17.04.1963
Sameinað þing: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)

Almennar stjórnmálaumræður

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, hefur nú lýst stjórnmálaviðhorfinu, eins og hann langar til að það sé. Ég skal lýsa því eins og það er:

Sá stutti tími, sem ég hef hér til umráða, endist að sjálfsögðu ekki til að draga upp skýra mynd af stefnu og starfi núv. ríkisstj., frá því að hún tók við völdum í nóvember 1959 og fram á þennan dag, og þaðan af síður til að lýsa aðkomunni. Að þessu sinni læt ég nægja að minna á, að vinstri stjórnin skildi við þjóðarbúið í upplausn. Í augum nágrannaþjóðanna var Ísland sem máttvana, heillum horfinn og trausti sviptur vesalingur, sem þrátt fyrir mesta góðæri aldarinnar stóð svo tæpt á barmi greiðsluþrots og glötunar, að sjálfur íormaður vinstri stjórnarinnar lýsti því yfir í ræðu sinni 4. des. 1958, og það gerði hann í samráði við Eystein Jónsson, sem hér var að enda mál sitt, að vegna sundurlyndis og ráðleysis ríkisstj. gæfist hann upp í miðri gullnámu ársins 1958. Jafnframt tilkynnti hann, að yfir vofði óðaverðbólga, sem að mati vitrustu sérfræðinga vinstri stjórnarinnar mundi með öllu óviðráðanleg, ef ekki yrði tafarlaust spyrnt við fæti.

Það var þetta þrotabú, sem núv. stjórnarflokkar tóku við í árslok 1958. Stjórn Emils Jónssonar tókst að stöðva þjóðina á feigðargöngunni, en sjálfur aðalvandinn beið núv. stjórnar. Varnir sínar gegn greiðsluþrotinu og glötun, sem leitt hefði af óðaverðbólgunni, leggur hún nú ótrauð undir dóm kjósenda og æskir þess, að þeir láti ekki blekkjast af öfgum og ósannindum stjórnarandstöðunnar, heldur kynni sér a.m.k. allra stærstu málin og reyni að gera sér grein fyrir: Hvað það sé, sem straumhvörfum hefur valdið og örlög skapað. Hvað það sé, sem því veldur, að eitt mesta velferðarmál þjóðarinnar, landhelgismálið, var leyst með svo glæsilegum sigri Íslendinga, að illgjarnri stjórnarandstöðu varð orðfall, týndi glæpnum og gafst upp. Hvernig á því standi, að íslenzkir bankar, sem í febrúarlok 1960 skulduðu erlendis 216 millj. kr., skuli á réttum þrem árum hafa bætt gjaldeyrisaðstöðuna um 1408 millj. kr. Hvað því valdi, að sparifjáraukning á þessum fáu árum skuli vera meiri en allt það sparifé, sem Íslendingar höfðu dregið saman frá upphafi byggðar og fram á þann dag. Hvaða Aladdínslampi það sé, sem nú allt í einu virðist hafa opnað á víða gátt þær dyr erlendra fjárhirzlna, sem áður voru Íslendingum harðlæstar. Hvernig auðnazt hafi að rétta nú sjúkum, gömlum, öryrkjum og öðrum, sem aðstoð verðskulda og þurfa, fjórar krónur í stað hverrar einnar, áður en viðreisnin hófst. Hvernig á því standi, að hrakspár vitrustu stjórnarandstæðinga um allsherjar atvinnuleysi, hrun og öngþveiti eru nú eitt mesta gamanmál þjóðar, sem aldrei hefur búið við aðra eins velsæld og nú, og það einmitt vegna þess, hversu mikil og almenn atvinnan er. Hvað því valdi, að nærri megi segja, að sama sé, hvert litið er, alls staðar sé vorhugur í mönnum og alls staðar sjái ávextina af bjartsýni, framtaki og dug fólksins. Af hverju það muni stafa, að á þessum síðustu árum hafi verið sett svo mikil, margvísleg og merk löggjöf sem raun ber vitni um, jafnframt því sem útvegað hefur verið fé til fleiri nauðsynlegra framkvæmda en nokkru sinni fyrr og um leið ráðin bót á fjármálaóreiðu hins opinbera og þegnarnir verndaðir gegn ríkisræningjanum með viturlegri skattalöggjöf o.s.frv. Um allt þetta er spurt og margt fleira.

Að sjálfsögðu verða svörin nokkuð eftir því, hver spurður er. Mitt svar er þetta:

Þótt fleira komi til, þá veldur það miklu, að allt þetta kjörtímabil hafa Alþfl. og Sjálfstfl. borið gæfu til að leggja ágreiningsmálin á hilluna og einbeina getunni að því að reisa úr rúst og byggja upp að nýju svo veglega, að það verði húsrými og athafnasvæði fyrir stórhuga, dugmikla æsku ört vaxandi þjóðar.

Ég þykist mega staðhæfa, að ríkisstj. hefur verið miklu samhentari en dæmi eru til um samtök stjórna hér á landi og að hún og flokkar hennar hafi af einhug og undirhyggjulaust alltaf stefnt að einu marki: Því að rétta við og reisa við, og alltaf af fullum drengskap látið þjóðarheill sitja í fyrirrúmi fyrir stundarhagsmunum flokka sinna.

Vildi ég mega vona, að ferill vinstri stjórnarinnar megi verða þeim til lærdóms, sem alltaf virðast hafa verið óheilir í samstarfi, svo að ekkí sé sterkar að kveðið, og með þeim hætti stórspillt árangri þess samstarfs, sem þeir hafa tekið þátt í. Væri það út af fyrir sig mikill ávinningur.

Mér þykir ekki ólíklegt, að yfirleitt játí menn, að samstarf viðreisnarflokkanna hafi verið óvenju heilsteypt. Ágreiningurinn verður um hitt, hvort uppskeran hafi verið jafnmikil og góð sem af er látið í stjórnarherbúðunum. Stjórnarliðið biður rólegt dóms þjóðarinnar við kosningarnar í vor.

Stjórnarandstaðan gerir sér ljóst, að ekki virðist sigurstranglegt að leggja til orrustu við stjórnarliðið, ef deilt verður um það, hvort viðreisnin sjálf hafi tekizt betur eða verr. Fyrir því er það nú orðið viðkvæðið hjá andstæðingunum, að enda þótt rétt kunni að vera, að stjórnin hafi eitthvað vel gert, þá sé það léttvægt og lítils virði borið saman við þá ógæfu, sem stjórnin hafði leitt yfir þjóðina með gengisfalli, fyrst í febrúar 1960 og síðan í ágúst 1961, eins og menn heyrðu hv. síðasta ræðumann tala um, sem því valdi, að verðhækkunaraldan flæði nú óhindruð yfir landið. Sé nú svo komið, að menn geti ekki lengur reist bú, byggt sér bát, eignazt þak yfir höfuðið o.s.frv.

Óþarft er að deila um, hvort dómur manna um skaðræði verðbólgunnar er eitthvað ýktur eða ekki. En um hitt skal spurt, hver valdi þessum verðhækkunum. Er það viðreisnarstjórnin, eða er það vinstri stjórnin og e.t.v. fleiri, sem gengisfallinu valda? Á svarinu veltur, við hvern beri að sakast um verðbólguna.

E.t.v. yrði svarið skýrast, ef rifjuð væri upp saga vinstri stjórnarinnar, raupsöm og vanhugsuð fyrirheit og fálmkenndar athafnir hennar og óbrotinn slysa- og vanefndaferill, allt þar til hún geispaði golunni af pólitískum vanmætti og ófeiti.

En þessi saga er svo margsögð, að ég hlífi mönnum við að hafa hana yfir að nauðsynjalausu, af því líka að út af fyrir sig er hún ekkert gamanmál, þótt ýmsir kaflar hennar séu svo spaugilegir, að menn fá ekki varizt brosi, svo sem t.d. tjáningar þeirra Hannibals Valdimarssonar og Hermanns Jónassonar um svo heitar gagnkvæmar ástir, að ekkert fengi skilið þó nema gröfin. Það fór nú sem fór, að fyrirheitin, sem þeir gáfu hvor öðrum, reyndust eins og önnur vinstri fyrirheit: Tuttugu ára sambúðin entist ekki nema í rúm tvö ár og var báðum vorkunn.

Læt ég útrætt um þetta, en vind mér að því að upplýsa sjálft málið.

Þegar forsrh. vinstri stjórnarinnar baðst lausnar 4. des. 1958, tilkynnti hann, að ný verðbólgualda væri að rísa, en engin samstaða væri í stjórn hans um varnir gegn henni. Hann sagði sjálfur, að yrði viðnám ekki tafarlaust veitt, mundi aldan flæða yfir landið. Þetta þekkja flestir jafnvel og það, sem eftir fór, að Alþfl. myndaði flokksstjórn, sem Sjálfstfl. varði vantrausti með vissum skilyrðum, m.a. þeim, að fyrstu flóðgarðar yrðu reistir til varnar gegn óðaverðbólgunni. Það var gert, en aðalvandinn beið lausnar núv. stjórnar.

Sú rannsókn, sem viðreisnarstjórnin lét fram fara strax eftir valdatökuna, leiddi í ljós, svo að ekki varð um villzt, að arfleifð vinstri stjórnarinnar v ar miklu uggvænlegri en menn höfðu gert sér grein fyrir, svo að ekkert blasti við annað en glundroði innanlands og greiðsluþrot út á við, ef ekki yrði fast og röggsamlega í taumana tekið.

Öllum varð ljóst, að við svo búið mátti ekki standa. En hvað átti nú til bragðs að taka? Aðeins tvær leiðir hafa verið taldar koma til greina. Stjórnarandstaðan, einkum framsóknarmenn, hefur haldið því fram, að auðveldast hefði verið að búa áfram við falskt gengi og útflutningsuppbætur. Þeir vita þó, að þetta var útilokað. Einhvers staðar varð að fá peninga í uppbæturnar, og hafði það verið gert með tollum á innflutningsvöruna, sem runnu til útflutningssjóðs. En nú var löngu komið í ljós, að því fór svo fjarri, að þessar tolltekjur útflutningssjóðs nægðu til þess að standa undir útflutningsuppbótunum, að tekjur sjóðsins námu aðeins fjórum krónum af hverjum fimm, sem honum bar að greiða. Þannig myndaðist halli, sem nam nærri 1/5 af andvirði alls útflutningsins. Reynt hafði verið í tvö ár í röð að bæta úr þessu með því að auka innflutning á lúxusvörum, sem voru tollhæstar, til þess með því að hækka tekjur útflutningssjóðsins og jafna hallann. Þetta var auðvitað neyðarúrræði, sem auk þess mistókst einfaldlega vegna þess, að fólkið vildi ekki kaupa nægjanlega mikið af rándýrum óþarfanum. Þar við bættist, að þessi óheilbrigða stefna varð að byggjast á erlendum lánum, en frumskilyrði fyrir því, að erlend lán fengjust, var einmitt, að algerlega yrði breytt um stefnu. Kerfi, sem byggist á lánum, sem voru ekki fáanleg, nema gerbreytt yrði um kerfi, bar dauðameinið undir hjartarótum og var þess vegna sjálfdautt. Það sjá allir. Um þetta þarf þess vegna ekki frekar að ræða.

Eftir stóð þá sá eini möguleiki að gerbreyta um stefnu, viðurkenna rétt gengi krónunnar, en afnema uppbæturnar. Sá vandi, sem nú tók við, var að ákveða rétt gengi þeirrar vinstristjórnarkrónu, sem viðreisnarstjórnin tók við, að taka út vinstri krónuna, ef svo mætti segja. Til þess vandaverks voru valdir hinir hæfustu innlendu og erlendu sérfræðingar, sem völ var á. Er skemmst frá að segja, að eftir að þeir höfðu framkvæmt ýtarlegar rannsóknir, urðu þeir allir sammála og gerðu því sameiginlega tillögu til stjórnarinnar.

Það er eftirtektarvert, að sérfræðingarnir mátu krónuna talsvert minna virði en stjórnin eftir atvikum taldi rétt að fallast á. Vildu þeir hafa 40 eða helzt þó 42 kr. í bandarískum dollar. Stjórnin ákvað 38 kr. Gerði hún sér þó auðvitað ljóst, að varfærnara var að meta krónuna lægra, eða eins og sérfræðingarnir ráðlögðu. Með því var hættan á nýju krónufalli, ef eitthvað gekk úr skorðum, minni. Höfuðsjónarmið okkar voru hins vegar þau, að vart væri þess að vænta, að skráð gengi krónunnar yrði bráðlega hækkað aftur, þótt eitthvað batnaði í ári. Væri því réttmætt að tefla nokkuð á tvær hættur til þess að halda krónunni uppi. Auk þess vildi stjórnin halda vísitölunni í skefjum af fremsta megni, en vitað var, að hún hækkaði um eitt stig fyrir hverja krónu, sem dollarinn hækkaði um. Og loks bættist það við, að stjórnin lagði höfuðáherzlu á, að auðsannað væri, að ekki hefði verið hallað á vinstri stjórnina við úttekt á búi hennar, svo að ekki gæti leikið á tveim tungum, hver ábyrgð bæri á þeim verðhækkunum, sem í kjölfarið hlutu að sigla.

Hér er því um ekkert að villast. Viðreisnarstjórnin lét skrá krónu vinstri stjórnarinnar miklu hærra en sérfræðingarnir töldu hyggilegt eða jafnvel verjanlegt. Enginn getur því með rökum vefengt, að það er vinstri stjórnin, en ekki viðreisnarstjórnin, sem veldur þeim verðhækkunum, sem nú eru á orðnar og eru afleiðing af sæmilega réttri skráningu vinstristjórnarkrónunnar í febrúar 1960.

Varðandi síðari skráninguna, í ágúst 1961, er það að segja, að enn valda þeir sömu og fyrr. Þar voru enn að verkí framsóknarmenn og kommúnistar.

Fram að þeim tíma hafði verið föst venja, að Vinnumálasamband SÍS og Vinnuveitendasamband Íslands kæmu fram sem ein heild í samningum við Alþýðusamband Íslands eða einstök verkalýðsfélög. En vorið 1961 skar SÍS sig allt í einu út úr, gerði sérsamning við kommúnista um kauphækkanir og neyddi með því aðra atvinnurekendur til að fylgja í kjölfarið. Námu kauphækkanirnar frá 13–19%. Með þessu var nýtt gengisfall ákveðið, svo sem m.a. sést á þessu:

Höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegurinn, var illa farinn eftir langvarandi verðbólgu og hafði á undanförnu ári orðið fyrir meira verðfalli afurða sinna en dæmi voru til um langt árabil. Síldarvertíðin sumarið 1960 hafði brugðizt, og vetrarvertíðin 1961 var afleit, og togararnir áttu við meira aflaleysi að etja en nokkru sinni fyrr. Engum hugsandi manni gat þess vegna dottið í hug, að þessi bágstaddi atvinnurekstur gæti allt í einu tekið á sig 13–19% kauphækkanir, jafnt við sjálfa framleiðsluna sem alla verkun aflans.

Stjórnarandstæðingar hafa að vísu tæpt á því, að gengisfelling hefði verið óþörf, ef vextir hefðu verið lækkaðir um 2%. Hvílík endemis fjarstæða hér er á ferð, sést bezt á því, að slik vaxtalækkun hefði aðeins létt af atvinnurekendum 70–80 millj. kr., en kauphækkanirnar lögðu nýjar byrðar á þá, sem námu 550–600 millj. kr.

En hvað þá um aðra atvinnuvegi? Gátu þeir tekið á sig kauphækkanirnar?

Eftir gengisfallið reyndi ríkisstj. til hins ýtrasta að vernda hagsmuni launþega með því að sporna af alefli gegn því, að atvinnurekendur fengju að hækka verðlagið vegna kauphækkananna. Var hagur og afkoma hvers einstaks fyrirtækis rannsakað, áður en leyft væri, að hækkun kaupgjaldsins fengist að einhverju eða öllu leyti tekin upp í verðlagið. Niðurstaða þessara rannsókna sýndi, að langflest fyrirtækin gátu sannað, að ef þau ættu að forðast hallarekstur, væri óhjákvæmilegt að heimila verðhækkanir, er sem næst námu kauphækkunum.

Rétt er að upplýsa, að flest fyrirtæki SÍS stóðu engum að baki í kröfunum um verðhækkanir, sem sannar, að þau voru ekki fær um að standa undir samningunum við kommúnistana án þess að færa afleiðingarnar yfir á bök almennings. Vildi ég, að menn bæru þetta saman við ummæli hv. síðasta ræðumanns.

Það liggur þannig alveg ljóst fyrir, að það eru framsóknarmenn og kommúnistar, sem alla sök eiga, jafnt á hinni fyrri gengislækkun sem hinni síðari, og þar með þeim verðhækkunum, sem þeir ásaka okkur fyrir.

Með þessu er stjórnarandstaðan rekin íu síðasta víginu. Þeim er því hentast að þagga niður í grátkerlingum sínum. Auðvitað er það rétt, að af verðlækkun krónunnar leiðir margvísleg vandkvæði og misrétti. En hitt er jafnsatt og víst, að það er ekki við þann, sem viðurkennir verðfallið, að sakast, heldur við hinn, sem því veldur.

Þeir, sem skyggnast bak við forhengi stjórnmálanna, skilja án efa flestir, að stjórnarandstaðan veit, að hún beitir rangindum, — og á það ekki sízt við þann ræðumann, sem hér var að ljúka máli sínu, — og treystir þess vegna ekki málstað sínum. Það sést m.a. á því, að þegar til orrustunnar dregur, grípur Framsókn til þess óyndisúrræðis að skapa ágreining við hina lýðræðisflokkana um Efnahagsbandalagið og færa með því kosningabaráttuna yfir á vettvang viðkvæmra utanríkismála. Nú hefur Framsókn að vísu fyrr gerzt sek um slíkt glapræði, en alltaf sér til lítils sóma og oftast líka til tjóns.

Brennt barn forðast eldinn, og fullvíst er, að Framsókn gerir sér grein fyrir, að hún teflir á tæpt vað með þessu athæfi. Að flokkurinn samt sem áður skuli freista þess, vekur sérstakan grun og kallar á skýringar. Skal ég ekki að þessu sinni fjölyrða um þetta mál, heldur aðeins minna á þrennt:

1) Til skamms tíma voru allir lýðræðisflokkarnir sammála um afstöðu Íslands til Efnahagsbandalagsins.

2) Þegar kosningaskjálftinn færðist um Framsókn, skarst flokkurinn úr leik og hóf ógeðþekkan, tilbúinn ágreining milli sín og stjórnarflokkanna um málið.

3) Að þegar svo þróun málanna varð sú, að allir valdamenn Efnahagsbandalagsins virðast sammála um, að málið sé úr sögunni um fyrirsjáanlega framtíð, þá kvað Framsókn sjáif upp Salómonsdóm yfir sjálfri sér með því að taka fréttinni ekki fegins hendi og láta úlfúðina niður falla. Nei, alls ekki, heldur gerist Framsókn úfin og geðill og magnar því meir áróðurinn sem ákvörðun okkar í málinu í hvaða formi sem er færist fjær.

Þegar þetta er athugað og því bætt við, að fyrir hendi eru skýrar, skjallegar sannanir fyrir því, að fram til hins síðasta stefndi Framsókn beint að aukaaðild, og jafnframt hinu, að stjórnarflokkarnir hafa aldrei bundið sig við aukaaðildina fremur en t.d. tollaleiðina, þá er ekki til nein skýring á þessu athæfi Framsóknar önnur en sú, að Framsókn treysti sér ekki að berjast við stjórnarliðið á vettvangi innanlandsmálanna.

Það má því fullyrða, að þessi óheillavænlegi leikur Framsóknar er ekkert nema sultarvæl valdahungraðra, en málefnasnauðra manna, sem að lokum verður til þess eins að svipta þá trausti.

Eftir fáar vikur ganga Íslendingar til kosninga. Án efa verður kosningabaráttan hörð. Sýnt er, eins og heyra mátti af ræðu hv. síðasta ræðumanns, að Framsfl. er illa haldinn, valda- og áhrifalaus. Ber öll málfærsla framsóknarmanna þessu órækt vitni, ekki sízt það, sem lesa má milli línanna, svo sem þegar þeir á alla lund, beint og óbeint, róa undir og spana launþega til kröfuhörku í því skyni að brjóta viðreisnina á bak aftur. Jafnframt virðist Framsókn jafnvel venju fremur leitast við að espa til úlfúðar og beinna illinda. Nær sú iðja sannarlega nokkrum árangri, þegar meinlausir menn úr trúarflokki Tímans láta sér um munn fara, að heldur vilji þeir hungra en þola þá raun, að viðreisnin lánist, þ.e.a.s. að fósturjörðin bjargist. Sýnir þetta nokkuð, hvernig barizt er.

En til hvers er svo barizt? Hvað er það, sem Framsókn sækist eftir, og hverjar eru sigurhorfurnar? Við skulum aðeins staldra við og gera okkur grein fyrir, hvað komið getur upp á teningnum.

1) Ef stjórnarflokkarnir halda meiri hlutanum, sem flestir munu telja sennilegast, munu þeir halda viðreisninni áfram. Það samstarf hefur gengið vel og mundi hvorki styrkjast né batna, þótt Framsókn bættist í hópinn, heldur alveg það gagnstæða. Framsókn yrði því ekki hleypt inn fyrir.

2) Ef Framsókn og kommúnistar næðu þeim meiri hl., sem með þarf til að geta stjórnað, er að sönnu alveg ástæðulaust að ætla, að Framsókn gengi ekki að þeim skilmálum, sem kommúnistar setja, svo náið sem samstarfið er orðið, bæði ljóst og leynt. Mundu utanríkismálin alls ekki standa á milli, enda hefur Tíminn síðustu árin í vaxandi mæli verið að undirbúa einmitt slíka hraðferð á vængjum kommúnista frá vestrænni samvinnu til Moskvuþjónustu. óhætt mun vera að treysta því, að dómgreind þjóðarinnar girði fyrir, að slíkt ólán hendi Íslendinga.

3) Þá er eftir þriðji möguleikinn og sá, sem Framsókn heldur að lánast megi, en hann er, að Framsókn eflist svo, að stjórnarflokkarnir neyðist til að leyfa henni þátttöku í stjórninni. Menn heyrðu tóninn um þetta í ræðu hv. síðasta ræðumanns. Í þessu skyni leita framsóknarmenn fylgis hjá öllum rauðliðum og hika þá ekki við að bregðast kommúnistum og öðrum þeim, sem þeir jöfnum höndum hyggja á samstarf við, allt eftir því, hvað kosningateningarnir færa þessum áhættuspilurum.

Það er ekki líklegt, að þetta hendi þjóðina, en ef svo færi, hvað tekur þá við? Eitt er víst: Viðreisnarstjórnin mun aldrei hvika frá stefnu sinni. Framsókn yrði þess vegna að renna niður fullyrðingunum og gleypa í sig árásirnar. Þetta er svo sem ekkert útilokað, það vita þeir, sem vel þekkja til, og fremur fyrir það, að fullvíst er, að Framsókn hefur allt kjörtímabilið talað um hug sér og mundi í öllum aðalefnum hafa farið eins að og við, ef hún hefði verið í stjórn. Nei, þetta er sannarlega ekki útilokað, heldur fremur sennilegt, og mundi þá Framsókn skilja það eitt til, að þess yrði ekki krafizt, að hún gleypti stærri bita í einu en kokvíddin þyldi, en það er nú sjálfsagt ekki svo lítið.

En allt er þetta ósköp ógeðþekkt og mundi án efa tefja framkvæmdir og eitthvað spilla árangrinum. Hinu verður svo ekki neitað, að mörgum mundi til gamans að láta þá Eystein og Þórarin stíga nýjan dans eftir viðreisnarlaginu, og þá ekki síður hitt, að sýna þjóðinni, að þegar Skuggasveins-gæran er af köppunum dregin, er ekkert nema Ketill inni fyrir. Það er nú allt og sumt.

Enginn réttdæmur maður neitar því, að viðreisnarstjórnin hefur margt vel gert og orðið furðuvel ágengt, þrátt fyrir harðan andróður stjórnaxandstöðunnar. Er þetta að sönnu gleðilegt. En í því felst auðvitað engan veginn, að hættan sé liðin hjá, hvað þá heldur, að allt sé nú sem bezt verður á kosið.

Að sjálfsögðu verða alltaf nýir og nýir örðugleikar á vegi sérhverrar ríkisstj., jafnt á Íslandi sem annars staðar, enda er það hlutskipti valdhafanna að ráða fram úr aðsteðjandi vanda, sem hitt að feta sig jafnt og þétt áfram á framfarabrautinni. En varðandi þá sérstöku örðugleika, sem viðreisnarstjórnin hefur átt og á enn við að etja, þ.e.a.s. kaupgjaldsmálin og verðbólguna, þá verður aldrei fram úr þeim ráðið í eitt skipti fyrir öll og aldrei heldur svo, að til nokkurrar frambúðar sé, fyrr en tveim höfuðskilyrðum hefur verið fullnægt:

1) Að launþegar öðlist fullan skilning á því, að það eru ekki eingöngu atvinnurekendur, heldur einnig og engu síður þeir sjálfir og þjóðin öll, sem á því skaðast, ef greitt er hærra kaupgjald en þjóðarframleiðslan og atvinnureksturinn þolir.

2) Að komið verði á fót stofnun, sem launþegar ráða yfir, sem sé fær um að kanna og meta allar upplýsingar, sem opinberar stofnanir leggja fram, og safni einnig sínum eigin gögnum, eftir því sem ástæða reynist til, en leiðbeini síðan launþegum og láti þeim í té öll nauðsynleg gögn í málinu. Verður kaupgjaldsbaráttan þá tæplega hörð af hálfu launþega, nema kjarabætur séu tímabærar, þ.e.a.s. þegar þær leiða ekki til gengisfalls, heldur til raunverulegra kjarabóta, en þá ætti líka oftast að vera óhætt að hækka kaupið.

Takist þetta, takist að eyða tortryggninni og skapa traust launþega á því, að ýtrustu hagsmuna þeirra sé gætt, þá er bægt frá dyrum þjóðarinnar þeim bölvaldi, sem ógnað hefur heilbrigðu efnahagslífi hennar tvo síðustu áratugi, þá hefur viðreisnin sigrað, og þá verða engir farartálmar á brautinni til bættra lífskjara aðrir en þeir, sem illt árferði og óvenjuleg óhöpp valda og okkar dugmiklu þjóð er vorkunnarlaust að fást við nú sem fyrr, — nú betur en nokkru sinni fyrr.

Ríkisstj. hefur nú útbýtt meðal þingmanna skýrslu um, hvað viðreisnarflokkarnir hyggjast fyrir um helztu framkvæmdir næstu ára, verði þeim falin völdin áfram. Framfaramenn fagna þeim stórhug, sem þar lýsir sér, og engu síður því, hversu traustlega er um hnútana búið. Að þessu sinni vinnst ekki tími til að rekja og skýra þetta mikla mál. En meðal þess, sem þessi skýrsla sannar, er þetta:

1) Þjóðartekjur og atvinnutekjur almennings fylgjast náið að.

2) Af því leiðir, að mestu varðar að tryggja sem örastan vöxt þjóðarteknanna.

3) Síðan í ófriðarlok hafa þjóðartekjurnar vaxið hraðar hjá nágrannaþjóðunum en okkur.

4) Rannsókn leiðir í ljós, að þetta stafar af því, hversu lengi við bjuggum við höft, bönn, útflutningsuppbætur og skakkt gengi krónunnar, en nágrannarnir tóku hins vegar fljótlega eftir ófriðarlok upp viðreisnarstefnuna.

Verði viðreisnarflokkunum falin völdin áfram, munum við fylgja velmegunarstefnunni fast fram og hagnýta okkur reynslu annarra þjóða, til þess að leiðin til bættra lífskjara allra þjóðfélagsþegnanna verði sem greiðgengust og tryggust.

Um þetta fjallar hin stórhuga, varfærna framkvæmdaáætlun okkar.

Andstæðingarnir hafa tekið skýrslunni illa eins og allri viðreisninni. Í þetta sinn er þeim nokkur vorkunn, því að aldrei fyrr hafa jafnsterk rök verið borin hérlendis fram fyrir ágæti viðreisnarstefnunnar. En andstæðingunum þýðir ekkert að reyna að standa gegn straumi tímans. Við erum á hraðri leið til bættra lífskjara og megum ekki vera að sinna nöldri þeirra. Menn, sem heldur vilja hungra en horfa á viðreisnina leiða til velmegunar, eru ekki til forustu fallnir.

Ég bið menn að kynna sér skýrsluna, gögn hennar og rök sem bezt. Ég bið alla þá, sem telja, að störf og stefna vinstri stjórnarinnar hafi verið til þjóðþrifa, og alla þá, sem nú telja sínum eigin hag betur borgið en áður, að efla okkur til meiri valda, til þess við getum látið meira gott af okkur leiða. Látum viðreisnina leiða til velmegunar.