06.02.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1973 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (FS):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt frá forseta Nd.:

„Reykjavík, 6. febr. 1963.

Mér hefur hinn 1. febr. s.l. borizt svo hljóðandi bréf frá Ágúst Þorvaldssyni, 2. þm. Sunnl.:

„Vegna anna heima fyrir mun ég ekki geta sinnt þingstörfum nú um skeið. Óska ég því þess, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að 1. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Helgi Bergs verkfræðingur, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jóhann Hafstein,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Samkv. þessu bréfi tekur Helgi Bergs varaþingmaður sæti Ágústs Þorvaldssonar. Kjörbréf hans hefur áður verið rannsakað og samþykkt, og ég býð hann hér með velkominn.