17.04.1963
Sameinað þing: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1547 í B-deild Alþingistíðinda. (1772)

Almennar stjórnmálaumræður

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Það er ótrúlegt en satt, að núv. stjórnarflokkar mörðu meiri hl. í síðustu kosningum með því að lofa stöðvun dýrtíðar án nýrra skatta og bættum lífskjörum. Þegar þeir lofuðu þessu hátíðlega, höfðu þeir þó ákveðið að leita jafnvægis í þjóðarbúskapnum, eins og þeir kalla, með því að magna dýrtíðina og gera lánsfé dýrara, halda niðri launum og afurðaverði, draga saman lánveitingar og minnka þannig framkvæmdir. Þeir lækkuðu gengið, hækkuðu tolla og söluskatta, innleiddu okurvexti, frystu sparifé og drógu úr lánveitingum. Þetta átti að tryggja jafnvægi, stöðugt peningagengi og stöðugt verðlag.

Framsóknarmenn sögðu slíkt aldrei mundu takast með þessum aðferðum. Dýrtíðaráhrif þessara ráðstafana væru slík, að þar af mundi leiða óstöðvandi dýrtíðarflóð. Nýjar dýrtíðaröldur hlytu að rísa í kjölfar þeirra fyrstu, unz ekki réðist við neitt.

Forsrh. var aftur á móti ótrauður í fyrstu og yfirlýsti á gamlárskvöld 1960: „Ef við ekki verðum fyrir nýjum áföllum, er fram undan tímabil stöðugs verðlags.” Enn fremur sagði forsrh., að það hefði orðið að horfast í augu við allan vandann í einu, hálfkák væri verra en ekkert. Loks bætti ráðh. við, að aflabrestur og verðfall afurða 1960 ylli því, að ekki hefði verið hægt þá strax að létta byrðum af almenningi. Þetta var á gamlárskvöld 1960.

Hvað hefur svo gerzt? Hvernig hafa skilyrðin verið fyrir ríkisstj. til að standa við þessar yfirlýsingar? Við vitum öll, hvernig ástatt er núna. En geta þeir afsakað sig með nýjum áföllum? Öll þjóðin veit, að þau tvö ár, sem síðan eru liðin, eru mestu uppgripa- og aflaár í sögu íslenzku þjóðarinnar. Það hljóta því að hafa verið þung spor fyrir þennan sama ráðh. á gamlárskvöld nú í vetur, þegar hann gaf svofellda yfirlýsingu: „Hins vegar játa ég hispurslaust, að enn hefur ekki tekizt að ráða niðurlögum verðbólgunnar.“ Enn fremur sagði ráðh.: „En takist ekki að sigrast á verðbólgunni, gleypir hún fyrr eða síðar ávexti þess, sem bezt hefur tekizt. Er þá unnið fyrir gýg og beinn voði fyrir höndum.“

1960 bað ráðh. bara um eitt, að þjóðin yrði ekki fyrir áföllum. Ekki aðeins það hefur veitzt, heldur stórfelldari aflauppgrip en nokkru sinni fyrr. Samt sem áður neyðist ríkisstj. til þess að játa, að mistekizt hefur með öllu að ráða niðurlögum verðbólgunnar og þar með fyrir gýg unnið og voði fyrir höndum, eins og forsrh. orðaði það sjálfur. Aldrei hefur íslenzkur ráðh. neyðzt til þess að kveða upp jafnafdráttarlausan áfellisdám yfir sinni eigin stefnu og stjórnarverkum og hæstv. forsrh. síðasta gamlárskvöld.

Þegar ríkisstj. magnaði dýrtíðina 1960, komumst við þannig að orði, að þvílíkt heljarstökk væri ekki hægt að taka og koma standandi niður. Á gamlárskvöld játaði forsrh., að stjórnin hefur komið niður á bakið.

Vísitala framfærslukostnaðar, sem sýnir vandlega saman tekin í samráði við launþegasamtökin útgjöld meðalfjölskyldu, hefur hækkað um 30 stig eða 60 stig að eldra laginu. En vísitala yfir vörur og þjónustu hefur hækkað um 49 stig eða 98 stig að eldra laginu. Þetta er allra tíma Íslandsmet í dýrtíðarvexti á einu stjórnartímabili. Fyrra metið átti raunar einnig núv. forsrh. og hans menn. Auknar fjölskyldubætur eru sem dropi í þetta dýrtíðarhaf. Allt verðlag og kaupgjald er á hraðri leið upp á við, launakerfið allt úr skorðum vegna óðadýrtíðar, sem fer sívaxandi, íbúðaverð þýtur upp og húsaleiga með ofsahraða. Nýi stofnkostnaðurinn og okurvextirnir eru þó ekki nema að litlu leyti enn komnir inn í verðlagið. Húsnæðiskostnaður er t.d. ekki reiknaður nema rúmar 10 þús. kr. á ári í framfærsluvísitölunni, þótt ekki kosti undir 40–50 þús. á ári að búa í lítilli nýrri íbúð að óbreyttu vaxtaokrinu. í verðlagi landbúnaðarafurða er ekki reiknað nema með lágum vöxtum af því, sem svarar andvirði eins íbúðarhúss með viðreisnarverði. Okurvextirnir eru sem sé ókomnir inn í verð landbúnaðarafurða og nýi stofnkostnaðurinn að mestu leyti líka. Vísitölufjölskyldan þarf a.m.k. 130–150 þús. kr. í tekjur til að geta búið í nýrri, lítilli íbúð. Algerlega er vonlaust orðið að lifa mannsæmandi lífi af því, sem menn geta unnið sér inn á venjulegum vinnudegi.

Þrátt fyrir stórkostlega vaxandi þjóðartekjur vegna óvenjulegra aflabragða og hagstæðs verðlags hefur ríkisstj. tekið með fjandskap hverri tilraun almennings til að rétta hlut sinn, þótt út yfir tæki, þegar ríkisstj. felldi gengið á nýjan leik sumarið 1961 í hefndarskyni gegn kauphækkun, sem atvinnuvegir sannanlega gátu borið. En sú ráðstöfun verkaði sem olía á dýrtíðarbálið, og síðan hefur stjórnin ekki ráðið við neitt og enga tilraun gert til þess, treysti sér ekki til að lækka gengið aftur í sumar sem leið vegna þess, hversu komið var þá nálægt kosningum. Á hinn bóginn virðist ríkisstj. lítið hafa lært af þessum óförum, því að enn linnir ekki yfirlýsingum um, að okurvextir og aðrar ámóta jafnvægisráðstafanir verði að standa, og því einu kennt um ófarirnar, að almenna kaupgjaldið sé of hátt. Menn vita því, á hverju þeir eiga von eftir kosningar, ef stjórnarflokkarnir fá að ráða. Viðreisnin á að halda áfram og það þótt hún hafi beðið algert skipbrot og það sé játað að forsrh, sjálfum.

En það er í þessum efnum einn höfuðþáttur, sem er ekki mikið talað um á torgum, en þeim mun meira innan fjögurra veggja í herbúðum stjórnarinnar. Þeir telja þar, að viðreisnin hafi beðið skipbrot og allt mistekizt með jafnvægið og verðbólguna vegna þess, að samdrátturinn, sem átti að verða, komst ekki nema að litlu leyti í framkvæmd. Aflauppgripin sáu fyrir því og síðan fjárfestingarpanik, sem upp kom á síðasta ári og stendur enn, því að menn sáu þá, að ríkisstj. réð ekki við neitt. Viðreisnin var komin út um þúfur og menn höfðu tapað allri trú á aðferðir og getu stjórnarinnar. Viðbótarfiskafli upp á 700—800 millj. miðað við árið 1958 jók atvinnuna stórkostlega, og sparifjárfrystingin og aðrar samdráttarráðstafanir stjórnarinnar megnuðu ekki að vega á móti þessum uppgripum. Það jókst því eftirspurn eftir fólki í vinnu í stað þess, að viðreisnarplanið byggðist blátt áfram á því, að eftirspurn eftir vinnu minnkaði. Þetta telur ríkisstj. orsök þess, að hún réð ekki við að halda kaupgetunni niðri, eins og hún ætlaði sér, og telur hún, að samvinnufélögin hafi svikið með því að ljá máls á sanngjörnum kauphækkunum árin 1961 og 1962, kauphækkunum, sem að vísu engan veginn nægðu til að mæta kjaraskerðingunni, en voru miðaðar við það, sem hægt var að borga án þess að valda röskun.

Aflamokið í fyrra og hittiðfyrra og sanngirni samvinnufélaganna gerir að verkum, að menn hafa ekki enn þá séð viðreisnina eins og hún átti að verða, og þykir þó flestum nóg. En menn ættu að reyna að gera sér í hugarlund, hvað skeð hefði, ef árferði hefði verið í meðallagi og því vantað inn í útflutning eða framleiðslu 700–800 millj. eða svo, samdráttarráðstafanir því heppnazt, kaupgjald staðið óbreytt og menn orðið að láta sér nægja dagvinnu eina í bezta falli til að standa undir viðreisnarverðlaginu. En einmitt þetta er það, sem menn eiga eftir að horfast í augu við á næsta kjörtímabili, ef stjórnarflokkarnir merja meiri hl. aftur í vor, — einmitt þetta ásamt viðeigandi gengisfellingum og öðrum þvílíkum ráðstöfunum til jafnvægis, sem þeir kalla.

Þegar stjórnin sá, að hún réð ekki við neitt hvort sem var á síðasta ári, ákvað hún að láta vaða á súðum fram yfir kosningar, bætti erlendu kosningaláni við, þótt erlendar lántökur væru fordæmdar áður, og segir stjórnin nú eins og kerlingin: Ég ætlaði ofan hvort sem var. Einmitt sem mestar framkvæmdir hafi alltaf verið hennar höfuðkeppikefli.

En eftir kosningar kemur annað hljóð í strokkinn, og þá verða gerðar öflugar ráðstafanir til að rétta viðreisnina við með gamla laginu og þá ekkí gleymt að setja undir lekann, sem þeir telja að hafi öllu spillt, en það er of mikil eftirspurn eftir vinnu.

Jú, en er ekki aðalmálið núna framkvæmdaáætlunin, hin stórhuga framkvæmdaáætlun, „framkvæmdaáætlunin mikla,“ sem gárungarnir segja að hafi staðíð í Morgunblaðinu? Var ekki aðalmálið fyrir síðustu kosningar stöðvun dýrtíðar án nýrra skatta og leiðin til bætta lífskjara? Og hvað skeði svo, þegar búið var að kjósa? Halda menn kannske, að það sé hrein tilviljun, að framkvæmdaáætlunin sjálf, sem búið er að boða í mörg ár, nær svo ekki, þegar til kemur, nema yfir þetta eina ár, kosningaárið sjálft, með enska kosningaláninu? Fyrir næstu ár kemur þess í stað almenn þjóðhagsáætlun, sem stjórnin kallar svo, og um hana segir stjórnin sjálf: „Þessar áætlanir eru almenns eðlis. Þær fjalla ekki um þróunina í einstökum atriðum og fela ekki í sér ákvarðanir um framkvæmdir.“ Sams konar fyrirvarar eru mýmargir. Þessir snjöllu fyrirvarar við hina marglofuðu stórhuga áætlun eru engin tilviljun. Nú á sem sé að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það á með þessu að gera áætlunina gersamlega skothelda, þótt öllu verði snúið við, sem í henni stendur. Það þarf ekki að standa við neitt. Á hinn báginn er gott að lofa fólki að heyra kafla úr henni, eitt og annað. Fyrirvararnir standa fyrir sínu á eftir, enda má hér ekkert um fyrirvarana mistakast af þeirra hendi, sem nú ætla að heyja kosningar undir framkvæmdafánunum, en meina, að viðreisnin hafi farið út um þúfur, af því að eftirspurn eftir vinnu var of mikil, samdráttur í heild hafi mistekizt, og hafa það efst í huga að bæta úr því.

Góðærið nú undanfarið hefur gengið í lið með fólkinu í stríðinu við kjaraskerðingarstefnu stjórnarinnar. Útfærsla landhelginnar, sem gerð var í trássi við Sjálfstfl., uppbyggingin geysivíðtæk fyrir viðreisn og aflauppgripin hafa opnað ýmsum undankomuleiðir í bili, sem þó er dýru verði keypt, því að leggja verður nótt með degi og útivinna húsmæðra og barna að koma til, svo að vinnuþrælkun er stórfellt þjóðfélagsvandamál, en 8 stunda vinnudagur hefur fjarlægzt óðfluga. En þessari undankomuleið er ætlun ríkisstj. að loka, ef hún má ráða eftir kosningar, því að einmitt hún er talin orsök ófaranna.

Hitt virðist ekki hvarfla að þeim, að orsök ófaranna er sú, að þeir leita aldrei annarra ráða til jafnvægís, sem þeir kalla, en þeirra að magna dýrtíðina eins og gengislækkunin 1961 er ömurlegasta dæmið um. En einmitt það, sem þá gerðist, sýnir glöggt muninn á stjórnarstefnunni og þeirri vinnutilhögun, sem framsóknarmenn vilja viðhafa. Þá var tækifærið til að fikra síg inn á nýjar og heppilegri leiðir, en það var eyðilagt með gengislækkuninni og benzín borið á eldinn.

Ríkisbúskapurinn sjálfur er einnig nokkur spegilmynd af því, hvernig viðreisnin hefur farið. Álögur til ríkissjóðs hafa hækkað um 1400 millj. á kjörtímabilinu. Hefur engin ríkisstj. komizt með tærnar þar, sem þessi hefur hælana í þessu tilliti, því að auk þessa morar allt í aukasköttum og álögum í sérsjóði, sem haldið er utan við þetta. Ekki endast þessar álögur þó betur en svo, að ráðgerðar eru stórfelldar lántökur í öllum áttum til að greiða útgjöld, sem áður voru greidd af ríkistekjunum. Má nefna lán í rafveituhalla, lán til að standa undir ríkisábyrgðum, skólabyggingalán, lögreglustöðvarlán, ríkislán til að greiða ríkisframlag í atvinnuleysistryggingasjóð, svo að dæmi séu nefnd, og ýmsir þessir liðir slitnir út úr ríkisbúskapnum og reikningshaldinu. Stefnir því út í botnleysu. Jafnframt hafa framlög til margra þýðingarmestu mála verið skorin niður. T.d. eru vegamálin í hreinu öngþveiti.

Bráðabirgðasöluskattur var innleiddur ásamt öðru 1960 og því margheitið og síðast í haust, að hann yrði niður felldur. Ný tollskrá verður nú lögfest, og kemur þá í ljós, að nýju skattarnir verða allir innlimaðir í nýja verðtollinn og þar með 2/3 af bráðabirgðasöluskattinum, sem fjmrh. lofaði síðast í haust að yrði felldur niður. Slaka á í bili sem svarar 1/3 af þessum eina skatti, sem þá var lofað að fella niður að fullu og öllu.

Þegar tollskrárfrv. kom fram, var bæjar- og sveitarfélögum ætlað að bera helminginn af þessari lækkun eftir 1. jan. 1964. Hefur nú verið lofað að bæta úr þessu, enda gerðu framsóknarmenn strax kröfu til, að bæjar- og sveitarfélög héldu sínu. Skömmtunarlagið, þegar um lækkun álaga er að ræða, má svo marka af því, að fjmrh. varð að játa hér á Alþingi, að áhrif lækkananna í tollskránni væru ekki teljandi á afkomu meðalfjölskyldunnar, og upplýst er, að það tekur því ekki að reyna að reikna þau. Það þýðir, að um er að ræða brot úr vísitölustigi. Lækkunarskammturinn nær því sem sagt ekki að vera mælanlegur á dýrtíðarvogina. Hann hreyfir ekki vísinn. Það sama verður ekki sagt um álögur ríkisstj. á kjörtímabilinu og aðrar ráðstafanir og afleiðingar þeirra, því að þær hafa hækkað vísitölu vara og þjónustu um 49 stig. Þær hafa megnað að hreyfa vísinn á dýrtíðarvoginni og vel það. Hér er því um sýndarmennsku mest að ræða að undanteknum fáum vörutegundum, eins og t.d. dráttarvélum og landbúnaðartækjum, þar sem látið er undan pressunni frá framsóknarmönnum.

Mætti nefna fleiri dæmi um slík áhrif stjórnarandstöðunnar á einstök mál, en til þess vinnst þó ekki tími. Verst er, að jafnvel hin minnsta lækkun á álögum getur ekki staðið stundinni lengur sem horfir, því að stjórnarstefnan leiðir til síhækkandi ríkisútgjalda með óstöðvandi hraða og nýrra álaga. Auk þess sem heildarálögur hafa hækkað svo gífurlega, hefur tollabyrðin verið færð yfir á brýnustu nauðsynjar í vaxandi mæli, og á það sinn þátt í dýrtíðarflóðinu. Loforð sín um lækkun beinna skatta hefur ríkisstj. efnt þannig, að vísitala beinna skatta í vísitölugrundvellinum hefur hækkað, en ekkí lækkað.

Enginn mælir móti því í alvöru, að efnahagskerfinu hafi verið umturnað, og upplausnareinkennin eru augljós. Ríkisstj. gerir sér þetta ljóst. Meira að segja sjálfum alþingiskosningunum er flýtt, svo að teflt er á tæpasta vað og getur orðið að stóróhappi vegna veðráttu, ekki af umhyggju fyrir sjómönnum, heldur af því að stjórnin situr á glóðum elds og getur búizt við, að upp úr blossi hvaða dag sem er, og telur því illu bezt af lokið.

Enn segir stjórnin: Á hitt er að líta, að staða landsins út á við hefur styrkzt og spariféð aukizt meira en „nurlað hefur verið saman áður samtals frá landnámstíð,“ eins og það hefur verið orðað í stjórnarherbúðunum af venjulegri hógværð. Engum skynsömum manni mundi finnast það tíðindi eða hrósvert, þótt afkoman út á við hefði styrkzt óvenjulega við tvö metaflaár í röð og t.d. tífalda sumarsíldveiði á við það, sem tíðkaðist og menn urðu að komast af með áður, og vetraruppgrip af síld að auki, og lítið hafa þeir sér til skjóls, sem vilja láta þakka sér góðærið.

En hver er svo sannleikurinn um afkomu út á við? Mönnum er sagt, að 1958 hafi allt verið á heljarþröm. Það er auðvitað ósatt. En það ætti ekki að vera hægt að bjóða upp á hagstæðari samanburð en við þá niðurlægingu, sem þeir segja að þá hafi verið, og þá er dæmið svona og allt umreiknað eftir núv. gengi: Gjaldeyrisstaða bankanna hefur batnað um 922 millj., en stofnað hefur verið til stuttra vörukaupalána erlendis upp á 413 millj. og aðrar erlendar skuldir hafa vaxið um 531 millj. Erlendar skuldir að frádregnum innstæðum eru því meiri, en ekki minni, nú en í árslok 1958 og stutts tíma skuldir margfalt meiri nú en þá. Þetta er eftir beztu opinberum heimildum og getur ekki skakkað neinu, sem máli skiptir.

Á þessu tímabili hafa þó komið um 240 millj. af gjafafé erlendis frá til viðbótar við öll uppgripin, og nú þessi síðustu ár hefur þjóðin ekkert stórvirki eignazt á borð við áburðarverksmiðjuna, sementsverksmiðjuna og Sogsvirkjunina síðustu. Þetta er furðuleg útkoma og skýtur illa skökku við skrum stjórnarflokkanna. En mönnum verður að spyrja: Hvar væri komið málum þjóðarinnar við venjulegt árferði og búskaparlag þessarar ríkisstj.?

Það er satt, að spariféð hefur aukizt að krónutölu, enda mætti nú fyrr vera, þegar saman fer góðærið og hækkun allra talna í öllum viðskiptum með ofsahraða. En sé spariféð nú í árslokin 1962 borið saman við innstæðurnar í árslok 1958 og bæði árin miðuð við verðgildi krónunnar gagnvart erlendum gjaldeyri, þá kemur í ljós, að aukningin er 4.75% á öllu tímabilinu eða rúmlega 11/2 % á ári. Skárri verður útkoman, ef reiknað er framkvæmdaverðmæti sparifjárins innanlands. En þetta er nóg til að sýna, hver fjarstæða það er að bera saman sparifjártölu nú og í árslok 1958 skýringarlaust, eins og ríkisstj. gerir í skrumauglýsingum sínum í blöðum og útvarpi, og þetta sýnir, að sparifjáraukningin er furðulega lítil, en ekki furðumikil, enda hefur ríkisstj. fáa jafngrátt leikið og sparifjáreigendur þrátt fyrir háu vextina.

Það er svo einn þáttur í þessu máli öllu, að sparifjáraukningin fær ekki að vera í umferð og afurðalán eru líka dregin saman, en stórfelldur rekstrarfjárskortur háir atvinnuvegum og almenningi bægt frá lánsfjáraðstoð, þátt allir sjóðir séu sagðir fullir af peningum.

Jafnhliða því, sem hluti af sparifénu er þannig frystur í bankakerfinu, eru svo tekin stórlán erlendis með okurvöxtum og Seðlabankinn svo látinn reikna framleiðendunum okurvexti af afurðalánum til að greiða vexti af frysta sparifénu innanlands. Eiga þetta allt að vera nýtízkuleg og örugg úrræði, en útkoman er ein og hin sama: óðadýrtíð, fossandi verðbólga og alveg furðulega léleg útkoma á búi þjóðarinnar, og því miður er það versta eftir að óbreyttu.

Eitt loforð sitt hefur ríkisstj. þessi staðið við. Hún sagðist ætla að innleiða hér nýja þjóðfélagshætti. Það hefur hún gert svikalaust. Hún hefur komið upp járntjaldi milli þeirra, sem búnir voru að koma sér fyrir, áður en hún hóf að umturna efnahagskerfinu, og hinna. Hver vill leyfa sér að bera saman möguleika nú til að koma upp íbúð, byggja og rækta í sveit, eignast báta eða skip eða vélar til iðnaðar við það, sem áður var? Unga fólkið verður að bera okurvextina og nýja stofnkostnaðinn án þess að koma honum inn í kaupgjaldið og verðlagið og leggja nótt með degi í staðinn, þangað til þeirri leið verður líka lokað eftir kosningarnar, ef þeir fá að ráða eða ef slaknar á uppgripaaflanum.

Nýja fjárfestingarstefnan er við það miðuð, að þeir einir, sem fullar hendur hafa fjár, skuli fást við uppbygginguna, hinir ekki. Það er stefna stórkapitalisma, innlends eða erlends, eftir því sem verkast vill. Það hefur verið skipulega og eftir áætlun dregið úr stuðningi við uppbyggingu almennings og félagssamtaka fólksins. Hinir eiga að koma í staðinn.

Við hagstæðari stöðu fyrir fjármagnið er erlent fjármagn tekið að reyna að troða sér inn í landið, ekki sízt í fiskiðnaðinn og þar með inn í sjávarútveginn og sjálfa landhelgina, og það er síður en svo, að núv. ríkisstj. sé treystandi til að standa gegn slíku eða með innlendum framleiðendum til að koma í veg fyrir þvílíkt. Alveg þvert á móti eru núv. stjórnarvöld líklegust til að líta á það með velþóknun, að útlendingar komist til verulegra umráða í íslenzkum atvinnurekstri, því að það léttir þeim að ganga frá stöðu Íslands gagnvart Efnahagsbandalagi Evrópu með einhvers konar aðild, þegar þar að kemur. Það léttir slíkt, ef þeir geta sagt: Þeir eru komnir hér hvort sem er. — Enda er sannleikurinn sá, að efnahagsmálastefnan er fyrst og fremst miðuð við að koma hér á ómenguðum stórkapítalisma í stað þess að styðja með öllu móti einstaklings- og félagsframtak almennings, en það hefur þó bezt gefizt íslenzku þjóðinni og mótað hér sérkennilegt og farsælt þjóðlíf, sem einkennist ekki sízt af óvenjumörgum efnalega sjálfstæðum einstaklingum og sterkum sjálfsbjargarsamtökum almennings. Undan þessu er nú grafið óðfluga á vegum þessa stjórnarmeirihluta.

Það er ekki seinna vænna en í vor að reisa öflugar skorður við og byrja að brjótast út úr sjálfheldunni, taka upp aftur drengilegan stuðning við heilbrigt einstaklingsframtak hinna mörgu, ekki sízt unga fólksins, sem stjórnarstefnan drepur í dróma. Að þessu lýtur barátta Framsfl. fyrir nýrri vaxtapólitík, endurskoðun fjárfestingarlánakerfisins til samræmis við ný viðhorf, útlánum sparifjáraukningarinnar til stuðnings uppbyggingu almennings og heilbrigðum rekstri, auknum stuðningi við framkvæmdir í sveitum og sjávarplássum, réttlátari tekjuskiptingu, aukinni framleiðslu og framleiðni, aukinni vélvæðingu og vinnuhagræðingu og nýjum launagreiðsluaðferðum, sem innleiddar verði í samvinnu við samtök launafólksins í landinu, svo að aðeins nokkur dæmi séu nefnd um hin nýju viðhorf, sem koma þurfa til.

Þá kem ég að því, sem efst hefur verið í hugum margra síðustu missirin: Hvernip, á að móta stöðu Íslands í þeirri nýskipan Evrópu, sem nú er sumpart orðin eða að verða? Eitt er víst. Sú þróun er svo ör og róttæk, að Íslendingar verða í því sambandi að taka ákvarðanir á næsta kjörtímabili, sem meira varða framtíð þjóðarinnar í landinu en nokkuð annað, síðan sjálft frelsismál þjóðarinnar var leyst.

Stofnað hefur verið Efnahagsbandalag Evrópu og ekki dult með farið af áhuga- og forráðamönnum, að þar er efnt til varanlegrar þjóðasamsteypu. Sex Evrópuríki hafa sameinazt í þessu bandalagi, gengið undir samstjórn í veigamestu þáttum efnahags- og atvinnumála og opnað öllum þegnum allra landanna og fjármagni þeirra aðgang að öllum lands- og sjávargæðum. Flest önnur ríki Vestur-Evrópu hafa sótt um að ganga inn í bandalagið, fá aðild að því, og öll þau lönd lýst sig reiðubúin að ganga undir samstjórnina og opna lönd sín og landhelgi og deila lands- og sjávargæðum sínum. Hér fer því ekkert á milli mála um stefnuna og hvað koma skal, og breytir engu í því efni, þótt snurða hafi í bili komið á þráðinn í samningum um aðild Breta. Þessi þróun verður ekki stöðvuð fremur en aldan, sem nálgast ströndina, enda nær allir ábyrgir stjórnmálamenn Vestur-Evrópu önnum kafnir við að lýsa yfir því, að það verði fundin leið til að sameina Vestur-Evrópu á vegum Efnahagsbandalagsins.

Á næstu missirum verða Íslendingar því að taka ákvarðanir um, hvort þeir ætla að stefna inn í Efnahagsbandalagið, eins og flestar aðrar þjáðir Vestur-Evrópu, eða standa utan við bandalagið og leysa mál sín í samvinnu við þjóðir Vestur-Evrópu, eins og gert hefur verið fram að þessu.

Aðra hvora stefnuna verður að taka. Það er ekki hægt að fara báðar þessar leiðir. Það verður að velja. Framsfl. telur, að Íslendingar eigi ekki að ganga í Efnahagsbandalag Evrópu, heldur taka þá stefnu að leysa málefni sín með sérstökum samningum við bandalagið um tolla- og viðskiptamál án annarra tengsla. Við teljum óhugsandi fyrir 180 þús. manna þjóð í landi mikilla ónotaðra náttúruauðæfa að ganga undir samstjórn efnahags- og atvinnumála með og opna lönd sín fyrir háþróuðum iðna$arþjóðum, sem telja hundruð millj.; hafa yfir ótakmörkuðu fjármagni að ráða, en fáum ónotuðum náttúruauðlindum. Við leggjum áherzlu á, að verði Ísland opnað fyrir þessum þjóðum og þeim risafyrirtækjum og auðhringum, sem þar starfa, mun þess ekki langt að bíða, að Íslendingar missi með öllu tökin á málefnum sínum, glati sjálfstæði sínu og hverfi í þjóðahafið.

Framsfl. hefur sætt hörðu ámæli frá ríkisstj. og stjórnarflokkunum fyrir að taka þessa afstöðu, og þarf engan á því að undra, sem fylgzt hefur með því, sem frá þeim hefur komið í málinu. Báðir stjórnarflokkarnir hafa samþ. þá stefnu að sækjast eftir aðild að bandalaginu, sem stundum er bara kölluð aðild, en stundum aukaaðild. Bæði landsfundur Sjálfstfl. og miðstjórn Alþfl. hafa gert slíkar ályktanir.

Blöð stjórnarflokkanna hafa missirum saman haldið uppi hörðum áróðri fyrir því, að Íslendingar gerðust aðilar að bandalaginu. Hefur þar óspart verið útmálað, hve þungbært mundi verða að vera utan tollmúra bandalagsins, og með ofurkappi lögð áherzla á, að þjóðin mundi einangrast, ef hún yrði ekki aðili að Efnahagsbandalaginu, framsóknarmenn taldir einangrunarsinnar og jafnvel erindrekar kommúnista fyrir að beita sér fyrir því, að tolla- og viðskiptasamningsleiðin verði valin. Upphaflega var því meira að segja haldið fram, að tolla og viðskiptasamningsleiðin væri ekki til.

Nú segir ríkisstj. hins vegar, að tvær leiðir séu hugsanlegar, tolla- og viðskiptasamningsleiðin og aukaaðíld. Jafnframt er það upplýst í skýrslu ríkisstj., að hún telur sjálf, að aukaaðildarleiðinni verði að fylgja samningar um atvinnurekstrarréttindi útlendinga á Íslandi og önnur aðalákvæði Rómarsáttmálans.

Þótt ríkisstj. hafi þannig orðið að viðurkenna tolla- og viðskiptasamningsleiðina sem úrræði, þá dylst engum, hvað hún og stjórnarflokkarnir vilja, en það er aðild að bandalaginu í einu eða öðru formi. Ríkisstj. hefur ráðizt á Framsfl. fyrir að aðhyllast aðra þá leið, sem hún í öðru orðinu telur koma til greina.

Ríkisstj. hefur nú missirum saman, bæði innan lands og utan, bollalagt um að breyta stefnu Íslendinga í sjávarútvegsmálum með tilliti til væntanlegrar aukaaðildar eða aðildarsamnings við bandalagið. Hún hefur þrásinnis látið í ljós, að til greina kæmi að breyta stefnunni, sem fylgt hefur verið um langt skeið varðandi fisklandanir útlendinga og stofnsetningu atvinnufyrirtækja útlendinga, m.a. í fiskiðnaði, talið stefnu Íslendinga úrelta, taka bæri upp nýjar reglur, sem þá yrðu að miðast við að leyfa útlendingum að leggja hér upp fisk og reka fiskiðjuver. En augljóst er, að kæmust útlendingar inn í fiskiðnaðinn, væru þeir þar með komnir inn í landhelgina, því að óðar væru fiskiðjuverin látin eignast báta og skip og þar mundi ekki fjármuni skorta.

Þegar þessir menn tala um, að það sé úrelt stefna í sjávarútvegsmálum, sem Íslendingar hafa fylgt undanfarið, að hafa ekki aðeins fiskveiðar í landhelginni fyrir sig eina, heldur einnig til afnota fyrir sig eina, aðstöðuna til að verka fiskinn í landi, þá virðast þeir ekki gera sér grein fyrir því, að það er einmitt þetta, sem fyrst og fremst hefur gert Íslendingum kleift að lifa hér sjálfstæðu menningarlífi. Velmegun Íslendinga byggist jöfnum höndum á uppgripafiskímiðum heima fyrir og aðstöðunni til að verka aflann í landi. Það verður ekki lengi að koma upp í nokkurn tollmismun, ef þessi aðstaða verður látin útlendingum í té.

Það velkist ekki fyrir neinum, að ríkisstj. og stjórnarflokkarnir vilja aðild Íslands að Efnahagsbandalagi Evrópu. Aukaaðildarleið sú, sem ríkisstj. heldur fram í skýrslu sinni um Efnahagsbandalagið, er leið þeirra, sem vilja koma Íslandi inn í bandalagið og gera það, ef þeir fá bolmagn og fulltingi til. Málið liggur skýrt fyrir eftir þær umr., sem orðið hafa undanfarið góðu heilli.

Geti stjórnarflokkarnir einir ráðið ferðinni á næsta kjörtímabili, munu þeir loka tolla- og viðskiptasamningsleiðinni og taka stefnuna inn í Efnahagsbandalag Evrópu beint eða í áföngum eftir því, sem hagfellt þykir. Sú stefna verður þá tekin og örlagaskrefið stigið. En verði Framsfl. efldur svo í vor, að hann geti lagt úrslitalóðið á vogarskálina, verður ofan á að leysa málefni Íslands í samskiptum við bandalagið eftir tolla- og viðskiptasamningsleiðinni. Inn í þennan farveg er hægt að þrýsta málinu með því að efla Framsfl.

Við trúum því, að íslendingar muni geta tryggt sér góð og hagkvæm viðskipti við þjóðir Vestur-Evrópu framvegis sem hingað til eftir leiðum samvinnu og það engu að síður þótt þessar þjóðir sameinist í bandalagi og siðan nýju ríki, sem við vegna sérstöðu okkar getum alls ekki tekið þátt í. Við höfum megna andúð á þeirri múgsefjun, sem reynt er að skapa til að koma inn þeirri skoðun, að smáþjóðir hljóti að dragast aftur úr stærri þjóðunum og verði því að innlimast til að njóta góðs af stærðinni Slíkt brýtur algerlega í bága við aldalanga reynslu Íslendinga sjálfra og fjölda annarra þjóða, og það er ekki gert í góðum tilgangi að fá menn til að missa sjónar á, að samvinna þjóða og sameining þjóða er sitt hvað.

Framsfl. hefur verið og er enn eindregið fylgjandi vestrænni samvinnu, enda þótt hann fylgi eindregið fram þeirri skoðun, að Íslendingar geti ekki gengið í Efnahagsbandalag Evrópu. Ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hafa undanfarið svo ósleitilega sýnt, að hugur þeirra stendur til aðildar að Efnahagsbandalagi Evrópu, að um það er ekkert að villast. Ríkisstj. áttast og vafalaust með réttu, að sá málstaður eigi ekki almennu fylgi að fagna með þjóðinni, og biður menn því að leiða hugann frá því, sem er að gerast í Evrópu, því að Bretar séu ekki komnir inn í bandalagið enn og því komi þetta mál allt í einu okkur ekkí við. En þetta er til of mikils mælzt. Ríkisstj. veit jafnmikið og við í Framsfl., að á næsta kjörtímabili verða Íslendingar að velja eða hafna, taka stefnuna inn í Efnahagsbandalag Evrópu, eins og svo margar Evrópuþjóðir, eða standa utan við og leysa mál sín með samvinnu í stað sameiningar eða innlimunar. Ríkisstj. er því að reyna að blekkja þjóðina og gera tilraun til þess að fá þetta mál í sínar hendur í 4 ár án íhlutunar þjóðarinnar og án þess, að þjóðin segi vilja sinn, en það má aldrei verða.

Að lokum þetta: Hvað verður um íslenzkt efnahagslíf og afkomu almennings í landinu, ef ríkisstj. og flokkar hennar fá í vor meiri hl. á Alþingi til að halda áfram þeirri stefnu, sem ríkisstj. varð að játa í gamlársræðu forsrh. að hafi leitt í hreinar ógöngur við mestu uppgrip í sögu þjóðarinnar? Hvar verður komið fullveldismálum landsins eftir 4 ár, ef ríkisstj. fær í vor aðstöðu til að móta eins og henni einni sýnist afstöðuna til Efnahagsbandalags

Evrópu, þar með stefnuna í sjávarútvegsmálum og landhelgismálinu?

Þessar spurningar verða menn að leggja fyrir sig nú þegar og svara þeim í vor. Eftir 4 ár verður það orðið of seint, og þá verður ekki aftur snúið.