29.03.1963
Neðri deild: 62. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (2036)

84. mál, jafnvægi í byggð landsins

Eysteinn Jónsson:

Ég hafði ekki ætlað að bæta miklu við það, sem ég sagði varðandi þetta mikla mál um daginn, en tel þó rétt að bæta nokkru við, vegna þess sérstaklega, sem hv. 3. þm. Austf. (JP) lagði til málanna, en hann vék nokkuð að mínum málflutningi í sambandi við það, sem hann sagði hér áðan. En áður en ég kem að því, vil ég mótmæla þeim staðhæfingum, sem hafa komið fram af hendi hv. 1. þm. Vestf. (GíslJ) í þá stefnu, að ég hafi brugðizt í einhverjum samningum varðandi lögfestingu laga eða frv. um jafnvægi í byggð landsins. Þetta eru allt hugarórar hv. þm., sem virðast koma upp hjá honum, þegar hann fer að ræða þessi mál og aftur og aftur, enda þótt þetta hafi verið leiðrétt rækilega, eins og hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG) gerði m.a. nú í þessum umr. Virðist vera alveg þýðingarlaust að reyna að fá hv. þm. til að öðlast á þessu réttan skilning.

Þessar ásakanir hans í minn garð eru gersamlega úr lausu lofti gripnar, eins og ég held nú raunar að hv. þm. hljóti að vera algerlega ljóst og eins og sést af málsmeðferðinni, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. rakti hér í þessum umr. Hv. 1. þm. Vestf. átti m.a. sinn þátt í því að tefja og flækja það mál með því að flytja við það margar brtt., eins og þráfaldlega hefur verið upplýst, og það voru forráðamenn hans flokks, sem vildu ekki láta frv. ganga fram, eins og það var, þegar þingviljinn hafði komið fram í málinu. Þegar það var komið í ljós, hver þingviljinn raunverulega var í málinu og hvernig Alþingi vildi hafa málið, þá vildu forráðamenn hans flokks málið feigt og létu það daga uppi, því að þeir höfðu aðstöðu til þess í samráði við þá forseta, sem þeir þá höfðu samband við. Þannig er þetta rétt, og það er satt að segja hart að búa undir brigzlum hv. þm. í sambandi við þetta.

Þá voru það nokkur orð út af því, sem hv. 3. þm. Austf. sagði. Það er kannske ekkert einkennilegt, þó að þessi hv. þm. hafi nokkuð óvenjulegar skoðanir á þessu frv., þegar tekið er tillit til ýmislegs, sem frá honum hefur komið um önnur mál. Þá er heldur ekkert einkennilegt, þó að hann líti nokkuð öðrum augum á málin en framsóknarmenn, m.a. þetta mál. T.d. rekur mig minni til þess, að þessi hv. þm. hefur lýst því mjög skilmerkilega yfir hér á Alþingi, að það hafi orðið bændastétt landsins til mikils tjóns, að vextir af lánum til landbúnaðarins skuli ekki fyrir löngu hafa hækkað frá því, sem þeir lengi voru, og lánstíminn styttur. Maður, sem hefur svona skoðanir og heldur þeim fram, — það þarf náttúrlega enginn að kippa sér upp við, þó að hann hafi sérkennilegar skoðanir á fleira, enda kom það mjög í ljós í sambandi við þetta frv., því að honum fannst þetta vera skringilegt mál, það væri skringilegt, ef Alþingi aðhylltist þetta frv., vegna þess að Alþingi hefði fyrir nokkru sett löggjöf um atvinnubótasjóð, þar sem gert væri ráð fyrir 10 millj. til atvinnubótastarfsemi í landinu.

Hv. þm. finnst það sem sé skringilegt, ef Alþingi skyldi finna upp á því að samþ. fjárveitingu upp á á að gizka 33 millj., sem gengi til stuðnings uppbyggingu atvinnulífsins úti um land, til viðbótar þeim 10, sem gert er ráð fyrir að ráðstafa á þá staði, þar sem sérstakt atvinnuleysi á sér stað. Það væri sannarlega skringilegt, — eða hitt þó heldur, — ef Alþingi fyndi nú upp á því að samþ. slíka löggjöf. Sennilega mundi þessum hv. þm. þykja mikil ofrausn að bæta þeirri fjárhæð við þær 10 millj., sem stjórnarflokkarnir af sínum stórhug, sem hv. þm. var að lýsa, hafa komið sér saman um að væri mátulegt til þess að stuðla að uppbyggingu atvinnulífsins í landinu og þeir kalla atvinnubótasjóð.

En hv. þm. virðist alls ekki hafa skilið, að hér er um annað mál að ræða en hitt. Hér er ekki aðeins um að ræða að veita nokkurt fé í þau pláss, þar sem atvinnuleysi er, eins og er meginstefna laganna um atvinnubótasjóð, heldur er hér gert ráð fyrir því, að fram eigi að fara skipulegur stuðningur við uppbyggingu byggðarlaga, þar sem skilyrði eru góð, en fjármagn vantar. Og það alveg jafnt fyrir því, þó að í þessum byggðarlögum kunni að vera nægileg atvinna fyrir það fólk, sem þar er nú.

Það er ekki stefna þessa frv., að það eigi að halda að sér höndum í öllum þeim byggðarlögum, þar sem atvinna er nóg. Nei, það er hugsað miklu hærra og lengra. Það er hugsað til þess að styðja að vexti þessara byggðarlaga, ef skilyrði eru góð, enda þótt fólkið kunni að vera fátt og ekki megnugt þess sjálft að leggja fram nægilegt fjármagn. Það er þetta, sem er meginstefna þessa frv., og í þessu tilliti sker það sig frá meginstefnu löggjafarinnar um atvinnubótasjóðinn, fyrir nú utan það, að hér er gert ráð fyrir miklu stórfelldari fjármálastarfsemi en í þeim lögum.

Ég hygg, að hv. þm. muni fáa finna, sem mundu telja það skringilegt, að Alþingi samþ. þetta frv. Ég held, að það muni ekki margir vera hv. þm. sammála um, að það væri eitthvað skringilegt við að auka stuðninginn við uppbygginguna víðs vegar um landið á þessa lund.

Þá fór hv. þm. að ræða um, að þetta frv. væri mjög sérkennilegt og sérkennandi fyrir framsóknarmenn og framsóknarandann, eins og hann orðaði það, og allt væri það mjög ólíkt hinum sanna sjálfstæðisanda, eins og hv. þm. komst að orði. Það var heldur óljóst hjá hv. þm., hvað hann var að fara, eða hugsunin í þessu. En þó kom þar eitt atriði greinilega fram, og hann nefndi það beinlínis til þess að sýna, hvað þessi hugsunarháttur allur væri gerólíkur og þessir „andar“ ólíkir, og það var, að í þessu frv. væri gert ráð fyrir stjórn í þessum málum og áætlunargerð og skýrslusöfnun til þess að komast eftir því, hvernig ástatt væri. Og svo sagði hann, að það væri stefnan, að það þyrfti að hugsa, sagði hv. þm., — á því virtist hann vera mjög hissa, — að hugsa og fólkið ætti að bíða. Hv. þm. fordæmir sem sé, að það sé sett upp heildarforusta fyrir þessi mál, sem reyni að kynna sér ástandið í byggðarlögunum með rannsókn og skýrslusöfnun og reyni síðan í samráði við forráðamenn byggðarlaganna að gera áætlanir um, hvað hyggilegt sé að gera. Þetta finnst hv. þm. fyrirlitlegt og í framsóknaranda, sem hann telur mjög svo frábrugðinn sjálfstæðisandanum. Ég efast um það, að margir séu hv. þm. sammála um, að þetta séu óskynsamleg vinnubrögð, og ég býst sannast að segja við því, að það yrðu fleiri, ef til kemur, sem aðhyllast einmitt þennan framsóknaranda, sem þarna kemur fram, telja skynsamlegt að hafa þetta einmitt á þá lund, sem gert er ráð fyrir í frv.

En það er annað líka í þessu, sem mig langar til að minnast á, þó að þetta sýni náttúrlega, hvað þetta skraf hv. þm. er í raun og veru mikil fjarstæða, og það er samkvæmnin í þessu öllu saman — eða hitt þó heldur, því að hv. þm. lýsti því yfir, að hann væri sérstaklega ánægður með hina rökstuddu dagskrá, sem fjallaði um að vísa frv. frá, hann væri alveg sérstaklega ánægður með hana og teldi hana eðlilega. En hvað er aðalatriðið í þessari rökstuddu dagskrá? Aðalatriðið í þessari rökstuddu dagskrá er það, að stjórnin sé búin að búa til framkvæmdaáætlun, og einmitt vegna þess, að það sé til þessi áætlun og væntanlega öll sú skýrslusöfnun, sem þar liggur á bak við, þá sé ástæða til og raunar sjálfsagt að vísa þessu máli frá. M.ö.o.: hv. þm. fordæmir þá stefnu frv. að láta fara fram rannsóknir, skýrslugerðir ég athuganir og gera áætlanir, en vill svo vísa frv. frá með tilliti til þess, að það hafi verið gerð — ekki nein smááætlun, skilst manni, heldur áætlun mörg ár fram í tímann. Sennilega hafa þar átt sér stað einhverjar skýrslusafnanir og einhverjar rannsóknir og einhver vinna verið lögð í það, og einhverjir hafa beðið á meðan o.s.frv. En það er svo að heyra, að hv. þm. virðist þetta ákaflega eðlilegt, og allt í einu orðinn sjálfstæðisandi að láta gera rannsóknir og skýrslur og áætlanir. Mér skilst, að í því málefnalega klæðleysi, sem bagar stjórnarflokkana um þessar mundir, ætli þeir helzt að skýla sinni málefnalegu nekt með þessari framkvæmdaáætlun, sem sagt hefur verið að unnið sé að, en enginn hefur séð enn þá.

Þetta er ákaflega einkennilegur hugsunarháttur og einkennilegur talsmáti yfirleitt hjá hv. þm. En þetta styður þó það, sem í raun og veru allir vita, að stjórnarflokkarnir muni ekkert meina með þessari framkvæmdaáætlun. Þeir hafa sjálfsagt sett eitthvað á blað, og kannske kemur það, þegar hæfilega stutt er orðið eftir til kosninganna, eins og ég sagði um daginn, til þess að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því, að það verði staðið við mikið af því hvort sem er á þeim tíma, sem líður, þangað til menn setja atkvæðaseðlana ofan í kjörkassana. Og sannarlega styður þetta skraf hv. þm. og þessi fyrirlitningartónn hans þegar stungið er upp á að hafa skipuleg vinnubrögð og gera áætlanir, hugboð manna um það, hversu mikið muni vera að marka þessi áætlunarstörf, sem stjórnarflokkarnir telja að verið sé að vinna að á þeirra vegum og þeir ætla að láta gefa út í vor sem kosningaloforð.

Eftir að hv. þm. var búinn að lýsa meginstefnu frv. og fordæma hana á þessa lund, tók hann sér fyrir hendur að ræða um atvinnuaukningarféð yfirleitt. Og það var auðheyrt, að honum var mikið niðri fyrir í þessu sambandi að gera sem allra minnst úr því gagni, sem atvinnuaukningarféð hefði gert, t.d. á Austurlandi. Og hugsunin er auðvitað sú, að vegna þess að atvinnuaukningarféð gerði í raun og veru ekki svo mikið, þá er það náttúrlega meinlaust, þó að það sé skorið niður, eins og gert hefur verið. Þetta er rödd eins af þeim mönnum, sem vita það upp á sig, að þeir hafa dregið stórkostlega úr þessari starfsemi, og það þvingar þá. Þá kemur þetta út á þennan hátt, að þó að þeir í öðru orðinu séu að játa, hvað þessi starfsemi er þýðingarmikil, þá játa þeir sekt sína óbeint í hinu orðinu með því að taka sér fyrir hendur að lýsa því, hvað atvinnuaukningarstarfsemin hafi í raun og veru orðið að litlu gagni.

En nú vil ég alls ekki álíta, að það, sem hv. þm. sagði um gagnsemina af atvinnuaukningarfénu á Austurlandi, stafi af því, að hann vilji segja ósatt um það, alls ekki, ég vil ekki leggja það þannig út, heldur stafar það sumpart af þeirri sektartilfinningu, sem hv. þm. hefur og ég var að lýsa áðan, en aðallega stafar það af því, að hv. þm. er þessu gersamlega ókunnugur, þekkir ekkert til þessara mála. Hann er gersamlega ókunnugur því, hvaða áhrif atvinnuaukningarféð hafði í sjávarplássunum á Austurlandi, og hefur því engin skilyrði til að dæma um það. Ég vil hiklaust halda því fram, að hann hefði alls ekki lagt út í að gera svo lítið úr þýðingu atvinnuaukningarfjárins fyrir Austurland, ef hann hefði vitað betur. Hann tók eitt dæmi sérstaklega um þessi efni, og það var, að það hefði talsvert atvinnuaukningarfé farið til þess að styðja togaraútgerðina, eftir að orðið var á henni verulegt rekstrartap. Þetta er alveg rétt hjá hv. þm. En ég býst við því, að hv. þm. sé gersamlega ókunnugur því, að togaraútgerðin varð stórkostleg lyftistöng fyrir Austurland. Það var mikið fjármagn, sem fluttist inn í byggðarlögin á Austurlandi vegna starfsemi togaraútgerðarinnar bæði í Neskaupstað, á Eskifirði og Fáskrúðsfirði, stórfellt fjármagn, og breytti mjög verulega til bóta viðhorfinu í þessum plássum. Hitt er svo annað mál, að þegar rekstrarafkoma togara fór stórversnandi, þá gáfust þessi byggðarlög upp á togaraútgerðinni, en þessi starfsemi skildi eftir stórkostlega fjármuni í þessum byggðarlögum í þeim tekjum, sem fólkið hafði haft, og breytti grundvellinum í þessum plássum verulega til bóta. Og í framhaldi af togaraútgerðinni var byggður upp annar atvinnurekstur, þar sem voru stórir bátar og stór fiskiskip, og sá atvinnurekstur var byggður upp með verulegum stuðningi af atvinnuaukningarfé, á meðan eitthvað munaði um þau framlög, sem þar var að fá til uppbyggingar í atvinnurekstrinum, en ekki eins og núna, þegar þetta er allt það klipið við nögl að sáralitlu munar til eða frá. Ég gæti farið með hv. þm. og skal reyna að gera það í vor, ef við verðum samferða eitthvað á Austurlandi, og bent honum á tugi dæma. Ég skal benda honum á tugi atvinnufyrirtækja á Austurlandi, sem eru upp komin m.a. fyrir stuðning af atvinnuaukningarfé og annan þann stuðning, sem veittur var til þessarar uppbyggingar, áður en núverandi stjórnarstefna var tekin til framkvæmda. Það eru t.d. ófáir ungir sjómenn á Austurlandi, sem hafa eignazt góð skip og báta vegna atvinnuaukningarstarfseminnar, eins og hún var, og treystu sér út í útgerð, meðan vaxtapólitíkin og lánapólitíkin var ólík því, sem hún er nú. Það er bæði um að ræða, eins og ég sagði, skip og báta og ýmiss konar framkvæmdir aðrar í þessum byggðarlögum. Og þar væri ólíkt um að litast nú í dag, ef atvinnuaukningarfjárins hefði ekki notið við og annarrar fyrirgreiðslu, sem þá tíðkaðist.

Hv. þm. nefndi líka Seyðisfjörð í þessu sambandi og sagði, að þar hefði átt að byggja upp, svo að um munaði, en þar hefði samt ýmislegt gengið stirt, en nú væri þar allt í blóma. Á því gætu menn séð, að atvinnuaukningarféð væri lítils virði. En það er eins á Seyðisfirði og öðrum sjávarþorpum á Austurlandi, að áður en síldin fór að aukast þar úti fyrir í stórum mæli, var uppbyggingin þar byrjuð, m.a. með stuðningi af atvinnuaukningarfé, og það er hægt að benda núna á blómlega útgerð á Seyðisfirði, sem var byggð upp m.a. með stuðningi af atvinnuaukningarfé, útgerð, sem hefur orðið stórkostleg lyftistöng fyrir byggðarlagið, og þannig er raunar ástatt um þann heimarekstur, sem bezta raun gefur einmitt nú á þeim stað. En hv. þm. veit þetta bara ekki. Hann er svo ókunnugur í þessum byggðarlögum. Hann veit þetta ekki og þekkir ekki. En þá ætti hann heldur ekki að vera að færa fram fullyrðingar um þessi mál.

Hann sagði svo, að núna væri blómlegt atvinnulíf í sjávarplássunum á Austurlandi, og þá var undanskilið í hans málflutningi: jafnvel þótt dregið hefði verið úr atvinnuaukningarfénu, og þess vegna væri allt í lagi, að því er manni virtist, og það væru rök fyrir því, að þetta frv. væri með öllu óþarft.

En hvers vegna er blómlegt atvinnulíf þessi missirin í sjávarplássunum á Austurlandi? Ég held það væri ákaflega hyggilegt fyrir þm. að leiða einmitt hugann að því. Það er náttúrlega í fyrsta lagi vegna þess, að síldin hefur í vaxandi mæli lagt leið sína á miðin fyrir Austurlandi. Þar hefur orðið stórkostleg síldveiði síðustu missirin og langt umfram það, sem áður hafði þekkzt um langa hríð. Kannske hv. þm. ætli að taka sér fyrir hendur að halda því fram, að það sé stjórnarstefnan, sem sé undirrót þess, að síldartorfurnar hafa lagt leið sína meira en áður á miðin fyrir Austurlandi. Ég veit það ekki, en maður hefur séð í aðalmálgagni stjórnarinnar upphrópanir um, að góðærið væri ríkisstjórninni að þakka. Ég veit ekki, hvort hv. þm. meinar það í raun og veru með þessu tali.

Ég vil í leiðinni geta þess, að Austfirðingar hafa getað tekið á móti dálitlu magni af síld, náttúrlega aðeins örlitlu broti af því, sem hefði þurft að vera, nú undanfarið til eflingar sínu atvinnulífi og bjargað þannig nokkuð miklum verðmætum líka fyrir aðra. Og það hefur verið tekið á móti þessari síld í verksmiðjum á Austurlandi, sem forráðamenn Sjálfstfl. hafa tekið sem dæmi um alveg sérstaka pólitíska spillingu á undanförnum árum. Og einu sinni var því lýst yfir í útvarpsumræðum í sambandi við bæjarstjórnarkosningar, þar sem talið barst nokkuð almennt að pólitík, að það væri þó alveg víst, að ef sjálfstæðismenn kæmust til valda, þá skyldu ekki verða byggðar síldarverksmiðjur á hverri vík á Austurlandi, eins og verið væri að gera á vegum Eysteins Jónssonar. Sem sagt, þessar síldarverksmiðjur á Austurlandi, sem fólkið í byggðarlögunum var að reyna að koma sér upp með ríkisábyrgðarstuðningi einum saman og með því að reyta saman lánsfé, — þessar síldarverksmiðjur voru nefndar til dæmis um pólitíska spillingu. En það eru nú samt þær, sem ásamt hinum miklu síldargöngum hafa orðið að verulegri undirstöðu í atvinnulífi þessa fjórðungs og valda því, að þar er nú atvinnulíf með talsverðum blóma.

Það er víst alveg óhætt að fullyrða, að hvorki síldargöngurnar sjálfar né þessar verksmiðjur, sem hafa lyft undir, eru verk sjálfstæðismanna eða núverandi stjórnar.

Það væri líka ástæða til í þessu sambandi að minna á, hvernig gengið hefur að fá stjórnarvöldin núna til að opna augun fyrir því, hvað raunverulega þarf að gera á Austurlandi, til þess að hægt sé að taka þar á móti meiri síld og notfæra sér þau gífurlegu verðmæti, sem þar eru úti fyrir í síldargöngunum. Það gæti verið kapítuli út af fyrir sig, hvernig hefur orðið að toga það litla, sem gert hefur verið, út með töngum.

Ástæðan fyrir aukinni velmegun í þessum sjávarplássum er sem sagt í fyrsta lagi stórauknar síldveiðar og svo útfærsla landhelginnar og stóraukin fiskigengd. Kannske hv. þm. ætli að halda því fram, að útfærsla landhelginnar hafi verið verk núv. þingmeirihl. eða núv. ríkisstj. og sé þáttur í viðreisninni. Ég veit ekki, hvort hann vill halda slíku fram. Ég held, að hann treysti sér ekki til þess.

Landhelgin var færð út sumarið 1958, og flokkur hv. þm., stærsti flokkur landsins, neitaði að eiga þátt í útfærslunni og bera ábyrgð á henni með hinum flokkunum. Og hann valdi sér það hlutskipti sumarið 1958 að gera landhelgisútfærsluna tortryggilega með öllu hugsanlegu móti, einmitt það örlagasumar, þegar Bretarnir voru að gera það upp við sig, hvort þeir ættu að ráðast inn í landhelgina og reyna að brjóta útfærsluna niður með herskipavaldi eða ekki. Á þessum örlagaríku mánuðum mætti t.d. formaður Sjálfstfl. á fundi á Austurlandi og lét hafa það eftir sér með gleiðletraðri fyrirsögn í blöðum Sjálfstfl., að útfærslan væri fyrst og fremst málefni kommúnista. Það var stuðningurinn. Það átti víst að sýna Bretunum, þegar þeir voru að gera þetta upp við sig um sumarið, að það mundi ekki vera erfitt að brjóta þessar ráðstafanir niður. Sams konar yfirlýsingar voru látnar dynja í Morgunblaðinu dag eftir dag, og aðalritstjóri hlaðsins var Bjarni Benediktsson, sem nú er formaður Sjálfstfl. og dómsmrh. Síðar varð það, þegar Bretarnir réðust inn og almenningsálitið varð sterkt og andúðin reis í móti því, að þá þorðu forráðamenn Sjálfstfl. ekki annað en láta undan síga og sneru við blaðinu, en ekki fyrr. Þá fóru þeir að sverja, að þeir væru ekki verri en aðrir í stuðningi við þetta merka mál, mundu standa sig fullkomlega til móts við aðra, og kæmi aldrei til greina nein tilslökun í nokkra átt.

Síðan var kosið tvisvar, og þessar yfirlýsingar stóðu á meðan. En þegar búið var að kjósa, þá var einfaldlega gerður samningur um að hleypa Bretunum inn í landhelgina aftur, og er af því mikil saga, sem ég skal ekki rekja hér.

En nú er ekkert líklegra en sama sagan endurtaki sig, ef þjóðin lætur þá hafa hreinan meiri hl. nú við þessar kosningar. Þá gæti innfærsla landhelginnar vegna Breta orðið framlengd og íslenzku togurunum sennilega hleypt inn á bátamiðin í leiðinni. A.m.k. væri það í fullu samræmi við þær bollaleggingar, sem áttu sér stað hér í heyranda hljóði á Alþingi um það efni í fyrravetur og ekki voru látnar niður falla, fyrr en samþykktaralda reis um allt landið gegn því. Þá var það látið í skúffuna í bili. Sem sagt, önnur aðalástæðan fyrir aukinni velmegun í byggðarlögum Austurlands er útfærsla landhelginnar.

Þriðja ástæðan fyrir aukinni velmegun í þessum plássum er sú uppbygging á skipaflotanum og bátaflotanum á Austurlandi, sem orðin var, áður en núv. stjórnarflokkar komu til og byrjuðu að gera sínar ráðstafanir með því að innleiða okurvexti, óðadýrtíð þá, sem menn eiga nú við að búa með hverri gengislækkuninni á fætur annarri, lánasamdrátt og alveg sérstakar ráðstafanir til þess að draga úr öllu því, sem átti að ganga til að auka uppbygginguna í þeim byggðarlögum, þar sem fjármagn var lítið og menn höfðu ekki fullar hendur fjár. M.ö.o.: þetta var gert, áður en þeir tóku upp þessa stefnu, sem þeir kalla efnahagslega fjárfestingu. En það er sú stefna að draga úr öllum stuðningi við þá, sem hafa minna fé, sem áður var látinn í té með atvinnuaukningarstarfsemi, með lágum vöxtum og öðru slíku. Þessu hefur öllu verið breytt, og afleiðingin er sú, að það er tæpast hugsanlegt núna, að ungir sjómenn geti komizt yfir báta og skip af sæmilegri stærð. Það eru orðnir svo gífurlegir fjármunir, sem menn þurfa að leggja fram úr eigin vasa til að komast yfir þessi tæki, og búið að skera svo stórkostlega niður þann stuðning, sem áður var veittur, m.a. með framlögum af atvinnuaukningarfé, að það er tæpast hugsanlegt, að ungir og dugmiklir sjómenn geti komizt inn í útgerðina sjálfa.

Þannig er búið að fara með þessi mál. Svo kemur þessi hv. þm. og segir, að uppgangur á Austurlandi muni eiga rætur sínar að rekja til þeirrar skynsamlegu efnahagsmálastefnu, sem hafi verið tekin upp.

Ég hafði hér í fyrra dæmi um þessi mál, sem sýndi, hvernig það er orðið nú fyrir vinnandi fólk að komast inn í framleiðsluna. Ég tók dæmi af skipi, hvað það kostar nú og hver lán fást og hver vaxtakjörin eru og hvað fæst af atvinnuaukningarfé, og bar það saman við, hvernig ástatt var um þessi mál, áður en breytt var um efnahagsmálastefnuna. Og það duldist engum, sem það dæmi sá, að þar voru sýndir tveir heimar: annars vegar sá heimur, sem menn lifðu í, áður en yfir skall að þessu leyti, og þannig voru þessi mál vaxin þá, að vinnandi fólk gat komizt inn í framleiðsluna til lands og sjávar, dugmikið fólk. En nú er þetta orðið í raun og veru alveg óhugsandi. Og það er þessi uppbygging, sem varð úti um landið, m.a. á Austfjörðum, áður en þessum skilyrðum var breytt á þessa lund, — það er sú uppbygging, sem nú er mest undirrót þess, að það hefur þó verið hægt að notfæra sér nokkuð aukna síldargengd og aukna fiskigengd vegna landhelgisútfærslunnar. En það er ómögulegt að vita, hvernig þetta fer í framtíðinni, ef ekki tekst að hnika þessum málum neitt til frá því, sem þau eru nú, og það horfir sannarlega ekki vel.

Ég vil í þessu sambandi einnig minnast á einn þátt þessara mála, sem ég hafði hugsað mér að minnast á, ef ég tæki til máls aftur. Það stendur í sambandi við framtíð sjávarplássanna í landinu yfirleitt og uppbyggingu þeirra, og það er íbúðavandamálið. Ég er alveg sannfærður um, að fólksflutningarnir úr þessum byggðarlögum, — ýmsum þeirra þrátt fyrir miklar tekjur, sem fólkið hefur haft síðan síldargengdin jókst svona og fiskigengdin, — að þessir fólksflutningar eiga að þó nokkru leyti rætur sínar að rekja til þess, hvernig ástatt er um íbúðamálin í þessum plássum. Það er sem sagt svo lítið um íbúðarhúsnæði, að menn geta ekki fengið húsnæði á leigu, yfirleitt ekki. Það þýðir, að fjöldinn allur af ungu fólki, sem er að setja niður bú, getur ekki tekið sér staðfestu í þessum byggðarlögum, nema það sé reiðubúið til þess að byggja. Og eins og nú er orðið erfitt að koma upp eigin húsnæði, eins og þeim málum er nú komið, þá verkar þetta þannig, að fjöldinn allur af fólki, sem mundi setjast að í þessum plássum, ef það gæti fengið leiguhúsnæði, fer í þá staði, þar sem leiguhúsnæði er hægt að fá, jafnvel lélegt leiguhúsnæði. Og það er oftast nær hægt að fá einhverja íbúð leigða hér í Reykjavík eða í stóru byggðunum hér við Faxaflóa. Og þangað fer fólkið, fjöldi fólks, sem mundi nú um þessar mundir, síðan landhelgin var færð út og fiskigengdin hefur aukizt og síldargengdin, setjast að í sjávarplássunum víðs vegar um landið, ef það gæti fengið leiguhúsnæði.

Og einn þáttur í þessu frv., sem hv. 3. þm. Austf. finnst svo skringilegt og svo mikil fjarstæða að samþykkja, er einmitt um, að heimilt sé að nota fjármagn atvinnuaukningarsjóðs að einhverju leyti til þess að greiða fyrir byggingu íbúða í þorpunum og kaupstöðunum, sem gæti þá, ef mönnum þætti ástæða til, verið komið upp á vegum bæjarstjórnanna eða sveitarstjórnanna, reyna þannig að skapa grundvöll að því, að unga fólkið, sem hefur ekki tök á því að ráðast strax í byggingu íbúðar, gæti fengið leiguhúsnæði á þessum stöðum.

Það er annað í þessu líka, sem er geysilega þýðingarmikið mál, og það er, að margt fólk vill kynnast plássunum, áður en það ákveður endanlega, hvort það sezt að til frambúðar, og kinokar sér við að leggja strax í byggingu íbúðar, þótt það sé til með að reyna aðsetur í byggðarlaginu. Það er því lífsnauðsyn að reyna að snúa þannig við gangi þessara mála, að fólk, sem þannig er ástatt um, gæti átt kost á því að fá húsnæði á leigu í þessum byggðarlögum. Og einmitt í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að þessi þáttur geti komið inn í atvinnuaukningarstarfsemina.

Hv. 3. þm. Austf. vildi ekki gera mikið úr því, að það hefði verið minnkað atvinnuaukningarféð eða sú starfsemi hefði verið mikið dregin saman. Hann vildi fara mjög létt yfir það. Það hefur verið sýnt svo rækilega fram á það, að það er ekki ástæða til þess fyrir mig að endurtaka það. Ég vil aðeins segja að lokum um þetta atriði, sem er meginatriði málsins, að framlagið til atvinnuaukningar var komið upp í nálega 15 millj. kr. Þegar tillit er tekið til þeirra breytinga, sem orðið hafa á verðgildi peninganna og notagildi þeirra til framkvæmda, a.m.k. báta- og skipakaupa og fleiri slíkra, þá er víst alveg óhætt að segja það, að atvinnuaukningarféð mætti ekki vera núna undir 30 millj., til þess að um hliðstæða starfsemi væri að ræða og áður var. En skammtaðar eru 10 millj. Þetta er í raun og veru orðið að engu, og er vitandi vits verið að gera það að engu. Og í staðinn fyrir þennan stuðning, sem veittur hefur verið, eiga menn svo að fá viðreisnina, eins og hv. þm. í raun og veru sagði: Menn hefðu fengið svo ljómandi góða stefnu í staðinn og skynsamlega efnahagspólitík. Tónninn í hans ræðu var sá, að þar með væri í raun og veru þessi aukastarfsemi, sem verið hefði og raunar hefði litla þýðingu haft, orðin ástæðuminni og ekki yfir neinu að kvarta.

En ég er á því, að meginþorri manna í landinu sé allt annarrar skoðunar, eða réttara sagt, ég veit það, því að viðreisnin hefur ekki gert þessar ráðstafanir að minni nauðsyn, heldur hefur hún margfaldað þörfina fyrir atvinnuaukningarstarfsemina. Það sjáum við bara á því, hvernig það er orðið að koma upp framleiðslufyrirtækjum, íbúðum og öðru, miðað við það, sem áður var. Eða ætlar hv. þm. að halda því fram, að það sé léttara nú að byggja upp úti um landið en áður var, — er það meiningin, — og þess vegna geti menn verið rólegir?

Ætli það sé léttara en áður að koma upp íbúðum, að byggja frystihús, að kaupa skip og báta og þess vegna minni nauðsyn á tilsvarandi atvinnuaukningarstarfi? Nei, öðru nær. Það held ég, að við ættum öll að geta verið sammála um, að það er öðru nær. Það er margfalt erfiðara en áður var.