15.10.1962
Neðri deild: 3. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (1845)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Utanrrh. (Guðmundur I. Guðmundsson):
Ég get ekki neitað mér um að hressa aðeins upp á minni hv. þm. Hann gat þess í ræðu sinni, að hér gætu engar varnir orðið, sem okkur mættu að gagni koma. Sérhverjar varnir, sem hér væru viðhafðar, væru eingöngu til þess að bjóða hættunni heim. Þessar hugleiðingar hans eiga að sjálfsögðu ekki við okkur eina, heldur býst ég við, að þær eigi einnig við um önnur ríki í Vestur-Evrópu. En má ég minna þennan hv. þm. á, að áður en Atlantshafsbandalagið var stofnað, gleypti hinn alþjóðlegi kommúnismi hvert ríkið á fætur öðru í Austur-Evrópu. Hvert ríkið á fætur öðru í Austur-Evrópu glataði frelsi sínu og sjálfstæði í hendur hins alþjóðlega kommúnisma, áður en Atlantshafsbandalagið var stofnað. Eftir að það var stofnað og ríkin fóru sameiginlega að byggja upp og efla varnir sínar, þá hefur ekki eitt einasta ríki í Vestur-Evrópu glatað frelsi sínu og sjálfstæði í hendur hins alþjóðlega kommúnisma. Svo getur hv. þm. komið og frætt okkur um, að varnir séu þýðingarlausar og einskis virði. Slík orð er að sjálfsögðu hægt að viðhafa, en það trúir þeim bara enginn og sízt af öllu hv. þm. sjálfur.