19.04.1963
Neðri deild: 77. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1543 í B-deild Alþingistíðinda. (1748)

241. mál, makaskipti á landspildum í landi jarðanna Laugardalshóla og Miðdalskots

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Þetta frv, á þskj. 563 var flutt í Ed. af hv. 5. þm. Sunnl., Sigurði Ó. Ólafssyni, og það fékk í þeirri hv. d. einróma jákvæða afgreiðslu. Það liggur fyrir umsögn jarðeignadeildar ríkisins, þar sem mælt er með því, að frv. nái fram að ganga.

Landbn. þessarar hv. d. hefur tekið málið til athugunar og mælir eindregið með því, að frv. verði samþ. Nál. landbn. er prentað á þskj. 695. Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til 3. umr.