11.12.1962
Efri deild: 28. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í B-deild Alþingistíðinda. (196)
6. mál, almannavarnir
Frsm, meiri hl. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykv. minntist hér á samþykkt, sem hefði verið gerð í bæjarstjórn Reykjavíkur í fyrra, og þetta hefði verið sýndartill. og loftvarnanefnd ekkert í því máli gert. Síðan hefur það gerzt, að einmitt formaður loftvarnanefndar og framkvstj. hennar ásamt borgarlækninum í Reykjavík hafa unnið að því að semja þetta frv., sem hér liggur fyrir, hvort sem hv. þm. vili kalla sjálft frv. sýndarmennsku. Ég býst varla við því. Hann sagði, þegar hann flutti till. sína um að leysa n. frá störfum, að hún hefði ekkert starfað árum saman. Hann tók þannig til orða. Ég vil benda á, að í fskj. II með frv., í bréfi loftvarnanefndar Reykjavíkur, dags. 4. okt. 1961, skýrir n. frá störfum sínum síðasta árið og segir þar m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Fjárveiting til loftvarnamála var engin á fjárlögum fyrir 1957, eins og áður segir. Loftvarnanefnd hélt þó allmarga fundi á því ári og vann áfram að ýmsum málum, sem byrjað hefur verið á.“
Svo eru þar nokkur atriði talin upp. Þá heldur áfram í bréfi loftvarnanefndar, og segir þar frá því, að í júlímánuði kom hingað til lands Sir John Hodsoll, aðalráðunautur NATO í loftvarnamálum. Hann kynnti sér það, sem hér hefði verið gert, sat fundi loftvarnanefndar, og hann átti viðræður við þáv. ríkisstj., eða forsrh., utanrrh. og tvo af starfsmönnum utanrrn. Loftvarnanefnd fékk ekki vitneskju um niðurstöður þeirra viðræðna og beið eftir, að einhverjar orðsendingar bærust henni frá ríkisstj. En þegar komið var að áramótum 1958 og ekki höfðu borizt neinar ábendingar til n. um, að stjórnvöldin hefðu áhuga fyrir áframhaldandi starfi n., og ekkert fé var veitt á fjárlögum til loftvarna, þá töldu nm. sig ekki geta unnið að frekari framkvæmdum. Þá var sýnt, að um áframhaldandi starf hjá n. gat raunar ekki verið að ræða eða var ekki útlit fyrir að yrði að ræða í bráð, og síðan, eins og í bréfinu segir, hélt hún ekki fundi, en framkvstj. sá í samráði við formann n. um varðveizlu á þeim verðmætum, sem n. hafði undir höndum.
Ég held, að það hafi ekki verið fleira í ræðu hv. þm., sem ég sé ástæðu til að svara.