20.04.1963
Sameinað þing: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)
Þinglausnir
Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf:
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Alþingi, 83, löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, laugardaginn 20. apríl 1963.
Gert í Reykjavík, 20. apríl 1963.
Ásgeir Ásgeirsson.
Ólafur Thors.
Forsetabréf um þinglausnir.“
Samkv. þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú fara í hönd, og ævarandi blessunar, og ég bið þm. að minnast fósturjarðarinnar, Íslands, með því að rísa úr sætum.
Þingheimur stóð upp, og forsrh., Ólafur Thors, mælti: „ Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tók þingheimur undir orð forsrh. með ferföldu húrrahrópi.