17.04.1963
Sameinað þing: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1547 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (FS):
Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver þingflokkur fær 50 mín. ræðutíma, sem skiptist í tvær umferðir, hin fyrri 25–30 mín., en í hinni síðari 20–25 mín., þannig að alls verði 50 mín. Röð flokkanna verður þessi: Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur. Ræðumenn verða, fyrir Framsfl.: í fyrri umferð Eysteinn Jónsson, í síðari umferð Sigurvin Einarsson og Ásgeir Bjarnason, fyrir Sjálfstfl.: í fyrri umferð Ölafur Thors, í síðari umferð Gunnar Thoroddsen og Magnús Jónsson, fyrir Alþb.- í fyrri umferð Karl Guðjónsson, í síðari umferð Alfreð Gíslason og Eðvarð Sigurðsson, fyrir Alþfl.- í fyrri umferð Emil Jónsson og Eggert G. Þorsteinsson, í síðari umferð Guðmundur Í Guðmundsson.
Hefst nú umr., og tekur fyrstur til máls hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson.