20.12.1962
Sameinað þing: 25. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

Þingsetning

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég að tilskildu samþykki Alþingis veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 83. löggjafarþings, frá 20. des. 1962, eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 29. janúar 1963.

Gert í Reykjavík, 20. des. 1962.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.“

Samkv. þessu umboði lýsi ég hér með yfir því, að fundum Alþingis, 83. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag að telja, og verður það kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 29. jan. 1963. Ég leyfi mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins gleðilegra jóla og farsæls nýárs, og vænti ég, að við hittumst hér heil öll saman í næsta mánuði.