06.04.1963
Sameinað þing: 45. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (1962)
Þingrof
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að taka undir þau mótmæli, sem hv. 1. þm. Austf. hefur þegar borið fram gegn ákvörðun kjördags 9. júní, og þá sérstaklega með tilliti til þess landshluta sem ég er hér fulltrúi fyrir.
Ég býst við því, að þessi ákvörðun og þau ummæli, sem hæstv. forsrh. hafði um hana áðan, kunni að einhverju leyti að stafa af ókunnugleika, vegna þess að hann er ekki kunnugur í þeim hluta landsins, þar sem þessi ákvörðun getur komið þyngst niður á almenningi, ef illa tekst til.
Mér er það sérlega minnisstætt, þegar ég var staddur norður við Þistilfjörð fyrir 4 árum, einmitt um sama leyti sem hæstv. ríkisstj. ætlar að láta kosningarnar fara fram og einmitt á þeim mánaðardegi, að ég ætla, eða daginn áður, — ég er ekki alveg viss um, hvort heldur var, — þá mátti heita, að þar væri blindstórhríð á stóru svæði. Það kyngdi niður snjó, og þeir, sem vettlingi gátu valdið, voru önnum kafnir við að leita uppi fé í heimahögum og það, sem komið var inn á heiðar. Fjöldi fjár fannst þá í fönn, bæði fullorðið og lömb, og varð sumu því miður ekki bjargað. Sauðburði var þá ekki lokið á þessum slóðum og mikið af ungum lömbum, sem þetta veður kom hart niður á. Það er vitanlega allt annað, þó að áfelli kunni að koma í lok júnímánaðar, að því leyti, að þá er nokkuð langt liðið frá sauðburði og ekki um unglömb að ræða á þeim tíma vors. Auk þess hygg ég, að það sé mjög sjaldgæft, og ég minnist þess ekki sjálfur, sem er uppalinn í þessum landshluta, að slík áfelli hafi komið eftir 20. júní. Og það er vitanlega engin tilviljun, að hv. Alþingi hefur áður að vel yfirlögðu ráði ákveðið þann kjördag, sem í lögum er, síðasta sunnudag í júní:
Menn mættu einnig minnast þess, sem skeði hér á Alþingi fyrir skömmu, þegar sveitarstjórnarlög voru til umr. Þegar hæstv. ríkisstj. lagði fyrir Alþingi frv. um kjördag, almennan kjördag í maílok, komu svo almenn mótmæli úr sveitum gegn þessum kjördegi, að upp var tekið það ráð að setja í lögin ákvæði um tvo kjördaga, annan við sjóinn í lok maímánaðar, síðasta sunnudag í maí, og hinn í sveitum í júní. Og þessi mótmæli komu að sjálfsögðu einkum frá þeim landshlutum, sem hér hafa verið til umr. Ég veit, að hér á Suðurlandi skiptir þetta minna máli, en Ísland er nú ekki bara Suðurland.
Menn mættu einnig minnast þess, sem skeði hér á Alþingi fyrir skömmu, þegar sveitarstjórnarlög voru til umr. Þegar hæstv. ríkisstj. lagði fyrir Alþingi frv. um kjördag, almennan kjördag í maílok, komu svo almenn mótmæli úr sveitum gegn þessum kjördegi, að upp var tekið það ráð að setja í lögin ákvæði um tvo kjördaga, annan við sjóinn í lok maímánaðar, síðasta sunnudag í maí, og hinn í sveitum í júní. Og þessi mótmæli komu að sjálfsögðu einkum frá þeim landshlutum, sem hér hafa verið til umr. Ég veit, að hér á Suðurlandi skiptir þetta minna máli, en Ísland er nú ekki bara Suðurland.
Hæstv. ráðh. nefndi það sem ástæðu eða afsökun, eins og hann orðaði það, held ég, fyrir þessari einkennilegu afstöðu að fara að breyta lögákveðnum degi, að það mundi vera til hagræðis fyrir sjómenn, sem fara á síld, að þurfa ekki að kjósa þann dag, sem ákveðinn er í lögum, en mega kjósa fyrr. Nú er það svo, eins og hv. 1. þm. Austf. tók fram, að það er að vísu rétt, að margir sjómenn hafa verið farnir á síld í síðari hluta júnímánaðar eða farnir úr sínum heimahögum á síldveiðar einhvers staðar. En fram úr þessu hefur verið ráðið þannig, að þeir hafa haft tækifæri til þess að greiða atkv. og heimild til þess að kosningalögum, sem fólk í sveitum mundi ekki hafa, eins og á stendur. Og ekki hafa verið uppi neinar háværar raddir um, að þetta hafi komið að sök. Auk þess vil ég benda á, að það eru engar sannanir fyrir því, að þessi kjörfundur, 9. júní, komi að neinu haldi fyrir sjómenn. Við vitum, að síldartíminn hefur breytzt mjög. Menn eru á síldveiðum hér sunnanlands alveg fram í júnímánuð, voru það í fyrra, fram í júnímánuð, og nú er því haldið fram, að mig minnir, af fiskifræðingum, að síldveiðarnar fyrir norðan í fyrra hefðu þurft að byrja þrem vikum fyrr en þær gerðu. Ég man ekki betur en ég hafi séð þetta á prenti eða heyrt það í útvarpi frá fróðum manni. Ef þetta er rétt, eru fullar líkur til þess, að mikið af flotanum hér syðra geti verið farið norður fyrir land á þessum tíma, sem kjördagurinn er ákveðinn á. Ég efast þess vegna um, að þessi afsökun sé fyrir hendi, að það sé verið að gera sjómönnum greiða með þessu. En gagnvart fólki í sveitunum í stórum hluta landsins er hér slæm ráðstöfun á ferðinni, og mönnum er að ófyrirsynju gert mikið óhagræði, sem getur orðið til þess, að margir verði hindraðir í því að nota kosningarrétt sinn að þessu sinni. Ég harma það, að þessi ákvörðun hefur verið tekin.