06.02.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Í sambandi við þá fsp., sem hér kom fram frá hv. 2. landsk., þykir mér rétt, vegna þess að svo vill til, að ég á sæti í verðlagsnefnd, sem fjallar um beiðnir frá atvinnurekendum um hækkun á útseldri vöru og þjónustu, að upplýsa það, að mér er ekki kunnugt um, að að svo stöddu hafi komið nein tilmæli til verðlagsnefndar um það, að sú 5% kauphækkun, sem nú hefur verið samið um, yrði að fullu reiknuð inn í verðlagið. Mér er ekki kunnugt um, að þessi tilmæli hafi enn þá komið fram, en hvort það kann að verða síðar, veit ég ekki. Hins vegar mun það, sem hv. þm. hefur fyrir sér og mun ástæða til þess, að hann hreyfir þessu máli hér nú, vera það, að það er rétt, að atvinnurekendur hafa farið fram á við verðlagsyfirvöldin, að útseldar vinnustundir yrðu hækkaðar sem kauphækkuninni nemur, en það er allt annað en að heimilað sé að reikna þessi 5% inn í verðlagið. Slíkt snertir aðeins þau fyrirtæki, sem selja út vinnustundir.
Nú hefur verðlagsnefnd ekki tekið afstöðu til þessa erindis enn þá. Hins vegar hefur það verið venjan, nema þá að alveg sérstaklega standi á, að heimila fyrirtækjum að reikna útseldar vinnustundir á því verði, sem viðkomandi aðilar kaupa þær inn, enda er málið í rauninni hliðstætt því, að innkaupsverð vöru hækki. En hver sem afgreiðsla þess máls verður, sem ég skal ekkert segja um, þá mundi það hafa mjög lítil áhrif á verðlagið, þótt heimilað yrði að hækka verð þessara útseldu vinnustunda. Hvort möguleiki verður svo á því að koma að öllu leyti í veg fyrir það, að verðlagið hækki eitthvað vegna þeirra kauphækkana, sem um er að ræða, skal ég ekki segja um að svo stöddu. Ég geri ráð fyrir því, að verðlagsyfirvöldin muni hér eftir sem hingað til reyna til hins ýtrasta að koma í veg fyrir slíkt. En það verður komið undir mati á því, hvort atvinnuvegirnir geti borið hér kauphækkanir, sem um er að ræða. En enn sem komið er er mér ókunnugt um, að tilmæli hafi borizt frá atvinnurekendum um annað en þetta, sem ég upplýsti.