17.04.1963
Sameinað þing: 49. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

Almennar stjórnmálaumræður

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Háttvirtu áheyrendur. Þetta mun vera í fyrsta sinn um langt árabil, sem sama ríkisstj. situr heilt kjörtímabil, án þess að stjórnarsamstarfið rofni. Og raunverulega hefur þetta samstarf Sjálfstfl. og Alþfl. staðið lengur, eða frá því í des. 1958, þegar minnihlutastjórn Alþfl. tók við af vinstri stjórninni og samkomulag náðist milli þessara flokka, Alþfl. og Sjálfstfl., um að koma fram breytingu á kjördæmaskipuninni og stöðva óðaverðbólgu vinstri stjórnarinnar. Hvort tveggja þetta tókst giftusamlega, og upp úr því samstarfi var svo núv. stjórn mynduð. Sá vandi, sem hennar beið að leysa, var gífurlegur. Það voru fyrst og fremst efnahagsmálin. Það var landhelgisdeilan við Breta. Það voru atvinnumálin og dýrtíðarmálin, sem mest kölluðu að, auk fjölda annarra, sem vissulega þurfti einnig að sinna, þótt ekki væru jafnaðkallandi. Flest þessi meiri háttar vandamál hefur ríkisstj. tekizt að leysa á farsælan hátt með samkomulagi, þó að önnur hafi verið látin bíða. Það er í rauninni athyglisvert, að þessum tveim svo ólíku flokkum skuli hafa tekizt þetta. En ég held, að skýringin á því sé einfaldlega sú, að þeir hafa báðir sett þjóðarhag ofar flokkshagsmunum og gengið fullkomlega heiðarlega að verki, en það er meira en hægt er að segja um stjórnarsamstarf ýmissa annarra flokka. Um þetta ber líka vott, að samstarfið hefur enzt þetta lengi. Það mundi það ekki hafa gert, ef ekki hefði verið af heilindum unnið.

Vitaskuld er ýmislegt, sem betur hefði mátt fara og ríkisstj. hefði óskað að færi öðruvísi. Eg nefni þar fyrst og fremst dýrtíðarmálin, sem ekki hefur tekizt að leysa eins og ríkisstj. helzt vildi, þ.e. að halda niðri verðlaginu í landinu. Rétt er þó að geta þess, að þær hliðarráðstafanir, sem ríkisstj. gerði í sambandi við gengisbreytinguna 1960 og síðar, hafa dregið mjög verulega úr framfærslukostnaðarhækkuninni. Framfærsluvísitalan í dag er um 130 stig, þegar tekið er tillit til lækkunar skatta og fjölskyldubótanna. Eftirtakanlegt er þó í þessu sambandi, að af þessum 30 stigum, sem framfærsluvísitalan hefur hækkað allt tímabilið, fellur næstum því helmingurinn eða um 14 stig á s.l. ár. Það gefur greinilega vísbendingu um það, hvar orsakanna sé að leita.

Lausn annarra þeirra vandamála, sem ég nefndi, efnahagsmálanna, landhelgisdeilunnar við Breta og atvinnumálanna, hefur að mínu viti tekizt vel. Sparifjármyndunin hefur aldrei verið meiri en s.l. ár. Gjaldeyrisstaða bankanna hefur batnað mjög, og nemur gjaldeyrisforðinn nú um 1200 millj, kr. Staða ríkissjóðs er góð, og útlánum bankakerfisins hefur verið haldið innan hóflegra marka.

Atvinnuástandið í landinu hefur verið gott, atvinnuleysi að heita má óþekkt, og enginn nefnir lengur móðuharðindi af manna völdum nema með góðlátlegu brosi. Bezta sönnunin fyrir þessu er atvinnuleysistryggingasjóðurinn. tekjur atvinnuleysistryggingasjóðs urðu 1961 77.4 millj. kr., en bótagreiðslur til atvinnulausra urðu aðeins tæpar 900 þús. kr. Árið 1962 urðu tekjur sjóðsins ca. 84 millj. kr., en bótagreiðslur vegna atvinnuleysis svipaðar og árið 1961, undir 1 millj. kr., eða um 1% af tekjum sjóðsins.

Sjávarafli hefur s.l. 2 ár orðið meiri en nokkru sinni áður. Má það að verulegu leyti þakka hinum fjölmörgu nýju og fullkomnu skipum, sem keypt hafa verið til landsins á s.l. árum í tugatali. Á árinu 1962 fjölgaði skipum í fiskiskipaflotanum um 36 skip, og um s.l. áramót voru í smiðum utanlands og innan um 50 skip, sem samtals munu kosta talsvert á fjórða hundrað millj. kr. Hv. 6. þm. Suðurl., Karl Guðjónsson, sem talaði hér á undan mér, vildi halda því fram, að mestöll aukning skipastólsins hefði átt sér stað á vinstristjórnartímanum. Þetta er alrangt. Ég fullyrði, að aukning skipastólsins hefur aldrei verið meiri en nú, enda innflutningur skipa frjáls, en var áður háður leyfi. Til þess að taka á móti þessum mikla afla hefur svo fjöldi fiskvinnslustöðva verið byggður, sérstaklega síldarverksmiðjur, og aðrar eldri stækkaðar og endurbættar. Til þess að gera þetta mögulegt hefur fiskveiðasjóður verið efldur mjög og annað lánsfé útvegað af hálfu ríkisstj., og er þar skemmst að minnast framkvæmdalánsins brezka, en af því er gert ráð fyrir að endurlána til fiskvinnslustöðva og til fiskiðnaðarins í ár 50 millj. kr. Einnig má minna á stofnlánadeild sjávarútvegsins, sem veitti sjávarútveginum 354 millj. kr. til þess að breyta stuttum lánum í löng lán.

Það er óhætt að fullyrða, að um langan aldur hefur ekki verið jafnmikill vöxtur og gróska í íslenzkum sjávarútvegi og hin s.l. ár. Stjórnarandstaðan svarar því að vísu til, að ekki sé hin mikla fiskgengd við strendur landsins ríkisstj. að þakka, og er það að vísu rétt, en ef ekki hefði skipastóllinn og fiskvinnslutækin verið aukin eins mikið og raun ber vitni, hefði aflafengurinn væntanlega orðið eitthvað minni. Og minna má á í því sambandi, að aflabrögðin 1958 voru óvenjulega mikil og viðskipti okkar við útlönd hagstæð, en einhvern veginn tókst þó þá að koma. efnahagskerfi okkar í þá megnustu óreiðu og upplausn, sem það hefur nokkurn tíma komizt í upp á síðkastið.

Annað atriði atvinnuástandinu og atvinnuvegunum nátengt vildi ég líka minnast á. Það er hið félagslega öryggi og fyrst og fremst almannatryggingarnar. Atvinnuöryggi og atvinnuafkoman annars vegar og hið félagslega öryggi hins vegar eru þeir hyrningarsteinar, sem líf allrar alþýðu byggist fyrst og fremst á. Alþfl. hefur líka ávallt látið þessi mál til sín taka, átt að þeim frumkvæði og beitt sér fyrir breytingum til bóta, þegar hann hefur haft aðstöðu til.

Á síðasta kjörtímabili hefur orðið gerbreyting á þessum málum, og hefur um það verið góð samvinna í núv. ríkisstj. Ég skal leyfa mér að nefna nokkur atriði: Í fyrsta lagi vildi ég nefna hina miklu hækkun á bótagreiðslum, sem gerð var 1960 og færði þessar greiðslur í það horf, sem bezt gerist annars staðar. Ég nefni afnám skerðingarákvæðisins svokallaða, en það var mikið hagsmunamál þeirra fullorðnu manna og kvenna, sem enn höfðu nokkra starfsgetu og gátu unnið og vildu gera það. En sá galli var á, að þá minnkuðu lífeyrisgreiðslurnar og féllu alveg niður, þegar tekjurnar höfðu náð vissu marki. Með þessari breytingu fá nú allir, sem náð hafa 67 ára aldri, tilskilinn ellilífeyri, hvort sem þeir vinna nokkuð eða ekki. Munar þá ellilífeyrisþega, sem eitthvað geta unnið, mjög verulega um þetta. Ég nefni enn það, að nú hefur landið allt verið gert að einu verðlagssvæði og allar bótagreiðslur jafnar, hvar sem menn búa á landinu, en áður voru bæturnar verulega hærri til fólks á þeim stöðum, sem fjölmennastir eru. Upphaflega mun þetta hafa verið sett í lög vegna þess, að framfærslukostnaður mun hafa verið talinn minni í dreifbýlinu og kauptúnum og sjávarþorpum. Nú er þessi mismunur á framfærslukostnaði horfinn, hafi hann þá nokkurn tíma verið fyrir hendi. Þess vegna var fullkomið réttlætismál að fá þessu breytt, og það hefur nú verið gert.

Loks vil ég geta þess, að nú liggur fyrir Alþingi frv. um heildarendurskoðun almannatrygginganna, sem væntanlega verður að lögum, áður en þinginu lýkur, og felur það í sér veigamiklar endurbætur. Ég skal aðeins nefna nokkrar þær helztu. Félagar sérstakra lífeyrissjóða eiga hér eftir að njóta fullra trygginga almannatrygginganna. Fjölskyldubætur eiga að greiðast með öllum börnum. Ekkjulífeyrir stórhækkar. Fæðingarstyrkur hækkar um 56%. Dánarbætur eftir þá, sem farast af slysförum, hækka að miklum mun, í stað einnar greiðslu í eitt skipti fyrir öll, rúmar 100 þús. kr., greiðast hér eftir 192 þús. kr., sem skiptast í jafnar mánaðargreiðslur í 8 ár. Sjúkra- og slysadagpeningar verða stórum hækkaðir. Ýmsar fleiri breytingar til bóta eru í frv., en ég skal hér láta staðar numið.

Til marks um það, hversu þær breytingar, sem gerðar hafa verið á almannatryggingunum, eru gífurlegar, skal ég að lokum geta þess, að framlag ríkissjóðs til trygginganna var árið 1959 101 millj. kr. Árið 1963 er þessi upphæð komin upp í 434 millj. kr. eða meir en fjórfölduð á þrem árum. Þegar framlög sveitarfélaga, atvinnurekenda og einstaklinga koma til viðbótar, verður heildarfjármagn tryggingakerfisins í ár 823 millj. kr., og með þeim breytingum, sem nú er verið að gera og ég hef nefnt, hækkar svo þessi upphæð enn um rúmar 54 millj. kr. Næsta ár mun því umráðafé trygginganna í heild nálgast 900 millj. kr.

Þessi tekjujöfnun, þessi tilflutningur á tekjum frá þeim, sem betur mega, til hinna, sem erfitt eiga uppdráttar, er að mínu viti eitt mesta afrek þessarar ríkisstj. Það skal tekið fram til þess að fyrirbyggja misskilning, að stjórnarandstaðan hefur ekki beitt sér gegn þessum breytingum nú á almannatryggingalögunum. En einhvern veginn atvikaðist það svo, að þegar núv. stjórnarandstöðuflokkar áttu sæti í ríkisstj., fengust engar umbætur á þessum málum gerðar og áhugi fyrir þeim þá virtist minni en enginn.

Ýmis önnur félagsleg umbótamál hafa verið borin fram á Alþingi og samþ. á þessu tímabili, og ég skal nefna nokkur. Fjárútvegun til íbúðarhúsabygginga hefur verið stóraukin. Byggingarsjóður aldraðs fólks hefur verið stofnaður, en með honum er gert ráð fyrir að útvega fullorðnu fólki hentugar íbúðir, án þess að það þurfi að fara á elliheimili, og möguleikar skapaðir til þess, að það geti fengið heimilishjálp eftir þörfum. Jafnlaunamál kvenna hefur verið leyst, þannig að tryggt er, að konur fái sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar. Þetta mál hefur lengi verið áhugamál kvennasamtakanna í landinu og hefur nú verið farsællega leyst. Forsvarsmenn Alþb. höfðu um það stór orð í vinstri stjórninni, að þeir mundu leysa það, en úr framkvæmdum varð aldrei, af því að þeir höguðu sinni kröfugerð þannig, að engar líkur voru til, að það næði samþykki. Málið var þeim, eins og í svo mörgum tilfellum öðrum, meira virði sem áróðursmál heldur en áhugamál að leysa, og þess vegna fór sem fór. Alþfl. flutti það á þeim grundvelli, að launamismunurinn á milli karla og kvenna yrði jafnaður á 6 árum, og þannig náði það þegar samþykki.

Mörg fleiri mál mætti nefna, sem til hagsbóta horfa fyrir alþýðu manna í landinu, en hér verður ekki tími til að ræða þau frekar, en þau verða að sjálfsögðu rædd af öðrum fulltrúum flokksins við þessar umr.

Ég get þó ekki stillt mig um að nefna eitt mál til viðbótar, en það er þjóðhags- og framkvæmdaáætlunin, sem lögð var fram nýlega. Hún er hið merkasta plagg, enda liggur mikið starf í mörg ár á bak við hana. Hún gefur mjög glöggt yfirlit yfir efnahagsþróun undanfarinna ára, stöðuna, eins og hún er í dag, og áætlun um framkvæmdir næstu fjögurra ára. Um þetta, mál var samið, þegar núv. stjórnarflokkar mynduðu ríkisstj. 1959, og er enginn vafi á því, að þessi áætlun getur orðið til margs konar nytja og hinn ágætasti grundvöllur undir skynsamlegar framkvæmdir.

Eitt atriði í málafylgju stjórnarandstöðunnar er athyglisvert sérstaklega, og skal ég fara um það nokkrum orðum. Fyrst eftir að núverandi ríkisstj. tók við og gerði sínar ráðstafanir í efnahagsmálum, beindist gagnrýni stjórnarandstöðunnar að þessum ráðstöfunum og það mjög hatrammlega. Af þeim átti allt illt að leiða: stöðvun á framkvæmdum vegna lánsfjárskorts, hárra vaxta, bindingar sparifjár og dýrtíðar. Atvinnuleysi mundi sigla í kjölfarið og alls konar óáran mundi þrengja kjör almennings í landinu. En eftir að í ljós kom, að þessir spádómar stóðust ekki, atvinna var meiri en nokkru sinni áður, framkvæmdir eins miklar og fólk fékkst frekast til að vinna, og afkoma allra landsmanna yfirleitt góð, þá var sýnilegt, að þessi aðferð dugði ekki, því að það er erfitt að stangast við staðreyndir. Var þá skipt um og annar háttur upp tekinn. Nú um skeið hefur verið tekinn upp sá háttur í blöðum stjórnarandstöðuflokkanna og hér á Alþingi og hefur enda verið gert hér líka í kvöld að hætta mikið til að ræða þessi mál. Nú er ekki deilt lengur að ráði á ríkisstj. fyrir það, sem hún hafi gert, heldur hitt, sem hún ætlar að gera. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, dró að vísu fram hér í kvöld hinar gömlu lummur um, að viðreisnin hefði brugðizt, en þessar lummur er farið að slá svo í, að þær eru ekki lengur boðlegar neinum.

Því hefur nú verið haldið fram um skeið, að ríkisstj. ætli að framlengja samninginn við Breta um fiskveiðilandhelgina, þegar hann fellur úr gildi í byrjun næsta árs. Og þetta er gert þrátt fyrir það, að því hefur verið marglýst yfir, að slík framlenging komi ekki til greina, og greinilega fram tekið í samningnum sjálfum, að Ísland stefni að útfærslu fiskveiðitakmarkanna út fyrir landgrunnið allt.

Hitt atriðið, sem á sama hátt hefur verið tekið til meðferðar, er um möguleg tengsl Íslendinga við Efnahagsbandalag Evrópu. Því er haldið fram, að ríkisstj. sé líkleg til að semja þar um inngöngu upp á býtí, sem séu alls óaðgengileg. Ríkisstj. hefur þó ekki gert í því máli annað en að kynna sérstöðu okkar og leita upplýsinga um, hvaða möguleikar væru til einhvers sambands við bandalagið, þegar tekið væri tillit til þessarar sérstöðu.

Þetta eru hvort tveggja viðkvæm utanríkismál og að mínu viti alveg forkastanlegt að draga þau inn í dægurþrasið á þann hátt, sem gert hefur verið, þegar í öðru málinu liggur fyrir fastmótuð ákvörðun hjá ríkisstj., en í hinu, að ekkert hefur verið gert annað en að kanna málið. Þetta mál er, eins og margrakið hefur verið, óendanlega þýðingarmikið fyrir Íslendinga, að eitthvert samkomulag náist víð efnahagsbandalagsríkin um sölu á okkar afurðum og koma í veg fyrir útilokun frá þessum markaði vegna hárra aðflutningsgjalda þar. En það er kannske það, útilokun markaðanna, sem stefnt er að til þess að beina viðskiptum okkar í aðrar áttir. En hvað, sem um það er, þá segir það sína sögu, að gagnrýninni virðist nú meira beint gegn því, sem ríkisstj. hefur ekki gert, en að hinu, sem gert hefur verið.

Ég tel, að ríkisstj. geti eftir atvikum verið ánægð með þann árangur, sem náðst hefur á kjörtímabilinu, a.m.k. ánægðari en ýmsar aðrar fyrrverandi ríkisstj., og geti óhrædd beðið dóms kjósendanna í kosningunum í vor.