28.03.1963
Neðri deild: 61. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (2027)
84. mál, jafnvægi í byggð landsins
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að gera aths. út af þeirri ræðu, sem hv. 1. þm. Vestf. flutti, þegar mál þetta var hér síðast til umr. Hann þóttist vera að segja sögu af máli, sem fjallað var um á þingi fyrir 7 árum, en það kom þar greinilega fram, að hann reyndist mjög óábyggilegur sögumaður. Hann var þar að tala um stjfrv. um jafnvægi í byggð landsins, sem lagt var fram í Ed. Alþingis af þáv. ríkisstj. 20. marz 1956, en þetta var aðeins 8 dögum fyrir þingslit. Það var þáv. forsrh., Ólafur Thors, sem hafði framsögu af hálfu stjórnarinnar um þetta mál. Það var tekið til 1. umr. með afbrigðum þann sama dag, sem það var lagt fyrir hv. Ed., og vísað til 2. umr. og fjhn. Hv. þm. Barð. þáv. og nú 1. þm. Vestf. átti þá sæti í fjhn. Ed., og hann var frsm. hennar í málinu. Við 2. umr. bar n. fram 7 brtt. við 7 greinar frv. og fékk þær allar samþykktar. Við 3. umr. flutti fjhn, enn 3 brtt. og fékk þær samþykktar. Aðrir fluttu ekki brtt. við frv. í hv. Ed. Frv. með áorðnum breytingum var útbýtt hér í Nd. 26. marz og var tekið til umr. sama dag með afbrigðum og vísað til fjhn. Strax hinn næsta dag var frv. tekið á dagskrá til 2. umr., áður en fjhn. hafði unnizt tími til þess að halda fund um málið og skila áliti. Nokkurt hlé varð á þeirri umr., en henni var fram haldið fyrir hádegið 28. marz, og þá lá fyrir álit frá fjhn. Ég bar fram eina brtt. við frv. og fékk hana samþykkta. Aðrir dm. báru fram brtt., og voru tvær þeirra samþykktar. Það var ekki nafnakall um þessar till., sem samþ. voru, og því ekki hægt að sjá, hvernig atkv. féllu. En það er augljóst, að það var ekki mikil andstaða gegn brtt., því að ekki komu fram nema 4–8 mótatkv. gegn þeim í d., þar sem áttu 35 þm. sæti. Frv. með áorðnum breytingum var svo vísað til 3. umr., en það var ekki tekið á dagskrá framar, enda þinglausnir þann sama dag, 28. marz. Forseti d. var Sjálfstæðisflokksmaður og hefði að sjálfsögðu getað tekið málið á dagskrá til 3. umr., ef mikill áhugi hefði verið hjá honum og flokksbræðrum hans á að koma málinu fram. Og það hefði verið ákaflega auðvelt fyrir hæstv. forsrh. þáv., sem var formaður Sjálfstfl., að fresta þinglausnum um einn dag, ef nauðsynlegt var, til þess að koma málinu í höfn.
Hvað sést af því, sem hér hefur verið rakið samkv. þingtíðindum? Það, að frv. var lagt fyrir þingið aðeins átta dögum áður en þinginu lauk, en þingið stóð alls í 155 daga. Er það þá ekki fyrst og fremst þáv. ríkisstj. að kenna, að frv. dagaði uppi, en forsrh. hennar var formaður Sjálfstfl., eins og ég hef áður bent á? Hvers vegna lagði hann málið ekki fram fyrr en á allra síðustu dögum þingsins?
Hv. 1. þm. Vestf. var með ásakanir á mig í sambandi við þetta mál. Ég get alls ekki viðurkennt, að ég sé ámælisverður fyrir að bera fram eina brtt. við frv. Eða hvað mætti þá segja um hv. 1. þm. Vestf. sjálfan, sem bar fram ásamt öðrum fjhn.-mönnum í Ed. 10 brtt. við frv. á síðustu dögum þingsins og fékk þær samþykktar, og þó var hann annar af tveimur aðalhöfundum frv.? Hv. þm. hefði átt að spara svikatal sitt um okkur framsóknarmenn, en það hefur ekki við rök að styðjast, og þeim ummælum hans vísa ég heim til föðurhúsanna sem ómerkum orðum.
Þá nefndi hv. 1. þm. Vestf. frv. um þetta mál, sem sjálfstæðismenn báru fram á þinginu 1956 þegar þeir voru komnir í stjórnarandstöðu. Í því frv., sem var um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, var lagt til, að ríkið legði til 15 millj. á ári næstu fimm árin. En þetta var sama upphæð sem þáv. stjórnarflokkar, sem stóðu að vinstri stjórninni, tóku inn á fjárl. 1957, 15 millj. til atvinnuaukningar. Framlagið hefði ekkert aukizt á því ári, þótt frv. sjálfstæðismanna hefði verið samþykkt. Þeir endurfluttu þetta síðan á næsta þingi og ég held í þriðja sinn einnig óbreytt.
Árið 1957 var fjárveitingin til þessara mála, þ.e.a.s. til atvinnuaukningar, 15 millj., eins og ég hef áður vikið að. Og þá var, eins og kunnugt er, vinstri stjórnin við völd. Næsta ár, 1958, síðasta ár vinstri stjórnarinnar, var fjárveitingin á fjárl. til atvinnuaukningar 13½ millj. En á næsta ári, 1959, þegar núv. stjórnarflokkar eru komnir til valda, er upphæðin strax lækkuð í 10 millj. og hefur svo haldizt síðan þrátt fyrir stórkostlega skert verðgildi peninganna.
Viðhorf stjórnmálaflokkanna til þessa máls, jafnvægis í byggð landsins, sést bezt á því, hve mikið þeir leggja fram til þeirra mála, þegar þeir eru við völd. Árið 1956 var Sjálfstfl. í stjórn með framsóknarmönnum. Þá voru aðeins veittar 5 millj. til að bæta úr atvinnuörðugleikum í landinu. 1957 eru sjálfstæðismenn farnir úr stjórn, og þá er fjárupphæðin þrefölduð, þá er hún hækkuð í 15 millj. En þegar þeir fara að hafa áhrif á gang mála aftur og stjórn landsins 1959, þá er þetta lækkað í 10 millj., eins og ég hef þegar bent á. Og þannig hefur upphæðin verið. Hún er aðeins 10 millj., fer nú í atvinnubótasjóð og það eru langtum verðlægri krónur en áður. Það mun láta nærri, að fjárveitingin til þessara mála sé nú að verðgildi aðeins um 1/3 af því, sem var fyrir daga núv. ríkisstj. Það mun láta mjög nærri.
Framkoma Sjálfstfl. í þessu máli hefur verið þannig frá upphafi, eins og hér hefur nokkuð verið rakið, að hann hefur engin efni á því að beina ásökun til annarra fyrir þeirra þátt í málinu.
Hv. 1. þm. Vestf. hefur talið sig áhugamann um jafnvægi í byggð landsins. Hann hefur nú tækifæri, hann hefur enn tækifæri til að sýna þann áhuga í verki með því að herða sig upp og greiða atkv. gegn frávísunartill. flokksbræðra sinna, sem þeir telja rökstudda, en er órökstudd, og styðja frv. okkar framsóknarmanna.