06.04.1963
Sameinað þing: 45. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)
Þingrof
Eysteinn Jónsson. Herra forseti. Ég tel ekki viðeigandi að halda uppi löngum umr. um þetta, þar sem ákvörðun hefur verið tekin. Ég vildi koma á framfæri þessari skoðun, sem ég gerði áðan, og mótmæla þessu.
Ég vil aðeins út af því, sem hæstv. forsrh. sagði, benda á, að þótt vont veður kynni að geta orðið síðast í júní, þá minnka líkurnar fyrir hreinu og beinu illviðri ört, eftir því sem líður á vorið. Í annan stað eru menn alls ekki um þær mundir bundnir við að bjarga lambfé sínu, eins og menn geta óneitanlega verið gersamlega svo snemma í júní sem nú er ráðgert að kjósa.
Í annan stað vil ég benda á, að það er að vísu alveg rétt, að sjómenn fara að heiman, hafa rétt til þess að greiða atkv., áður en þeir fara að heiman, mörgum vikum fyrir kjördag, svo að það er ekki hin minnsta hætta á því, að nokkur maður tapi nokkrum rétti í sambandi við kosningar, þótt hann þurfi að fara að heiman.