18.04.1963
Efri deild: 75. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)

143. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á l. nr. 61 frá 1947, um vátryggingarfélög fyrir fiskiskip, er í því fólgið, að við 19. gr. l. bætist svo hljóðandi samkv. 1. gr. frv.:

„Sama gildir um ábyrgðarupphæð samkv. 208. gr. siglingalaga, ef sú upphæð fer fram úr vátryggingarupphæð.“

Þessi smávægilega breyting, sem hér um ræðir, er nauðsynlegt að gerð verði með hliðsjón af 11. gr., 4. lið a. í frv. um siglingalög, sem Alþingi hefur nú nýlega afgreitt. Verði frv. þetta samþ., mun 19. gr. nefndra laga frá 1947 hljóða þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Bætur, sem vátryggður hefur orðið að greiða þriðja manni vegna tjóns af árekstri, þegar skipið eða áhöld þess hafa rekizt á annan fastan eða fljótandi hlut, enn fremur kostnað við málarekstur, gerðardóm eða samkomulag vegna þess greiðir félagið, en þó ekki fram yfir það, sem vátryggingarfjárhæð skipsins hrekkur til.

Ef skip verður fyrir slíku tjóni í utanlandssiglingum, að nauðsynlegt er að senda skipverja heim, greiðir félagið fargjöld fyrir þá með járnbraut og skipi, svo og nauðsynlega gistingu og fæðispeninga.

Bætur fyrir tjón á lífi manna eða fyrir meiðsli eru vátryggingarfélögunum óviðkomandi. Sama gildir um ábyrgðarupphæð samkv. 208. gr. siglingalaga, ef sú upphæð fer fram úr vátryggingarupphæð.“

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um frv. Sjútvn. mælir með samþykkt þess, en að öðru leyti vil ég vísa til grg., sem frv. fylgir.