16.04.1963
Sameinað þing: 48. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
Þjóðhags- og framkvæmdaáætlun
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram í þessum umr., er þessi framkvæmdaáætlun hæstv. ríkisstj. heldur seint á ferðinni miðað við þau loforð, sem áður höfðu verið gefin.
Hæstv. forsrh. minntist á það hér, þegar hann gerði grein fyrir þessari áætlun, að strax í nóvembermánuði 1959 hefði ríkisstj. gefið fyrirheit um, að áætlun af þessu tagi skyldi gerð um allan þjóðarbúskapinn og um framkvæmdir einstakra ára. Hann gat einnig um það, að ríkisstj. hefði leitað eftir aðstoð erlendis til þess að koma saman slíkri áætlun sem þessari og hingað hefðu komið norskir sérfræðingar á miðju ári 1961, til þess að semja áætlunina fyrir ríkisstj. Nú er það kunnugt, að þessir norsku sérfræðingar, sem dvöldust hér um hálfs árs skeið, sömdu raunverulega áætlun, sem þeir lögðu í hendur ríkisstj. í árslok 1961. En sú áætlun, sem þeir gerðu, hefur aldrei verið birt, og í grg. fyrir þeirri áætlun, sem hér liggur nú fyrir til umr., er sagt, að áætlun hinna erlendu sérfræðinga hafi verið svo ófullkomin, að það hafi ekki þótt tiltækilegt að leggja hana fram, en hins vegar hafi íslenzkir ráðunautar ríkisstj. í efnahagsmálum þó getað stuðzt við þessa áætlun, þegar þeir sömdu þá áætlun, sem hér er nú lögð fram. Það kom auðvitað engum á óvart, að það mundi verða ærið erfitt verk fyrir erlenda menn, gersamlega ókunnuga íslenzkum staðháttum og atvinnulífi, að semja, miðað við þau gögn, sem hér liggja fyrir, þjóðhagsáætlun eða framkvæmdaáætlun við hæfi Íslendinga. En það hefur nú komið fram í mörgum greinum, að hæstv. ríkisstj. hefur borið mikið traust til erlendra sérfræðinga og leitað til þeirra í mörgum efnum, og hún ætlaði auðvitað að láta þá leysa þennan vanda, en það hefur greinilega mistekizt.
En þó að langur tími hafi nú liðið frá því, að loforð voru gefin um, að áætlanir af því tagi, sem hér um ræðir, yrðu lagðar fram, þar til áætlunin loksins hefur birzt, er í rauninni ekkert við því að segja, ef þá það verk, sem nú liggur hér fyrir, væri þannig unnið, að hægt væri að tengja við það einhverjar verulegar vonir um, að þannig ætti í framtíðinni að taka á atvinnu- og framkvæmdamálum í okkar landi, að telja mætti til verulegra bóta frá því, sem áður var, þannig að það gæti skilað þjóðarbúinu meiri og betri árangri en það skipulagsleysi, sem við höfum óneitanlega búið við um langan tíma.
Það er mín skoðun, að heldur laklega hafi tekizt til með þessa áætlunargerð og það sé lágt risið á þessari áætlun. Í fyrsta lagi er það svo, að það virðist enn vera meining hæstv. ríkisstj., að ekki verði horfið frá skipulagsleysinu varðandi rekstur þjóðarbúsins í heild, heldur eigi skipulagsleysið raunverulega að halda áfram og áætlunin, að því leyti til sem hún er gerð, eigi aðeins að vera leiðarvísir, sem menn megi líta á og fara eftir, þegar það henti þeim, en hins vegar séu engar skuldbindingar gefnar um það, að eftir áætluninni eigi að fara, og engar verulegar ráðstafanir eru gerðar til þess að sjá um framkvæmd áætlunarinnar. Við Alþýðubandalagsmenn höfum nú um margra ára skeið lagt hér fram á Alþingi till. um það, að tekinn yrði upp hér á landi að meira eða minna leyti áætlunarbúskapur, þ.e.a.s. að gerðar yrðu áætlanir bæði til stutts tíma og langs tíma um það, í hvaða átt ætlazt er til af stjórnarvöldum landsins að atvinnulíf landsmanna þróist, að hvaða marki sé stefnt, og að tilheyrandi ráðstafanir séu gerðar til þess að fara eftir slíkum áætlunum, að framkvæma þær, og jafnhliða þessu sé greinilega raðað niður fyrir fram, í hvaða fjárfestingarframkvæmdir skuli leggja hverju sinni, og þannig unnið að því eftir fyrirframgerðri áætlun. Það er auðvitað enginn vafi á því, að skipulagsleysið, sem við höfum búið við í þessum efnum, hefur reynzt íslenzku þjóðarbúi kostnaðarsamt. Það er engin von til þess, að fjárfesting, án þess að um hana séu gerðar áætlanir fyrir fram að vel athuguðu máli, verði á þann hátt eftir hendingunni einni, að þjóðarbúinu verði það hagstæðast. En við höfum líka vitað það, Alþýðubandalagsmenn, þegar við höfum lagt fram till. um þetta, að það var grundvallarskoðanamunur á milli okkar og ýmissa annarra um, hversu réttmætt það væri að stefna inn á þessa nýju braut og byggja rekstur þjóðarbúsins að meira eða minna leyti á áætlanagerð eða samkv. fyrirframgerðum áætlunum. Sjálfstfl. hefur margsinnis lýst því yfir, að hann væri í grundvallaratriðum á móti því að gera slíkar áætlanir þannig, að þær væru gerðar bindandi. Hann hefur sagt þvert á móti, að hann vildi, að allir hlutir í þessum efnum væru, eins og það hefur verið svo fagurlega orðað, sem frjálsastir fyrir fyrirtæki og einstaklinga og hver og einn gæti valið það úr, sem honum sýndist. Á þennan hátt hefur það verið stefnuskráratriði þeirra sjálfstæðismanna, að það ætti í rauninni engin yfirstjórn að vera á innflutningi til landsins eða stjórn gjaldeyrismálanna, þar ætti að ríkja hið ótakmarkaða frelsi. Hver og einn kaupsýslumaður gæti fengið eins mikið af gjaldeyri og honum sýndist og gæti ráðstafað þeim gjaldeyri eins og honum sýndist. Það væri á valdi einstaklinganna í landinu að velja á milli þess, hvort menn vildu flytja inn óhóflega mikið af bílum á einu ári og draga þá að sama skapi t.d. úr innflutningi framleiðslutækja, eins og átt hefur sér stað hvað eftir annað í stjórnartíð þeirra sjálfstæðismanna og nú síðast á s.l. ári, þegar við notum meira af okkar gjaldeyri til innflutnings á bílum, mestmegnis til almennrar eyðslu, heldur en við notum gjaldeyri til innflutnings á fiskiskipum. Sjálfstfl. hefur talið það haft á framtaki einstaklingsins, á frelsi einstaklingsins, að hann yrði að fara eftir fyrirframgerðum áætlunum varðandi framkvæmdir í landinu, varðandi atvinnulega uppbyggingu og varðandi rekstur þjóðarbúsins í heild. Það þarf því í rauninni engan að undra, þó að þessi áætlun, sem hér er nú lögð fram, sé í þeim búningi, að fram sé tekið í margs konar fyrirvörum með henni, að í raun og veru hafi ekki verið teknar ákvarðanir um neitt af meginefni þessarar áætlunar, að hún skuli raunverulega framkvæmd. Sjálfstfl. vill halda því áfram, að valið í þessum efnum geti verið í hendi hvers einstaklings fyrir sig eða í hendi hvers atvinnufyrirtækis um sig. Það er líka, eins og hér hefur þegar komið fram í þessum umr., mjög glöggt í þessari áætlun, að fyrirvarar eru margir og miklir um, að það megi ekki líta á þessa áætlunargerð sem neitt bindandi, hún eigi aðeins að verða til hliðsjónar eða viðmiðunar, en skuldbindingar séu engar um það, að eftir áætluninni verði farið.
Ég sagði hér áðan, að mér þætti risið á þessari þjóðhagsáætlun, sem hér er gerð fyrir næstu 4 ár, þ.e.a.s. árin 1963–1966, heldur lágt. Samkv. þessari áætlun er gert ráð fyrir því, að þjóðarframleiðslan eigi að vaxa á áætlunartímabilinu frá 1963–1966 um 4% á ári að meðaltali. Þetta er mun minna en hefur verið á undanförnum árum. Á árunum 1955–1959, þessu líka vandræðatímabilinu, sem var næst áður en viðreisnarstjórnin tók við og hún kvað upp þann dóm um að hefði leitt til þess, að þjóðin væri raunverulega að farast efnahagslega og af því þyrfti að grípa til nýrrar viðreisnarstefnu, — á því árabili, frá 1955–1959, jókst þjóðarframleiðslan um 4.4% á ári. En nú á árunum 1963–1966 er ætlazt til þess, að meðaltalsaukningin verði 4%. Ekki er nú risið hátt. Þjóðartekjurnar á undanförnum árum hafa þó verið mun hærri en þetta, vegna þess að á mörgum af þessum árum hafa viðskiptakjörin farið batnandi. Þjóðartekjurnar hafa verið mun hærri á undanförnum árum en nú er gert ráð fyrir. Í þessari áætlun er gert ráð fyrir minni fjárfestingu, fyrir minni fjármunamyndun í landinu en hefur verið á undanförnum árum. Nú er gert ráð fyrir því, að fjármunamyndunin muni verða um 26% að meðaltali á ári, en á árunum frá 1955–1962 var meðaltalið 27.8%, og á vandræðatímabilinu frá 1955–1959 var það þó mun hærra.
Menn gætu kannske haldið, að nú væri áætlað, að fjármunamyndunin yrði í ýmsum þeim greinum í þjóðarbúskapnum, sem hefðu meiri almenna þýðingu fyrir þjóðarbúskapinn en áður var. Nú væri t.d. lögð meiri áherzla á það, að þjóðin festi fjármuni sína í uppbyggingu atvinnulífsins, í uppbyggingu atvinnuveganna, heldur en áður var, en minna í ýmsum öðrum verðmætum, sem er gott að eiga og gott að njóta, en vitanlega skila ekki af sér jafnmiklum þjóðartekjum. En þessu er alveg öfugt farið. Á fyrra tímabilinu var fjármunamyndun þjóðarinnar einmitt mikil í uppbyggingu atvinnulífsins, í uppbyggingu fiskiskipaflotans, í uppbyggingu fiskiðnaðarins og öðrum slíkum framkvæmdum. En nú er því lýst yfir í þessari framkvæmdaáætlun ríkisstj. fyrir næsta 4 ára tímabil, að í þessum efnum þurfi ekki mikið að gera, en aukningin hins vegar frá síðustu árum eigi að liggja á allt öðrum sviðum, nú eigi að leggja meira í vegagerð, byggingu skóla og í raforkuframkvæmdir en þessi síðustu ár, þegar hefur verið alger stöðnun í þeim efnum, t.d. viðvíkjandi byggingu raforkuvera. Það á beinlínis að stefna að því eða því er raunverulega slegið föstu, að fjárfestingin, sem áður var í atvinnuvegunum, hafi verið það rífleg, að enn um sinn megi reikna með 4 árum, þannig að lítið þurfi í þeim efnum að gera, enn sé hægt að búa að því, sem áður var gert varðandi rekstur þjóðarbúsins, og það sé hins vegar rétt að leggja fjármunamyndunina í annað, sem minna er framleiðslugefandi.
Það er einnig gert ráð fyrir því, að á þessu næsta 4 ára tímabili verði haldið áfram þeirri stefnu síðustu þriggja ára a.ð reikna með því, að einkaneyzlan í landinu, þ.e.a.s. það, sem þjóðin fær að spila úr í almenna neyzlu, skuli enn þá halda áfram að verða mun minni en framleiðsluaukningin í landinu segir til um. Áfram á að halda þeirri stefnu þannig, að einkaneyzlan á að vaxa um minna frá ári til árs á þessu tímabili áætlunarinnar en áður var. Á tímabilinu frá 1955–1959 óx einkaneyzlan um 4.6% á ári að meðaltali, en nú er gert ráð fyrir því, að hún eigi að vaxa um 3.8 %.
Nei, það er ekki hátt risið á þessari framtíðaráætlun, það er beinlínis sveigt niður á við. Menn hafa ekki trú á því, að efnahagsmál þjóðarinnar séu þannig, að þau fái einu sinni risið undir svipuðum vexti og verið hefur hér á undanförnum árum. Í grg. áætlunarinnar er þetta líka tekið fram alveg berum orðum. Þegar vikið er að atvinnuvegunum, segir þar alveg skýrum orðum á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta: „Í stórum dráttum má segja, að ekki sé gert ráð fyrir neinum meiri háttar breytingum á fjárfestingu í atvinnuvegunum frá því, sem verið hefur á undanförnum árum.“ Og enn fremur segir í grg.: „Það er því ekki aukning fjárfestingar í atvinnuvegunum, sem mest ríður á, heldur betra val framkvæmda.“ Það var nú svo: betra val framkvæmda. Það skyldi þá verða betri grundvöllur til þess að byggja á í framtíðinni með vaxandi þjóðartekjur að auka stórlega fjárframlög til vegagerða og skólabygginga, þó að þetta hvort tveggja sé út af fyrir sig gott, heldur en til þess að byggja upp aðalatvinnuvegi landsins, eins og áður hafði verið gert. Það skyldi þó reynast svo, að það væri betra. Það er þá alveg ný kenning. En þetta kemur manni ekki ýkjamikið á óvart, þegar maður hefur fylgzt með því að undanförnu, hvernig sérfræðingar hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, þeir sem auðvitað ráða svo að segja öllu um samsetningu þessarar áætlunar, hugsa og hafa ráðgert þróun þessara mála. Aðalráðunautur ríkisstj. í efnahagsmálum, Jónas Haralz, hefur lýst því yfir opinberlega, að hann telji, að það sé útilokað, að aðalatvinnuvegir landsmanna, sem verið hafa, sjávarútvegur og landbúnaður og iðnaður fyrir innanlandsneyzlu, geti á næstu árum gefið það svigrúm, eins og hann orðaði það, til vaxandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekna, sem nauðsynlega verði að gera ráð fyrir. Þessi ráðunautur ríkisstj. lýsir því alveg hispurslaust yfir, að það sé hans álit, að þessum aðalatvinnuvegum okkar sé ekki á að byggja í þessum efnum, þeir muni ekki duga til, það verði að leita nýrra úrræða, eins og hann hefur sagt. Það er varla von, að áætlun, sem kemur frá honum, geri ráð fyrir því, að byggt sé á því, að sjávarútvegur okkar geti aukið framleiðslu sína til verulegra muna og hægt sé að reikna með auknum þjóðartekjum frá honum á komandi árum, enda hefur hann haldið því fram, að hámarkið, sem reikna megi með í auknum útflutningi af hálfu sjávarútvegsins, sé 4.5% að meðaltali á næstunni. Reynslan s.l. ár, 1961 og 1962, sýnir reyndar, að aukningin er full 28%, en ekki 9%, eins og hann virðist reikna með í þessum efnum. Þegar þessi sérfræðingur ríkisstj. í efnahagsmálum hefur lýst þessu yfir, hefur hann jafnframt undirstrikað það, að af þessum ástæðum teldi hann, að það yrði að finna nýjar leiðir í efnahagsmálum þjóðarinnar,og þessar leiðir eigi að vera stóriðja, sem eigi að byggjast á erlendu fjármagni, einkafjármagni, eins og hann hefur sagt, og opinberu fjármagni jöfnum höndum, og hann hefur ekki séð aðrar leiðir til þess, að hægt væri að tryggja Íslendingum á næstu árum sambærilegan hagvöxt og nágrannaþjóðir okkar hafa búið við að undanförnu. En í þessa áætlun, sem hér er lögð fyrir, vantar svo allt um stóriðjuna. Þar er ekki eitt einasta orð um hana. Það er allt látið liggja fyrir utan garð, og útkoman verður auðvitað sú, að hann treystir sér ekki til þess að gera þar áætlun, nema sem stefni niður á við, sem geri ráð fyrir minnkandi þjóðarframleiðslu og minnkandi þjóðartekjum frá ári til árs frá því, sem verið hefur á undanförnum árum.
Það er enginn vafi á því, að hér er um mikið vanmat að ræða á möguleikum hjá aðalatvinnuvegum okkar Íslendinga. Það hefði sannarlega verið hægt að gera hér þjóðhagsáætlun fyrir næsta 4 ára tímabil og framkvæmdaáætlun fyrir það tímabil, sem hefði verið byggð á því, að okkar útflutningsframleiðsla og heildarframleiðsla hefði stóraukizt og þjóðartekjurnar vaxið miklum mun meira en gert er ráð fyrir í þessari áætlun, ef menn hefðu trú á þeim möguleikum, sem ég álít að sjávarútvegur okkar búi yfir. Þessir sömu aðilar, sem að þessari áætlun standa, höfðu enga trú á því, sem var verið að gera á árunum 1956–1959. Þeir héldu því fram, að nokkrar lántökur erlendis til þess að byggja upp okkar fiskiskipastól væru að koma þjóðinni á vonarvöl efnahagslega. Og fylgismenn hæstv. ríkisstj. hér á Alþingi og þ. á m. fiskimálastjóri landsins voru svo glámskyggnir á það, sem þá var verið að gera, þegar var verið að breyta okkar fiskiskipaflota frá því að vera almennt 60–70 tonna bátar og upp í það að vera 150–250 rúmlesta skip, sem áttu að leggja undir sig ný veiðisvæði og nýja veiðimöguleika, að þeir fluttu hér á Alþingi till. um það, að vegna þess að þessi nýju skip, sem nú væri búið að æða út í að kaupa og væru allt of dýr í stofnkostnaði og órekandi hér á fiskimiðunum við Ísland, þá skoraði Alþingi á ríkisstj. að láta fara fram sérstaka athugun á því, hvort ekki væri mögulegt að senda þessi dýru skip til Afríku og láta þau veiða þar. Hinn mikli vöxtur þjóðarframleiðslunnar nú og hinn mikli vöxtur þjóðarteknanna á undanförnum árum hefur einmitt byggzt á þessum ráðstöfunum, sem gerðar voru á árunum 1956–1959 varðandi sérstaklega uppbyggingu sjávarútvegsins. Það væri enn hægt að gera alveg hliðstæðar áætlanir og hliðstæðar framkvæmdir og þá var gert, ef menn vantaði ekki trúna á, hvað hægt væri að gera í þessum efnum.
Ég skal nú ekki efna hér til allt of langra eða almennra umr. um þessi mál, ég veit, að tíminn er naumur til starfa hér á Alþingi, en vissulega gefur þessi áætlanagerð og það, sem henni fylgir, tilefni til þess, að gripið sé niður á þessum málum allvíða. Ég tel, að aðalatriðin, sem liggja fyrir varðandi þjóðhagsáætlunina, sem hér er lögð fram, séu þessi:
Í fyrsta lagi er það, að þessi áætlun er um óákveðnar hugmyndir, og því er lýst yfir, að engin skuldbinding fylgi því, að farið sé eftir áætluninni. Í öðru lagi kemur í ljós, að það er ekki gert ráð fyrir í þessari áætlun neinum teljandi breytingum varðandi þróun atvinnuveganna, varðandi þróun atvinnulífsins. Það er gert ráð fyrir því að byggja í öllum aðalatriðum á því, sem fyrir er. Fjárfesting í landinu almennt á að fara minnkandi. Það er gert ráð fyrir því, að framleiðsluaukningin og aukning þjóðartekna fari minnkandi frá því, sem var. Það er áfram gert ráð fyrir því að reyna að halda kaupgetunni niðri, að kaupgetan vaxi minna frá ári til árs en framleiðsluaukningin gefur tilefni til. Áætlunin er greinilegur vottur um skilningsleysi og vantrú á aðalatvinnuvegi landsmanna og þá möguleika, sem þeir gefa. Í áætlunina vantar allan stórhug. Þetta sýnist mér vera aðalatriðið varðandi þessa þjóðhagsáætlun. Um sjálfa áætlunina, þessa svonefndu framkvæmdaáætlun fyrir árið 1963 eða það, sem eftir er af því ári, er ekki þörf að fara mörgum orðum. Hún er svo augljóslega sett upp þannig, að þar á að vera um kosningaáróðursplagg að ræða af hálfu stjórnarflokkanna, enda er það í rauninni engin tæmandi framkvæmdaáætlun. Það er gerð grein fyrir því, að ríkisstj. hafi verið að útvega að undanförnu 472 millj. kr. með lántöku í Englandi, með lántöku í Bandaríkjunum, sérstöku vörukaupaláni þar, og með lántökum hjá ýmsum innlendum peningastofnunum, og síðan er gerð grein fyrir því, í hvað þetta fé eigi að fara í stórum dráttum, og þar tilnefndir nokkrir almennir lánasjóðir og nokkrar almennar framkvæmdir, sem lengi hefur verið beðið eftir eða lengi hafa staðið yfir, og þetta fé á að fara í það. Af þessu munu ríkisstjórnarflokkarnir að sjálfsögðu guma í komandi kosningabaráttu, þetta hafi þeir útvegað, þetta standi til. En þetta er ekkert frábrugðið venjulegum kosningatill. Hér er því ekki brotið neitt blað frá því, sem verið hefur áður í okkar stjórnmálasögu hvað þetta áhrærir.
Nei, það hefði vissulega verið mikil þörf á því, að gerð yrði áætlun í þeim anda, sem við Alþb.-menn höfum flutt hér till. um á undanförnum árum, — áætlanir, sem hefðu miðað að því að taka hér stjórn á okkar almenna þjóðarbúskap, þ.e.a.s. að gerðar séu áætlanir um skipulega uppbyggingu atvinnulífsins, ákveðna þróun atvinnuveganna með það fyrir augum, að þeir geti skilað í þjóðarbúið meiri afrakstri en áður, og að fjárfestingin sé felld inn í sérstaka áætlun, sem unnið sé eftir. Á því hefði verið brýn þörf, og það hefði verið brýn þörf á því, að stjórnarvöld landsins hefðu síðan tekið á sig beina og óbeina skuldbindingu um það, að eftir slíkum áætlunum skyldi farið.
Ég sé ekki mikla ástæðu til þess að fara hér út í almennar umr. um ýmislegt af því, sem stendur í þessari þjóðhags- og framkvæmdaáætlun, né heldur því, sem hæstv. forsrh. vék hér að. Sumt af því, sem þar er sagt, og sumt af því, sem hæstv. forsrh. endurtók hér í sinni ræðu, er að mínum dómi hin furðulegasta fjarstæða. Ég skal nefna aðeins eitt í þessum efnum. Það er verið að víkja að því iðulega í þessari grg., að hagvöxturinn á Íslandi hafi verið með allt öðrum hætti og miklu lakari en í nágrannalöndum okkar á tímabilinu eftir stríðið og það sé ekki fyrr en nú fyrir stuttu, að við höfum aftur náð svipuðum hagvexti og var á styrjaldarárunum. En hins vegar hafi þetta gengið allt saman miklu betur fyrir sig í nálægum löndum, og svo er því slegið föstu, að ástæðurnar til þess séu þær, að hér hafi verið beitt rangri efnahagsmálastefnu, en í nágrannalöndum okkar hafi verið beitt jafnvægisstefnu. Þetta eru auðvitað hinar herfilegustu blekkingar að mínum dómi. Fram hjá því er hlaupið í þessum efnum, að á styrjaldarárunum og í lok stríðsins voru þjóðartekjur Íslendinga á ári hverju, þá var þjóðarframleiðslan hér í algeru hámarki. Þá vann hér svo að segja hvert mannsbarn. Þá voru öll tæki þjóðarinnar notuð til fulls og allt vinnuafl. Og þá var hér geysilega ör hagvöxtur. Þá var verðlag allt gífurlega hátt, aflinn allur miklu meiri en áður hafði þekkzt, og á þessum árum, eins og 1942, 1943 og fram á 1944, höfðum við úrvals síldarár og gífurlega hátt verð fyrir afurðir. Svo kemur tímabil á eftir hjá okkur, þegar við förum að glíma við það, að við förum úr háum hagvexti og gífurlega mikilli framleiðslu og gífurlega háum tekjum á hvern einstakling í landinu, og við verðum að mæta þá síldarleysisárum, minnkandi atvinnu í ýmsum efnum, minnkandi afla á miðunum, stórlækkuðu verðlagi erlendis, en ný tæki okkar, sem voru margfalt afkastameiri en þau, sem við byggðum á áður, jöfnuðu þetta tiltölulega fljótt. En erlendis, í þeim löndum, sem er verið að miða við, hafði framleiðslan á styrjaldarárunum dottið langt niður fyrir það, sem áður hafði verið. Þá voru atvinnuvegirnir þar í öngþveiti. Þar þurfti á mikilli uppbyggingu að halda. Hjá þeim er því miðað við lágmark, og þeir hafa verið að vinna sig áfram, vinna sig upp á við allan tímann. Við vorum hins vegar að koma frá algeru hámarki, frá hápunkti. Og svo segja menn í þessum samanburði: Hagvöxturinn hefur ekki orðið eins mikill á Íslandi frá ári til árs, frá hápunktinum, og vöxturinn hefur verið í löndunum í kringum okkur frá lágmarkinu og nokkuð upp eftir. — En þessir sömu menn, sem þetta segja og svona rök nota, verða þó að slá því föstu í grg. áætlunarinnar, að þjóðartekjur á Íslandi séu fyllilega eins háar og í iðnþróuðu löndunum í kringum okkur, þar sem þær eru einna hæstar, og að þjóðartekjurnar á hvern einstakling séu eins háar og hærri en í flestum nálægum löndum.
Nei, það er ekki það, sem hefur ráðið úrslitum nú hjá okkur, að nú síðustu árin hafi ný efnahagsmálastefna, svonefnd jafnvægisstefna, skilað okkur vaxandi þjóðartekjum eða örari vexti en áður var. Það, sem hefur gerzt, er einmitt hitt, að sú efnahagsmálastefna, sem hér var ríkjandi, áður en viðreisnarstefnan tók við, skildi eftir sig þær aðstæður í atvinnulífi landsins, hún skildi eftir sig þær kringumstæður, að við getum búið við slíka framleiðsluaukningu eins og við höfum búið við nú s.l. tvö ár. En framkvæmdir sjálfrar jafnvægisstefnunnar hafa ekki leitt til þess, að aflinn hafi vaxið eða þjóðartekjurnar hafi vaxið, síður en svo.
Ég skal svo láta þessum umr. lokið hér af minni hálfu, en segi það aðeins að lokum, að það er illt til þess að vita, að jafnnauðsynlegt mál og hér er tekið á, þessi áætlunargerð, skuli hafa tekizt jafnlaklega og raun ber vitni um.