06.11.1962
Neðri deild: 12. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (164)
6. mál, almannavarnir
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég vit þakka hv. n., meiri hl. hennar, fyrir greiða afgreiðslu þessa mikla máls og góðar undirtektir.
Um brtt. meiri hl. n. get ég verið fáorður. Ég tel breytinguna á þskj. 63 í fyrra lið vera til bóta. Um breytinguna við 25. gr. er ég ekki jafnsannfærður, að hún sé til bóta. Það mundi að nokkru fara eftir því fyrirkomulagi, sem yrði á framkvæmdum. Viðbúið er, ef því yrði þannig háttað og þeir, sem ynnu í þágu almannavarna, þyrftu að senda reikninga sína til einnar ríkisstofnunar hér í Reykjavík, þá yrði það ekki handhægt og mundi geta bakað ýmsum einstaklingum óþægindi, og þess vegna kynni frá því sjónarmiði að vera hentugra, að greiðslurnar yrðu fyrst heimtar úr sveitarsjóðum, sem síðan ættu endurheimturétt á ríkissjóðinn. Hugsanlegt er að hafa þann hátt á, að þessir reikningar væru greiddir af umboðsmönnum ríkisins, sýslumönnum, bæjarfógetum og lögreglustjórum úti um land, svo að af þessum sökum þyrftu ekki að skapast verulegir annmarkar fyrir einstaklinga, og kæmi þetta þá nokkurn veginn í einn stað niður fyrir þá. Ég tel, að þessi brtt. geti ekki skipt neinu meginmáli, og úr því að hv. n. kýs heldur að hafa þann hátt á, eins og lagt er til í brtt., þá geri ég enga frekari athugasemd þar við, en bendi einungis á þessa mótbáru, sem ég hef nú hreyft.
Varðandi brtt. þær hinar skriflegu, sem nú er verið að lýsa frá þeim hv. nm., sem skrifað hafði undir nál. með fyrirvara, þá lízt mér þannig á, að brtt. við 7. gr. sé til hins lakara. Eins og 2. málsgr. 7. gr. hljóðar nú, þá er hún á þennan veg, með leyfi hæstv. forseta: „Ráðstafanir til almannavarna, sbr. 9. gr., skal hefja, þar sem ríkisstj. ákveður, í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórn eða sýslunefnd.“ Hv. tillögumaður vill, að sveitarstjórn eða sýslunefnd þurfi að gjalda sitt samþykki berum orðum til almannavarna. Í flestum tilfellum mundi þetta koma í einn stað niður. En við höfum heyrt af umr., sérstaklega í gær, að til eru þeir menn í landinu, sem enga trú hafa á almannavörnum, reyna að gera þær að hégómaefni, og þó að slíkir menn séu væntanlega fáir, er ekki áhugsandi, að þeir væru í meiri hluta í einhverri sveitarstjórn og gætu þannig skapað sínum umbjóðendum mikið tjón með sinni skammsýni og einnig orðið til þess, að samfellt varnarkerfi gæti síður komizt á en ella. Frá þessu sjónarmiði virðist það vera óhjákvæmilegt, að ríkisstj, hafi í þessu úrslitavaldið, þó að sjálfsögðu í samráði við sveitarstjórnir, sem hlut eiga að máli, svo að ég leyfi mér að mæla á móti þessari brtt. Hafi ég hins vegar skilið brtt. við 8. gr. rétt um það, að borgarstjórn í Reykjavík einungis heimilaðist að skipa sérstakan framkvæmdastjóra, í stað þess að sú skylda væri lögð henni á herðar, þá hef ég ekkert á móti því, að sú breyting sé gerð, ef einhverjir telja hana til bóta. Sjálfur tel ég, að hún skipti ekki miklu máli. Ég efast ekki um, að borgarstjórn Reykjavíkur mun í þessum efnum gera það, sem hún telur sjálfri sér og borgarfélaginu nauðsynlegt, og hér er um svo alvarlegt mál að ræða, að vafalaust verður þörf á sérstökum framkvæmdastjóra, en víst er enginn skaði skeður, þó að ákvörðunarvaldið um þetta sé í höndum borgarstjórnarinnar.
Að öðru leyti sé ég ekkí ástæðu til þess að gera neinar athugasemdir við það, sem fram hefur komið af hálfu meiri hl. hv. n., sem hefur tekið málinu af fullum skilningi um alvöru þess og þýðingu.
Um þær ræður, sem haldnar hafa verið af hálfu hv. Alþb: manna, má raunar segja, að þær hafi lítið sameiginlegt. Ræða sú, sem flutt var hér í gær af hv. 4. landsk. þm. (HV), var eins konar upplestur skjala, að svo miklu leyti sem ekki var um hreint gamanmál og útúrsnúninga að ræða, þar sem aftur á móti verður að játa, að hv. 3. þm. Reykv. (EOI) talaði um málið af fullri alvöru og reyndi frá sínu sjónarmiði að kryfja það til mergjar. Og er ég raunar hissa á því eftir hans ræðu, að hann skyldi ekki lýsa hiklausum stuðningi við þetta frv., vegna þess að hann viðurkenndi, að svo mikil hætta væri yfirvofandi, og þó væri ýmsar ráðstafanir hægt að gera til þess að draga úr hættunni, að skv. öllum hans rökum ætti hann að vera einn ákafasti málsvari þess, að rækilegar varúðarráðstafanir væru gerðar. Það er svo annað mál, að ýmsar hans forsendur og afleiðingar hans röksemda að öðru leyti eru mjög fjarri því, sem ég hygg vera rétt. En hann viðurkenndi sem sagt, að mikil hætta væri á ferðum, og jafnvel kynni að vera mikil hætta á ferðum hér, ef til styrjaldar kæmi, þó að landið væri óvarið.
Um ræðu hv. 4. landsk. þm. er það að segja, að ekki er hægt að eltast við einstök atriði hennar, svo sundurlaus sem hún var og ósamkvæm sjálfri sér. Annars vegar ásakaði hann ríkisstj. fyrir að hafa ekkert gert í þessum efnum, hafa tekið á því með léttúð, en hins vegar býsnast hann yfir því, að ráðizt hefði verið í það skv. heimild í þál. að skipa sérstakan forstjóra eða framkvæmdastjóra til þess að annast þau verk, sem síðasta Alþingi ákvað ekki einungis hv. Nd. með rökstuddri dagskrá, heldur allt Alþingi með fjárveitingu á fjárlögum, að unnið skyldi. Það var því beinlínis skv. fyrirmælum þingsins, sem gefin voru í fjárlögum og síðan staðfest af þessari hv. deild, og í samræmi við þá yfirlýsingu, sem ég gaf við meðferð málsins hér, að sérstakur starfsmaður var ráðinn. Hv. þm. fann að því, að þessi starfsmaður hefði lítið um sig og hefði jafnvel ekki neinn sérstakan sima, að því er mér skildist. Margt er nú aðfinningarefnið, að það skuli vera ráðizt á ríkisstj. fyrir að hafa ekki sett upp heilt embættisbákn í þessum efnum, en einmitt þessi framkvæmdastjóri, sem ráðinn hefur verið, hefur gert ýtarlega grein fyrir því, að upphaf allra aðgerða er ýtarleg athugun og rannsókn á þeim hættum, sem fyrir hendi eru, og síðan athugun og skipulagning á þeim viðbrögðum, sem að athuguðu máli teljast nauðsynleg gegn þessum hættum. Það er fyrst, þegar þessari athugun er lokið, sem hægt er og skynsamlegt að taka ákvörðun um, hversu umfangsmikil þessi starfsemi eigi að vera. En hv. 4. landsk. fann annars vegar að því, að hér væri of smátt af stað farið, en hins vegar, að þetta mundi kosta tugi eða hundruð millj. kr., áður en yfir lyki.
Það kemur auðvitað á síðari stigum málsins til þingsins kasta, þegar nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum er lengra á veg komið, að veita fjárveitingar til þeirra aðgerða, sem skynsamlegar verða taldar, og skal ég ekki fara að ræða það ýtarlega á þessu stigi málsins. En hv. 3. þm. Reykv. gerði einmitt mjög ljósa grein fyrir því út frá sínu sjónarmiði, að allumfangsmiklar ráðstafanir væru skynsamlegar, hvort sem landið væri varið eða óvarið. Og hann taldi, að slíkar ráðstafanir gætu skorið úr um það, hvort íslenzka þjóðin að verulegu leyti héldi lífi eða ekki. Ef um svo mikið er að tefla, eins og hv. 3. þm. Reykv. hér lýsti, þá eru þær tölur, sem Alþb.- bróðir hans, hv. 4. landsk. þm., talaði um, sízt svo gífurlegar, að þær þurfi að hræða menn frá áframhaldandi athugun þessa máls. Úr því verður ekki heldur dregið með því að taka upp einstakar tilvitnanir úr ummælum hinna erlendu sérfræðinga, sem gefið hafa álitsgerðir, og reyna að gera þau ummæli brosleg, þegar búið er að slíta þau úr samhengi og túlka þau á þann velviljaða hátt, sem þessi hv. þm. gerði. Hér er, eins og hv. 3. þm. Reykv. lagði áherzlu á, um allt of mikið alvörumál að ræða, til þess að slík vinnubrögð eða talsmáti sé viðeigandi eða mörgum orðum sé að honum eyðandi.
En ég vil sérstaklega fara nokkrum orðum um þá rökstuddu dagskrá, sem hv. 4. landsk. þm. leggur til að málið sé afgreitt með. Hann segir þar, hv. þm., í seinni mgr. till. sinnar, með leyfi hæstv. forseta, hygg ég, að það sé rétt að lesa upp alla hina rökstuddu dagskrá. Hún hljóðar svo:
„Þar sem augljóst er, að bráðasta hættan, sem yfir Íslandi og íslenzku þjóðinni vofir, ef til kjarnorkustyrjaldar drægi, er bein afleiðing af staðsetningu þýðingarmikillar herstöðvar og veru erlends herliðs í landinu, en hins vegar allsendis óvíst, hvort nokkrar varnir geti að gagni komið í atómstyrjöld, verður ekki annað séð en sá kostur sé einn fyrir hendi að krefjast þess þegar, að orsök tortímingarhættunnar verði fjarlægð með niðurlagningu herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og herinn tafarlaust fluttur úr landi.
Í trausti þess, að svo verði gert samkv. skýlausri samþykkt Alþingis frá 28. marz 1956, sem enn er í fullu gildi, og enn fremur með tilliti til þess, að í lögum eru fullnægjandi heimildir til allra tiltækra varnaðaraðgerða á styrjaldartímum, tekur þingdeildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Þannig hljóðar þessi merkilega till. Ég vil geta þess, að hv. þm. fór með algerlega rangt mál í gær, sem ég er hissa, að jafnvel hann skuli leyfa sér, þegar hann lýsti því yfir, að Ágúst Valfells, framkvstj. almannavarnanna, hefði lýst því yfir, að það væri dvöl herliðsins á Keflavíkurflugvelli, sem drægi þessa hættu yfir landið, sem þarna er um að ræða. Hv. þm. fullyrti, að framkvstj. hefði lýst þessari skoðun, og sagði, að hið sama hefðu gert hinn norski hershöfðingi og danski yfirlæknir, sem álitsgerðirnar sömdu, sem prentaðar voru með þessu frv. í fyrra. Þetta fær ekki með neinu móti staðizt, og hv. þm. hefur sjálfur varðandi Ágúst Valfells prentað skýrslu frá honum, sem hnekkir þessari furðulegu yfirlýsingu þm. Á síðu 9 í nál, á þskj. 85 prentar hv. 4. landsk. þm. svör Ágústs Valfells, þ. á m. 3. lið þeirra, þar sem orðrétt segir:
„Hættusvæðin eru fyrst og fremst högg- og hitaáhrifasvæði sprengna af þeirri stærð, er þyrfti til að eyðileggja líkleg skotmörk. Keflavíkurflugvöllur er eitt líklegasta skotmarkið hér á landi vegna þeirrar þýðingar, sem hann sökum stærðar og legu hefur fyrir stórar flugvélar.“
Þarna er ekki gefin nein bending um það, að Ágúst Valfells telji, að dvöl varnarliðsins auki á árásarhættu á flugvöllinn, heldur einmitt þvert á móti sagt, að það er tilvist flugvallarins og möguleiki sá, sem hann skapar fyrir stórar flugvélar, sem skapar hættuna. Og það er ekki einungis þessi sérfræðingur, sem þannig hefur tekið afstöðu frá fullyrðingunni um, að það sé varnarliðið, sem skapi þessa hættu, heldur kom slíkt hið sama glögglega fram í ræðu hv. 3. þm. Reykv. hér áðan, sem taldi, að ef Ísland væri varnarlaust, þá ættum við að láta það verða okkar fyrsta verk í styrjöld, ef hún brytist út, að sprengja upp Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll. Þessi till. hv. 3. þm. Reykv. sker svo glöggt úr um það sem kostur er á, að þessi hv. þm. gerir sér í raun og veru grein fyrir, að það er tilvera flugvallanna sjálfra, aðstaða þeirra í heiminum, sem skapar árásarhættuna á Ísland. Ég veit, að hv. 3. þm. Reykv. segir:
Varnarliðið einungis eykur á hættuna. — Það er röksemd út af fyrir sig, og mér gefst væntanlega tími til þess að koma að henni síðar. En þessi hv. þm. viðurkennir þarna hið sama sem hinir útlendu sérfræðingar og okkar innlendi sérfræðingur hafa haldið fram, að það er tilvist mannvirkjanna á þessum hernaðarþýðingarmikla stað, sem skapar hættuna, en ekki hitt, hvort þarna eru varnir eða ekki. Og hv. 4. landsk. kom í raun og veru einnig inn á hið sama í ræðu sinni, þegar hann vitnaði í þau orð — ég hygg norska hershöfðingjans, að það kynni einnig að vera nokkur hætta á árás á Hvalfjörð. Nú veit hv. þm. það mætavel, að eins og sakir standa, er ekkert herskipalægi í Hvalfirði. En það, sem liggur fyrir með Hvalfjörð eins og með báða flugvellina, Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvöll, er, að fengin reynsla, reynslan úr síðasta stríði sannar okkur, að þetta eru hernaðarþýðingarmiklar stöðvar. Þá var Hvalfjörður gerður að herskipalægi, einu hinu þýðingarmesta, einu því, sem e.t.v. átti mestan þátt í því, að bandamenn gátu á erfiðustu árum Rússa sent þeim nægar vistir eftir norðurleiðinni, svo að Rússar þurftu ekkí að gefast upp fyrir herskörum Hitlers. Báðir flugvellirnir, Reykjavíkurflugvöllur og Keflavíkurflugvöllur, eru búnir til á styrjaldarárunum af hernaðaraðilum vegna þess, að þeir töldu sér mikilsvert að hafa þar bækistöðvar í ófriðnum. Og það gefur auga leið, að sú þýðing hefur ekki minnkað við það, sem síðar hefur gerzt í heiminum, heldur margfaldlega aukizt. Það er því algerlega rangt, sannað af þeim gögnum, sem hv. 4. landsk. hefur sjálfur lagt fram og lesið hér upp, og af málflutningi hv. 3. þm. Reykv., að hættan, sem yfir vofi, sé bein afleiðing af staðsetningu þýðingarmikillar herstöðvar og veru erlends herliðs í landinu. Það liggur fyrir, að sérfræðingarnir hafa ekki haldið neinu fram, sem hægt er að styðja þetta við, og jafnvel hv. 3. þm. Reykv. hefur hér flutt fram mjög mikilvæg rök, sem afsanna þessa fullyrðingu í hinni rökstuddu dagskrá hv. 4. landsk. þm.
Svo segir hv. þm. í hinni rökst. dagskrá, að það sé allsendis óvíst, hvort nokkrar varnir geti að gagni komið í atómstyrjöld. Hv. þm. hefur einnig lagt fram gögn, sem algerlega afsanna þessa fullyrðingu hans. Hann hefur athugasemdalaust birt svör Ágústs Valfells, sem halda hinu þveröfuga fram. Með leyfi hæstv. forseta, vildi ég lesa enn upp úr 9. síðu nál. hv. 4. landsk., þar sem hann prentar upp svör Ágústs Valfells. Í 7. lið segir:
„Það hefur enga hernaðarlega þýðingu að beita 20–50 og 100 megatonna sprengjum á flugvelli. Varnir gegn slíkum sprengjum yrðu óhemjudýrar. Hins vegar mætti bjarga miklum meiri hluta fólks, er gæti verið háski búinn af þeim sprengjum, er dygðu til að eyðileggja hvaða flugvöll sem er. Því verða varnirnar að miðast við, hvað líklegt sé að þurfi að gera og hvað er fjárhagslega hægt að gera.“
Þetta er svar sérfræðingsins Ágústs Valfells, sem hefur nú í nokkra mánuði unnið að því, að vísu ekki kannske með sérstakan síma eða umfangsmikið skrifstofulið, að kynna sér þau gögn, sem bezt eru til um, hvað hægt sé að gera í þessum efnum. Og á síðu 10 í nál. er haft eftir Ágústi Valfells, í 9. lið, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er sama, hve vopnin eru stór, það verður alitaf hægt að bjarga einhverjum með vörnum, en því færri, sem vopnin verða stærri. Það yrði Íslendingum að sjálfsögðu fjárhagslega ofviða að ætla sér að koma á vörnum gegn slíkum vopnum, er gætu tryggt vörn gegn höggi og hita nálægt sprengjustaðnum. Hins vegar er álit forstöðumannsins, að það verði vel hægt að draga að mestu úr skaða af vopnum af þeim stærðum, er kynni að verða beitt hér á landi. Því verða varnirnar að miðast við, hvaða sprengjustærð er líkleg og hvaða vörnum verður við komið til að draga sem mest úr þeim skaða, er slík vopn gætu valdið.“
Þetta segir Ágúst Valfells berum orðum. Engu að síður leyfir hv. 4. landsk. þm. sér að byggja á umsögn sérfræðingsins það, að engum vörnum — almannavörnum — verði komið við í kjarnorkustyrjöld, þó að hann hafi sjálfur lagt fram rökstuddar fullyrðingar og sannanir fyrir því gagnstæða.
Hér er svo enn fremur ástæða til þess að minnast á, að þó að fyrst og fremst sé í þessum umr. rætt um kjarnorkustyrjöld, þá er, sem betur fer vil ég segja, engan veginn víst, að allar styrjaldir, sem héðan af brjótast út í heiminum, þurfi að verða kjarnorkustyrjaldir, og allra sízt, að þær verði kjarnorkustyrjaldir þegar í upphafi. Það er þvert á móti vaxandi skoðun hinna færustu herfræðinga, að ógnarvopnin séu orðin svo geigvænleg og jafnvægið á milli stórveldanna í þeim svo mikið, að það sé mjög ólíklegt, að kjarnorkustyrjöld brjótist út. Hitt sé miklu líklegra, enda fer vígbúnaður nú á seinni árum í þá átt ekki síður en varðandi kjarnorkuvígbúnað, að svokölluð gamaldags vopn séu upp tekin með það fyrir augum, að gamaldags styrjaldir geti átt sér stað. Við þurfum ekki heldur að fara langt til þess að sjá þess dæmi, að þetta er engin getgáta. Við sjáum þessa dagana innrás sálufélaga og gistivina sumra okkar góðu þm., sem hér eru staddir í þessum sal, — innrás vina þeirra inn í Indland úr kínversku yfirráðasvæði. Það stríð byrjar ekki með kjarnorkuvopnum, og vonandi verður það háð til lykta, án þess að nokkrum kjarnorkuvopnum verði beitt. Og það eru ekki rök gegn bollaleggingum í þá átt, þó að sagt sé, að hvorki Kommúnista-Kína né Indland ráði yfir kjarnorkuvopnum. Ég veit að vísu ekki, hversu náið er milli stórhöfðingjanna í Kína og stórhöfðingjanna í Kreml, en hugsazt gæti, að Kínverjar teldu sig eiga þar bakhjarl, ef á þyrfti að halda, en sá bakhjarl hefur a.m.k. ekki enn látið þá fá kjarnorkuvopn til notkunar, þannig að þeir byrjuðu með því að herja á Indverja með þeim gereyðingarvopnum.
Um Kóreustyrjöldina vitum við, að þar voru Bandaríkjamenn öflugastir af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Þeir réðu þá yfir kjarnorkuvopnum, og sumir valdamiklir menn þar vildu láta beita þeim. En Bandaríkjaforseti setti þvert nei við ósk sinna herforingja þar um.
Það er þess vegna algerlega út í bláinn og brýtur á móti þeirri reynslu, sem fengin er, að fullyrða, að allar styrjaldir héðan af þurfi að verða kjarnorkustyrjaldir, og við verðum einnig að vera við því búnir, að aðrar styrjaldir kunni að vera háðar heldur en kjarnorkustyrjaldir, því að eins og reynslan af Kommúnista-Kína nú og innrás þess í Indland berlega sannar, þá fer því fjarri, að árásarhugurinn sé horfinn úr heiminum. Hann er enn til og hann brýzt hvarvetna þar út, sem árásarmennirnir hyggja að varnirnar á móti þeim séu of veikar. Og það er engin tilviljun, heldur rökrétt afleiðing, að kommúnistar í Kína skuli nú ráðast gegn Indlandi, — Indlandi, sem hefur haft forustu meðal hinna svokölluðu hlutlausu þjóða og stært sig af því að vera hlutlaust og ekki þátttakandi í deilum lýðræðisþjóðanna í vesturálfu heims og einræðisaflanna austan járntjalds. Það er vegna þess, að Kommúnista-Kínverjar hugðu, að þarna yrðu litlar varnir fyrir, sem árásin er gerð. Og það er einnig lærdómsríkt, að þessi árás er gerð skömmu eftir að Indverjar höfðu beinlínis neitað því að taka við eða kaupa vopn af Bretum og Bandaríkjamönnum, en kusu heldur að taka upp slík viðskipti við Rússa. Afhendingarnar á hinum rússnesku vopnum hafa af einhverjum ástæðum dregizt, og valdamennirnir í Kreml láta sér nú lítt títt um að senda hin lofuðu vopn til varnar Indverjum, en Indverjar verða, eftir að búið er að hrifsa af þeim land og vaða yfir það af herskörum Kommúnista-Kína, að ganga þá Canossa-göngu að biðja stjórnirnar í London og Washington um að senda sér nú í skyndi þau vopn, sem þeir fyrir nokkrum mánuðum höfðu neitað.
Þá kemur að þeirri furðulegu fullyrðingu, að sá kostur sé einn fyrir hendi að krefjast þess þegar, að orsök tortímingarhættunnar verði fjarlægð með niðurlagningu herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og herinn tafarlaust fluttur úr landi. Dæmið með Indland sannar, hversu hlutleysið er haldgott og að hvaða gagni það kemur gegn árásaröflunum. En við Íslendingar þurfum ekki að fara út fyrir okkar eigin landssteina til þess að kynnast þeim atburðum, sem alveg skera úr um haldleysi hlutleysis og varnarleysis. Og það er hv. 3. þm. Reykv. til lofs, að hann var á undan flestum öðrum Íslendingum að sjá, að hlutleysi og varnarleysi væri nú á dögum gersamlega þýðingarlaust og verra en það, heldur byði hættunni heim. Hv. 3. þm. Reykv. skrifaði um það margar skeleggar greinar fyrir 1939, að Ísland þyrfti að leita stuðnings gegn væntanlegri árás frá Nazista-Þýzkalandi og afsala sér hlutleysinu, vegna þess að það væri orðið haldlaust. Hv. þm. hristir höfuðið, en ég veit, að ef hann fer að glugga í sín gömlu blöð í kvöld, þá sér hann mörg orðin, sem hann um það skrifaði á þessum árum. Ef hann finnur það ekki sjálfur, væri kannske við síðara tækifæri hægt að hressa dálítið upp á minni hans í því, þótt ég láti það vera í bili.
En ef hv, þm. vill neita framsýni sinni í þessu, sem ég trúi honum nú raunar ekki til, þá getur hann ekki neitað hinu, að inn í Ísland var ráðizt í maí 1940, og þó að hann sjálfur yrði illilega fyrir þeirri árás og væri þá nauðugur fluttur úr landi, þá hygg ég, að hann sé okkur hinum sammála um, að það var mikil gæfa, að það voru þó Bretar, sem urðu fyrri til að ráðast inn í Ísland, á undan nazistum. Það er hernaðarþýðing landsins, sem skapar hættuna, og sú hernaðarþýðing breytist ekki við það, þó að varnir væru teknar burt úr landinu. Brottför varnanna skapar einungis enn þá meiri líkur til þess, að um landið verði barizt og hér v erði verulegt tjón, e.t.v. með öllu óbætanlegt.
En ég á þó eftir að minnast á það, sem er merkilegast í þessari rökst. dagskrá, og það er niðurlagið, þar sem sagt er, að nú eigi að fara eftir skýlausri samþykkt Alþingis frá 28. marz 1956, sem enn sé í fullu gildi. Ég man vel eftir þessari samþykkt. En þótt ég viti, að hv. 4. landsk, þm. sé voldugur maður og mikils háttar, hygg ég, að hann sé nú ekki svo, að hann geti vakið upp frá dauðum til lífsins þá, sem dauðir eru, ekki einu sinni tillögur, sem fyrir löngu eru úr gildi fallnar. Með leyfi hæstv. forseta, ætla ég að lesa upp meginhluta þál. frá 28. marz 1956. Hún hljóðar svo:
„Með hliðsjón af breyttum viðhorfum síðan varnarsamningurinn frá 1951 var gerður og með tilliti til yfirlýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á Íslandi á friðartímum, verði þegar hafin endurskoðun á þeirri skipan, sem þá var tekin upp, með það fyrir augum, að Íslendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnarmannvirkja — þó ekki hernaðarstörf og að herinn hverfi úr landi. Fáist ekki samkomulag um þessa breytingu, verði málinu fylgt eftir með uppsögn samkv. 7. gr. samningsins.
Þannig hljóðar aðalatriði samþykktarinnar frá 28. marz 1956. Þar er sem sagt lögð áherzla á hin breyttu viðhorf, sem orðið hafi síðan varnarsamningurinn frá 1951 var gerður. Allir þeir, sem þessum málum eru kunnugir, vita, að breytt viðhorf voru af hálfu stuðningsmanna þessarar till. sögð vera þau, að það væri ólíkt friðvænlegra í heiminum fyrri hluta árs 1956 en var 1951. Það voru hin breyttu viðhorf, sem þarna var vitnað til. Við, sem vorum samþykktinni andvígir, töldum hins vegar ekki rétt, að viðhorfin væru breytt að þessu leyti. Við töldum, að ófriðarhættan væri því miður hin sama. Stuðningsmenn till. vitnuðu þá einkum til Genfar-fundarins svokallaða, sem æðstu menn höfðu haldið nokkrum mánuðum áður, og að kalda stríðinu hefði þá verið eytt. Um skoðun okkar hinna vil ég, af því að það er hér fyrir framan mig í þessari heimild, vitna til orða, sem ég hafði um þessa samþykkt, skömmu eftir að hún var gerð, og lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Engin þjóð hefur ríkari ástæðu til þess en Íslendingar að óska þess, að friður haldist í heiminum, því að enginn er þessi ómegnugri en við að verja land okkar og þjóð, ef í odda skerst. Ef ófriðarhættan er raunverulega úr sögunni, höfum við sannarlega ástæðu til að gleðjast. En friðurinn er þess virði, að nokkur áhætta sé tekin hans vegna. Að þessu sinni er áhættan ekki önnur en sú, að við bíðum með að gera land okkar varnarlaust, þangað til við sjálfir höfum að beztu manna yfirsýn og við rólega íhugun sannfærzt um, „hvort viðhorfin; séu svo breytt“ í raun og veru, að víkja megi af verðinum.
Er flóðalda kommúnismans í sannleika sjötnuð, eða hefur hún aðeins stöðvazt við varnarvegginn og smýgur í gegnum hverja þá sprungu, sem í honum verður?
Við skulum vona, að verstu hríðarbyljum kalda stríðsins sé slotað og að fram undan sé sumar afvopnunar og allsherjarfriðar. En jafnvel hinir bjartsýnustu játa, að enn sé vorið naumast byrjað. Allra veðra er von, svo sem á útmánuðum tíðkast, og næsta áfangann er áreióanlega öruggast að vera í fylgd með öðrum, því að það á við um þjóðirnar ekki siður en einstaklingana, að fátt segir af einum.“
Þetta voru ummæli mín um þessa samþykkt, sem meiri hl. Alþingis gerði 28. marz 1956. Þess var því miður ekki lengi að bíða, að fleiri en ég féllust á, að við sjálfstæðismenn hefðum þarna séð réttara en hinir, sem samþykktina gerðu, því að hinn 6. des. 1956 hélt hæstv. utanrrh., Guðmundur Í. Guðmundsson, þáv. stjórnarbróðir hæstv. þáv. félmrh., núv. 4. landsk. þm., ræðu hér í þessum ræðustól, raunar í sameinuðu þingi, og þá las hann m.a. upp samkomulag, sem gert hafði verið milli ríkisstj. Íslands, þ.e.a.s. vinstri stjórnarinnar, og Bandaríkjastjórnar. Og í þessu samkomulagi segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Viðræðurnar hafa leitt til samkomulags um, að vegna ástands þess, sem skapazt hefur í alþjóðamálum undanfarið, og áframhaldandi hættu, sem steðjar að öryggi Íslands og Norður-Atlantshafsríkjanna, sé þörf varnarliðs á Íslandi samkvæmt ákvæðum varnarsamningsins.“
Þetta er orðrétt yfirlýsing, sem hæstv. utanrrh. las upp hér á Alþingi. Það var ekki yfirlýsing hans eins, heldur er þetta samningur Bandaríkjanna og ríkisstj. Íslands. Það er samningur um það, að ályktun Alþingis hinn 28. marz 1956 sé fallin úr gildi, vegna þess að þau breyttu viðhorf, sem í þeirri till. er fullyrt að séu fyrir hendi, séu ekki fyrir hendi í desember sama ár. Þar með er þessi ályktun endanlega dauð og grafin.
Ég sé, að hv. þm. hefur löngun til þess að segja eitthvað. Ég vildi mjög gjarnan heyra hans blessunarorð. (Gripið fram í: Það kemur seinna.) Það kemur seinna. Ekki skaðar að hugsa sig um. En hv. þm. talaði raunar strax eftir ræðu hæstv. utanrrh. Strax að ræðu hæstv. utanrrh. lokinni stóð hæstv. félmrh., Hannibal Valdimarsson, upp og segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Herra forseti. Ég vil í framhaldi af skýrslu hæstv. utanrrh. og út af orðsendingum þeim, sem nú hafa farið fram milli ríkisstj. Íslands og Bandaríkjanna, aðeins taka eftirfarandi fram fyrir hönd okkar ráðh. Alþb. í ríkisstj.:
Við eigum engan þátt í orðalagi eða framsetningu þeirra orðsendinga, sem milli ríkisstj. hafa farið um frestun á endurskoðun herverndarsamningsins samkv. ályktun Alþingis 28. marz s.l. Við erum einnig andvígir þeim forsendum frestunar, sem þar eru greindar, en töldum aðstæður ekki heppilegar nú til þess að tryggja samninga um brottför hersins. En við vorum samþykkir því, að frestað yrði um nokkra mánuði samningum þeim, sem ráðgert var að hefjast skyldu 15. f.m. um þessi mál.
Efnislega eru hv. Alþb.-menn, hv. 4. landsk. og hv. 4. þm. Austf., sem þá voru fulltrúar Alþb. í ríkisstj., því sammála niðurstöðunni um dauðdaga samþykktarinnar frá 28. marz 1956. Þeir segjast að vísu vera á móti orðalagi, framsetningu og forsendum, en um niðurstöðuna eru þeir sammála. Þeir tala að vísu einungis um frestun, en samkomulagið, sem hæstv. utanrrh. las upp, var alveg ótvírætt. Þar var samkomulag um, að skapazt hefði allt annað ástand í alþjóðamálum en ályktunin frá 28. marz gerði ráð fyrir. Það er aðalatriði samkomulagsins. Það gekk af ályktuninni frá því í marz gersamlega dauðri, eins og ég segi.
Þeir hv. Alþb.-menn, þáv. hæstv. ráðh., reyndu, eins og ég segi, að bjarga sér með því að tala um, að þarna væri einungis um írestun að ræða, vegna þess að þeir töldu aðstæður ekki heppilegar til þess að tryggja samninga um brottför hersins. Hvenær voru aðstæður heppilegri til þess að tryggja samninga um brottför hersins en meðan hæstv. ráðh. þáv. áttu sæti í vinstri stjórninni? Höfðu þeir nokkurn tíma betri aðstöðu til þess að tryggja framgang þessa síns áhugamáls en meðan þeir voru svo mikils ráðandi í þeirri valdamiklu ríkisstj.? Þótt skrýtið sé, virðast hv. þm. og hæstv. ráðh. hafa verið á allt annarri skoðun, vegna þess að Alþb.-menn tóku aldrei upp á formlegan, þinglegan hátt kröfuna um brottför hersins fyrr en nokkrum vikum eftir að þeir voru sjálfir horfnir úr ríkisstj., þegar þeir fluttu þá till., sem sagt fyrst í janúar 1959. Hinn 4. des. 1958 var hin fræga uppgjafarræða haldin hér af þáv. hæstv. forsrh., Hermanni Jónassyni, og á Þorláksmessu í sama mánuði hrökklaðist vinstri stjórnin endanlega frá völdum. Það var fyrst eftir að þetta allt var skeð, sem hv. Alþb.-menn töldu skilyrði vera til þess á ný að hreyfa því að taka kröfuna um brottför hersins úr landinu upp að nýju. Þeir höfðu að vísu á árinu 1957 og aftur á árinu 1958 skrifað samstarfsmönnum sínum um, að það væri nú kannske rétt að fara eitthvað að stugga við hernum. En í fyrra skiptið létu þeir sér nægja einfalt nei frá báðum og sátu alveg rólegir eftir sem áður. Í seinna skiptið virtu samstarfsmennirnir þá ekki einu sinni svars, svöruðu ekki kröfunni, sem þeir báru fram. Það voru ekki þessir menn, sem sögðu af sér vegna þess, að samningar hefðu verið rofnir, að þeirra mikla áhugamál var að engu haft. Nei, þeir biðu rólegir, þeir létu Hermanni Jónassyni eftir að gefast upp, þeir voru ekki aldeilis sjálfir á því að gefast upp, herrarnir að tarna, á meðan þeir gátu hangið í stólunum. Þeirra afstaða verður þess vegna ekki skilin öðruvísi en svo, að þeir telji aðstæður til þess að tryggja samninga um brottför hersins heppilegri, meðan þeir sjálfir eru ekki í ríkisstj., því að jafnvel nú hafa þeir borið fram kröfu um það, þáltill. um það að reka varnarliðið á brott. Er það þá svo, að þeir telji mig og hæstv. utanrrh., hæstv. forsrh. og aðra líklegri til þess að semja um brottför hersins heldur en sjálfa sig? Þeir segjast ekki hafa fylgt till. eftir 1956, af því að þeir töldu ekki heppilega aðstöðu til þess að ná þá fram samningum um brottför hersins. Í því, að þeir flytja till. nú og telja, að það eigi að endurvekja hina löngu dauðu samþykkt frá 1956, felst það, að þeir treysta okkur betur en sjálfum sér í þessu efni. Ég verð að segja, að þeir hafi að vísu eina ástæðu til þess að treysta okkur betur, og það er það, að þeir vita, að við stöndum við okkar loforð. En við höfum bara aldrei gefið loforð um það að láta herinn fara. Það er þvert á móti. Ég hef lýst því yfir og lýsti því yfir strax 1956, að sú till. væri því miður röng og til ills fyrir íslenzku þjóðina, og það er sannfæring mín, að svo sé enn. En með þessa forsögu alla er það óneitanlega meira en lítið einkennilegt, að hv. þm. skuli nú vera að minna á till. frá 1956 og segja, að hún sé enn í fullu gildi. Margt er sér til gamans gert, má segja.
Það verður að játa, að ef til kjarnorkustyrjaldar kemur, þá er voðinn vís, þá er mjög vafasamt, hverjir halda lífi. Og ég tek undir allar þær ógnarspár, sem hv. 3. þm. Reykv. flutti í sinni ræðu af því tilefni. En eins og fram hefur komið, telja sérfræðingar, að það sé hægt að bjarga miklu með nokkrum vörnum og jafnvei ekki svo umfangsmiklum, að þær þyrftu að vera okkur með öllu óviðráðanlegar. Og hv. 3. þm. Reykv. játaði það raunar einnig í ræðu sinni, eins og ég hef áður drepið á. Við erum ekki heldur einir, Íslendingar, um að líta þannig á. Það er vitað, að þjóðirnar bak við járntjald verja stórkostlegu fé til almannavarna hjá sér. Fróður maður hefur sagt mér, að á mann mundi engin þjóð verja meira til almannavarna — næst Svíum — heldur en einmitt Rússar. Það sýnir skoðun ráðamanna þar á því, að það sé þó ekki með öllu til einskis unnið að forða frá því versta í þessum efnum. Hlutlausu þjóðirnar í Evrópu, Svíar og Svisslendingar, hafa einnig sannað, að þær telja mikið á sig leggjandi til þess að forða frá tjóni af kjarnorkustyrjöld. Með aðgerðum sínum sanna þær, að þær telja hlutleysið sér ekki næga vörn. Tiltölulega hafa þó engar þjóðir miðað við stærð sterkari varnir en einmitt Svíar og Svisslendingar, og á ég þá við hernaðarvarnir. Þeir hafa því vopnum varið hlutleysi, sem við mundum ekki hafa, ef við rækjum varnarliðið úr landi. En þeir láta sér ekki nægja sitt vopnum varða hlutleysi, heldur hafa þeir lagt svo mikið kapp á almannavarnir, að engin þjóð ver hlutfallslega meira til þeirra en Svíar. Og fyrir nokkrum vikum var frá því sagt í fréttum, að Svisslendingar hefðu ákveðið að koma upp byrgjum fyrir alla sína íbúa á næstu 5 eða 6 árum. Þetta sýnir mat þessara hlutlausu þjóða annars vegar á gildi hlutleysisins, ef í hart færi, og skoðun þeirra á því, að það er þó hægt að verjast hinu versta, ef menn eru viðbúnir.
En við skulum engan veginn gera lítið úr hættunni. Við skulum játa, að hún er svo ógnvænleg, að það er mjög erfitt að gera sér grein fyrir henni. En þess vegna eigum við fyrst og fremst að leggja okkur fram um að gera það, sem við megnum, til þess að forða því, að styrjöld brjótist út. Og okkar framlag til þess að forðast það, að styrjöld brjótist út, er að tryggja, að vissar lágmarksvarnir séu til á Íslandi. Öll reynsla sannar, að valdatómrúm er og verður fyrr eða síðar að óviðráðanlegri freistingu fyrir árásaraðila. Það er þess vegna hugsanlegt, ef ekki líklegt, að varnarleysi Íslands kynni að verða ákvörðunarástæða fyrir árásaraðila til þess að hefja styrjöld, leggja út í ævintýri, sem hann ella lét,i vera. Ég segi ekki, hvort þetta mundi verða ákvörðunarástæða, hvort slíkt mundi ráða úrslitum eða ekki. En ef það er hugsanlegt, að það geti haft þýðingu í því sambandi, þá ber okkur vissulega vegna íslenzku þjóðarinnar, vegna okkar sjálfra, vegna okkar barna og allra afkomenda að gera okkar til þess að koma í veg fyrir, að slíkur ófögnuður gangi yfir heiminn. Og það er e.t.v. eina og mesta framlagið, sem við getum gert, til þess að menningin og lífið haldist á jörðinni, að við tökum raunsæjum afleiðingum af því hörmulega ástandi, sem er í heiminum, og látum ekki varnarkerfi frjálsræðisins slitna á okkar landi, heldur högum við ætíð okkar framkomu svo í þessum efnum, að við fylgjumst með, að við tökum þann þátt í vörnunum, sem aðstæður og möguleikar okkar þjóðar og lands leyfa hverju sinni og eftir því sem nauðsyn friðarins og frelsisins alltaf krefst.