18.03.1963
Sameinað þing: 40. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur borizt svofellt bréf:

„Reykjavík, 15. marz 1963.

Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir mun ég ekki geta sinnt þingstörfum nú um skeið. Óska ég því þess, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að vegna veikindaforfalla 1. varamanns Framsfl. í Suðurlandskjördæmi verði 2. varamaður flokksins, Óskar Jónsson bókari, kvaddur til að taka sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhann Hafstein,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs þings.“

Með bréfi þessu fylgir bréf frá Helga Bergs um veikindaforföll hans og í öðru lagi kjörbréf gefið út af yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis til handa Óskari Jónssyni.

Hlé verður nú gert á fundinum, meðan kjörbréfanefnd fjallar um kjörbréfið, og verður hringt til fundar, þegar hann hefst að nýju. —[Fundarhlé.]