar við hið versta, við algera styrjöld.
6. spurning: „Telur forstöðumaðurinn ekki, að miða verði varnirnar við það, að jafnvel stærstu kjarnorkusprengjum, sem þekkjast, verði beitt, t.d. gegn þeim herstöðvum, sem nú eru hér á landi, þar sem eru Keflavíkurflugvöllur og olíubirgðastöðin í Hvalfirði?“
Svar hans er: „Í algerri styrjöld yrði vopnunum beitt á þann hátt, að heildarvopnaforðinn mundi valda sem mestum heildarskaða. Því má búast við, að stærð sprengju, sem beint er gegn ákveðnum skotmörkum, verði slík, að hún dugi til að eyðileggja skotmarkið. Stærstu sprengjur, sem nú þekkjast, eru 100 megatonn, en þeim mun fyrst og fremst ætlað að eyðileggja niðurgrafnar eldflaugastöðvar. Þar sem fáir slíkar sprengjur eru til, er svo til útilokað, að þeim yrði eytt á skotmörk, er þola lítinn yfirþrýsting.“ Hann svarar þessari spurningu þess vegna nánast neitandi.
Þá er 7. spurning: „Verður ekki að miða allar ráðstafanir til almannavarna á Reykjanesskaga við það, að stærstu sprengjum, 50–100 megatonna, verði beitt gegn herstöð eins og Keflavíkurflugvelli, sem íslenzkir ráðherrar hafa jafnvel talið geta haft úrslitaþýðingu í hugsanlegri heimsstyrjöld?“
Svar hans er: „Það hefur enga hernaðarlega þýðingu að beita 20–50 og 100 megatonna sprengjum á flugvelli. Varnir gegn slíkum sprengjum yrðu óhemjudýrar. Hins vegar mætti bjarga miklum meiri hluta fólks, er gæti verið háski búinn af þeim sprengjum, er dygðu til að eyðileggja hv aða flugvöll sem er. Því verða varnirnar að miðast við, hvað líklegt sé að þurfi að gera og hvað er fjárhagslega hægt að gera.“
Þá er 8. spurning: „Hver er eyðileggingarmáttur slíkra stórsprengna: 20 megatonna, 50 megatonna, 100 megatonna?“
„Svar við þessari spurningu er að finna á meðfylgjandi töflum,“ segir hann. En á því fskj. eða þeim hluta svarsins segir svo um áhrif kjarnorkusprengna:
„1) Hitageislun. Hitaáhrifa gætir í nokkrar sekúndur, eftir að sprengjan springur. Eftirfarandi tafla sýnir stærð áhrifaradíuss hitageislunar fyrir mismunandi stórar sprengjur, sprengdar á yfirborði.“ Síðan stendur: „Stærð sprengju. Íkveikjufjarlægð fyrir eldfim efni (í km).“ Þá segir hann: „20 KT,“ það er líklega kílótonna. (Forseti: Ég vil aðeins mega spyrja hv. þm., hvort honum finnist ekki óþarfi að lesa þetta allt orði til orðs, sem hefur verið útbýtt í prentuðu þskj., — mætti stytta nokkuð mál sitt kannske með því? ) Ég er nú hér í miðjum spurningunum, hæstv. forseti, held, að ég hefði getað sleppt því, ef forsetinn hefði gert þessa aths., áður en ég byrjaði, en í miðju kafi finnst mér eiginlega verra að hætta við að lesa spurningarnar og svörin. (Forseti: Það verður þá ekki frekar gerð aths. við það.) Mér þætti það verra. Þó, ef ég fengi fyrirmæli um það, þá gerði ég það að sjálfsögðu, en þetta finnst mér vera mjög þýðingarmiklar upplýsingar, sem okkar ungi embættismaður gefur, og uppsetninguna á því í nál. var ég ekki alveg ánægður með, því að svörin komu það seint, að nál. hafði beðið eftir svörunum. Þess vegna eru svörin ekki felld við hverja spurningu, en þá hefðu þau legið mjög aðgengilega fyrir. Svör t.d. við 8. spurningunni eru hér á sérstöku skjali, sem vitnað er til.
Á skjalinu stendur þá áfram: „20 KT 2,6 km, 100 KT 5,5 km, 1 MT 14 km, 5 MT 29 km, 10 MT 35 km, 20 MT 45 km, 50 MT 64 km, 100 MT 80 km“ — og fyrir aftan stendur: „t.d. gluggatjöld.“ Þetta er um íkveikju- og hitaáhrif sprengna af ýmsum stærðum, og hann gefur upp, þessi sérfræðingur okkar, að 100 megatonna sprengja hafi íkveikjuradíus 80 km, þ.e.a.s. Reykjavík er öll langsamlega innan þessa radíuss. Jafnvel smásprengja hefur 2.6 km íkveikjuradíus.
Á þessu skjall stendur svo: „Varnir: Hvert það skjól, er veitir vernd gegn öðrum hættuáhrifum kjarnorkusprengju, veitir einnig vörn gegn hitageislun.“
Þá er annað meginatriðið á þessu sama skjali sérfræðingsins um höggáhrif: „íslenzk steinhús þola sennilega allt að 12 punda yfirþrýsting á fertommu (12 p.s.i.). Eftirfarandi tafla sýnir, í hve mikilli fjarlægð þessa yfirþrýstings gætir fyrir mismunandi sprengjustærðir: Stærð sprengju. Fjarlægð, 12 p.s.i. yfirþrýstilinu. 20 KT 0.76 km, 100 KT 1.29 km, 1 MT 2.82 km, 5 MT 4.8 km, 10 MT 6.1 km, 2.0 MT 7.7 km, 50 MT 10.5 km og 100 MT 13.3 km.“
Þá er næsta fyrirsögn á skjalinu hjá okkar sérfræðingi: „Varnir: Með þar til gerðum bylgjum má verjast 30–100 p.s.i. yfirþrýstingi.“
3. kaflinn á þessu sama skjali hjá honum er á þessa leið, undir fyrirsögninni Kjarnageislun:
„Stærð hættusvæðis, er stafar af geislavirku úrfelli, fer eftir stærð sprengju og hraða háloftavinda. Úrfelli fyrir stærstu sprengjur getur komið niður á svæði, sem er allt að því hundruð km á lengd og tugir km á breidd. Þetta er því viðtækasta hættan af kjarnorkusprengingum við yfirborð jarðar og sú hættan, sem varir lengst (geislastyrkleikinn er 14 daga að minnka 1000–falt).“
Og hér er önnur fyrirsögn um varnir hjá honum: „Með tiltölulega einföldum vörnum má minnka geislunaráhrif á lifandi verur 50—100falt.“
Þetta var skjalið, sem hann vísaði til sem svars við 8. spurningunni.
Þá er það 9. spurningin: „Verður ekki að miða almannavarnir hér á landi við þessar staðreyndir, gera ráð fyrir því versta, nefnilega að slíkum stórsprengjum kunni að verða beitt gegn herstöðinni á Keflavíkurflugvelli og jafnvel í Hvalfirði?“
Svarið við 9. spurningunni er á þessa leið: „Það er sama, hve vopnin eru stór. Það verður alltaf hægt að bjarga einhverjum með vörnum, en því færri, sem vopnin verða stærri. Það yrði Íslendingum að sjálfsögðu fjárhagslega ofviða að ætla sér að koma á vörnum gegn slíkum vopnum, er gætu tryggt vörn gegn höggi og hita nálægt sprengjustaðnum.
Hins vegar er allt forstöðumannsins, að það verði vel hægt að draga að mestu úr skaða af vopnum af þeim stærðum, er kynni að verða beitt hér á landi. Því verða varnirnar að miðast við, hvaða sprengjustærð er líkleg og hvaða vörnum verður við komið til að draga sem mest úr þeim skaða, er slík vopn gætu valdið.“
10. spurningin er svo hljóðandi: „Hver telur forstöðumaðurinn þá hættusvæðin vera á Reykjanesskaga miðað við þetta og ákveðnar stærðir kjarnorkusprengna, t.d. 20-50 og 100 megatonna? Mundi ég vilja bera fram þá ósk við forstöðumanninn, að hann marki hættusvæðin með sirkli á landabréf.“
Svar hans er: „Hættusvæðin fara eftir stærð þeirra sprengna, er e.t.v. yrði beitt hér á landi, svo og hvaða varnir yrðu fyrir hendi. Höggeyðingarsvæði sprengju og hitaáhrifin fara eftir högg- og hitaþoli mannvirkja. Fer því hættusvæðið eftir því, hvaða yfirþrýstilínu og jafnhitalínu verður að miða við. Vísað er í töfluna viðvíkjandi þessum áhrifum. Tími til kortateikninga vannst því miður ekki.“
11. spurning: „Hvað má ætla, að kosta mundu öruggar ráðstafanir, er tryggi líf fólks, sbr. megintilgang frv., t.d. á Reykjanesskaga, og hverjar yrðu helztu ráðstafanir, sem gripið yrði til: a. öryggisbyrgi? b. Brottflutningur fólks?“
„Kostnaðaráætlanir,“ svarar hann, „eru eitt af því, sem verður athugað af almannavörnum eins fljótt og unnt er. Það hefur enginn tími unnizt til þess enn þá, því að þær áætlanir verða að byggjast á grundvallarathugunum, sem nú er unnið að: Brottflutningur fólks hefur því aðeins þýðingu, að hægt sé að koma því í byrgi, er verji gegn geislum frá úrfalli. Byrgi gegn geislum frá úrfalli er sú ráðstöfun, sem er áhrifamest í að draga úr mögulegum skaða.“
12. spurning: „Hvað telur forstöðumaðurinn, að fyrst beri að gera til almannavarna, t.d. á þessu og næsta ári? Hvað áætlar hann, að þessar byrjunarráðstafanir muni kosta?“
Svar hans er: „Fræða fólk um geislavirkni og hvernig má verjast henni. Hraða grundvallarundirbúningi eins og unnt er, en til þess þarf enn langan tíma. Á grundvallarathugunum byggjast svo aftur aðrar athuganir um nauðsynlega skýlingu o.s.frv., því næst að gera kostnaðaráætlanir og hefja framkvæmdir. Það er ekki hægt að kaupa tíma fyrir peninga nema að takmörkuðu leyti, grundvallarathugunum verður ekki hraðað fram úr vissu marki. Þó má hraða þeim allverulega með því að auka starfslið, er vinnur að tæknilegum útreikningum. Því mundi álitið, meðan ekki yrðu hafnar verklegar framkvæmdir, heldur einungis unnið að athugunum, að 1—2 millj. kr. mundu nægja til undirbúnings. Strax og hafist væri handa um verklegar framkvæmdir, mætti búast við, að kostnaður færi fram úr þessu, ef að gagni ætti að koma.“
Þá er 13. spurningin: „Hafa verið gerðar eða rætt um að gera nú þegar nokkrar ráðstafanir til almannavarna vegna núverandi hættuástands í heimsmálunum?“
Svar hans er: „Vegna þess, hversu seint var hafizt handa um almannavarnir hér á landi, hefur ekki verið unnt að gera nema allra takmörkuðustu ráðstafanir. Það eina, sem hægt hefur verið að gera, er að hafa tiltækilegar upplýsingar um neyðarráðstafanir, er fólk gæti gripið til, og vera því viðbúinn að koma þessum upplýsingum til almennings með stuttum fyrirvara.“
Og að lokum 14. spurning: „Hvaða fyrirætlanir eru uppi um byggingu opinberra öryggisbyrgja? Hvað þurfa þau að vera stór og hvernig búin til þess að vera sannkölluð öryggisbyrgi? Hvað mundu slík öryggisbyrgi, er fullnægðu íbúum Reykjavíkur, kosta?
Svarið er: „Ekkert væri æskilegra en að þessar upplýsingar væru þegar fengnar, en eins og áður getur, er einungis hægt að byggja slíkar niðurstöður á athugunum, er enn eru á byrjunarstigi og hljóta að verða svo um skeið. Bandaríkjamenn áætla, að unnt sé að byggja lítið öryggisbyrgi (4—5 menn) fyrir 50 dollara á mann. Fyrir stærri byrgi lækkar kostnaðurinn fyrir einstakling.“
Ég bið afsökunar á því, að þessi lestur á spurningum og svörum hefur tekið nokkurn tíma, hæstv. forseti, en eins og þessu var upp stillt hér í nál., þá fannst mér nauðsynlegt að færa svörin í beint samband við hverja spurningu.
Mér virðist augljóst af þessum svörum okkar sérfræðings, að hann telji mikla hættu vofa yfir Íslandi og íslenzku þjóðinni, ef kjarnorkustyrjöld kynni að brjótast út. Og mér finnst ekki heldur fara á milli mála, að svör hans bera það með sér, að hann telur bráðustu hættuna vera beina afleiðingu af herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, af herstöðinni þar og herliði því, sem þar er í sambandi við hana. Þetta kemur einnig augljóslega í ljós í álitsgerð Holtermanns hershöfðingja, sem ráðleggur brottflutning fólks og fénaðar af Keflavíkursvæðinu og jafnvel ofan af Hvalfirði, hið sama er skýlaust viðurkennt í skýrslu Toftemarks yfirlæknis hins danska, og enn er hið sama rækilega staðfest af Ágústi Valfells almannavarnastjóra. Þessir sérfræðingar og trúnaðarmenn hafa því komizt að þessari niðurstöðu, sem mætti orða á þann veg, að varnarliðið svokallaða sé hættuvaldurinn, og hinn varði hluti Íslands, Reykjanesskaginn og Suðvesturlandið, það er hættusvæðið, sem margsinnis er nefnt í frv., sem er tekið í mál, að ef til vill þurfi að flytja fólkið frá eða þá með byggingu byrgja að grafa það í jörð niður til þess að reyna að vernda líf þess. Það virðist vera auðsætt mál, að ef hér væri engin herstöð, þá væri ekki meiri hætta vofandi yfir fólki á Reykjanesskaga en sú hætta, sem vofir yfir fólkinu á þeim stöðum, sem talað er um að flytja fólkið til, þ.e.a.s. hin almenna hætta af geislun. T.d. ef sprengingar væru gerðar úti í löndum, í öðrum heimsálfum, þá getur vel verið, að geislunarhætta félli yfir Ísland, en það væri þá sú hætta, sem alltaf væri fyrir hendi á þeim stöðum, sem talað er um að flytja fólkið til nú. Þeirri hættu getum við auðvitað ekki lokað augunum fyrir. Hættuástandið í heiminum yfirleitt leiðir hana yfir okkur, og henni yrðum við að búast til varnar gegn, þó að hér væri engin Keflavíkurherstöð. En það er Keflavíkurflugvöllurinn, sem leiðir bráðustu hættuna yfir Ísland og íslenzku þjóðina. Það er augljóst mál.
Nú segja íslenzk stjórnarvöld, sem standa að flutningi þessa frv.: Við teljum íslenzku þjóðina í mikilli hættu, en við viljum lögfesta víðtækar heimildir til að verja þjóðina, undirbúa brottflutning fólks af hættusvæðum, skipa einstaklingum að hafa öryggisbyrgi í sínum húsum, byggja opinber öryggisbyrgi til þess að koma í veg fyrir, að almenningur verði fyrir líkamstjóni. M.ö.o.: Við viljum lögfesta aðgerðir, sem sjá íslenzku þjóðinni borgið. Þetta segi ég, að sé ofmælt. Ég tel bókstaflega rangt að gefa það í skyn með lagasetningu, að hægt sé að skapa þjóðinni öryggi í kjarnorkustyrjöld, og að slik lagasetning geti borið þann árangur einn, að fólki sé heitið vernd, sem það getur ekki fengið, að því leyti sé frv. blekking. Ég álít miklu réttara að gera almenningi á Íslandi þess fulla grein, að í kjarnorkustyrjöld verði engum fullnægjandi vörnum við komið og fólkið sé í hættu, og þess vegna komi helzt til greina einmitt það, sem almannavarnastjórinn segir: Það verður að fræða fólkið mjög rækilega um það, hvað það geti tekið til bragðs, sem heldur dragi úr þeim háska, sem yfir því vofir. — Þá er ekki verið að blekkja það, þá er verið að búa það undir að horfast í augu við þá hættu, sem vofir yfir Íslandi vegna nærveru þessarar herstöðvar, sem hér er. Það væri leið fræðslu. Þetta að lögfesta ráðstafanir, sem ýmist er ekki hægt að framkvæma, vegna þess að við höfum ekkert fjárhagslegt bolmagn til þess, eða verið að taka í mál að vernda fólkið, en geta enga vernd veitt, það er blekking, og það stefnir ekki að því að bjarga mannslífum. Það gæti vel leitt til þess, að þjóðin yrði andvaralaus um sig og segði sem svo: Það er búið að lögfesta fullnægjandi ráðstafanir okkur til varnar, og við getum verið óhult. Það yrðu þá afleiðingar blekkingakenningarinnar um varnir í atómstríði.
Ég segi því hér í nál., og ég endurtek það: Hér er farið með viðurstyggilegt fals og blekkingar, því að meðan Keflavíkurflugvöllur er herstöð, er á engra manna færi, ekki heldur okkar hæstv. ríkisstjórnar, að skapa þjóðinni öryggi á stríðstímum, og því síður, eins og í frv. segir, að koma í veg fyrir, að almenningur verði fyrir líkamstjóni og eigna. Það á að viðurkenna það, að í algeru kjarnorkustríði, en um það eru allir sérfræðingarnir sammála, að með því verði að reikna, — eru engar varnir til, sem verndað geti mannslífin og komið í veg fyrir tortímingu og dauða. Þetta er alveg sérstaklega skýrum orðum játað af Holtermann hershöfðingja, sem ætti einna bezt um það að vita af þeim sérfræðingum, sem til hafa verið kvaddir og að spurðir. Þingmenn Alþb. vilja því ekki taka þátt í þessum blekkingaleik, sem er í því falinn skv. minni skoðun að leiða fyrst hættuna yfir þjóðina, eins og gert hefur verið, og hjala síðan um öryggisráðstafanir eins og einkabyrgi og opinber byrgi, byggingu og rekstur varasjúkrahúsa, brottflutning fólks af hættusvæðum tugþúsundum saman o.s.frv., o.s.frv., samkvæmt þeim mörgu heimildum, sem í frv. felast, en að meira eða minna leyti eru engin tök á að framkvæma, og auk þess er vafasamt, að þær kæmu að nokkru gagni, þó að tugum millj. væri varið til þessara aðgerða.
Þar að auki virðist mér nú augljóst mál, að það er engin alvara hjá hæstv. ríkisstj. um framkvæmd almannavarnanna. Embætti hefur verið stofnað, einn einasti maður verið settur til starfa. Hann hefur ekki skrifstofustúlku. Hann hefur enga aðstoð á skrifstofunni, en á þó að gegna svona víðtæku og ábyrgðarmiklu embætti. Honum er holað niður hér uppi á hanabjálka við hliðina á framfærsluskrifstofu Reykjavikurbæjar, og ég varð að framkvæma mikla og víðtæka leit að því að finna hann. Ekki var hann í dómsmrn., eins og gert er ráð fyrir í frv., ekki í síma stjórnarráðanna. Ég varð að spyrjast fyrir um, hvaða símanúmer hann hefði, og hann hafði ekki sjálfstætt símanúmer. Það er eins illa búið að þessum manni enn sem komið er og verið getur. Og mér virðist sannarlega ekki útlit fyrir, að það hafi verið tekið alvarlega af hæstv. dómsmrh. að búa honum starfsskilyrði, þó að hann teldi nauðsyn á að setja manninn í embætti eftir heimild í rökstuddri dagskrártill. Ég held, að ef embætti almannavarnastjórans eigi að koma að gagni, verði að horfast í augu við það, að af starfi hans leiði mikinn kostnað og að það verði ekki hægt að komast hjá því að ætla honum starfslið. Að þessu barst talið á nefndarfundi í heilbr.- og félmn., og hann nefndi eina 6–7 sérfræðinga, sem þörf væri á við undirbúningsrannsóknir þær, sem hann þyrfti að framkvæma. Og ég man, að formaður hv. heilbr.- og félmn. spurðist fyrir um það: Er þá ætlunin að biðja um þennan urmul af sérfræðingum til aðstoðar við störf yðar? — Og hann sagði þess vera fulla þörf, enda segir hann í sínum svörum: „Ég held, að 1–2 millj. kr. gætu hrokkið langt, meðan við eingöngu erum að framkvæma athuganir og undirbúning, en þegar kæmi til framkvæmdanna þyrfti miklu meira fé.“
Lögin um almannavarnir, ef þetta frv. verður samþ., verða því pappírsgagn og verri en ekkert, og þá væri blekkingin fullkomnuð, ef um allar framkvæmdir væri svo látið sitja, þegar frv. er orðið að lögum. Og það væri enn verri leikur gagnvart fólkinu í landinu að láta það imynda sér, að búið væri að lögfesta víðtækar öryggisráðstafanir því til handa, og aðhafast svo ekki neitt. En á því bólar ekki enn, svo mikið er víst.
Hv. formaður meiri hl. heilbr: og félmn, vék að því margsinnis í sinni ræðu, að það væru til víðtækar lagaheimildir um almannavarnir í lögum, sem fyrst voru sett 1941, síðan bætt við heimildir 1942 og enn bætt við heimildir 1951. Í gildandi löggjöf eru því víðtækar heimildir til almannavarna. Og hann gerði ekkert litið úr því í sinni framsöguræðu, að þessar heimildir væru fyrir hendi. Ég hygg, að þessar heimildir séu svo víðtækar, að út fyrir þann ramma verði naumast farið, miðað við þá fjárhagsgetu, sem íslenzka þjóðin hefur til þess að framkvæma þessar varnaraðgerðir. Þess vegna er Alþb. nákvæmlega á sömu skoðun og hv. 3. þm. Reykv., sem vitnað var til hér af frsm. meiri hl., að heimildir séu fyrir hendi og það skorti meir á framkvæmdina og það sé ekki fyrst og fremst þörf nýrra, víðtækra heimilda, sem kosti milljónatugi eða kannske hundruð milljóna, heldur framkvæmdir á þeirri löggjöf, sem er til frá síðustu heimsstyrjöld og bætt var við nokkru 1951. Og með tilliti til þess höfum við lagt til, að þessu frv. verði vísað frá með svo hljóðandi rökst. dagskrá, með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem augljóst er, að bráðasta hættan, sem yfir Íslandi og íslenzku þjóðinni vofir, ef til kjarnorkustyrjaldar drægi, er bein afleiðing af staðsetningu þýðingarmikillar herstöðvar og veru erlends herliðs í landinu, en hins vegar allsendis óvíst, hvort nokkrar varnir geti að gagni komið í atómstyrjöld, verður ekki annað séð en sá kostur einn sé fyrir hendi að krefjast þess þegar, að orsök tortímingarhættunnar verði fjarlægð með niðurlagningu herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og herinn tafarlaust fluttur úr landi. Í trausti þess, að svo verði gert samkv. skýlausri samþykkt Alþingis frá 28. marz 1956, sem enn er í fullu gildi, og enn fremur með tilliti til þess, að í lögum eru fullnægjandi heimildir til allra tiltækra varnaraðgerða á styrjaldartímum, tekur þingdeildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Þetta er okkar niðurstaða, og hygg ég, að af því verði engin sú ályktun dregin, að við séum gegn almannavörnum. Við teljum fullnægjandi heimildir vera í íslenzkri löggjöf. Við viljum framkvæmd á þeim aðgerðum og teljum enga vörn í því að bæta þar við tugum nýrra, viðtækra heimilda, sem engar líkur eru til að verði lagt fram fé til að framkvæma.