29.03.1963
Neðri deild: 62. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1869)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég man nú ekki til að það hafi hent hér á hv. Alþingi, síðan ég kom hingað, að það hafi gerzt sama daginn, að mér hafi verið þakkað fyrir upplýsingar og lýst yfir, að ég væri að sýna andstæðingi mínum heiður. En ég get ekkert sagt annað við hæstv. ráðh. og hv. 5. þm. Vesturl. heldur en: Verði ykkur að góðu.

Út af því, sem hv. 5. þm. Vesturl. sagði, að þetta væri einkabréf, þá held ég, að verði frekar að líta á þetta sem dreifibréf, því að bréf, sem sent er áhugamönnum í Vesturlandskjördæmi, er að mínum skilningi allvíðtækt, svo að það getur tæplega flokkazt undir það að vera einkabréf.

Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, ætla ég ekki að ræða neitt um þann ágreining, sem er innan stjórnarflokkanna, og gerði ekki hér áðan, því að það kemur ekkert við mig. Ég læt það mál algerlega afskiptalaust. Ég sagði ekki heldur, að hæstv. ráðh. hefði lýst því yfir, að þetta mál yrði lagt fyrir þingið eða afgreitt hér á hv. Alþingi. Það voru ekki mín orð. Og ég minnist þess ekki, að hann hafi gert það. En hins vegar gat ég þess, að í blöðum stjórnarflokkanna hefði þetta komið fram, og í því sambandi vil ég vitna í Alþýðublaðið frá 30. sept. Í greininni „Um helgina“ er það tekið fram, að miklar líkur séu til þess, að þetta mál verði til lykta leitt á Alþingi því, sem þá var að hefjast eða þá var nýhafið. Í Reykjavíkurbréfi 7. okt. í Morgunblaðinu segir m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta: „Þá er sennilegt, að frv. til nýrra vegalaga verði lagt fyrir þingið.“ Í grein, sem hæstv. fjmrh. skrifaði, þegar þingstörf hófust nú að nýju í lok janúar, þá gerði hann ráð fyrir því, að þetta mál yrði lagt fyrir þingið. Og í nál., sem er frá 29. nóv. s.l., gerir meiri hl. samgmn. Ed., en frsm. fyrir því nál. er hv. þm. Bjartmar Guðmundsson, þá gerir hann ráð fyrir því og þeir í nál., að líkur séu til þess, að þetta mál verði lagt fyrir þingið, og hv. þm. mun eiga sæti í þessari mþn. En út af því er ég ekki að ræða neitt sérstaklega, að þetta skyldi ekki hafa verið lagt fyrir þingið, heldur um aðgang að nál., og þar vékst hæstv. ráðh. undir, að hann ætlaði að athuga það fyrir mig sérstaklega, og þakka ég honum vinsemdina og lít svo á, að það sé af því, að ég var 1. flm. að frv. um nýja tekjustofna fyrir vegagerðir í landinu, sem till. fjvn. var síðan að nokkru leyti byggð á, og ég eigi að njóta þess hjá hæstv. ráðh., og þakka ég það, þegar ég fæ nál. í hendur. En hitt finnst mér alveg óeðlilegt, að einstakir nm. megi birta svo verulega hluta úr nál., áður en þm. fá aðgang að því, eins og hér er gert. Og þar var líka ástæða til þess, að í þessu bréfi er það einnig tekið fram, að n. hafi skilað áliti og lokið störfum. Þess vegna var það ekki að ástæðulausu, þó að ég spyrði hæstv. ráðh. um það, hvort bannið væri upp hafið, og ég treysti því, að ég fái nú nál.