13.11.1962
Neðri deild: 14. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (170)
6. mál, almannavarnir
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það voru nokkur atriði, sem fram komu í ræðum hv. 1. þm. Vestf. og hæstv. dómsmrh., sem ég þurfti nokkuð að svara. Hv. 1. þm. Vestf, mun nú vera fjarverandi, en ég verð engu að síður, af því að hann er ekki á landinu, að tala við hann sem væri hann hér. Hæstv. dómsmrh. mun ekki vera inni í augnablikinu, en hann er vanur að vera hér, svo að ég vona, að hann verði kominn, áður en ég kem að honum.
Hv. 1. þm. Vestf, byrjaði með því að tala nokkuð um sefjun, og það er máske rétt, fyrst á annað borð er farið að ræða þessi mál almennt, að það sé farið ofur lítið inn á þá sefjun, sem á sér stað á vissan máta og virðist vera að aukast nokkuð hér á landi. Ég á við þá sefjun, sem ég mundi kalla andkommúnisma, eða þessar ríku tilhneigingar, sem sprottið hafa nú upp aftur, þegar nazisminn er meira farinn að gleymast, til þess að líta svo á, að kommúnisminn eða sósíalisminn sé stefna, sem hin borgaralegu þjóðfélög eigi yfirleitt að hatast við. Það er komið nú svo í allmörgum þjóðfélögum, að þessi andkommúnismi er að verða slík sefjun, að hættulegt er. Það er bókstaflega farið að nota andkommúnismann sem skálkaskjól fyrir hvers konar forheimskun og siðspillingu, sem mönnum dettur í hug. Og það virðist vera orðið nóg, ef einhver t.d. meira eða minna siðspilltur maður kallar sig andkommúnista, þá þykir alveg sjálfsagt að gera þann hinn sama mann helzt hálaunaðan hjá ríkinu til þess að vinna jafnvel kannske að uppfræðslu æskunnar. Það er komið svo í öðrum þjóðfélögum, að andkommúnisminn er notaður beinlínis til þess að framkvæma glæpi. Og í einu ríki heims, Suður-Afríku, gengur þetta nú þegar svo langt, að andkommúnisminn og lög gegn kommúnistum eru þar notuð til þess að viðhalda þrælahaldi og hvers konar svívirðingum, sem allur heimurinn annars er sammála um að fordæma, allt saman undir þessu yfirskini, að það sé verið að vinna gegn kommúnismanum. Þetta er nákvæmlega sama fyrirbrigðið og setti einkenni sitt á áróðurinn á tímabilinu 1930—1940, þegar nazisminn var hvað sterkastur í veröldinni. Og það er vert fyrir alla þá, sem að einhverju leyti höfðu tengzt þeirri stefnu og harma þau tengsl nú í dag, að athuga vel og rækilega, hvert verið er að fara með þeirri stefnu, sem nú er verið að taka upp.
Einn helzti menntamaður og rithöfundur þessarar aldar, Thomas Mann, orðaði það svo eitt sinn, að: „der Antikommunismus sei die Grundtorheit unseres Jahrhunderts“ — að andkommúnisminn væri höfuðheimska aldarinnar. Við höfum kynnzt svona fyrirbrigðum áður, við höfum kynnzt þeim í antisemítismanum eða gyðingahatrinu og öðru slíku, þegar reynt er að skapa slíka sefjun hjá almenningi og drýgja í blóra við slíka sefjun ekki aðeins heimskuleg verk og ill verk, heldur hin verstu glæpaverk og hleypa að lokum af stað styrjöldum, sem nú mundu verða enn þá hættulegri en sú styrjöld, sem Hitler hleypti af stað á móti kommúnismanum, eins og hann kallaði það, því að það bandalag, sem hann og Mússolíni mynduðu, var, eins og menn vita, bandalagið gegn kommúnisma, það sama og öðru hvoru bregður við í þessum sölum í dag að Atlantshafsbandalagið sé. Þetta vildi ég nú aðeins segja, fyrst á annað borð hv. 1. þm. Vestf. fór að minnast á sefjun.
Það er rétt, þó að það sé ekki vani minn, að ég minnist ofur lítið á það við hann, þar sem hann fór að tala um erindreka Rússa, — það er rétt að nota tækifærið til þess að fræða menn ofur lítið í þessum efnum. Það hefur sem sé aldrei komið fyrir í veröldinni, að við sósíalistar hefðum verið skoðaðir af auðvaldsins hálfu sem fulltrúar þeirra, sem við raunverulega erum, sem fulltrúar alþýðunnar í viðkomandi landi. Það hefur aldrei verið haldið öðru fram en við hlytum alltaf að vera erindrekar einhvers ills. Það væri rétt að rifja það upp fyrir hv. 1. þm. Vestf., hverra erindrekar við vorum taldir vera fyrir t.d. 1817, áður en sósíalisminn komst nokkurs staðar til valda í veröldinni. Jú, þeir harðskeyttustu andstæðingar kommúnista voru ekki í neinum vafa um, hvað ætti að telja sósíalistana í heiminum þá. Þeir voru erindrekar djöfulsins, þeir voru bara beinir fulltrúar djöfulsins á jarðríki, og þeir gengu meira að segja svo langt, að ef menn fletta upp í gömlum Suðra frá 1881, þá geta menn fundið þetta sagt um Gest Pálsson, þar sem talað er um, hvernig standi á, að svona menn séu ekki brenndir á báli, og menn geta fundið nokkuð svipað, þegar farið er tala um Þorstein Erlingsson. Þetta voru fulltrúar djöfulsins. Það var að vísu ekki búið að finna upp nein þráðlaus sambönd þá, en ef þau hefðu verið til, þá hefðu þeir vafalaust haft þráðlaust samband beint við helvíti. Og þeir, sem voru eitthvað ofur lítið mildari og vildu ekki telja þá beina erindreka djöfulsins, hvað kölluðu þeir þá? Þegar sósíalistar börðust á móti stríðinu 1914, þegar Karl Liebknecht afhjúpaði Krupp og vopnahringina þýzku í þýzka ríkisþinginu, hvað var Karl Liebknecht þá talinn vera? Hann var talinn vera erindreki franska kapítalismans. Og hvað var Jean Jaurez; foringi franskra sósíalista, talinn vera, þegar hann barðist á móti stríðinu í franska þinginu? Hann var talinn erindreki þýzka keisarans og myrtur síðan. M.ö.o.: af því að sósíalistar hafa barizt fyrir hag alþýðunnar í sínu landi og alþýðunnar í öllum löndum, þá hafa þeir af auðvaldinu alltaf verið taldir erindrekar einhvers þess versta, sem auðvaldið í hverju landi víssi þá. Ef það var sæmilegur friður, voru þeir beinlínis erindrekar djöfulsins, ef það var stríð, voru þeir erindrekar óvinarins. Ég segi þetta nú bara vegna þess, að okkur sósíalistum leiðist það ósköp mikið, að okkar andstæðingar skuli vera svo andlega fátækir, að þeir geti ekki fundið upp á einhverju öðru en aldagömlum lygum til þess að reyna að halda fram á móti okkur. (Dómsmrh.: Er Sovétstjórnin og djöfullinn það sama? ) Ég held, að auðvaldið hafi lengst af litið svo á, eða hvað segir hæstv. dómsmrh. um það? Ég er anzi hræddur um, að áróðurinn, sem á sér stað í sambandi við Atlantshafsbandalagið nálgist það ákaflega mikið.
En ef við eigum hins vegar að fara að tala um kölska í öllu þessu sambandi, þá skulum við minna á, hvað það var, sem Einstein sagði í þessum efnum, þegar hann var að tala um kjarnorkusprengjuna, svo að við víkjum nú aftur að alvarlegri efnum. Þess vegna held ég, að það sé bezt fyrir menn, þegar þeir eru að ræða þessi mál, að þeir reyni að halda sér við það, hverjir það eru, sem eigast við í hvert skipti. Það er alþýðan annars vegar, auðvaldið hins vegar, sem eru að berjast. Eftir að alþýðan tekur völd í nokkrum löndum heimsins, breytast þarna ýmsir hlutir, alþýðan verður sterkari, alþýðan hefur ríkisvaldið í sínum höndum og annað slíkt, og það breytist ýmislegt við það hvað snertir valdahlutföllin í veröldinni. En hvað afstöðu sósíalista í ýmsum löndum snertir, þá hefur ekki annað breytzt en það, að sósíalisminn sem heild er sterkari í veröldinni en áður var, en í hverju landi út af fyrir sig eru sósíalistar og þeir, sem með þeim standa, fulltrúar alþýðunnar í viðkomandi landi.
Þá kom hv. 1. þm. Vestf. inn á það, að árásarhættan hér á Íslandi væri bara frá austri, og það liggur svo sem í augum uppi, hvernig í þeirri skilgreiningu hans liggur. Vesturveldin hafa þegar hertekið okkar land og halda því herteknu og eru búin að halda því herteknu nú um áratugi og eru búin að innlima það í sitt herkerfi, þannig að ef vesturveldin og austurveldin taka að stríða, þá er svo sem alveg gefið, hvaða hætta hlýtur að vofa hér yfir.
Svo að síðustu kom hv. 1. þm. Vestf. inn á það, hve ægileg yfirráð alheimskommúnismans væru og hvernig sósíalistar hér á Íslandi væru nú íulltrúar fyrir þennan voðalega alheimskommúnisma. Já, það er bezt að segja það eins og það er. Áhrif þess, sem hann kallar alheimskommúnisma, eða þess, sem við köllum sósialisma, hafa á einu ákveðnu tímabili hér á Íslandi verið einna sterkust. Og menn hafa fengið forsmekk af því, hvernig sósíalísminn mundi koma til með að líta út, svo framarlega sem sósíalistar væru sterkastir. Það var það tímabil, þegar Sósfl. var í samstjórn með Alþfl. og meiri hl. Sjálfstfl. Það var tímabil, þegar afkoma manna á Íslandi, afkoma allrar alþýðu hefur verið sú bezta, sem hún hefur verið nokkurn tíma. Það var tímabil, þegar sífelldar kauphækkanir hjá almenningi áttu sér stað. Það var tímabil, þegar komið var upp nokkrum vísi af áætlunarráði til þess að skipuleggja nýsköpun atvinnuveganna á Íslandi og þegar ráðizt var í meiri framkvæmdir í sambandi við atvinnumál en gert hefur verið nokkurn tíma ella. Það var tímabil, þegar vísitalan var lögboðin á allt kaupgjald og framkvæmd. Það var tímabil, þegar ríkisrekstur var meiri á Íslandi en hann hefur verið nokkru sinni ella. Það var tímabil, þegar viðskipti við sósíalistísku löndin voru meiri en þau hafa verið nokkurn tíma annars. Það var tímabil, þegar almannatryggingakerfi var gert fullkomnara hér á Íslandi en það hefur nokkurn tíma verið fyrr né síðar. Það var tímabil, þegar sett var löggjöf í húsnæðismálum, þar sem róttækari ákvæði voru sett, ekki aðeins viðvíkjandi útlánum, heldur líka viðvíkjandi vöxtum, heldur en nokkurn tíma hafa annars verið í gildi á Íslandi. Þetta var það tímabil, þegar áhrif sósíalismans, eða eins og hv. 1. þm. Vestf. mundi kalla það, alheimskommúnismans, hafa verið sterkust á Íslandi í samstarfi við meiri hl. Sjálfstfl. og Alþfl. Og ég held, að menn fordæmi yfirleitt ekki það tímabil á Íslandi. En það var ekki nema nokkur forsmekkur af því, hvernig þó mundi vera, ef sósíalisminn væri sterkari á Íslandi en hann reyndist þá. Og hvað gerðist þá í utanríkismálum á Íslandi m.a.? Það gerðist það, að Bandaríki Norður-Ameríku fóru fram á að fá herstöðvar hér til 99 ára. Hvað gerðist? Vafalaust var sumum illa við þetta, það þarf svo sem ekki að spyrja að því, en það, sem var undarlegra, það var, að íslenzka þjóðin og allir stjórnmálaflokkar á Alþingi urðu sammála um að neita þessari kröfu. Þeir urðu sammála um að neita henni út frá þeirri forsendu, sem þáv. forsrh. og núv. einnig orðaði, að við Íslendingar óttuðumst, að ef við fengjum þeim þessar herstöðvar, þá ætti að stjórna okkar gamla landi frá þeirra nýja landi. Og það vildum við ekki láta gera. Það er þess vegna alveg gefið, hvað það mundi verða kallað í dag að neita Bandaríkjunum um herstöðvar til 99 ára á Íslandi. Það mundi verða kallað að reka erindi heimskommúnismans, og það gerðu þá allir stjórnmálaflokkar á Íslandi, allir sammála um að neita þessari kröfu Bandaríkjanna. Ég held, að það væri því rétt af þeim hv. þm., sem hugsa eitthvað svipað og hv. 1. þm. Vestf, gerir, að láta bera sem minnst á þeim hugsunum og a.m.k. segja þær ekki opinberlega. Það er svo fyrir neðan ekki bara velsæmi, heldur líka meðalgreind, að láta í ljós slíkar vitleysur eins og þar koma fram. Það er ákaflega hart, og mér þykir leitt að þurfa að tala við gamlan og roskinn mann eins og hv. 1. þm. Vestf. eins og barn eða æstan ungling, og mér þykir þess vegna mjög vænt um að geta rætt við hæstv. dómsmrh. sem fullorðinn mann, þegar ég kem að honum.
Hæstv. dómsmrh. rökræddi þessi mál. Og hann byrjaði með því að segja og raunar kryfja til mergjar, — og í því vil ég gjarnan taka þátt með honum, — hvaðan stafar hættan fyrir okkur. Og ég verð að segja, að mér þykir ákaflega vænt um, ef það er hægt að ræða þessi mál með rökum hér í þinginu, og ég segi það vegna þess, að annaðhvort reynum við að ræða þessi mái með rökum og skynsemi nú eða við ræðum þau aldrei, af því að við verðum allir dauðir, þegar afleiðingarnar af því, að við höfum ekkert gert, koma í ljós. Hvaðan stafar hættan? Hæstv. dómsmrh. segir: Hún stafar af hernaðarlegri legu landsins. — Ég skal verða síðastur manna til að bera á móti því, að Ísland hefur hernaðarlega þýðingu og lega landsins hefur hernaðarlega þýðingu. En mér liggur við að spyrja: Hvar á hnettinum mætti Íslandi vera staðsett, til þess að Bandaríkin vildu ekki hafa herstöðvar á því? Ég þekki ekkert land vestan til í Evrópu, sem Bandaríkin vilja ekki gjarnan hafa herstöðvar í. Flyttum við Ísland austur eftir Miðjarðarhafinu, nær Tyrklandi, þá væri sama upp á teningnum. Þótt við vildum skella því niður fyrir sunnan Íran, þá verður sama upp á teningnum. Þó að við flyttum það enn þá austar og einhvers staðar í námunda við Japan, þá verður sama upp á teningnum. Svo að segja hvar sem er, þá virðast Bandaríkin vilja hafa herstöðvar, sérstaklega a.m.k. ef landið er einhvers staðar í námunda við Sovétríkin. Jafnvel þó að við flyttum Ísland inn í Karabíska hafið, settum það við hliðina á Kúbu, skyldu ekki Bandaríkin vilja hafa herstöðvar í því eins og á Kúbu? Hvar á hnettinum gætum við sett Ísland niður, þannig að við værum öruggir um, að Bandaríkin vildu ekki hafa herstöðvar í því? Ég nefni þetta aðeins sem dæmi um, að það er ekki hernaðarlega legan ein, sem þetta ákvarðar. Það koma huglægir þættir þarna inn í, annars vegar ósk eins ákveðins ríkis, Bandaríkja Norður-Ameríku, eftir því að hafa herstöðvar sem allra víðast, og afstaða valdamanna á Íslandi til að láta herstöðvar í té. Við skulum taka land, sem er ekki mjög langt frá okkur, Írland, sem hefur hernaðarlega legu ekki alveg ólíka okkur, þótt hún sé kannske minni, vegna þess að England stendur til boða fyrir Bandaríkin. Þar hafa valdamennirnir verið á móti því að ljá herstöðvar, og það hefur ekki dregizt inn í Atlantshafsbandalagið eða inn í herstöðvar, þannig að við sjáum, að það er ekki hernaðarlega þýðingin ein eða legan ein, sem þarna er um að ræða. Gangandi samt sem áður út frá, að legan út af fyrir sig hafi gildi, þá hlýtur spurningin að vera sú, sem fyrir manni liggur: Það er tvennt hægt að gera: það er hægt að auka hernaðarlegt gildi landsins og auka þannig á hættuna, og það er hægt hins vegar að reyna með öllu móti að draga úr hernaðarlegu gildi landsins og draga þannig úr hættunni.
Þá skulum við fyrst athuga, hvað mundi verða gert til þess að auka hernaðargildi landsins og þar með hættuna.
Í fyrsta lagi, ef við setjum niður flugvelli hér á Íslandi, þá er alveg óhjákvæmileg afleiðing þar af, að það eykur hættuna, eykur hernaðarlegt gildi og eykur hættuna, og það held ég að við hljótum að geta verið sammála um, jafnvel að maður gæti máske kveðið svo sterkt að orði, að þá sé fyrst fyrir alvöru sköpuð hætta á árásum á landið. Við munum eftir, hvað fyrsta verkið var, sem Bretar gerðu, þegar þeir hertóku Ísland. Hvað var eitt fyrsta verkið? Það var að grafa skurðinn uppi á Sandskeiði. Uppi á Sandskeiði höfðu verið framkvæmdar miklar æfingar áður, meðan Íslendingar sumpart undir leiðsögn þýzkra manna voru að æfa sig í svifflugi, og Englendingarnir, sem vafalaust hafa fylgzt með því, hafa óttazt, að Þjóðverjar mundu e.t.v. nota Sandskeiðið til að lenda flugvélum, og byrjuðu á því að grafa þar skurði til þess að hindra, að þar væri hægt að lenda. Það var greinilegt, að eitt af því, sem Englendingarnir óttuðust þá, var, að Þjóðverjarnir kynnu e.t.v. að lenda flugvélum á Íslandi, á söndunum hér, og vildu koma í veg fyrir slíkt, þannig að það var greinilegt, að ensk hernaðaryfirvöld gengu út frá því, að flugvellir eða þeir staðir, sem nota mætti sem flugvelli, væru einhver aðalhernaðarhættusvæðin.
Ef við viljum athuga frekar um að auka hernaðargildið og þar með hættuna, þá skulum við taka sem nr. 2 að setja her á flugvellina, þ.e. næst eftir því að hafa flugvelli, sem væru borgaralegir flugvellir, að setja her á flugvellina. Ég held, að við þyrftum að vera sammála um, að það hlyti að auka hernaðargildi landsins og þar með auka hættuna. Segjum, að í sambandi við slíka flugvelli setjum við enn fremur upp mikið radarkerfi, og nýlega var ég einhvers staðar að sjá það, að m.a. til þess, að kafbátar, sem væru m.a. undir ísnum í Norður-Íshafinu, gætu tekið mið, þyrftu þeir að geta haft samband við radarstöðvar, bæði hér á Íslandi og annars staðar. Við skulum segja, að við setjum upp svo og svo mikið af radarstöðvum hér, þá hlýtur það að auka hernaðargildið og auka hættuna.
Við skulum svo segja í þriðja lagi, að við setjum upp flotastöðvar hér, setjum upp t.d. flotastöð í Hvalfirðinum og útbúum þar lægi fyrir kafbáta líka og útbúum jafnvel neðanjarðarbyrgi þar. Ég held, að það sé engin spurning um það, að við hlytum að verða sammála um, að slíkt eykur hernaðargildið og eykur hættuna.
Við skulum svo segja í fjórða lagi, að við komum hér upp kjarnorkuflugvélum, flugvélum, sem bera kjarnorkusprengjur. Það má deila um það, hvort þær væru hugsaðar til árásar eða hugsaðar til varnar, en í öllu falli, ef hér væri kjarnorkuflugvélafloti, þá held ég, að við hlytum að vera sammála um það, að hann yki hernaðargildi landsins og yki hættuna.
Hv. 1. þm. Vestf. var svo róttækur í sinni ræðu, að hann sagði, að hann vildi hafa hér nógu sterkar varnir, sem óvinirnir treystu sér ekki til að reyna að brjóta niður. Ég held, að það litla, sem við höfum hugmynd um varnir nú á tímum, þær hugmyndir segi okkur, að það séu ekki til þær varnir, sem sé ekki hægt að brjóta niður. A.m.k. er okkur sagt, að þegar talað sé um 100 megatonna sprengjurnar, þá séu þær hugsaðar á þær stöðvar, sem eldflaugunum er skotið frá, og við þykjumst náttúrlega vissir um það, að engir staðir í veröldinni munu af hálfu kjarnorkuveldanna eins vel varðir og einmitt þær stöðvar, sem ætlaðar eru til þess að skjóta frá eldflaugum með kjarnorkuvopnum í. Og 100 megatonna sprengjur væru hugsaðar til þess að eyðileggja slíkar stöðvar, þannig að ef við færum nú að ráðum hv. 1. þm. Vestf., þá þyrftum við að setja hér upp miklu fleiri flugvelli, miklu meiri her og útbúa í þeim herstöðvum kjarnorkueldflaugaflota, m.ö.o. einmitt seiða að okkur þessar sömu 100 megatonna sprengjur, sem forstjóri almannavarna, Ágúst Valfells, sagði einmitt, að ekki mundi verða kastað á Ísland, þótt stríð yrði, vegna þess að það þyrfti ekki svo stórar sprengjur til þess að eyðileggja Keflavíkurflugvöll. M.ö.o.: ef farið væri að till. hv. 1. þm. Vestf., mundum við gera ráðstafanir til þess að seiða að okkur þær sprengjur, sem við vorum að vonast eftir að sleppa við, af því að Keflavíkurflugvöllur væri þó ekki ægilegri en hann er.
Ég hef rakið þetta hér, hvað þessir hlutir mundu þýða, ef farið væri inn á þá stefnu að auka hernaðargildið. Það hlyti að þýða að auka hættuna. Ekkert í því að auka varnirnar mundi skapa okkur aukið öryggi, heldur aðeins skapa okkur örugga tortímingu. Ég held þess vegna, ef við ræðum þá afstöðu gagnvart legu Íslands og hugsanlegu hernaðargildi þess að auka hernaðargildið, þá hljótum við að vera sammála um, að það þýði að auka hættuna og stofna okkar þjóð í enn þá meiri hættu, hennar lífi, hennar tilveru, heldur en ella.
Þá komum við að spurningunni um hina stefnuna: Eigum við að reyna að draga úr hernaðargildi Íslands? Það, sem ég álít að til þess þyrfti að gera og við Alþb.-menn erum sammála um, það er, að til þess ætti að fá herinn í burtu, draga úr hættunni með því að fá herinn í burtu, með því að leggja niður herbúnaðinn, með því að lýsa yfir hlutleysi Íslands. Ég hef áður fært rök að því og þau hafa ekki verið hrakin, að brottflutningur hersins og hergagnanna mundi þýða, að það ætti að vera hægt að forða Íslandi frá því að lenda í kjarnorkustríðinu í byrjun, ef það brytist út. Nú mundi ég segja, að öll mín hugsun í sambandi við hugsanlegt stríð og okkar viðbrögð miðast við það, að í byrjun stríðsins sé ægilegasta hættutímabilið, vegna þess að í byrjun stríðsins sé eldflaugunum skotið beggja vegna frá á öll þau skotmörk, sem andstæðingarnir hvorir um sig álíta hættuleg. Ég held þess vegna, og tek ég þó fram, að ekki er ég herfróður maður, að höfuðatriðið sé fyrir okkur að sleppa út úr þeim skelfingum, sem verða á fyrstu klukkutímum og fyrstu dögum styrjaldarinnar. Þess vegna skaut ég því hér fram persónulega sem hugmynd frá mér, leikmanni í þessum efnum, að við ættum jafnvel ekki að horfa í það, ef við héldum, að það gæti eitthvað bjargað, að vera við því búnir að eyðileggja alla flugvellina, sem við héldum að ófriðaraðilar ella gætu notað. Ég skal vissulega viðurkenna, að slíkt er óyndisúrræði. Við vitum allir, hvað flugvellirnir eru okkur dýrmætir og hvað hart er að þurfa að vera að eyðileggja slík verðmæti, sem eru upp á hundruð milljóna króna, ef ekki meira. Og ég veit, að það er alveg rétt, að það er hægt að hindra flugvélar í því að lenda, eins og bent var hér á af hv. 4, landsk. þm., — það er hægt að hindra flugvélar í að lenda á flugvelli með því að setja t.d. þótt ekki væri meira en benzíntunnur og ýmislegt slíkt skran út á flugvöllinn, — þá er hægt að gera ómögulegt að lenda þar, það hefur oft verið notað. En það, sem er erfiðleikinn í sambandi við slíkt, er, að ef styrjaldaraðilarnir hleypa niður fallhlífaliði á flugvelli eða nærri þeim, þá getur slíkt fallhlífalið á nokkrum klst. sópað öllu slíku skrani burt af viðkomandi flugvelli, og komi síðan flugvélar frá styrjaldaraðila, geta þær lent fyrirhafnarlaust á þessum flugvelli, sem sé nokkrum klukkutímum eftir að við höfum sett þessar benzíntunnur og annað slíkt út á hann. Þess vegna væri það sama hættan fyrir okkur, að hægt væri að taka slíkan flugvöll og hann væri undireins nothæfur fyrir styrjaldaraðila í upphafi styrjaldarinnar, strax jafnvel á fyrsta degi. Hins vegar ef flugvellir eru sprengdir í loft upp og gersamlega eyðilagðir, þá er margra vikna verk a.m.k. að koma þeim í lag á ný, og þó að einhver styrjaldaraðilinn tæki landið, setti niður fallhlífarlið, tandher og sjóher og annað slíkt, þá tekur það alltaf nokkrar vikur að koma þessu í lag, þannig að slíkar herstöðvar, sem flugvellir þá yrðu, hefðu aftur það hernaðargildi, að hinum styrjaldaraðilanum fyndist borga sig að fara að setja sprengjur á þá, og þá værum við búnir að vinna þann tíma, sem ég álit dýrmætastan til þess að reyna að bjarga lífi þjóðarinnar, búnir að vinna nokkra daga í byrjun slíks hildarleiks til þess að reyna að flytja okkar fólk burt frá þeim svæðum, sem yrðu hér aðalhættusvæðin. Ég álít líka, að við ættum að reyna að athuga það, hvers konar ráðstafanir við gætum gert í sambandi við Hvalfjörð, hvort við gætum á einhvern hátt eyðilagt það. Ég skal ekki segja, hvort við ættum sjálfir að hugsa það, að leggja þar tundurduflum eða öðru slíku eða gera ráðstafanir til þess, að ekki heldur væri hægt að nota hann þannig í byrjun. En ef við værum sammála um, að við vildum reyna að hindra, að okkar þéttbýli yrði sprengt sundur á fyrstu klukkustundum stríðsins, ættum við beinlínis að reyna að útvega okkur upplýsingar um þetta og ráðgast við — við skulum segja þá Bandaríkjamenn, sem eru herfróðir í þessum efnum. Ef við vildum ekki að öllu leyti treysta þeim, af því að þeir væru annar aðili í slíku, þá gætum við talað við vinaþjóðir, sem við vitum að eru herfróðar mjög, eins og t.d. Svía, og spurt þá beinlínis ráða í þessum efnum.
Ég álít, að við ættum sem sé að reyna að draga úr hernaðargildi Íslands, og okkar fyrstu ráðstafanir eru að fá herinn burt og hergögnin, vera við því búnir á einn eða annan máta, sem við kæmumst að beztri niðurstöðu um, að draga úr gildi flugvallanna, hindra notkun Hvalfjarðar og reyna svo enn fremur að fá t.d. tryggingu fyrir því, að ekki verði ráðizt á okkar land. Það er alveg rétt, að menn geri sér það í hugarlund, hvort slíkt væri bara fróm ósk eða hvort slíkt væri unnt. Ég vil benda á, að Austurríki hefur alveg nýlega hlotið slíka aðstöðu með samkomulagi milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og fleiri stórvelda, þ.e. hlutleysi, sem þessi stóru veldi viðurkenna og lofa að virða.
Nú er óhugsandi, vegna þess að Ísland hefur haft svo mikið hernaðargildi, að nokkur aðili af þessum stórveldum gæti fallizt á það að vilja veita Íslandi slíka tryggingu. Maður getur kannske skilið það, og sérstaklega þeir, sem nú þegar hafa Ísland, ættu erfitt með slíkt, ef þeir gera ákaflega mikið úr hernaðargildi þess. Ég vil benda á nokkur atriði í sambandi við þá hlið.
Mér óherfróðum finnst, að hernaðargildi Íslands hafi minnkað á síðustu árum: Í fyrsta lagi vegna þess, að þær eldflaugar, sem nú eru búnar til af aðalkjarnorkustórveldunum, eru orðnar svo miklu langdrægari, að það virðist hafa miklu minni þýðingu fyrir þessa aðila að reyna að koma sínum herstöðvum meira og meira í nánd hvorum við aðrar. Og því langdrægari sem eldflaugarnar verða, því meiri á möguleikinn að verða fyrir okkur hér á Íslandi að sleppa. Í öðru lagi, það er að vísu hrein getgáta hjá mér, en einhvern veginn hef ég fengið þá hugmynd, að Bandaríkjamenn hafi fyrir 4–5 árum tekið þá ákvörðun að hafa þann aðalflugvöll, sem þeir treysti á hér á norðurslóðum, í Grænlandi, og að þeir geri ekki eins mikið úr Keflavíkurflugvelli og þeim og kannske okkur hætti við að gera áður, þannig að hernaðarleg þýðing hans, — öfugt við það, sem hv. 1. þm. Vestf. sagði, að hernaðarleg þýðing hans væri meiri nú en nokkurn tíma fyrr, — að hernaðarleg þýðing Keflavíkurflugvallar og þar með Íslands væri þess vegna minni en fyrr. Þetta eru atriði, sem við hljótum að geta gengið úr skugga um. Og ekki vil ég ætla hæstv. ríkisstj. annað en það, að þó að hún sé vinveitt Atlantshafsbandalaginu og álíti sig hafa vissar skyldur gagnvart þeim, sem hún skoðar sem sína pólitísku samherja í veröldinni, þá ætla ég henni samt ekki annað en það, að hún mundi vilja, ef hún sæi, að það væri hægt útlátalaust svo að segja fyrir hennar samherja, reyna að koma Íslandi sem mest út úr þeirri styrjaldarhættu, sem yfir vofir.
Allar þessar hugmyndir, sem ég er með í þessu sambandi byggi ég á því, að aðalatriðið fyrir okkur Íslendinga sé að sleppa í byrjun. Og ég vil vekja athygli á því, sem forsætisráðherra Sovétríkjanna, Krúsjeff, sagði nú nýlega í sambandi við þá hættu, sem skapaðist út af Kúbu-málinu, að heimurinn hefði staðið á barmi kjarnorkustyrjaldar, þar sem strax í byrjun hefði verið barizt með kjarnorkuvopnum, þannig að þessi ægilegi möguleiki er atriði, sem er rétt fyrir okkur að horfast í augu við. Ég held þess vegna, að þó að við værum nú sammála um, að lega landsins hefði visst hernaðarlegt gildi, þá hlyti það að vera stefna okkar sem Íslendinga að draga úr þessu gildi og finna út allar þær ráðstafanir, sem við gætum til þess, en auka ekki á þetta gildi með því að vígbúa Ísland meir og meir.
Þá kom hæstv. dómsmrh. inn á það, að það væri nú ekki víst, að það yrði kjarnorkustyrjöld, sem brytist út, við gætum ef til vill gert okkur von um, að þetta yrði gamaldags styrjöld. Ég er hræddur um og vil aftur benda á þá yfirlýsingu, sem ég var að nefna, eftir forsætisráðherra Sovétríkjanna, að ef um styrjöld væri að ræða á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, þá gætum við ekki gert okkur mikla von um, að það yrði annað en kjarnorkustyrjöld, a.m.k. ef hún brytist út nú bráðlega. Og við vitum, að öll hertækni Bandaríkjanna hefur verið miðuð við það að heyja kjarnorkustyrjöld. Þau ráð voru tekin af Bandaríkjastjórn og þeirra herstjórn, þegar Bandaríkin álitu sig hafa einsömul kjarnorkuvopn í veröldinni. Og þau hafa þess vegna hlaðið upp ákaflega miklu af kjarnorkuvopnum og hafa gengið út frá því að hafa á því sviði yfirburði yfir sína andstæðinga, yfir sína hugsanlegu andstæðinga. Ég held, að herstjórn Bandaríkjanna gangi út frá því, að hún eigi nú til umráða um 35 þús. megatonn, en Sovétríkin muni ekki eiga nema um 15 þús. megatonn. Og enn fremur held ég að herstjórn Bandaríkjanna gangi út frá því, að þetta hlutfall fari versnandi fyrir Bandaríkin, sem mundi þýða, að það væri viss tilhneiging hjá herstjórn Bandaríkjanna, ef þeir álitu hlutfallið fara versnandi, að leggja heldur í stríðið, ef þeir álitu það óhjákvæmilegt, fyrr en síðar. Ég er þess vegna ákaflega hræddur um, að ef Sovétríkin og Bandaríkin færu í stríð, þá yrði það kjarnorkustríð frá upphafi með öllum þeim hættum, sem við erum allir sammála um að því fylgi.
Þá minntist hæstv. dómsmrh. á, að nú þegar væru ýmis ríki í styrjöld sín á milli eða væru að heyja alls konar landamæraskærur, án þess að beitt væri kjarnorkuvopnum. Það, að það skuli hafa verið háðar á undanförnum árum margar styrjaldir, án þess að kjarnorkuvopnum væri beitt, og milli einstakra landa, það sannar ekkert um, ef kjarnorkuveldin legðu í stríðið, að þau beiti ekki frá upphafi kjarnorkuvopnum, því miður.
Þá er einnig annað, sem er rétt fyrir okkur að gera okkur ljóst, ef við erum að gera okkur vonir um að sleppa með, að það verði gamaldags styrjöld, en það er, að hættan vex með hverju árinu sem nú líður á því, að fleiri og fleiri ríki fái kjarnorkuvopn. Það er ótti, sem við erum ekki einir um að bera í brjósti. Kjarnorkuklúbburinn, eins og hann hefur verið kallaður, þ.e. Sovétríkin, Bandaríkin og Bretland, kannske Frakkland með, þau bera nákvæmlega þennan sama ótta í brjósti. Öll þessi ríki, svo andstæð sem þau eru innbyrðis á ýmsan veg, þá óttast þau það, að fleiri ríki fái kjarnorkuvopn og þá verði enn þá erfiðara að komast að nokkru samkomulagi um bann við kjarnorkuvopnum. Nehru forsætisráðherra Indlands var nú einhvern daginn að gefa yfirlýsingu um það, að hann áliti, að Kínverjar mundu verða búnir að koma sér upp kjarnorkuvopnum innan tveggja ára. Og ég veit, að sumir álíta, að það muni máske ekki einu sinni líða svo langur tími þangað til, og munu þeir þó ekki fá aðstoð til þess frá þeim, sem ella eru þeirra pólitísku samherjar. Sama hefur gilt um samstarfsríki vesturveldanna, eins og Vestur-Þýzkaland. Það er vitanlegt, að Bandaríki Norður-Ameriku hafa ekki viljað láta vestur-þýzka herinn fá aðgang að kjarnorkuleyndarmálunum, en það er hins vegar líka vitað, að vestur-þýzki herinn hefur haft vissa samvinnu við frönsku stjórnina, við de Gaulle, um þær kjarnorkusprengingar, sem Frakkar hafa framkvæmt í Sahara, og eins framúrskarandi efna- og eðlisfræðingum og Vestur-Þjóðverjar hafa á að skipa, þá getur maður nokkurn veginn gert sér í hugarlund, hve langt þeir muni vera komnir að finna út sjálfir þessa leyndardóma, þótt þeim gefist ekki tækfæri upp á eigin spýtur enn þá að gera tilraunir með þetta og verða jafnvel að reyna að hafa nána samvinnu við Frakka til að láta gera slíkar tilraunir. Og við getum rétt hugsað okkur það, hvernig sem við annars lítum á hin ýmsu ríki, að þegar Vestur-Þýzkaland og Kína og fleiri til væru farin að framleiða kjarnorkuvopn, hvað mikið þyrfti þá til þess að kveikja í heiminum, þannig að ef það hefði ekkí tekizt, á meðan þessi 3 eða í hæsta lagi 4 ríki hafa kjarnorkuvopn, sem nú hafa þau, — og raunverulega eru þau ekki nema 3, sem hafa þau í nokkrum verulegum mæli, — þá sjáum við, hvernig við erum raunverulega staddir daglega á yztu brún, á barmi kjarnorkustyrjaldar í þessum efnum. Ég vil aðeins minna á, hve nærri hefur legið, vegna þess að menn hafa séð rangt á þeim radarskermum, sem þeir eiga að fylgjast með flugvélum í, að menn hafa mistekið grágæsahópa fyrir flugvélar og allur kjarnorkufloti Bandaríkjanna hefur verið settur í notkun, — hve tæpt hefur verið, að kjarnorkustyrjöld gæti hlotizt af mistökum. Ég vil benda á samtímis, því að alltaf eru á sveimi kjarnorkuflugvélar frá hálfu Bandaríkjahers með kjarnorkuvopn innbyrðis, að það þarf ekki nema að nokkrir flugmenn, — einn flugmaður mun ekki geta gert það, nokkrir flugmenn geri samtök innbyrðis í einni flugvél til þess að kasta sprengjum, og slíkt getur orðið til þess að hleypa af stað styrjöld, og við getum hugsað okkur, þegar ofstækið og pólitísk blindni væri farin að verða algeng í einum her, hvað lítið þyrfti til, að þess háttar samtök sköpuðust. Jafnvel þó að æðstu valdamenn viðkomandi ríkís, sem reyna að hafa þetta í höndum sér, hleyptu ekki slíku af stað, þá gætu einstakir menn fundið upp á að gera petta. Og þó vil ég segja, að mér óar það kapp, sem maður varð var við af hálfu forseta Bandaríkjanna í sambandi við Kúbu-deiluna nú nýlega. Það getur verið hættulegt atriði að fara að gera metnaðinn að aðalatriði, þegar líf mannkynsins hangir á veikum þræði. Ég veit, að lífsþreyttir auðmannasynir í Bandaríkjunum iðkuðu þá íþrótt fyrir nokkrum árum að aka sínum fínu bílum á sínum góðu vegum með 150–200 km hraða beint hver á móti öðrum, og sá tapaði, sem vék. M.ö.o.: ef slíkt kapp á að fara að verða þar, sem fengizt er við heimsstjórnmálin, þá erum við komnir út í kjarnorkustyrjöld, áður en við vitum af. Og ég held, að þeir ungu menn, sem falin hefur verið að miklu leyti forsjá Bandaríkjanna nú, megi alvarlega gá að sér. Það kann að vera, að fyrir kosningarnar þar hafi verið kosningaskjálfti í slíkum mönnum. En meira að segja þó að menn vilji henda bombum í kosningum, þá ættu menn að láta sér nægja kosningabombur, en ekki atómbombur. Það er óþarfi að leika sér þannig með örlög heimsins.
Ég held þess vegna, að sú von hæstv. dómsmrh., að við hér á Íslandi gætum kannske sloppið með gamaldags styrjöld, sé því miður ekki á rökum reist. Þjóðir suður í Afríku og Asíu og Suður-Ameríku geta háð gamaldags styrjöld, án þess að hún snerti okkur mikið nema sem manneskjur almennt, svo sorgleg sem styrjöld er. En ef kjarnorkustórveldin fara í stríð, þá held ég, að sú hætta, sem við erum að tala um, vofi yfir okkur.
Þá vildi hæstv. dómsmrh. koma inn á það, að sósíalistísk ríki í heiminum væru einu hugsanlegu árásaraðilarnir og auðvaldsríkin í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku væru hins vegar einhverjir englar. Þá erum við komnir inn á annað svið. Það sem af er höfum við rætt um afstöðu okkar lands og okkar þjóðar og hvort við gætum gert okkur vonir um að forða okkar þjóð út úr styrjöld eða undan afleiðingum styrjaldar. Nú hins vegar erum við komnir inn á alheimsstjórnmálin, og það er að vísu velkomið, fyrst farið er að vekja máls á því, að ég ræði þau líka nokkuð, og þá skulum við athuga, hvernig þar stendur.
Hæstv. dómsmrh. hættir við, þegar hann talar um auðvaldsríkin í Vestur-Evrópu að titla þau venjulega sem lýðræðisríki. Vissulega eru í hópi þeirra ríkja ýmis af lýðræðisríkjum. En þar eru líka ríki, sem fyrst og fremst einkennast af öðru, fyrst og fremst einkennast af því að hafa verið og vera að nokkru leyti enn voldugustu auðmannastórveldi heimsins, stórveldi, sem höfðu um síðustu aldamót skipt veröldinni upp á milli sin. Og við skulum, þegar við ræðum um þetta, gæta þess að gera góðan greinarmun þarna á. Annars vegar eru ákaflega skikkanleg lýðræðisríki, eins og þau ríki, sem okkur standa næst, Norðurlöndin. En hins vegar eru ríki, við skulum taka Bretland, ríki, sem sjálft heima fyrir hefur verið lýðræðis- og jafnvel þingræðisland og jafnvel eitt af þeim, sem rutt hefur braut í þeim efnum í Evrópu, en hefur verið út á við eitthvert harðvitugasta harðstjórnarveldið, sem í heiminum hefur þekkzt, ríki, sem um síðustu aldamót hafði fjórða hluta heimskringlunnar undir sínu valdi og stjórnaði með harðstjórn heiman að, að vísu harðstjórn, sem venjulega var framkvæmd af mjög miklu hyggjuviti og mjög mikilli slægð, og ensk yfirstétt má eiga það, að það hafa fáar yfirstéttir sögunnar verið eins klókar í því að vita, hvenær þær geta ekki lengur haft völd, og kunna þess vegna að láta undan í tíma. Auðveldi Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku höfðu sem sé um síðustu aldamót og eftir þau verið búin að leggja undir sig mestallan heiminn, skipta upp heimsálfum eins og Afríku, búta þau niður í nýlendur, ráðið beint eða óbeint yfir hálfri Asíu, gert hálfa heimsálfu eins og Suður-Ameríku að raunverulegum nýlendum sínum, eins og England, Þýzkaland og seinna meir Bandaríkin höfðu raunverulega gert. Hvað er það svo, sem hefur verið að gerast á síðustu áratugum, og sérstaklega sú þróun, sem gengið hefur hratt fyrir sig eftir stríð? Það, sem hefur verið að gerast, er, að þjóðirnar í öllum þessum löndum heims, í Asíu, í Afríku, í SuðurAmeriku, hafa verið að risa upp og varpa af sér oki þessara auðmannastétta í VesturEvrópu og Norður-Ameríku. Það, sem maður mundi kalla þjóðernislega byltingu eða sjálfstæðisbyltingu, sem hefur verið að gerast í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku, er það, sem framar öllu hefur einkennt tvo síðustu áratugi. Og þar er nú svo komið, að allur þorrinn af þessum þjóðum er búinn að ná stjórnarfarslegu sjálfstæði. Sem sé, þessar þjóðir, sem áður voru að mestu nýlendur, eru orðnar pólitískt eða stjórnarfarslega sjálfstæð ríki, og viðurkennd sem slík. Hvað hefur gerzt um leið? Það hefur gerzt um leið, að þessi stórveldi í Evrópu hafa í vaxandi mæli farið að því mjög skynsamlega fordæmi Breta, sem þeir sýndu gagnvart Indlandi eftir uppreisnina 1947, að láta undan í tíma og bíða þess ekki, að það yrðu byltingar í þessum löndum, byltingar, sem þá venjulega hefðu ekki aðeins orðið sjálfstæðisbyltingar, heldur máske líka oft stétta- eða þó fyrst og fremst bændabyltingar. Brezka auðvaldið hefur haldið sínum tökum á atvinnulífinu. Brezka auðvaldið hefur haldið sínum tökum á atvinnulífi Afríku-nýlendnanna, sem það hefur gefið sjálfstæði. Unilever hefur sín tök á Gullströndinni og öðrum fornum nýlendum Breta, þó að þetta séu nú orðin sjáifstæð ríki, og um leið og eitthvert af þessum ríkjum víll fara að ganga þarna lengra og þjóðnýta eignir þessara voldugu auðhringa, þá er hrópað upp um, að nú sé kommúnisminn að brjóta sér þarna braut. Ég held, að það sé ákaflega mikilvægt fyrir okkur Íslendinga, að við skiljum aðstöðu þessara þjóða. Við höfum skilið aðstöðu margra þessara þjóða og oft skorið okkur til heiðurs úr, og það gildir líka með núv. stjórnarflokka, þegar t.d. bandamenn okkar í Atlantshafsbandalaginu áttu í hlut. Ísland stóð með Alsír gagnvart Frakklandi, og er þó í sjálfum Atlantshafsbandalagssáttmálanum gengið út frá því, að nýlendur Frakka í Norður-Afríku séu eitt af því, sem Atlantshafsbandalagið eigi að verja, sem nú er búið að gera að sjálfstæðum ríkjum með 7 ára styrjöld, — styrjöld, þar sem Atlantshafsbandalagið hefur lagt til allmikið af þeim her, sem Frakkar hafa beitt.
Við Íslendingar þurfum að skilja þá efnahagslegu byltingu, sem nú er að byrja í þessum löndum Asíu, Afríku og Suður-Ameríku, alveg eins og við höfum skilið þeirra sjálfstæðisbyltingu. Mundum við Íslendingar hafa álitið sjálfstæðisbaráttu okkar lokið, ef danskir aðalsmenn eða danskir stórjarðaeigendur eða danski konungurinn hefði átt meginið af öllum jarðeignum á Íslandi? Nei, við mundum tvímælalaust ekki hafa álitið okkar sjálfstæðisbaráttu lokið. Og það er ástandið, sem allur þorrinn t.d. af Suður-Ameríkuþjóðunum býr við í dag, að útlendir auðhringar eigi meginið af allri jörð síðan. Við Íslendingar mundum ekki heldur hafa álitið okkar sjálfstæðisbaráttu lokið, ef Títan eða önnur erlend auðfélög hefðu átt fossana hér á Íslandi, átt raforkuverin við þessa fossa og stóriðjuverin við þessa fossa. Og ég vil minna á, að 1923 áttu útlend félög alla fossa á Íslandi, sem hugsanlegt var að virkja, nema Sogið. Og það var einungis fyrir ráðstafanir Alþingis þá, að þessi eign útlendinga á öllum dýrmætum fossum á Íslandi, allri Þjórsá, var eyðilögð, sem gerði okkur mögulegt nú fyrir nokkrum árum að geta þess vegna keypt Þjórsá aftur, vatnsmagnið í Þjórsá, fyrir 3 millj. kr. af Títan, ég á við af því félagi, sem það áttí. En þetta er aðstaðan, sem þorrinn af þjóðunum í Afríku og víðar á við að búa, að þessar auðlindir þeirra eru eign erlendra auðfélaga. Við Íslendingar mundum ekki heldur hafa álitið sjálfstæðisbaráttu okkar lokið, ef t.d. sænskir eða norskir eða danskir útgerðarmenn hefðu átt verstöðvarnar hérna á Íslandi, síldarbryggjurnar á Siglufirði, eins og sænskir og norskir menn áttu fyrir 1923. Við mundum álíta, að það væri mikið eftir enn þá í okkar sjálfstæðisbaráttu að ná þessu í eigu okkar Íslendinga sjálfra. Þetta er hins vegar það, sem allur þorrinn af þessum þjóðum á enn þá við að búa. Og þegar þeir hlutir gerast eins og gerast t.d. á Kúbu, þá er það vegna þess, að þessir þjóðernissinnar, — liggur mér við að segja, Castro og þeir, sem þar tóku völdin, — það, sem þeir reka sig á, undireins og þeir ætla að fara að ráða yfir atvinnulífi síns lands, eru hótanirnar frá útlendu valdi á móti þeim, þannig að þeir, sem upphaflega höfðu alls ekki ætlað sér að þjóðnýta þetta, verða að fara í það hvert stigið af öðru að taka eignir útlendu hringanna eignarnámi og framkvæma þannig raunar sósíalistíska byltingu í landinu löngu fyrr en þeir höfðu ætlað sér, bara vegna þess að vald útlendu auðhringanna í viðkomandi löndum er svo mikið, að það er ekki hægt við þá að ráða, ef þeir beita sínu valdi, öðruvísi en að þjóðnýta þeirra eignir. Það, sem v ið þess vegna megum búast við á næstunni í öllum þessum heimsálfum, Ameríku, Afríku, Asíu, það er, að þessar sjálfstæðu þjóðir sæki þennan rétt sinn að ráða sjálfar auðlindum og atvinnulífi síns lands, alveg eins og við Íslendingar mundum hafa gert, ef við hefðum átt þá eitthvað eftir af okkar sjálfstæðisbaráttu.
Ég vil vekja athygli á því, að það eru fáar þjóðir heims, sem þó hafa verið eins og við í nýlenduaðstöðu um tíma, sem standa eins og við þannig, að ekkert útlent kapítal, ekkert útlent fjármagn sé í viðkomandi landi. Og þá vil ég einmitt benda hæstv. dómsmrh. á, hver er aístaða þeirra, sem hann kallar lýðræðisríkin í Evrópu, en ég mundi kalla gömlu nýlenduveldin í Evrópu, gagnvart þessari sjálfsögðu lífsbjargarviðleitni og sjálfstæðisviðleitni þessara þjóða á verzlunarsviðinu? Jú, afstaðan er sú, að þessi ríki og það einmitt ríki, sem eru í Atlantshafsbandalaginu, hafa á undanförnum árum gerzt sek um að vera árásaraðilar hvert á fætur öðru og verið fordæmd sem slík af sjálfum Sameinuðu þjóðunum. Ég skal minna á Holland með sinni árás á Indónesíu. Holland ræðst á Indónesíu til þess að reyna að viðhalda sínu gamla nýlenduveldi, og eru þó vissulega tök hollenzka auðvaldsins allsterk enn þá þar, og Sameinuðu þjóðirnar fordæma Holland fyrir og Holland er meðlimur í Atlantshafsbandalaginu. Ég vil minna á England og Frakkland. Þau ráðast á Egyptaland, sem hafði verið í raunverulegri nýlenduafstöðu gagnvart Englandi, og verða fyrir því sama, fordæmd af Sameinuðu þjóðunum, eru í Atlantshafsbandalaginu. Ég vil minna á Portúgal, sem ég efast jafnvel um að hæstv. dómsmrh. mundi kalla lýðræðisríki og mundi líklega vera sammála mér fyrst og fremst um að einkenna það sem auðmannaveldi og gamalt nýlenduveldi, — ég vil minna á afstöðu Portúgals gagnvart Angóla og gagnvart sínum nýlendum öðrum, sem líka hefur verið fordæmt af Sameinuðu þjóðunum, og Portúgal er eitt af Atlantshafsbandalagsríkjunum. Það hefur því greinilega komið í ljós, að einmitt þessi gömlu nýlenduveldi, eins og Holland, England, Frakkland, Portúgal, eru árásaraðilar, sem ganga svo berlega til verks, að á undanförnum áratugum hafa þau verið fordæmd af Sameinuðu þjóðunum fyrir það. Ég segi þetta aðeins til að minna á, að það er ekki rétt að slá því fram, að einu sjálfsögðu árásaraðilarnir í veröldinni væru hin sósíalistísku ríki.
Ég vil svo benda á, hvað það er, sem er að gerast núna, bara þessa dagana, sem getur orðið til að hleypa heimsstríði af stað. Það er, að Bandaríkin séu að undirbúa árás á Kúbu eða leyfa gagnbyltingarmönnum, sem hafa aðsetur í Bandaríkjunum og í þeim ríkjum, sem Bandaríkin hafa mikil tök á, að undirbúa slíka árás á Kúbu. Og þarna er um að ræða einmitt eitt af þeim fátækustu ríkjum, sem er að losa sig úr nýlenduaðstöðu, taka sínar auðlindir í eigin hendur, en rekst þar á hagsmuni hinna voldugu auðhringa, þannig að eitt af því, sem styrjaldarhættan stafar af enn í dag í heiminum, er einmitt þetta, að þessir gömlu, voldugu auðhringar VesturEvrópu og Norður-Ameríku vilja halda í sín sérréttindi, halda í sitt vald og beita til þess jafnvel því að hleypa af stað styrjöld, ef það dugir ekki öðruvísi.
Ég vil þess vegna, fyrst hæstv. dómsmrh. lýsti skoðun sinni á þessum málum, lýsa minni skoðun. Ég álít, að hættan á styrjöld í heiminum í dag stafi af auðvaldinu, stafi af auðmannastéttinni, stafi af þeim, sem eitt sinn voru kallaðir kaupmenn dauðans, þeim ægilegu hergagnahringum, sem samtvinnaðir eru nú með stærstu auðhringum heimsins, þeim aðilum, sem hafa gróða af því að búa þjóðirnar út í stríð og halda jafnvel sjálfir, að þeir geti haft gróða af því enn þá að heyja stríð, þótt það sé mikill misskilningur. En ofstæki og gróðafíkn slíkra auðhringa gæti orðið til þess að fórna mannkyninu á þeirra altari. Ég held þess vegna, hvaða afstöðu sem menn annars taka gagnvart kapítalisma og sósíalisma, þá verði menn að gera sér það ljóst, að þarna liggur ein höfuðhættan á heimsstyrjöld nú.
Þá talaði hæstv. dómsmrh. um, að það væri varnarkeðja frjálsræðisins, sem væri í hættu, ef eitthvað yrði linað með varnirnar svokölluðu á Íslandi. Eigum við nú að vera að nota þessi hátíðlegu orð um þetta? Er það ekki of mikið að segja, að Tyrkland og Portúgal séu óhjákvæmilegir hlekkir í varnarkerfi frjálsræðisins í heiminum? Ég held, að þróunin, sem við þvert á móti sjáum fyrir okkar augum, sé sú hryggilega þróun, að í þessum ríkjum, sem eitt sinn ruddu lýðræðinu í Evrópu braut með byltingum, eins og Frakkland, þar sé nú að komast á meira og meira persónulegt einræði, þingræðið nú þegar afnumið, og enginn veit, hvenær meira eða minna ódulinn fasismi kynni að skella þar yfir. Ég held, að við verðum þvert á móti að horfast í augu við, að innan sjálfra ríkja Atlantshafsbandalagsins sé hættan á, að lýðræðið fari halloka, því miður vaxandi.
Ég veit, að um þetta verðum við hæstv. dómsmrh. vafalaust ekki sammála, þó að við gætum e.t.v. orðið sammála um eitthvað af því, sem ég ræddi fyrr, og það þýðir máske ekki fyrir okkur að eyða löngu máli í að reyna að sannfæra hvor annan um þetta, þó að við hins vegar höfum hvor sína skoðun og lýsum henni. En eitt vil ég taka fram í þessu sambandi. Hagsmunir þess fólks, sem í sósíalistísku ríkjunum býr, geta aldrei verið að leggja út í styrjöld. Hver sá, sem kynnt hefur sér að einhverju leyti t.d. Sovétþjóðirnar, sem á þeim 4.5 árum, síðan byltingin varð þar, hafa orðið að eyða 20 árum í styrjaldir eða uppbyggingu úr rústum styrjalda, getur varla efazt um, að þær þjóðir langi ekki í styrjöld á ný, — þjóðir, þar sem svo að segja hver einasta fjölskylda hefur átt um sárt að binda vegna þess, að hún hefur staðið í eins ægilegri styrjöld og styrjöldin við Hitler var. Og við skulum muna það, að í öllum þessum sósíalistísku ríkjum er öll hergagnaframleiðsla þjóðnýtt, þannig að það eru engir einstaklingar, sem hafa þar hagsmuni af hergagnaframleiðslunni. Og mér liggur stundum við að halda, að hergagnaframleiðslan í auðvaldslöndunum mundi ekki vera rekin af því ægilega kappi, sem hún er rekin, svo framarlega sem í þessum löndum væru allar hergagnaverksmiðjurnar þjóðnýttar og enginn auðmaður og ekkert auðfélag græddi neitt á því að framleiða vopn, heldur yrðu aðeins sjálf að borga skattana af því, að ríkisverksmiðjurnar yrðu að framleiða vopnin. Þeir, sem hafa athugað vel sögu styrjaldarinnar 1914-1918, vita, hvernig hergagnaframleiðendurnir beggja vegna víglínunnar höfðu samband sín á milli um það að lengja það stríð, hvernig enskir hergagnaframleiðendur og enska ríkisstj. vissi af því, að sleppt væri í gegn vörum til Þjóðverja, sem þá skorti, þannig að þeir gætu haldið áfram stríðinu. Það eru menn, sem hafa athugað til fullnustu það, sem þar gerðist bak við tjöldin. Þeir vita, hve ægilegt vald hergagnahringarnir eru í auðvaldsheiminum.
Ég efast ekki um, að hæstv. dómsmrh. segir það, sem hann meinar, þegar hann orðaði það svo, að herstöðvar hér væru okkar framlag til þess að reyna að hindra stríð. En þar byggir hann á þeirri trú sinni, á þeirri skoðun sinni, að árásarhættan stafi einvörðungu frá sósíalístísku ríkjunum. Ég held þess vegna, að ef við færum að hugsa þetta, þótt við kæmumst ekki lengra en það, að við færum að slá því föstu, að stríð gæti skollið á, meira að segja fyrir misskilning, slysni eða annað slíkt, þá held ég, að þessi rök, að sósíalistísku ríkin væru svo hrædd við herstöðvarnar hérna á Íslandi, að þau þess vegna þyrðu ekki að leggja í stríð, mættu sín hverfandi lítils. Ég held, að þegar við athugum þau mál ofan í kjölinn, þá mundum við komast að þeirri niðurstöðu, að herstöðvarnar hér dragi aðeins að sér hættuna og að þetta framlag okkar til þess að skelfa sósíalistísku ríkin væri ekki svo mikið, að það réði úrslitum um, að þau færu ekki að hefja styrjöld. Ég held meira að segja, ef við reyndum að kalla til hlutlausa herfræðinga, sem athuguðu, hvernig keðjan er hér í nánd við okkur, England, Færeyjar, Noregur, svo Grænland, að þeir mundu komast að þeirri niðurstöðu, að herstöðvarnar á Íslandi mundu ekki valda slíkum hugsanlegum árásaraðila þeim beyg, að hann aðeins þess vegna hætti við að fara út í styrjöld. Nei, ég held, að það, sem sé aðalatriðið fyrir okkur í þessum efnum, sé að reyna fyrst og fremst að ræða þessi mál niður í kjölinn hér innanlands og út á við að reyna að vera aðili, sem ber sættir á milli, sem reynir að draga úr tortryggni þessara stórvelda hvers gagnvart öðru, af því að enn þá höfum við a. m, k. borið gæfu til þess hér heima að geta talað hverjir við aðra um þessi mál og a.m.k. að einhverju leyti reynt að skilja hver annan.
Þá kom hæstv. dómsmrh. að síðustu að hlutleysi Íslands og minnti þar á, að ég hefði sjálfur oft sýnt fram á það, að hlutleysi, þó að maður vildi því gjarnan viðhalda, gæti orðið lítils eða einskis virði. Það er alveg rétt, og það hef ég aldrei dregið í efa, að það er hægt að gera hlutleysi einskis virði. Það er hægt að gera samninga, og það er hægt að rjúfa þá samninga. Við vitum báðir, að Belgía hafði t.d. slíka ábyrgð 1914, og Þjóðverjar rufu á henni yfirlýsingu um að fara ekki með her þar í gegn. En sýnir það um leið, þótt þetta komi fyrir, að hlutleysi sé þess vegna almennt einskis virði? Svíar hafa nú komizt hjá styrjöldum í Evrópu hátt á aðra öld. Þeir meta sitt hlutleysi mjög hátt, og þeir reyna líka að verja það hlutleysi. Engu að síður mun það álit ríkisstj., að þeir hefðu þó dregizt inn í síðasta stríð, Þjóðverjar hefðu ráðizt á þá, svo fremi sem Sovétstjórnin hefði þá ekki lýst því yfir, að henni væri að mæta, ef ráðizt yrði á Svía. A.m.k. lét Erlander forsrh. þau orð sér um munn fara, að sænska ríkisstj. ætti Sovétstjórninni mjög mikið að þakka í þeim efnum. Engu að síður meta Svíar sitt hlutleysi hátt, og þeir eru viðbúnir að verja það. Svisslendingar hafa nú um allmargar aldir komizt hjá því að lenda í styrjöldum á milli þeirra landa sem hafa barizt þar hringinn í kringum þá. Þeir reyna líka að verja sitt hlutleysi. Þeir meta það mjög mikils og vilja ekki sleppa því. Austurríki hefur nýlega gengið í hóp þessara hlutlausu landa og er þó þarna í mjög miklum brennipunkti. Þó býst ég varla við, að þeir hafi tiltölulega eins góðar varnir og Svíar eða Svisslendingar, og þeir eru ekki heldur eins einangraðir frá náttúrunnar hendi. En þeir meta þetta hlutleysi, og þeir vilja reyna að viðhalda því.
Vissulega getur skapazt það ástand í veröldinni, að slíkir aðilar rísi upp eða nái völdum í einu landi, að hlutleysið verði lítils virði, það verði hætta á, að það sé meira að segja ekki virt. Slík hætta skapaðist t.d. fyrir okkur Íslendinga, eftir að nazisminn komst til valda í Þýzkalandi. Þá komst til valda flokkur, sem engu skeytti um neitt af því, sem mennirnir höfðu álitið að keppa bæri að fram að því, — flokkur, sem strikaði alveg yfir allt, sem lýðræðis- og mannréttindabyltingar Evrópu og Norður-Ameríku höfðu skapað á undanförnum 3—4 öldum. Hæstv. ráðherra minnti á, að ég hefði þá einmitt bent á, í hverri hættu hlutleysi Íslands væri. Og það er alveg rétt. Þótt ég hafi mikla tilhneigingu til að vera bjartsýnn og gera mér góðar vonir, hef ég reynt að vera eins raunsær og ég hef haft þekkingu til á, hvaða hættutímar vofi yfir Íslandi. Og eftir að nazisminn var kominn til valda í Þýzkalandi, þóttist ég sjá, að þar væri risinn upp aðili, sem mundi ekki virða hlutleysi Íslands. Og ég vil bara minna á 17. marz 1939 hér í þessum sal, þegar þýzk sendinefnd var á leiðinni hingað til þess að semja um að fá lendingarstöðvar hér á Íslandi fyrir flugvélar, Lufthansa, þá vakti ég athygli á því með fsp. til þáv. forsrh., hvaða hætta hér væri á ferðum, og lýsti því nokkuð, hvers konar hætta ég áliti að kynni að stafa af Hitler, og hlaut m.a. frá hálfu Sjálfstfl. þær ásakanir fyrir, að það væru landráð að vera að afhjúpa slíkar fyrirætlanir Hitlers. Hvað hafði ég lagt til á þeim árum, þegar ég sá, að þarna var risið upp veldi, sem mundi ekki virða neina samninga og taka tillit til neins? Mér var falið af hálfu Sósíalistaflokksins að tala 1. des. 1938, þegar 20 ára fullveldisafmælisins var minnzt. Og ég sagði, að með þeim hættutímum, sem nú væru orðnir, þ.e.a.s. rétt eftir München-samningana, í desember 1938, München-samningarnir voru gerðir í septemberlok 1938, nýbúið að ofurselja sem sé frelsi Tékkóslóvakíu, þá sagði ég, að ég áliti, að Ísland ætti að reyna að fá fjögur stórveldi í heiminum til þess að taka að sér ábyrgð á hlutleysi Íslands, og nefndi þessi stórveldi, það voru England, Frakkland, Bandaríkin og Sovétríkin, — fjögur stórveldi í heiminum, sem vitað var, að öll voru þá undir niðri á einn eða annan máta andvíg Hitlers-Þýzkalandi. Og það var vitað, að yfirlýsing þessara stórvelda, ef hún væri fáanleg um það, að þeim væri að mæta, svo framarlega sem hlutteysi Íslands væri misboðið, mundi vera ákaflega mikil trygging fyrir okkur Íslendinga. Það voru þessi fjögur stórveldi, sem 3–4 árum seinna áttu eftir að sameinast í það, sem kallað var Sameinuðu þjóðirnar, í heimsstríðinu við Þýzkaland, þannig að óraunsætt var það þó ekki að koma fram með þessa till. Hvað var hins vegar sagt, þegar ég bar þessa till. fram? Jú, það var sagt tvennt. Það var annars vegar reynt að snúa út úr þessu á þann máta, að ég vildi fá einhverjar herstöðvar hér á Íslandi, sem var alveg þveröfugt, — í sambandi við slíkar ábyrgðaryfirlýsingar stórvelda hefur það alls ekki tíðkazt og aldrei verið framkvæmt, að neitt þeirra fengi neinar herstöðvar í viðkomandi landi, enda væri þar um allt annað mál að ræða, — og hins vegar auðvitað, að ég væri að reka erindi Rússa. Þannig var tekið á svona málum, ef reynt var að ræða raunhæft um þessa hluti.
Við Íslendingar höfum sem sé haft þá sérstöðu, meðan við vorum og vildum vera hlutlaust land, að við vorum ekki færir um og var óhugsandi að við værum færir um að verja okkar land á sama máta og t.d. Svisslendingar eða Svíar geta varið sitt. Við hlutum þess vegna að reyna að fá okkur einhverja aðra vernd en vopnavernd. Og sú vernd gat raunverulega aðeins verið sú, ef hægt væri að fá helztu stórveldi heims til að lýsa því yfir, að þetta litla land með þessari fámennu þjóð ætti að fá að vera hlutlaust og friðhelgt og þau, þessi stórveldi, mundu ábyrgjast, að svo væri. Mér hefur aldrei fundizt óhugsandi að fara fram á það við stórveldi heimsins, að þau gæfu svona yfirlýsingu. Og ég er enn þeirrar skoðunar, að jafnvel ef það gæti á annað borð heyrt undir Sameinuðu þjóðirnar að taka að sér slíkt, þá sé Ísland og íslenzk þjóð slík undantekning í allri veröldinni, að það væri þá ekki ástæða til þess með nokkurt land og nokkra þjóð að fara inn á slíkt, að taka ábyrgð á þess friðhelgi. Þetta vildi ég segja út af spurningunni um hlutleysi. Ég held, að hlutleysið sé enn þá bezta og raunhæfasta pólitíkin, sem Ísland getur tekið upp.
Þá spurði hæstv. dómsmrh., hvort það væri virkilega svo, hann sagði það út af rökst. dagskrártill. hv. 4. landsk., að við treystum hæstv. ríkisstj. betur en okkur sjálfum, meira að segja betur en vinstri stjórninni á sínum tíma, til að taka ákvörðun um brottflutning hersins. Ég vil segja það, að ég er svo bjartsýnn maður, að hvenær sem kringumstæður breytast þannig, að þær kringumstæður kalli á breytta afstöðu, þá held ég, að það sé hægt að fá meiri hl. alþm., ef hann fæst til þess að rökræða málin án hleypidóma, til að taka sönsum, til að taka rökum. Ég álít, að svo og svo margir menn úr núv. stjórnarflokkum og líka núv. hæstv. ríkisstj., það mundi vera hugsanlegt, ef þeir sannfærðust um breyttar kringumstæður, að fá þá til að taka upp breytta pólitík. Ég er ekki bölsýnni en þetta á mína andstæðinga. Og ég álít, að eins og þróunin í heiminum er á þessum árum, ekki sízt nú, þegar við nýlega erum búnir að standa á barmi kjarnorkustyrjaldar og getum staðið á barmi hennar aftur eftir nokkra daga, þá held ég, að við hljótum að geta gert þær kröfur hver til annars og verðum að hafa það álit hver á öðrum, að við getum við breyttar kringumstæður breytt um stefnu og breytt um afstöðu.
Þá talaði hæstv. dómsmrh. um, að ef Ísland yrði hlutlaust, þá mundi skapast hér valdatóm og það valdatóm mundi fljótt verða fyllt af einhverju valdi — og mér skildist á honum austrænu valdi. Ef við tölum um þessi mál frá þessu harðvítuga diplómatíska sjónarmiði, þá skal ég vissulega viðurkenna, að það eru ekki frá sjónarmiðum stórveldanna mörg valdatóm í veröldinni, og þau eru vön því sín á milli svo að segja að skipta veröldinni upp í áhrifasvæði. Við Íslendingar höfum fengið að vita af því. Við Íslendingar vorum fram til 1941 á valdasvæði eða áhrifasvæði Englands, Stóra-Bretlands, og ég held, að það sé gott, að við minnum á það hérna, og við skulum alveg gera okkur ljóst, hvenær var skipt um áhrifasvæði á Íslandi, og mér þætti satt að segja vænt um, ef hugsanlegt væri að fá staðfestingu þeirra manna, sem þá voru í ríkisstj. og höfðu tækifæri til þess að fylgjast með þeim hlutum. Ég held, að það hafi gerzt, þegar samið var á milli Bandaríkjastjórnar og Bretastjórnar 1941, þegar Bandaríkjamenn vildu láta Breta fá 50 gamla tundurspilla og fengu í staðinn m.a. afhentar sér til handa á leigu allar herstöðvar Breta í nýlendum þeirra í Vesturheimi til 99 ára. Þá held ég, að Bandaríkin hafi farið fram á að fá afhentar herstöðvar á Íslandi til 99 ára, en Bretarnir eða Churchill hafi sagt: Við getum ekki gert það, því að Ísland er sjálfstætt land, en við skulum reyna að sjá um, að íslenzk ríkisstj. skapi Bandaríkjunum möguleika til þess að ná slíkri aðstöðu. — Það, sem gerist svo eftir þessa samninga, er, að brezk ríkisstjórn segir 24. júní 1941: Nú verðum við að fara með her okkar burt af Íslandi, og við álitum óþægilegt og hættulegt, að hér skapist nokkurt — ég veit ekki, hvort ég má nota orðið valdatóm, hér skapist aðstaða til þess, að einhverjir stærri aðilar kunni að geta tekið landið. Þess vegna leggjum við til, að þið biðjið Bandaríkin um hervernd. — Og með 24 klukkutíma úrslitakostum er ríkisstj. Íslands 24.–25. júní 1941 gert það að biðja Bandaríkin, eins og stóð í samningnum, af frjálsum vilja um hervernd. Og ameríski herinn er síðan settur á land hér 7. júlí og Alþingi kemur saman 9. júlí til. þess að samþykkja þetta á eftir. Ég hafði tækifæri til þess að fylgjast með þessu í Bretlandi. Það var á sama tíma og Bretarnir segja í bréfum, sem síðan voru birt af konsúlnum hér heima, að Bretarnir verði að fara með sinn her burt af Íslandi, þess vegna verði Bandaríkjamenn að koma hingað, þá segir Churchill í sinni ræðu 9. júli í brezka þinginu: Við áttum ekkert að fara með okkar her af Íslandi. En við getum ekkert haft á móti því, að bandarískur her komi til Íslands, vegna þess að Íslendingar eru sjálfstæð þjóð og hafa sjálfir beðið þá um það. — Ég skildi alveg, hvað gamli Churchill fór. Hann var að tala við sína brezku imperíalista, sem fannst það satt að segja hart að verða að afhenda Ísland Bandaríkjunum fyrir 50 gamla tundurspilla og allar herstöðvar sínar í Vesturheimi og fannst Bandaríkin ganga skarplega að sér, þegar þau höfðu tökin á því. Churchill var þess vegna að tala við sína gömlu konservatívu impertalista í þinginu og sýna þeim fram á, að hann hefði ekki átt neins annars kost, af því að Íslendingar hefðu beðið um vernd Bandaríkjanna. En hér heima var það látið heita, að Bretarnir ætluðu sér að fara burt og Bandaríkin væru að koma hér inn. Ég nefni þetta dæmi bara til þess að minna á út frá því, sem hæstv. dómsmrh. talaði um valdatómið, hvernig Ísland var þá notað sem skiptimynt í samningunum á milli Bandaríkjanna og Bretlands og hvernig sú hætta, sem yfir okkur vofir í dag af okkar herstöðvum hér og öðru slíku, stafar síðan af því, að við höfum verið undirorpnir þeim vilja, sem þessi stórveldi hafa haft á því að hagnýta okkar land.
Bandaríkin fóru svo fram á það að fá til 99 ára herstöðvarnar hérna. Það gátu þau ekki fengið. Hins vegar eru þau búin að sitja hér í ein 20 ár á einn eða annan máta og ætla sér auðsjáanlega að sitja. lengur, ef þau fá að ráða. Ég held, þó að Ísland yrði nú hlutlaust land, þá held ég þess vegna, að það þyrfti ekki að óttast neitt valdatóm hér frá því sjónarmiði, sem hæstv. dómsmrh. talaði um. Atlantshafsbandalagið heldur sinni víggirðingu hér fyrir austan okkur, Englandi, Færeyjum, Danmörk, Noregi, svo að ég tali ekki um Holland og Belgíu eða Vestur-Þýzkaland, og þeir mundu ekki skapa þar valdatóm, og engin hætta fyrir Atlantshafsbandalagið þannig, ekki frekar en hefur skapazt hætta við það, að Írland hefur haldið sér áfram utan hernaðarbandalaga.
Ég held þess vegna, þegar ég nú hef rakið það, sem hæstv. dómsmrh. og hv. 1. þm. Vestf. höfðu mælt út af því, sem ég hafði sagt, að sú niðurstaða standi áfram, sem var þungamiðjan í minni fyrri ræðu hér, að almannavarnir og hervarnir á Íslandi séu ósamræmanlegar. Ef við ætlum að reyna að vernda almenning, forða lífi hans, þurfum við að losa okkur við herstöðvarnar af Íslandi og gera allt, sem í okkar valdi stendur, til þess að draga úr hernaðargildi okkar lands. Einmitt herstöðvarnar eru höfuðhættan, sem yfir almenningi vofir.