19.04.1963
Efri deild: 82. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)

Starfslok deilda

forseti (SÓÓ):

Þessu síðasta þingi kjörtímabilsins er nú að ljúka. Að öllum líkindum verður þetta síðasti fundur þessarar hd. d. að þessu sinni. Kosningar til Alþingis fara í hönd. Ekki munum við öll hittast hér aftur að þeim kosningum loknum. Bæði er , að aldrei verður vitað fyrir fram, hvernig kosningar falla, og svo hitt að ekki verðum við öll í framboði næst.

Vitað er, að einn þingbróðir okkar, sem sæti á þessari hv. d., verður ekki í kjöri við næstu kosningar. Það er hv. 3. þm Vestf., Kjartan J. Jóhannsson læknir. Ég veit, að um leið og ég mæli fyrir mína hönd, þá mæli ég einnig fyrir hönd allra hv. þdm., þegar ég færi honum beztu þakkir fyrir ágæta og ánægjulega samvinnu og samveru á þessu og undanförnum þingum. Um leið og ég færi honum þessar þakkir, árna ég honum og fjölskyldu hans og venzlafólki allra heilla og ánægjulegrar framtíðar.

Þá vil ég þakka ykkur öllum, hv. þdm., fyrir ágæta samvinnu á því þingi, sem nú er að ljúka. Ég þakka það umburðarlyndi, sem mér hefur verið sýnt sem forseta, og leiðbeiningar mér veittar í starfi. Ég vil einkum þakka skrifurum d. fyrir sérstaka stundvísi og mikið starf vel af hendi leyst. Þá vil ég þakka varaforsetum d. fyrir mér veitta ágæta aðstoð. Skrifstorfustjóra Alþingis, fulltrúum og starfsfólki öllu þakka ég ágætt samstarf. Þessum orðum mínum fylgir til ykkar allra, fjölskyldna ykkar og venzlafólks ósk um gott og farsælt komandi sumar.