14.03.1963
Neðri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (2017)

84. mál, jafnvægi í byggð landsins

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. fjhn., sem hefur haft frv. á þskj. 104, um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, til meðferðar, hefur, eins og hv. þm. hafa séð og heyrt, klofnað í þessu máli. Meiri hl. birtir nál. sitt á þskj. 363 og leggur til, að málinu verði vísað frá með rökst. dagskrá. Minni hl. n., sem er hv. 1. þm. Norðurl. v., birtir álit sitt á þskj. 379 og leggur til, að frv. verði samþ., en einn nm. virðist ekki hafa skilað áliti, eða a.m.k. liggur það ekki fyrir, svo að ég sjái, hér í skjölum málsins. Hv. frsm. hafa gert grein fyrir nál. sinum, en ég vildi nú með nokkrum orðum taka þátt í þeim umr., sem hér hafa átt sér stað, enda er ég einn af flm. þessa frv.

Hv. meiri hl. n. segir í hinni rökst. dagskrá, sem fyrir liggur, að frv. feli ekki í sér nein nýmæli, sem máli skipta, umfram það, sem þegar hefur verið fest í lögum um atvinnubótasjóð frá síðasta þingi, og með tilliti til þess og til fyrirhugaðrar framkvæmdaáætlunar ríkisstj. telur hv. meiri hl. eins og hann kemst að orði í dagskránni, samþykkt frv. með öllu óþarfa. Ég vil byrja á því að taka undir þau ummæli hv. frsm. minni hl., að mér þykir það undarlegt, að hv. meiri hl. skuli ætlast til þess, að hv. d. rökstyðji dagskrá með því að vitna í fyrirhugaða framkvæmdaáætlun. Varla mætti nú minna vera, ef ætti að rökstyðja mál með þessari framkvæmdaáætlun, heldur en að hún lægi fyrir. Það hefur að vísu heyrzt og er raunar langt síðan því var lýst yfir af hálfu hæstv. ríkisstj., að framkvæmdaáætlun væri í smíðum á hennar vegum. Ég held, að það hafi verið fyrir 1½ ári, sem hæstvirtir ráðherrar létu orð falla um þessa framkvæmdaáætlun. Og það er kunnugt, að hæstv. ríkisstj. hafði í þjónustu sinni erlenda menn fyrir einu eða tveimur árum til þess að vinna að þessari áætlun og hefur síðan enn bætt starfsmönnum við þetta verk, og þrátt fyrir það bólar ekkert á þessari áætlun enn þá. Vera má, að hún eigi eftir að birtast hér, áður en þessu þingi lýkur, en enn þá hefur hún ekki birzt, og þinginu er alls ókunnugt um efni hennar. Þess vegna endurtek ég það, sem ég sagði áðan og hv. frsm. minni hl. vék að, að mér þykir það næsta furðulegt, að hv. meiri hl. skuli ætlast til þess, að Alþingi rökstyðji samþykkt dagskrár með þessu plaggi, sem er ekki til, svo að vitað sé, þó að það kunni að vera væntanlegt og sé sjálfsagt fyrirhugað, eins og komizt er að orði í dagskránni.

Hv. meiri hl. ætlast einnig til þess, að Alþingi samþykki með þessari rökstuddu dagskrá, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, feli ekki í sér nein nýmæli frá þeim lögum, sem nú eru í gildi um atvinnubótasjóð og samþ. voru á síðasta þingi. Ég verð að segja, því miður, að nú þykir mér þessi hv. meiri hl. ósvinnur orðinn, þegar hann setur slíkt á prent, enda var það raunar auðheyrt á ræðu hv. frsm. meiri hl., að hann hefur við nánari athugun á þessu máli, vafalaust síðan nál. var samið, komizt að raun um, að þetta fái ekki staðizt, því að hann vék að því hvað eftir annað, að segja mætti, að lögin frá því í fyrra um atvinnubótasjóð hefðu vissa galla og væru að einhverju leyti öðruvísi en þau ættu að vera og þyrftu umbóta við. Þetta hefur hann við nánari athugun sjálfsagt séð, svo sanngjarn maður sem hann er, að hér hefur verið nokkuð ofmælt. En ég vil leyfa mér í sambandi við þessi ummæli í dagskránni, að frv. feli ekki í sér nein nýmæli, að nefna nokkur atriði í þessu frv., sem ég vil biðja hv. þm. að athuga og hv. nm. í þessum meiri hl., og held ég, að það muni allir, eftir að hafa athugað þessi atriði, gera sér grein fyrir því, hver fjarstæða það er, að þetta frv. feli ekki í sér nýmæli, — fjarstæða, sem ber vott um það, að málið hafi ekki hlotið þá athugun hjá hv. meiri hl., áður en hann gaf út álit sitt, sem það hefði þurft að fá.

Ég vil nefna í þessu sambandi t.d. ákvæði 1. gr. frv., þar sem fram kemur skilgreining á tilgangi l. Slík ákvæði er ekki að finna í gildandi lögum. Ég vil nefna ákvæði 7. gr. frv. um áætlanir þær, sem jafnvægisnefnd er ætlað að gera, og á hvern hátt þær skuli gerðar. Ég vil nefna ákvæðin um tekjuöflun í 9. gr. frv., sem hv. frsm. minni hl. lýsti hér áðan, og í sambandi við þau ákvæði er munar ástæða til þess að vekja athygli á því, að l. um atvinnubótasjóð frá síðasta þingi er ætlað að gilda áfram, þó að þetta frv. yrði að lögum. Ég vil leyfa mér að nefna ákvæði 10. og 12. gr. frv. nm íbúðalán úr jafnvægissjóði. Engin slík ákvæði eru í gildandi lögum. Og ég vil að lokum leyfa mér að nefna ákvæði 13. gr. frv. um sérstakan jafnvægissjóð byggðarlaga. Fleira mætti nefna, en ég vil aðeins drepa á þessi atriði í frv. sem dæmi um þau nýmæli, sem í því eru og hv. meiri hl. hefði getað sannfært sig um að í því voru, ef hann hefði athugað málið nægilega.

Það er rétt, sem hv. meiri hl. segir í nál. sínu, að í grg. stjfrv. um atvinnubótasjóð í fyrra var þess getið, að það væri undirbúið í samræmi við ályktun Alþingis frá 29. marz 1961 um undirbúning frv. En hins minnast hv. þm. sjálfsagt um leið, að um þá þál., sem þarna er vísað til, var verulegur ágreiningur hér í þingi, hvernig hana skyldi orða, vegna þess að ýmsir þm. vildu láta taka það nánar fram í þál., með ákveðnara orðalagi, hvers efnis það frv. ætti að vera, sem ríkisstj. var falið að undirbúa. Brtt. þess efnis komu fram í þinginu á sínum tíma, en voru felldar. Þegar svo frv. kom fram frá hæstv. ríkisstj. í fyrra, hélt þessi ágreiningur áfram, og um efni þess var ágreiningur. Þá voru bornar fram við það brtt., sem hér gengu undir atkv. og voru felldar. Og það er í raun og veru framhald þessa ágreinings frá tveim undanförnum þingum, hvernig snúast skuli við því vandamáli, sem hér er á ferðum, — það er framhald af þeim ágreiningi, sem nú er um að ræða við meðferð þessa máls. Sá ágreiningur, sem verið hefur á tveimur undanförnum þingum um lausn þessara mála og hversu mikilsvert viðfangsefni það væri og hverju til þess kostandi að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, það er sá ágreiningur, sem nú heldur áfram.

Það vill svo til, að í þeim hv. meiri hl., sem nú telur þetta frv. með öllu óþarft og þar með þær ráðstafanir, sem í því felast til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, eru þrír af hv. þm. Reykv. E.t.v. veldur ókunnugleiki þeirra fulltrúa höfuðborgarinnar á þeim viðfangsefnum, sem hér er um að ræða, einhverju um þessa afstöðu þeirra eða eðlilegt annríki við að sinna málefnum hinnar hraðvaxandi höfuðborgar. Þó trúi ég því ekki, ef þessir hv. þm. gefa sér tíma til að íhuga það mikla vandamál, sem hér er um að ræða, að þeir vilji ekki einnig verða því sinnandi. Og hinu vil ég alveg sérstaklega ekki trúa að svo stöddu, að allir samflokksmenn þeirra úr öðrum kjördæmum vilji staðfesta það með atkv. sínu og leggja nafn sitt við það opinberlega í heyranda hljóði hér, að þær ráðstafanir, sem í þessu frv. felast, séu með öllu óþarfar, eins og sagt er í þessari umræddu dagskrártill.

Við 1. umr. þessa máls leyfði ég mér að gera í tölum nokkra grein fyrir þeim gífurlegu fólksflutningum, sem hafa átt sér stað í þessu landi á undanförnum áratugum. Sú athugun, sem ég þar gerði þá grein fyrir, náði þó aðeins til tveggja síðustu áratuga. Ég skal ekki endurtaka þær tölur allar, sem ég þá las hér upp, en ég skal þó nefna það, að aðalmanntalið 1940 og aukamanntalið 1961 sýna, að mannfjöldi í landinu var árið 1940, hinn 1. des., 121474, en hinn 1. des. 1961 var mannfjöldinn 180058. Fjölgunin á 21 ári var 58584, eða 48.2%. Þjóðinni fjölgaði á þessum rúmlega 20 árum um 48.2%, sem er mikil fólksfjölgun. En eins og kunnugt er, hefur fólksfjölgunin hér á landi verið mun meiri nú síðustu 15 árin eða svo heldur en hún áður var, Á sama tíma sem þjóðinni fjölgar þannig í heild um 48.2%, hefur í einum landshluta, þ.e.a.s. á Vestfjörðum, beinlínis orðið fækkun á þessum tíma um 18%. Vestfirðingum hefur fækkað um 18% á þessum rúmlega 20 árum, á sama tíma sem þjóðinni í heild fjölgaði um 48.2%. Í öðrum landshlutum er ekki um beina fækkun að ræða, ekki tölulega fækkun, en í flestum landshlutum er um mikla hlutfallslega fækkun að ræða, þ.e.a.s. fjölgunin er langt undir þeim 48.2%, sem er meðalfjölgun í landinu. Nánar til tekið er þetta þannig, að á Vesturlandi er fjölgunin 22%, en ætti að vera rúmlega 48, á Norðurlandi 11% í stað 48, á Suðurlandi 18% í stað 48 og á Austurlandi 4% — aðeins 4% — í staðinn fyrir 48. Þannig hefur í flestum landshlutum, þ.e.a.s. í meginhluta landsins, orðið fólksfækkun á þessu tímabili, bein fólksfækkun í einum landshluta, þ.e.a.s. á Vestfjörðum, en í hinum landshlutunum hlutfallsleg fólksfækkun. En fólksfjölgunin hefur hins vegar á litlu svæði orðið á þessum tíma miklu meiri en meðaltalið nemur, þannig að ef Kjalarnesþing er tekið í heild, þá hefur á þessum tíma orðið, að ég ætla, 112% fólksfjölgun, á sama tíma sem hún er 48.2% í landinu, og mestur hlutinn af aukningunni, a.m.k. tölulega, kemur að sjálfsögðu á höfuðborgina, Reykjavík, og allra næsta nágrenni hennar.

Þessi þróun er ekki æskileg. Hún er ekki æskileg fyrir landið. Hún er ekki æskileg fyrir landshlutana eða byggðirnar, sem eiga við hið sífellda fólksfækkunarvandamál að stríða og það, sem af því leiðir. Hún er ekki heldur heppileg fyrir þéttbýlið hér syðra, höfuðborgina og næsta nágrenni hennar, þar sem fólksfjölgunin, svo ör sem hún er, skapar og eykur ýmis vandamál, sem verða lítt viðráðanleg af þeim sökum. En það alvarlegasta í þessu efni er auðvitað þó það, að hverju stefnir í vissum landshlutum og raunar mjög víða, þar sem fólkinu fækkar hlutfallslega eða beinlínis, með þeim áhrifum, sem það hefur á ýmsan hátt, lamandi áhrifum, bæði á nútíð og framtíð. Það er þetta vandamál, sem þeim er í huga öllum, sem vilja beita sér fyrir ráðstöfunum eins og þeim, sem í þessu frv. felast. Það, sem kallað er jafnvægi í byggð landsins, er, að landshlutarnir haldi sinni hlutfallslegu fólksfjölgun eða fari sem næst því, ef auðið verður.

Við, sem að þessu frv. stöndum, erum þeirrar skoðunar, að full ástæða sé til þess að koma upp á vegum þjóðfélagsins sérstakri stofnun, sem hafi þetta viðfangsefni, og að sú stofnun eigi ekki minna erindi inn í ríkiskerfið en margar aðrar, sem fyrir eru, heldur meira, að komið verði á fót jafnvægisstofnun, sem hafi tíma og tækifæri og starfskrafta til þess að sinna þessu sérstaka viðfangsefni, og henni verði fengið til þess fé, sem eitthvað muni um. Eins og hv. frsm. minni hl. tók fram, er hér síður en svo um neinar fjarstæðar kröfur að ræða í okkar frv., þó að farið sé fram á, að jafnvægissjóðurinn fái til umráða 1½% af ríkistekjunum. En í þessu ákvæði felst bæði það, að hér er um þó nokkurt fé að ræða og ákvæðið þannig lagað, að með því er tryggt, að það rýrni ekki í þeirri dýrtíð, sem yfir landið gengur.

Ég vakti athygli á því líka við 1. umr. þessa máls, að það, sem í þessu frv. felst, að koma upp slíkri stofnun með þessu viðfangsefni væri ekki neitt sérstaklega íslenzkt uppátæki eða íslenzk hugmynd. Reyndar ætti það ekki að vera verra fyrir það, þó að hugmyndin væri íslenzk. En það er nú svo, að mönnum finnst oft meira í það varið, sem einhverjar aðrar þjóðir hafa fundið upp á og reynt. Og svo er um þetta mál, að hér höfum við fyrirmyndina, þar sem eru frændur okkar Norðmenn. Þeir hafa fyrir mörgum árum komið á hjá sér löggjöf, sem er ekki ósvipuð þeirri, sem hér er gert ráð fyrir, og á ég þar við hina svonefndu Norður-Noregsáætlun og löggjöfina, sem um hana var sett skömmu eftir 1950. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þá áætlun, ég gerði nokkra grein fyrir henni hér við 1. umr., en m.a. var samkv. þeim lögum um Norður-Noregsáætlunina sett upp sérstök stofnun, eins konar jafnvægisstofnun fyrir Norður-Noreg, svokallaður uppbyggingarsjóður Norður-Noregs, og hefur hann sérstaka stjórn, og þessum sjóði voru fengnar tekjur þá þegar, allmiklar á okkar mælikvarða og raunar á þeirra líka. Jafnframt voru í lögum sett sérstök ákvæði, sem stuðluðu að því, að fjármagn væri veitt úr öðrum hlutum landsins inn í Norður-Noreg. Af skýrslum, sem um þetta mál hafa verið birtar nú á síðustu árum, er auðsætt og kemur glöggt fram, að af þessu hefur orðið mikill árangur. Þar eru birtar tölur, sem bera það með sér, bæði hvað miklu fjármagni hefur verið varið í uppbyggingarsjóðinn og eins hversu mikið fjármagn hefur verið veitt eftir öðrum leiðum inn í þennan landshluta og menn hafa skýrslur um. En þetta dæmi frænda okkar, Norðmanna, og sá árangur, sem af því hefur orðið, ætti að vera okkur hvatning um að fara einmitt þessa leið til þess að stuðla að jafnvægi í byggð okkar lands.

Það er stundum talað um þetta mál eins og þjóðfélagið sé með því að gera slíkar ráðstafanir til að halda við byggðinni í landinu að leggja á sig einhverja fórn, það sé verið að fórna fjármunum frá þjóðfélaginu, og þá gera menn sér stundum í hugarlund, að það sé fjárhagslega óhagkvæmara fyrir þjóðina að hafa byggð sína víðs vegar um landið og stunda þar framleiðslu. Ýmsir standa í þeirri meiningu, að framleiðslan sé alltaf bezt og hagkvæmust í þéttbýlinu, bæ eða borg, og hefur þetta hver eftir öðrum. En reynslan sýnir bara og dæmin sýna það svo glöggt, að það verður ekki um það villzt, enda hefur það hvað eftir annað og þrásinnis legið fyrir hér á borðum okkar þm., að ýmis lítil byggðarlög úti um landið standa þannig, þegar dæmið er gert upp, að framleiðsla þeirra er tiltölulega mjög mikil miðað við hvern íbúa. Alveg glögglega kemur þetta fram í skýrslum um sjávarafla, sem eru gerðar nú orðið um alla útgerðarstaði á landinu, hvað framleiðslan á sjávaraflanum og sjávarvörunni er hlutfallslega mikil, miðað við íbúatölu þessara staða. Og þó að það dæmi hafi ekki verið gert sérstaklega upp, þá veit ég, að dæmi um þetta eru líka fyrir hendi í sveitum landsins, ekki kannske alls staðar, en a.m.k. sums staðar, og geta orðið fleiri, þegar sveitirnar hafa fengið þá aðstöðu til framleiðslu, sem þær þurfa að fá og munu fá í framtíðinni, ef rétt verður stefnt. Það er auðvitað ekki ætlan okkar, sem að þessu máli stöndum, að hvergi á landinu megi leggjast niður byggt ból, en að því þarf að stefna, að jafnvægi megi haldast milli landshlutanna.

Það getur verið, þó að ég eigi bágt með að trúa því, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, verði fellt í þetta sinn. Ég vil ekki trúa því að svo stöddu, að svo verði, og má vel vera, að ýmsir eigi eftir að athuga sinn gang betur, eins og hv. frsm. meiri hl. hefur gert sýnilega, þó að hann kunni nú að greiða atkv. með dagskrá sinni. En þó að þetta mál kunni að verða fellt nú, þá mun það verða tekið upp á ný og að því mun verða unnið, ekki aðeins hér á Alþingi, heldur um allt land. Það kunna margir að reynast tregir og telja eitt og annað óþarft í þessu máli, eins og hv. meiri hl. kemst að orði í nál. sínu. En því skal ekki trúað, að Íslendingum séu svo ill örlög sköpuð að leggja land sitt í eyði að meira eða minna leyti nú á tækniöld, þegar íslenzkir möguleikar eru að komast á það stig að verða miklu meiri en þeir hafa áður verið, enda mundi það þá sannast, að ef landsbyggðin hyrfi, yrði þjóðerninu og sjálfstæðinu hætt, svo að ekki sé meira sagt.

Ég vil, eins og ég sagði, þrátt fyrir afstöðu hv. meiri hl., enn vona, að þetta frv. hljóti nú á þessu þingi fylgi til samþykktar. En verði það ekki, veit ég, að það verður samþ. síðar, kannske í enn breyttri og bættri mynd, í þessum sal, og þá kannske af einhverjum þeirra sömu manna, sem nú kunna að telja slíkar jafnvægisráðstafanir óþarfar, ef þeir þá eiga hér sæti, því að það, hvort byggja skuli landið og hvernig það skuli gert, verður í náinni framtíð mál málanna í þessu landi.