19.04.1963
Neðri deild: 77. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1540 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

232. mál, heimild til að veita Rafni Kolssyni skipstjóraskírteini

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 499 felur það í sér, að Rafni Kolssyni, sem er norskrar ættar, en hefur hlotið íslenzkan ríkisborgararétt, verði veitt íslenzk skipstjórnarréttindi út á próf frá sjómannaskólanum í Fredrikstad, sem hann tók 1937, og út á siglingatíma á erlendum skipum.

Sjútvn. hefur athugað frv. og með tilliti til þess, að um nokkur fordæmi er að ræða, þegar svipað hefur staðið á, leggur n. til, að frv. verði samþykkt.