14.03.1963
Neðri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2015)
84. mál, jafnvægi í byggð landsins
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Um þetta mál hefur ekki orðið samkomulag í fjhn., eins og fram kemur af tveimur nál. á þskj. 363 og 379, en í stórum dráttum var afstaða meiri hl. sú, að í raun og veru væri þetta frv. óþarft, en með löggjöfinni um atvinnubótasjóð frá s.l. þingi hefði í meginatriðum verið lögfest það, sem lagt er til, að hér verði lögfest. Þar af leiðandi leggjum við til, að málinu sé vísað frá með rökst. dagskrá, eins og fram kemur á þskj. 363. Það skal að vísu viðurkennt, að samkv. þessu frv., ef að lögum yrði, væri miklu meira fé til umráða til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins og á annan hátt að vinna að tilgangi þessa frv., sem er svipað í meginatriðum og lögin um atvinnubótasjóð, en það út af fyrir sig gefur ekki tilefni til þess að flytja um slíkt mál sérstakt frv. Auðvitað mætti eins afla atvinnubótasjóðnum meiri tekna, enda voru till. fluttar um það á þinginu í fyrra, þegar það mál var afgreitt, um meiri tekjuöflun til atvinnubótasjóðsins.
Það má segja, að það hafi eiginlega sami ágreiningur komið fram við afgreiðslu málsins um atvinnubótasjóð á þinginu, eins og kemur fram í nál. á þskj. 320 frá fjhn. frá s.l. þingi, en þá taldi hv. 1. þm. Norðurl. v., sem mælir nú fyrir frv. og skilar nál. á þskj. 379, að það væri æskilegra, að það kæmi skýrar fram í sjálfu frv. um atvinnubótasjóðinn, að megintilgangur l. væri að vinna að jafnvægi í byggð landsins, og vildi þá láta breyta nafni sjóðsins í jafnvægissjóð í staðinn fyrir atvinnubótasjóð. Aðrir nm. í fjhn. töldu þá hins vegar, að frv. um atvinnubótasjóðinn í heild tryggði að fullu það, sem fram var tekið í þáltill. frá 29. marz 1961, ef samþ. yrðu brtt., sem n. flutti, en það var á grundvelli þessarar þáltill., sem frv. um atvinnubótasjóð var samið, en brtt. n. voru einmitt þær, að það var bætt inn í l. um atvinnubótasjóð að veita lán eða styrki til þess að auka framleiðslu á þeim stöðum í landinu, þar sem þörfin er brýnust, og stuðla þannig að aukinni atvinnu og jafnvægi í byggð landsins.
Í grg. fyrir frv. til l. um atvinnubótasjóðinn var vitnað til þess, að það frv. hefði verið samið af félmrn. samkv. þáltill. frá 29. marz 1961 og við samningu þess hefði verið höfð hliðsjón af hinum ýmsu frv., sem áður hafa verið til meðferðar á Alþingi, svo og af þeirri reynslu, sem fengizt hefur af meðferð atvinnuaukningarfjárins á undanförnum árum, en hér er vitnað til ýmissa frumvarpa, sem áttu að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, og till., sem fram höfðu komið um það efni.
Varðandi svo annan þátt þessa frv. en fjárupphæðina, sem til ráðstöfunar yrði, vildi ég telja um þá áætlunargerð, sem ráðgerð er í I. kafla frv., að það sé að verulegu leyti fyrir henni séð með þeim áætlunum, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir í sambandi við samningu framkvæmdaáætlunarinnar, og einnig af þeim sökum sé ekki sérstök ástæða til þess að samþykkja þetta frv.
Nú vil ég ekki segja, að það mætti ekki margt betur fara í l. um atvinnubótasjóðinn og eitthvað mætti herða á ákvæðum þar, sem lúta að því að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, eins og það er kallað. En ég hefði talið eðlilegt, að það fengist nokkur reynsla af starfsemi sjóðsins og sjóðsstjórnarinnar og breytingar, sem síðar kynnu að verða gerðar og verða sjálfsagt gerðar á þeirri löggjöf, byggðust þá á fenginni reynslu í þessu sambandi.
Með vísun til þess, sem ég nú hef sagt, leggjum við til í meiri hl. fjhn. á þskj. 363, eins og ég sagði áðan, að málið verði afgreitt með eftirfarandi rökst. dagskrá, sem ég vil leyfa mér að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem frv. felur ekki í sér nein nýmæli, sem máli skipta, umfram það, sem þegar hefur verið lögfest í lögum um atvinnubótasjóð frá síðasta þingi, en tilgangur þeirrar löggjafar er fyrst og fremst að stuðla að jafnvægi í byggð landsins og að hagnýtingu góðra framleiðsluskilyrða í landinu, og einnig þegar séð fyrir þeirri áætlanagerð, sem frv. ráðgerir og úthlutun fjármagns skuli byggjast á, sbr. fyrirhugaða framkvæmdaáætlun ríkisstj., telur d. samþykkt frv. með öllu óþarfa og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“